Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1992, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992. 21 Messur Árbæjarkirkja: Fermingarguösþjónusta meö altarisgöngu sunnudag kl. 14. Organleikari Sigrún Steingrímsdóttir. Barnaguösþjón- usta fellur niöur. Næsta barnaguðsþjónusta veröur á páskadagsmorgun kl. 11. Sr. Guö- mufidur Þorsteinsson. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Ferm- ing og altarisganga kl. 14. Árni Bergur Sig- urbjörnsson. Miðvikudagur: Föstumessa kl. 20.30. Breiöholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Fermingarguðsþjónusta kl. 13.30. (Ath. breyttan messutíma.) Bænaguðsþjónusta þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson. Bústaöakirkja:Barnamessa kl. 11 í Bústöð- um. Arna, Gunnar og Sigurjón. Fermingar- messur kl. 10.30 og kl. 13.30. Pálmi Matthí- asson. Digranesprestakall: Barnasamkoma í safn- aðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Ferm- ingarguðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkórinn syng- ur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. Barnastarf í safnaðar- heimilinu á sama tíma í umsjá Báru Elías- dóttur. Föstumessa kl. 17 við Gregorslag. Altarisganga. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Miðvikudagur: kl. 12.10. Hádegisbænir í kirkjunni. Léttur málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Miðvikudagur: Kl. 13.30-16.30. Sam- verá aldraðra í safnaðarheimilinu. Tekið í spil. Kaffiborð, söngur, spjall og helgistund. Elliheimiliö Grund.'Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Magnús Björnsson. Miðvikudagur: Föstuguðsþjónusta kl. 18.30. Stefán Karls- son guðfræðinemi. Fella- og Hólakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Ferming og altarisganga Fellaprestakalls kl. 14. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organ- isti Guðný M. Magnúsdóttir. Fyrirbænir í Fella- og Hólakirkju mánudag kl. 18. Prest- arnir. Fríkirkjan í Hafnarfiröi: Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Org- anisti Kristjana Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfs- son. Frikirkjusöfnuöurinn í Reykjavík: Guðsþjón- usta kl. 11. (Ath. tímann.) Einleikur á flautu: llka Petrova Benkova. Þriðjudagur: Föstu- guðsþjónusta kl. 20.30. Miðvikudagur: Morgunandakt kl. 7.30. Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson. Garöasókn: Sunnudagaskóli í Kirkjuhvoli kl. 13.00. Fermingar í Garðakirkju kl. 10.30 og 14.00. Æskulýðsfundur nk. þriðjudagskvöld í Kirkjuhvoli kl. 20.00. Húsið opnað kl. 19.00. Stefán Hilmarsson kemur í heimsókn. Sr. Bragi Friðriksson. Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14. Grafarvogssókn:Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Valgerður Katrín og Hans Þormar aðstoða. Skólabíllinn fer frá Hamrahverfi kl. 10.30 og fer venjulega skólaleið. Fermingarguðsþjónusta í Árbæ- jarkirkju kl. 10.30. Organisti Sigurbjörg Helgadóttir. Kirkjukór Grafarvogs syngur. Vigfús Þór Árnson. Grensáskirkja: Barnastarfið kl. 10.30. At- hugið breyttan tíma. Farið verður í heimsókn í Seltjarnarneskirkju vegna fermingarmessu í kirkjunni. Mætið tímanlega. Fermingar- messur kl. 10.30 og kl. 14.00. Prestar sr. Halldór S. Gröndal og sr. Gylfi Jónsson. Organisti Árni Arinbjarnarson. