Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Qupperneq 1
► ^ Karíbahafið: Ahrif Kólumbusar í fimm aldir í ár minnast íbúar Karíbahafsins þess að 500 ár eru liðin frá því Kristófer Kólumbus lagði skipum sínum að landi og í kjölfarið fylgdu hin spænsku yfirráð og áhrif. Kól- I umhus kom við á mörgum eyjum í Karíbahafi í þessari landvinn- ingaferð sem gjörbreytti að lokum heimsmyndinni. Kólumbus tók fyrst land á eynni San Salvador í Bahamaklasanum austanverðum þann 12. október árið 1492. Á Bahamaeyjum verður ýmislegt gert til hátíðarbrigða á þessu ári og má nefna að ágúst- mánuður verður helgaður hinum afríska arfi og í Nassá verður opn- að minjasafn um þær þúsundir þræla sem fluttar voru nauöungar- flutningum frá Afríku. Á eyjunum Trinidad og Tobago verður minnst þeirra kynþátta sem ýmist voru fluttir nauðugir eða settust að viljugir á eyjunum. Tvær kjötkveðjuhátiðir verða haldnar í ár, hin fyrri á hefðbundnum tíma, þann 4. mars, en hin síðari í ágúst- mánuði. Á Jamaíku hafa fornleifa- og sagnfræöingar komið saman en aðaláherslan verður lögð á að kenna börnunum fimm hundruð ára sögu spænskra áhrifa. Kólumbusjarð- settur á ný Aðalhátíðahöldin verða í Dómin- íska lýðveldinu á eynni Hispaníólu. Þar varð sonur Kólumbusar, Diego, landstjóri árið 1509. Kristófer Kól- umbus lést árið 1506, farinn aö heilsu og kröftum og vissi aldrei að hann heföi fundið nýja heims- álfu. Hann var fyrst borinn til graf- ar í Santa Maria de las Cuevas í Sevillu. Sonur hans, Diego, lést árið 1526 og var jarðsettur hjá föður sín- um. Árið 1542 voru jarðneskar leif- ar þeirra beggja fluttar tii Hispaní- ólu samkvæmt eindreginni ósk Kólumbusar. Árið 1940 var byrjað á byggingu minnismerkis, stórum og miklum vita, á háum kletti viö ána Ozama í Dóminíska lýðveldinu. Þangað verða jarðneskar leifar þeirra feðga Eftirlíkingar af skipum Kólumbusar, Santa María, Pinta og Nina. Þarna eru þau til sýnis í höfninni í Palma á Mallorca í september 1990. Áður en þau fóru til Karíbahafsins var þeim siglt milli hafna á Spáni. DV-mynd JJ fluttar, einu sinni enn, við hátíð- lega athöfn þann 12. október. Sama dag blessar Jóhannes Páll páfi sam- komu kaþólskra biskupa og verður messunni sjónvarpað beint um víða veröld til þess að minnast þess að Kólumbus fór þrjár ferðir til Karíbahafsins til þess að kristna indíánana ásamt því að sölsa undir Spán auðæfi þeirra. Siglt í kjölfar Kólumbusar í maí mun floti 500 skipa sigla frá Cadiz á Spáni til San Juan í Púertó Ríkó og í desemher mun svipaður fjöldi skipa sigla frá Palós á Spáni til Bahamaeyja. Eftirlíkingar af skipum Kólumbusar, Santa María, Pinta og Nina, sigla nú milli hafna í Karíbahafinu áður en þau halda til Bandaríkjanna. Koma skipanna hefur ekki vakið hrifningu hjá öll- um því hópar indíána hafa mót- mælt komu þeirra kröftuglega og í Púertó Ríkó voru nokkrir hand- teknir. Fyrir utan þessa tilteknu hátíða- hði verður þessara tímamóta minnst meira og minna í Karíba- hafi, svo og á Spáni en það land er sannarlega í ferðasviðsljósinu í ár. -JJ • Alhliða ferðaþjónusta. • Þrautþjálfað starfsfólk með Fjórtrgóðir mikla reynslu í ferðamálum. Upphqfsreitir • Fullkomið bókunarkerfi sem þegttr þú tetlar útíheim gerir kleift að panta framhalds- flug hvert á land sem er og hótelgistingu um víða veröld. Byrjaðu ferðina í einhverri af f j órum s öluskrifstofum Flugleiða: Hótel Esju, sími: 690 100 Kringlunni, sími: 690 100 Lækjargötu, sími: 690 100 Leifsstöð, sími: 92-50 220 FLUGLEIDIR TRAUSTUR FERDAFÉLAGI Söluskrifstoíur Fludeiða EIS!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.