Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1992. 35 Tölur um snjóþykkt eru tilkynntar af ferðamálayfirvöldum viðkomandi landa Ferðir Skíðaferðir vinsælar: Dalir/Fjöll 55 165 Noregur Dalir/Fjöll 40 150 Geilo 30 50 40 170 Skei/Gausdal 50 40 50 150 Hemsedal 30 35 25 140 Björli/Gudbr.d 30 120 70 110 Lifjell/Vrádal - 50 Norefjell 10 45 Oppdal 50 50 Rauland 30 80 Beitostolen 65 65 85 125 Dombás 50 60 50 150 65 150 90 195 92 145 60 159 Sviss 70 170 Davos 70 140 St. Moritz 120 150 Verbier 40 175 Wengen 43 90 Zermatt 35 120 29 54 50 90 Þýskaland - 40 Garmisch 10 35 15 25 Obertsdorf 20 120 17 2 20 30 St. Englmar 15 30 Frakkland Alpe d'Huez Avoriaz Chamonix Les Arcs Tignes Val d'lsere Val Thorens Meribel Svfþjóð Idre Áre Vallásen Lofsdalen Orsa Grönklitt Mullsjö Sunne Ischgl/Galtur St.Anton Schladning Saalbach Wagrain Zell am See St. Johan Aö sögn Unnar Ólafsdóttur hjá Samvinnuferðum-Landsýn er uppselt í skíðaferðir til Austurríkis þann 15. febrúar og 22. febrúar. Fram til 28. mars verða vikulegar ferðir til Salzburgar á laugardögum. Enn eru óseld sæti í marsmánuði en búast má við að þau seljist fljótlega vegna langvarandi snjóleysis á sunnan- verðu landinu. Ekki hefur snjóað jafnmikið í Austurríki í áratugi og skíðalöndin í toppstandi niður á jafn- sléttu. Það er aðeins ódýrara að fljúga til Austurríkis á skíði heldur en til Ameríku. Reyndar hefur flugverð til Ameríku lækkað töluvert frá því sem áður var og nú er á færi fjölskyldu- fólks að skella sér í skíðaferð til Bandaríkjanna. Vinsælustu staðim- ir em Aspen í Colorado og Veil í Klettafjöllum. Ameríka fyrir þá sem vilja nýbreytni Að sögn Unnar Ólafsdóttur fara fleiri nú til Ameríku og þá helst þeir sem sótt hafa Austurríki heim í ára- tugi og þrá nýbreytni. Helsti ann- marki á skíðaferð til Colorado er hin langa vegalengd sem sumir setja fyr- ir sig en aðrir ekki. Flogið er til Balti- more og gist þar eina nótt á ágætu flugvallarhóteli. Næsta dag er flogið til Denver og þaðan ekið til Aspen þar sem dvahð er í viku eða lengur. Sama gildir um heimfórina. Margir vilja leggja þetta ferðalag á sig því að skíðalöndin í Aspen þykja frábær og aðstaða hin besta. Að sama skapi em skíðalöndin í Veil mjög góð en ferðin þangað tekur líka sinn tíma. Beintflug til Salzburgar Einn helsti kostur Austurríkis sem skíðalands fyrir íslendirtga er beina flugið til Salzburgar á hverjum laug- ardegi. í Austurríki er hægt að velja um dýra og ódýra staði. Ischgl er dæmi um óheyrilega dýran stað þar sem drykkur á bar kostar stórfé enda sækir peningafólk mest þangað. Aðr- ir staðir eru skikkanlegir hvaö verð áhrærir. Ein vika eða tvær Það er nokkuð erfitt að meta hvort sé hagkvæmara að fara til Ameríku eða Austurríkis því það stjómast líka af þeim kröfum sem fólk gerir. Ljóst er að fargjaldið til Bandaríkjanna er hærra því að þar er um að ræða millilandaflug og flug milli borga. Þar munar strax um 18 þúsund á vikuferð og hér er ekki metin gistiað- staðan. Ferðin tíl Colarado kostar minnst 78.500 og fyrir þá upphæð er hægt að fá tveggja vikna sidðaferð í Austurríki. Ein vika í Austurríki getur líka kostað það sama og vikan Austurríki Endalausar brekkur og góður snjór er það sem skíðamaðurinn vill. í Ameríku og gott betur en það. Verð- skíðamannsins hefur ekkert með það lagið fer eftir þeim aðbúnaði sem aö gera hvað mikið hann borgar í menn kjósa sér þegar þeir eru ekki hótelkostnað. í brekkunum. Skíðabrekkan og fæmi -J J Ischgl er óheyrilega dýr staður enda sækir ríka fólkið mest þangað. Selst vel til Austurríkis Ameríka bætir við sig Skíðaferðin kostar mismikið Einnar eða tveggja vikna skíðaferð kostar misjafnlega mikið eftir því hvað menn vilja. Ferðaskrifstofa Guömundar Jónassonar býður tveggja vikna skíðaferð til Vail í Klettaflöllum frá 14. til 29. febrúar. Þessi ferð kostar kr. 138.000 á mann, miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Innifalið er gisting og morgunverður í Veil og Baltimore, svo og allar ferðir fram og til baka. Samvinnuferðir-Landsýn em með vikuferð til Bandaríkjanna á krónur 78.500, miðað við fjóra í íbúð. Innifal- ið er flug, gisting á fjögurra stjömu hóteli í Baltimore, fyrsta flokks íbúð og bOaleigubíll í sex daga. Verðið fer í 92.040, miðað viö tvo í íbúð. Samvinnuferðir-Landsýn eru líka með ferðir til Flachau og Hintergl- emm í Austurríki. í Flachau er ódý- rasta gistingin í Tauemhof og Alpen- hof, 60.500 á viku, miðað við tvíbýli, en ódýrast er í Hinterglemm á Hótel Lengauerhof kr. 48.400. Hótel Achen- hof kostar minnst 51.700 á viku miðaö við tvíbýh. Allt þetta er miðað við flug og gistingu með hálfu fæði án aksturs milli flugvallar og hótels er- lendis. Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn, Saga er með skíðaferðir til Wagrain, Flachau, St. Johann, Lech, St. Anton, Bagdasten og Saalbach-Hinter- glemm. Innan þessara svæða er hægt aö velja um marga gististaði. Ódýrast er í tvíbýli á Pension Waldchenken í Flachau. Pension Hubertus er ódýr- ast í Wagrain en þar er vikan á 49.400 staðgreidd. Innifalið er flug, gisting og hálft fæði eða morgunverður. Úrval-Útsýn, Saga fara einnig til Bandaríkjanna (JFK flugvallar) og Austurríkis með Tjæreborg. Þá er flogið til Kaupmannahafnar og það- an til skíðasvæðanna. Tveggja vikna ferð til Bandaríkjanna getur kostað 130.000 þúsund krónur. Þá er tahð með flug til Kaupmannahafnar og til baka, flug til New York og þaðan til Salt ^ake City (Snowbird), gisting í tólf nætur og ein nótt í New York. Ekki er tahð með í verði ferðir á milli Salt Lake City og Snowbird og ferðir um Kennedy-flugvöh til hótels. í úttektinni er aðeins tæpt á nokkr- um atriðum en allar nánari upplýs- ingar fást á ofangreindum og öðrum ferðaskrifstofum. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.