Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Page 7
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992. Kvikmyndir Til endaloka heimsins ★★'/2 Fyrri helmingurinn er frábærlega víðförul og fyndin framtíðar-vegamynd, seinni helmingurinn langdregin og misheppnuð predikun. -GE Tvöfalt líf Veróníku ★★★,/2 Tvær stúlkur, fæddar sama dag, hvor í sínu landi, nákvæmlega eins í útliti og án þess að vita hvor af annarri. Þetta er viðfangsefni pólska leikstjórans Krzystofs Piesiewicz í magnaðri kvikmynd. - H K The Commitments ★★★★ Tónlistarmynd Alans Parker er ógleyman- leg skemmtun. Söguþráðurinn er stór- skemmtilegur og soul-tónlistin frábær. Ein af betri myndum Alans Parker. -ÍS LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075 Víghöfði irk-k'A Fítonskraftur Scorsese og súperleikhópur gera samanlagt miskunnarlausan og æsi- spennandi sálfræðitrylli sem faltrar einungis á yfirkeyrðum formúluendi. Chucky 3 k'A Skárri en númer 2, en hverjum er ekki sama. -GE Hundaheppni k'A Góð hugmynd en misheppnast að vinna vel úr henni. Góðir brandarar eru fáir og ekkert bitastætt á milli þeirra. -G E Barton Fink ★★ Coen-bræður standa sig ekki í sögusköp- uninni og gerast klisjumenn í fyrsta skipt- ið. Frábærar persónur og leikendur bjarga málunum. -GE Prakkarinn 2 ★★ Lítið vit en nokkurt gaman að tveimur pottormum í vígahug. Betri en sú fyrsta. -GE REGNBOGINN Sími 19000 Föðurhefnd k'A Ödýr og óaðlaðandi Hong-Kong-fram- leiðsla og litið barist af viti. Van Damme er ekki slæmur en tvöfaldur skammtur er ekkilausnin. -GE Kastali móður minnar ★★ Falleg myndskreyting á skemmtilegri end- urminningu frægs rithöfundar. Saklaus skemmtun. -GE Léttlynda Rósa ★★★ Mjög fagmannlega unnin mynd um alvar- legt tilfelli brókarsóttar og bau vandamál sem skapast í kringum það. Frábær leikur góðra leikara. -IS Ekki segja mömmu. . . kk'A Frábær leikhópur bjargar ófrumlegu handriti og gerir myndina að góðri skemmtunþráttfyrirallt. -GE Homo Faber ★★ Byrjar hressilega en fjarar fljótlega út, gerist langdregin og tómleg. Góðir leikar- ar ogfallegt landslag hjálpa mikið. -G E Fuglastríðið í Lumbruskógi ★★ Hugljúf teiknimynd fyrir börn. Það sem gerir hana þó eftirsóknarverða er íslensk talsetning sem hefur heppnast sérlega vel. -HK SAGA-BÍÓ Sími 78900 JFK ★★★ Oliver Stone setur fram umdeilda kenn- ingu um morðið á Kennedy forseta. Hvort sem um sannleikann er að ræða eða ekki er kvikmyndin snjöll og spennandi og handbragð manns sem kann sitt fag leyn- irsérekki. Einnig sýnd í Bíóborginni. - HK STJÖRNUBÍÓ Simi 16500 Stúlkan mín ★★ Mynd fyrir alla fjölskylduna. Fer minna fyrir Macaulay Culkin en í fyrstu hefði mátt halda. Skörp skil á milli gamans og alvöru kemur á óvart. -HK Bingo k'A Snarrrugluð, stundum skemmtileg en aldrei eins fyndinn eins og hún vill verða. -GE Ingaló kk'A Þrátt fyrir ýmsa annmarka i handriti hefur Ásdlsi Thoroddsen tekist að gera skemmtilega kvikmynd um llf stúlku í sjávarplássi. -HK Bilun í beinni útsendingu kkk'A Heilsteypt kvikmynd frá Monty Python, leikstjóranum Terry Gilliam, raunsæ og gamsöm i senn og ekki spillir frábær leik- ur JeffsBridgesog Robins Williams. -HK Börn náttúrunnar ★★★ Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum nfeð Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng- legt landslag og góður leikur blandast mannlegumsöguþræði. -HK Sigurður Ingimundarson, fyrirliði ÍBK, til vinstri, og Guöni Guðnason, fyrirliði KR, verða báðir í eldlínunni á morg- un og munu eflaust takast hart á eins og á þessari mynd. Liðin eigast við á Seltjarnarnesi og hefst viðureignin klukkan 16. DV-mynd Brynjar Gauti íþróttir helgarinnar: Stórleikir í körfuboltanum - úrslitakeppnin hafin - þrír leikir um helgina Úrslitakeppnin í úrvalsdeildinni í körfuknattleik er hápunkturinn í íþróttum helgarinnar hér innan- lands. Þar keppa íjögur efstu liðin í deildinni um Islandsmeistaratitilinn. í undanúrslitunum leika Keflvíking- ar gegn KR-ingum og nýkrýndir bik- armeistar Njarðvíkinga mæta Vals- mönnum. Tvo sigurleiki þarf til að komast í úrslitaleikinn