Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1992, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992.
23
Kvikmyndir
Háir hælar ★★,/2
Ekki þaö besta sem komið hefur frá
Almodovar sem í myndinni segir okkur
dramatíska sögu af mæðgum. Ágæt
mynd en frumlegheit vantar sem einkennt
hefur myndir spænska leikstjórann.
-HK
Léttgeggjuö ferö Billa
og Tedda ★★
Þéttrugluð ævintýri moðhausanna Bill &
Ted halda áfram. Þeir sem séð hafa fyrstu
myndina munu skilja meira og skemmta
sérbeturenað -GE
Dauöur aftur ★★★
Flókinn og mjög skemmtilegur þriller frá
undrabarninu Kenneth Brannagh. Endur-
holdgunarkenningin fær á sig nýjan flöt.
-HK
Til endaloka heimsins ★★,/2
Fyrri helmingurinn er frábærlega víðförul
og fyndin framtíðar-vegamynd, seinni
helmingurinn langdregin og misheppnuð
predikun. -GE
Tvöfalt líf Veróníku ★★★,/2
Tvær stúlkur, fæddar sama dag, hvor í
sínu landi, nákvæmlega eins í útliti og
án þess að vita hvor af annarri. Þetta er
viðfangsefni pólska leikstjórans Krzystofs
Piesiewicz í magnaðri kvikmynd. -HK
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Víghöfði ★★★,/2
Fítonskraftur Scorsese og súperleikhópur
gera samanlagt miskunnarlausan og æsi-
spennandi sálfræðitrylli sem faltrar einungis
á yfirkeyrðum formúluendi.
Hundaheppni ★,/2
Góð hugmynd en misheppnast að vinna
vel úr henni. Góðir brandarar eru fáir og
ekkert bitastætt á milli þeirra. -GE
Barton Fink ★★
Coen-bræður standa sig ekki í sögusköp-
uninni og gerast klisjumenn í fyrsta skipt-
ið. Frábærar persónur og leikendur bjarga
málunum. . -GE
Prakkarinn 2 ★★
Lítið vit en nokkurt gaman að tveimur
pottormum í vígahug. Betri en sú fyrsta.
-GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Föðurhefnd ★!/1
Ódýr og óaðlaðandi Hong-Kong-fram-
leiðsla og litið barist af viti. Van Damme
er ekki slæmur en tvöfaldur skammtur er
ekkilausnin. -GE
Kastali móður minnar ★★
Falleg myndskreyting á skemmtilegri end-
urminningu frægs rithöfundar. Saklaus
skemmtun.
-GE
Léttlynda Rósa ★★★
Mjög fagmannlega unnin mynd um alvar-
legt tilfelli brókarsóttar og þau vandamál
sem skapast í kringum það Frábær leikur
góðra leikara. -fS
Ekki segja mömmu. . . ★★‘A
Frábær leikhópur bjargar ófrumlegu
handriti og gerir myndina að góðri
skemmtun þrátt fyrír allt. -GE
Homo Faber ★★
Byrjar hressilega en fjarar fljótlega út,
gerist langdregin og tómleg. Góðir leikar-
ar og fallegt landslag hjálpa mikið. -G E
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Kuffs ★★
Löggumyndabræðingur með litlu sem
ekki hefur sést áður. Slater er samt ágæt-
ur.
-HK
JFK ★★★
Oliver Stone setur fram umdeilda kenn-
ingu um morðið á Kennedy forseta. Hvort
sem um sannleikann er að ræða eða ekki
er kvikmy.ndin snjöll og spennandi og
handbragð manns sem kann sitt fag leyn-
irsér ekki. Einnig sýnd í Bíóborginni. - HK
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Stúlkan mín ★★
Mynd fyrir alla fjölskylduna. Fer minna
fyrir Macaulay Culkin en í fyrstu hefði
mátt halda. Skörp skil á milli gamans og
alvöru kemur á óvart.
-HK
Ingaló ★★'/2
Þrátt fyrir ýmsa annmarka í handriti hefur
Asdísi Thoroddsen tekist að gera
skemmtilega kvikmynd um lif stúlku í
sjávarplássi. -HK
Bilun í beinni
útsendingu ★★★ '/2
Heilsteypt kvikmynd frá Monty Python,
leikstjóranum Terry Gilliam, raunsæ og
gamsöm í senn og ekki spillir frábær leik-
ur Jeffs Bridges og Robins Williams. -HK
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum
með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng-
legt landslag og góður leikur blandast
mannlegumsöguþræði. -HK
Skíðalandsmótið á
tveim stöðum á landinu
Skíðalandsmóti íslands verður fram
haldið um helgina en fyrsti keppnis-
dagur mótsins var í gær. Mótið fer
fram á tveimur stöðum að þessu
sinni, Akureyri og Ólafsfirði. Upp-
haflega átti mótið að vera á Ólafsfirði
og Dalvík en sökum snjóleysis á Dal-
vík hiupu Akureyringar undir bagga
og tóku að sér að halda alpagreinar
mótsins en keppni í norrænum
greinum fer fram á Ólafsfirði.