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12.00. Orgelleikur í 10 mín- útur. Fyrirbænir, altarisganga og léttur há- degisverður. Þriðjudagur kl. 14.00. Biblíu- lestur og kirkjukaffi. Allir velkomnir. Sr. Hall- dór S. Gröndal. Hallgrimskirkja:Messa og barnasamkoma kl. 11 Sr. Karl Sigurbjörnsson. Francis Grimm prédikar. Mánudagur: Kvöldbænir með lestri Passíusálma kl. 18.00. Þriðjudag- ur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beöið fyrir sjúkum. Þirðjudagur: Kvöldbænir með lestri Passíusálma kl. 18.00. Miðvikudagur: Helgistund kl. 20.30. Sr. Sigurður Pálsson prédikar. Háteigskirkja: Fermingarmessur kl. 10.30 og kl. 13.30. Prestarnir. Barnastarfið kl. 11. Kirkjubíllinn fer frá Suðurhlíðum um Hlíð-. arnar að venju. Farið verður í heimsókn. Mánudagur: Biblíulestur kl. 21.00. Kvöld- bænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðviku- dögum kl. 18. Hjallasókn: Messusalur Hjallasóknar, Digra- nesskóla. Barnaguðsþjónusta 11. Guðs- þjónusta kl. 14. Kór Hjallasóknar syngur. Organisti Oddný Þorsteinsdóttir. Sóknar- nefndarfundur að lokinni guðsþjónustu. Kristján Einar Þorvarðarson. Kársnesprestakall: Barnastarf í safnaðar- heimilinu Borgum sunnudag kl. 11. Nem- endur í Tónskóla Eddu Borg koma í heim- sókn og leika á hljóðfæri. Fermingarmessa í Kópavogskirkju kl. 10.30. Ægir Fr. Sigur- geirsson. Kálfatjarnarsókn: Kirkjuskóli kj. 11.00 á laugardag í Stóru-Vogaskóla. Sóknarprestur Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjal- ar Lárusson. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Óskastund barnanna kl. 11. Söngur, sögur, fræðsla. Umsjón sr. Flóki Kristinsson. Ferm- ing kl. 14. Prestur sr. Guðný Hallgrímsdótt- ir. Kór Langholtskirkju (hópur IV) syngur. Organisti Jón Stefánsson. Áftansöngur alla virka daga kl. 18 í umsjá sr. Flóka Kristins- sonar. Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Org- anisti Ronald V. Turner. Barnastarf á sama tíma í umsjá Þórarins Björnssonar. Heitt á könnunni eftir guðsþjónustuna. Fermingar- messa kl. 13.30. Sr. Jón D. Hróbjartsson. Neskirkja:Barnasamkoma kl. 11. Munið kirkjubílinn. Guðmundur Óskar Ólafsson.. Fermingarmessur kl. 11 og kl. 14. Prestarn- ir. Miðvikudagur: Föstuguðsþjónusta kl. 20.00. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kór Seljaskóla syngur undir stjórn Kjartans Ól- afssonar. Fermingarguðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Seljahlíö: Guðsþjónusta laugardag 4. apríl kl. 11 og föstuguðsþjónusta fimmtudag 9. apríl kl. 20.30. Sr. Ágúst Eyjólfsson prédik- ar. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Barnastarf á sama tíma í umsjá Eirnýjar, Báru og Erlu. Barnastarf Grensáskirkju kemur í heimsókn. Miðviku- dagur: Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Miövikudagur: Sam- koma kl. 20.30 á vegum Seltjarnarneskirkju og sönghópsins „Án skilyröa" undir stjórn Þorvaldar Halldórssonar. Söngur, prédikun, fyrirbænir. Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Þjóðleikhúsið: Síðustu sýn- ingar á Rómeó og Júlíu Nú fara í hönd síðustu sýningar á Rómeó og Júlíu en það hefur verið sýnt í Þjóðleikhúsinu síðan á jólum. Uppsetning Guðjóns Pedersen og Hafliða Amgrímssonar á þessu klassíska verki William Shakespeare hefur fengið mikið lof gagnrýnenda og góða aðsókn og voru þeim félögum ásamt Grétari Reynissyni leik- myndahönnuði veitt Menningar- verðlaun DV í leiklist fyrir uppsetn- inguna. í hlutverkum elskendanna eru Baltasar Kormákur og Halldóra Björnsdóttir. Næsta sýning er á laug- ardagskvöld. Halldóra Björnsdóttir og Baltasar Kormákur leika Rómeó og Júlíu. Frá leiksýningu Leikféiags Keflavíkur á Gisl. Fremst á myndinni eru Vigdís Jóhannsdóttir, Hafsteinn Gíslason, Halla Sverrisdóttir og Margrét örlygs- dóttir. Leikfélag Keflavíkur: Gísl Á