og þurfi að grípa til þriðja leiksins fer hann fram á heimavöllum Suðurnesjaliðanna, sem uröu í efstu sætum í sínum riðl- um. Keppnin hófst í gær með leik Keflvíkinga og KR og í kvöld eigast við Njarðvíkingar og Valur og fer leikurinn fram í „Ljónagryf]unni“ í Njarðvík og hefst klukkan 20. Á laugardag leika KR og Keflavík annan leik sinn og fer hann fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og hefst klukkan 16. Á sunnudagkvöldið spila Valur og Njarðvík annan leik sinn að Hlíðarenda klukkan 20. Körfuboltaáhugamenn munu ör- ugglega flykkjast á þessa leiki. Þaö má eiginlega segja að þama fari fram uppgjör Reykjavíkurliðanna gegn stórveldunum frá Suðurnesjum. í fyrra léku Keflavík og Njarövík til úrslita og eftir æsispennandi leiki stóðu Njarðvíkingar uppi sem sigur- vegarar. -GH Ferðafélag íslands: Helgarferð í Þórsmörk Á dagskrá Ferðafélagsins er Þórs- merkurferð nú um helgina. Lagt verður af stað klukkan 20 í kvöld. Nú er frekar snjólétt f Þórsmörk svo unnt verður að aka alla leið inn í Langadal. Gist verður í Skagfjörðs- skála en þar eru öll þægindi til að láta sér líða vel. Eldhús með öUum áhöldum, stúkað svefnpláss og mið- stöðvarhitun. Fararstjóri skipulegg- ur gönguferöir um Mörkina, en ekki er úr vegi að taka skíði með. Nú er dagurinn orðinn lengri en nóttin svo að hægt er aö nota tímann vel til útiveru í Mörkinni. Á sunnudag verður skíöagöngu- ferð kl. 10.30 en þá verður gengið yflr Kjöl. Ekið verður um Stíflisdal og gengið upp á Kjöl og síðan niður’ Þrándarstaöarfjall og komið niður hjá Fossá í Hvalflrði. Kl. 13.00 verður létt skiöaganga á HeUisheiði og á sama tíma er gönguferð á Skálafell sunnan HeUisheiðar. Þaö veröur kátt i Mörkinni um helgina. 23 íþróttir Blak: Úrslit í bikarnum Úrslitaleikirnir í bikarkeppninni í karla- og kvennaflokki í blaki fara fram í íþróttahúsinu í Digra- nesi í Kópavogi á laugardaginn. Karlaleikurinn hefst klukkan 14 og leiða þar saman hesta sína Þróttur R og KA. Strax á eftir eða um klukkan 16 hefja konurnar leik og mætast þar í úrslitum ÍS og KA. Körfu- bolti: Leikir hjá konunum í 1. deild kvenna á íslandsmótinu í körfuknattleik eru tveir leikir á dagskrá á sunnudaginn og hefjast þeir báðir klukkan 18. ÍBK og ÍS leika í Keflavík og í Hagaskóla leika KR og UMFG. í 1. deild karla eru fjórir leikir klukkan 14 á laugardag. Það eru: Reynir- Víkverji, ÍA-ÍR, Höttur-Keilufé- lagið og ÍS-UBK. Skídi: Bikarmót í göngu Bikarmót í skíðagöngu fer fram á Siglufirði um helgina. Á laugar- daginn klukkan 13 yerður keppt með frjálsri aöferð. í flokki 17-19 ára verða gengnir 10 kílómetrar og 15 í flokki 20 ára og eldri. Á sunnudaginn hefst keppni klukk- an 11 og verður þá gengið með hefðbundinni aðferð. í flokki 17-19 ára er vegalengdin 7,5 km en 10 km í flokki 20 ára og eldri. c Ferðir Utivist Kl. 13 á sunnudag verður skíða- ganga á Hellisheiöi. Gengið verð- ur í 3-4 stundir. Fararstjóri mun leiöbeina þeim sem þess óska. Brottför fró BSÍ, bensínsölu Kl. 13 sunnudag. Farið verður frá BSÍ að vestanverðu og ekið sem leiö liggur aö Þyrilsnesi sem liggur fyrir neðan fjallið Þyril. Gengið verður rólega um Þyrils- nesið en þaöan er víðsýnt um Hvalfjörð Náttúruverndarfélag Suövesturlands Laugardaginn 28. mars fer Nátt- úruvemdarfélag Suðvesturlands . í fjórðu ferðina í ferðarööinni Framtíöarsýnin okkar. Fariö verður klukkan 10.30 frá Gerða- skóla í Garði og gengið umhverfis byggðina. I leiðinni verður nátt- úra svæðisins og mannvistar- minjar skoðaðar og framtíðar- sýnin rædd. Á sunnudag mun Náttúrvemd- arfélagið fara í vettvangsferð um Njarðvíkurfltjar og verður lagt afstaö kl. 10.30. Gengið verðurfrá bæjarskrifstofunum í Njarðvík og fuglalíflð skoðað undir ieiö- sögn Olafs K. Nielsen fuglafræð- ings. A svæðinu er mikið af öndum, vaðfuglum og máfum. Tími vað- fuglanna er að hefjast og fyrstu voröboðarnir komnir. Gengiö verður til baka að bæjarskrifstof- unum og þar verða umræður um framtíö Njarðvíkurfltja. Öilumer heimil þátttaka og þarf ekki aö greiða þátttökugjald.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.