Keppni í stórsvigi kvenna og karla
hófst í Hlíðarfjalli á Akureyri í morg-
un. Fyrri ferðin hófst klukkan 10 en
kepþendur hófu síðari ferðina um
hádegisbilið. Ganga í norrænni tví-
keppni hefst í dag klukkan 15 á Ólafs-
firöi. Stökk átti einnig að vera á sama
tíma en því hefur verið frestað um
vikutíma og kemur varla að sök því
alhr keppendur í stökkinu koma frá
Ólafsfirði.
Svigkeppni í karla- og kvenna-
flokki veröur í Hlíðarfjalli á laugar-
daginn. Kvenfólkið byrjar klukkan
10 en karlarnir hefja keppni hálftíma
síðar. Á Ólafsfirði hefst keppni í 30
km göngu karla klukkan 11 og
keppni í 15 km göngu pilta 17-19 ára
á sama tíma. Kvenfólídð gengur 7,5
km.
SamhUðasvig hefst á Akvu-eyri
klukkan 9 á sunnudagsmorgun og á
Valdimar Valdimarssyni frá Akureyri gekk ágætlega á skíðalandsmótinu sem haldið var á ísafirði i fyrra. Á mynd-
inni er Valdimar í svigkeppninni. Yfir 70 keppendur eru skráðir til leiks á landsmótinu að þessu sinni.
DV-mynd Brynjar Gauti
Ferðafélag íslands:
Gengið
frá Blá-
fjöllum
að Kleif-
arvatni
Ferðafélag íslands efnir til þriggja
dagsferða á sunnudag. Lagt verður
af stað í fyrstu gönguna klukkan
10.30 og verður gengið á skíðum frá
þjónustumiðstöðinni í Bláfjöllum að
Kleifarvatni. Þetta er afar þægUeg
gönguleið og hallar landinu heldur
til suðurs. Nægur snjór er á þessum
slóöum og tekur gangan um 5 klst.
Klukkan 13 verður einnig boðið
upp á skíðagöngu og þá verður geng-
ið frá Hveradölum á Helhsheiði um
Lákastíg, Lágaskarð sunnan Litla
Meitils og komið verður á Þrengsla-
veg á móts við litla Sandfellið.
Klukkan 13 verður farin gönguferö
um Hafnarskeið og til Þorlákshafnar
og er þetta létt fjölskylduganga.
Brottför í þessar feröir er frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin, og
einnig verður stoppað við Mörkina 6
og farþegar teknir þar.
Ferðafélagið býður upp á tvær skíðagönguferðir á sunnudag.
Ólafsfirði verður gengin 3x10 km
boðganga karla og 3x5 km boðganga
kvenna. Báðar göngurnar hefjast
klukkan 11.
Skíðalandsmótinu verður síðan
slitið í Tjamarborg á Ólafsfirði
klukkanl7ásunnudag. -JKS
Iþróttir
Körfubolti:
Valur og Kefla-
vík leika í kvöld
Nú stendur yfir úrslita-
keppni um íslandsmeistara-
titilinn í körfuknattleik á milli
Keflvíkinga og Valsmanna.
Fyrsti leikur liðanna verður í
Keflavík í kvöld klukkan 20
en önnur viðureignin verður
á Hlíðarenda, heimavelli Vals-
manna, á sunnudagskvöldið
klukkan 20. Það lið sem verð-
ur fyrst til að vinna þrjá leiki
hreppir íslandsmeistaratitil-
inn.
Handknattleikur:
Grótta og HK
leika á Nesinu
Grótta og HK leika á sunnu-
dagskvöldið á Seltjarnarnesi
fyrri leik sinn um áframhald-
andi sæti í 1. deild í hand-
knattleik. Síðari leikurinn
verður síðan í Digranesi á
þriðjudagskvöldið klukkan
20.
Borðtennis:
Reykjavíkur-
mótið haldið
í TBR-húsinu
Reykjavíkurmótið í borðtenn-
is verður haldið í húsakynn-
um TBR við Gnoðarvog á
sunnudaginn kemur. Keppni
hefst klukkan 10 um morgun-
inne og er áætlað að henni
Ijúki klukkan 17 sídegis.
Útivist
7. áfangi kirkjugöngunnar
verður farinn á sunnudag, 5.
apríl. Brottförfrá BSÍ, bensín-
sölu, klukkan 10.30 og ekið
að Miðsandi. Gengin verður
gamla þjóðkirkjuleiöiun fram
hjá Brekku, Hrafnabjörgum
og Festiklu að Hallgríms-
kirkju í Saurbæ. Komið verð-
ur við á bæjum og fylgdar
heimamanna notið. í Hall-
grímskirkju verður rifjuð upp
saga sóknarinnar og kirkju-
munum lýst. Að því loknu
verður gengið að Eyrí.
Skíðaganga
á Hellisheiði
Sunnudag klukkan 13. Farar-
stjóri mun leiðbeina þeim
sem þess óska. Brottför frá
BSÍ, bensínsölu, stansað við
Árbæjarsafn.