þrítugsafmæli sínu ræðst Leikfé- lag Keflavíkur í að setja á svið eitt af stórverkum írskrar leikhúsmenn- ingar, Gísl eftir Brendan Behan. Leikstjóri er Pétur Eggerz. Jóhannes Kjartansson leikur Pat, gamlan fóð- urlandsvin og búllueiganda, Halla Sverrisdóttir Meg mellumömmu, Ómar Ólafsson RíóRita homma, Brynja Aðalbergsdóttir Gilchrist, breyskan trúboða, Hafsteinn Gísla- son Leshe, breskan hermann sem er gíslinn, og Margrét Örlygsdóttir gleðikonuna Colette. í smærri hlutverkum eru meðal annars Jón Sigurðsson, Vigdís Jó- hannsdóttir, Eggert Ólafsson og Birgir Sanders. Flestir sem leika í leikritinu hafa að meira eða minna leyti komið við sögu leikfélagsins síð- asta áratuginn. Ádeila og írskur húmor er undiralda þessa merkilega leikrits sem meðal annars var á sín- um tíma sýnt í Þjóðleikhúsinu. Gísl er annað verkefni Leikfélags Keílavíkur á þessu leikári. Síðastlið- ið haust sýndi félagið revíuna Frétta- veita Suðumesja eftir Ómar Jó- hannsson. Sýningar á Gísl eru í Fé- lagsbíói í Keflavík. Akureyri: Sigrún Eðvaldsdóttir leik- ur með Kammersveitinni Fimm einleikarar koma fram með Kammerhljómsveit Akureyrar undir stjórn Arnars Óskarssonar á tvenn- um tónieikum sem haldnir verða á Blönduósi og Akureyri helgina 4. og 5. apríl. Tónleikamir heljast með tónverk- inu „Quite City“ eftir Aron Copland, en einleikarar í því verki verða Gor- don G. Jack á trompet og Jacqueline Simm á enskt hom. Næst á efnis- skránni er „Karneval dýranna" eftir Saint Saens. Einleikarar á píanó verða þeir Richard Simm og Thomas Higgerson og leika þeir á tvo flygla. Hæst rísa tónleikamir með fiðlu- konsert í e-moll eftir Mendelsson, sem Sigrún Eðvaldsdóttir flytur með hljómsveitinni. Tónelikarnir á Blönduósi fara fram í félagsheimilinu á laugardag klukk- an 15 og eru þeir skipulagðir í sam- ráði við Tónlistarfélag Vestur-Hún- vetninga. Tónleikarnir á Akureyri fara fram í íþróttaskemmunni á sunnudag klukkan 17. Sigrun Eðvaldsdóttir fiðluleikari. Sr. Sighvatur Karlsson: „Áður en Abraham fæddist er ég" Orðræður Jesú Krists hafa löngum valdið úifúð hjá mörgum, einkum þeim sem hafa talið sig vita meira en hann. En þeir vora margir á hans dögum sem enn þann dag í dag. Yfirskrift þessarar hugleiðingar er höfð eftir Jesú Kristi sjálfum úr guð- spjalli nk. sunnudags þar sem hann stendur í hrókasamræðum við gyð- ing-kristna menn í karphúsi þeirra tíma, samkunduhúsinu. Hann reynir með ýmsum hætti aö benda á guð- dóm sinn án þess þó að vegsama sjálfan sig og viðbrögðin láta ekki á sér standa. Það á að grýta manninn, burt með hann, burt með Jesú. Gyðing-kristnir menn voru þeir gyðingar kallaðir sem höfðu tekið trú á Jesú og töldu að hann væri sá Messías sem þjóðin hefði beðið eftir sem stofna myndi jarðneskt konung- dæmi í landinu. En við vitum að Jes- ús sagði aö ríki sitt væri ekki af þess- um heimi. Hann vildi gefa til kynna að hann heföi verið til fyrir sköpun heimsins, áður en Abraham fæddist, með Guði fóður sínum. Hann var sendur af Guði föður inn á leiksvið mannlegrar tilvera þar sem persón- ur og leikendur hafa bragðið upp margvíslegum grímum á loft í gegn- um árin í því skyni m.a. að fela mannlegan breyskleika sinn. En Jes- ús þarf engu að leyna því að hann er syndlaus. „Hver yðar getur sann- að á mig synd?“ Spyr hann í helgi- Sr. Sighvatur Karlsson, sóknar- prestur á Húsavik. dómnum. Hæðnisgrímu er nú brugð- ið á loft af þeim sem ekki þekkir sinn vitjunartíma og reynt er að smána Jesú í áheym samkunduhúsgesta oftar en einu sinni. Loft er nú lævi blandið og spennan magnast stig af stigi þar til Jesús lætur hafa eftir sér að sá sem varðveiti sitt orð muni aldrei að eilífu deyja. Þá spyrja gyð- ingarnir hann. „Ert þú meira en fað- ir vor, Abraham? Hann dó og spá- mennirnir dóu. Hver þykist þú vera?“ Áður en varir er sprengjunni kast- að með orðum Jesú sem er yfirskrift þessarar hugleiðingar. „Áður en Abraham fæddist er ég“. Sjálfur Guð gerðist bróðir minn og þinn í baminu Jesú frá Nazaret. Það er undrið mikla sem á engan sinn líka. Þaö er ekki á okkar valdi að skilja það heldur meðtaka í trú, líkt og að taka á móti dýrmætri gjöf og varðveita hana í hjarta okkar. Eng- inn getur tekið þá blessuðu gjöf frá okkur. Og þegar við verðum þess áskynja að Jesús gengur með okkur um lífsins grýttu braut þá erum við ekki vegalaus. Og jafnvel þótt við sjáum stundum aðeins ein fótspor í sandinum þegar við lítum yfir farinn veg þá er ástæðan sú að Jesús hefur á þeim stundum borið okkur í örm- um sínum. Allir þurfa að bera sinn kross einhvern tímann um ævina. En Kristur þurfti að bera þyngsta krossinn. Það gerði hann okkar vegna til þess að við mættum lifa fyrir hann. Jesús segir: „Það sem þér gerið ein- um mínum minnstu bræðra það ger- ið þér mér.“ í hvaða flokk hefur þú skipað þér, lesandi góður, á þessari föstu, með þeim sem vilja krossfesta Krist eða þakka honum fyrir það sem hann hefur gert fyrir þig? Athugasemd Vegna mistaka féllu niður nokkrar málsgreinar í grein séra Ægis Fr. Sigurgeirssonar í síðustu viku. Beð- ist er velvirðingar á því. Þjóðleikhúsið Sími: 11200 Stóra sviðið: Elín, Helga, Guðríður föstudag kl. 20. Rómeó og Júlía laugardag kl. 20. Emil í Kattholti laugardag kl. 14, sunnudag kl. 14 og 17. Litla sviðið: Kæra Jelena laugardag kl. 20.30, sunnudag kl. 20.30. S mí ða ve r kstæði ð: Ég heiti isbjörg, ég er Ijón laugardag kl. 20.30, sunnudag kl. 20.30. Borgarleikhúsið Sími: 680680 Stóra sviðið: Þrúgur reiðinnar laugardag ki. 20, sunnudag kl. 20. Litia sviðið: Gamanleikhúsið Grænjaxlar laugardag kl. 20.30, sunnudag kl. 20.30. íslenska óperan Sími: 11475 Otelio laugardag kl. 20. Leikbrúðuland Fríkirkjuvegi 11, sími 622920 Bannaö að hlæja laugardag kl. 1 5, sunnudag kl. 15. Síðustu sýningar Leikfélag Akureyrar Hafnarstræti 57, sími 96-24073 islandsklukkan föstudag kl. 20.30, laugardag kl. 20.30, Hugleikur Brautarnolti 8, símt 36858 Fermíngarbarnamótið laugardag kl. 20.30. Tónleikar Seljakirkja Árnesingakórinn í Reykjavik og Samkór Selfoss, halda árlega tónleika sína í Seljakirkju á laug- ardag kl. 17. Á efnisskrá eru bæði innlend og erlend lög. Stjórnandi Árnes- ingakórsins í Reykjavík er Sig- urður Bragason. Undirleikari er Bjarni Jónatansson. Stjórnandi Samkórs Selfoss er Jón Kristinn Cortes. Víðistaðakirkja Karlakór Reykjavíkur heldur tón- leika í Víðistaðakirkju á laugar- dag kl. 17. Stjórnandi er Friðrik S. Friðriksson. Einsöngvarar eru þau Katrín Sigurðardóttir, sópr- an, Hjálmar Kjartansson, bassi. Undirleikarir er Anna Guðný Guðmundsdóttir. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð kórsins en næstu tónleikar verða í Sel- jakirkju á mánudag kl. 20.30. Norræna húsið Kammerkór Gautaborgar heldur tónleika í Norræna húsinu á sunnudag klukkan 20.30 og mánudag klukkan 20.30. Á efnis- skrá eru verk eftir norræn tón- skáld auk verka frá öðrum lönd- um. Langholtskirkja Karlakórinn Fóstbræður neldur tónleika í kvöld klukkan 20.30 og á laugardag klukkan 17.00. Á efnisskrá eru innlend og erlend lög. Stjórnandi er Árni Harðar- son.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.