Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Síða 1
TVær kröfugöngur í Reykjavík 1. maí:
Ræður verkalýdsfor-
ingja og óperusöngur
Hátíöahöldin 1. mai verða meö líku sniði og i fyrra.
Hátíðahöldin þann 1. maí verða
með hefðbundnu sniði. Tveir útí-
fundir verða og tvær göngur; ann-
ars vegar á vegum verkalýðhreyf-
inganna og hins vegar á vegum
Samtaka kvenna á vimiumarkaði.
Safnast verður saman fyrir
göngu verkalýðshreyíinganna á
Hlemmi kl. 13.30 og lagt af stað nið-
ur Laugaveginn kl. 14.00 og gengið
niður á Lækjartorg þar sem hald-
inn verður útifundur.
Ræðumenn dagsins verða Guð-
mundur Þ. Jónsson, formaður Iðju,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, for-
maður símamanna, og Klara Geirs-
dóttír frá iðnnemum. Fundarstjóri
verður Ragna Bergmann.
Bergþór Pálsson óperusöngvari
og Blái hatturinn-koma fram og
syngja á miili ræðuhaldanna og í
lok fundarins. Áætlað er að úti-
fundinum verði lokið um kl.
15.00.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
ætla að ganga frá Búnaðarbankan-
um við Hlemm og aö HaUærisplani
þar sem haldinn verður fundur.
Lagt verður af stað í kröfugönguna
klukkan 14.00.
Fundinn munu ávarpa Birna
Þórðardóttir blaðamaður, Lilja Ey-
þórsdóttir fóstra og Sigrún
Ágústsdóttír keimari. Fundarstjóri
verður Ehn G. Ólafsdóttir borgar-
fulltrúi. Á milh atriða mun Mar-
grét Pálmadóttir syngja.
Það eru þau Einar Jóhannesson karinettuleikari, Richard Talkowsky selló-
leikari og Beth Levine píanóleikari sem skipa Trio Borealis.
Trio Borealis á
faraldsfæti
Trio Boreahs mun halda nokkra
tónleika í ReyKjavík og víðar á Suð-
vesturlandi dagana 1.-5 maí. Tríóið
hélt síðast tónleika hérlendis í fyrra-
vor og fór síðan til Spánar og leik á
tónhstarhátíðum í Katalóníu þá um
sumariö. Tríóinu hefur verið boðið
að koma aftur til Spánar nú í sumar
og leika víða á hátíðum þar.
Það eru þau Einar Jóhannesson
karínettuleikari, Richard Talkowsky
sehóleikari og Beth Levine píanó-
leikari sem skipa Trio Boreahs. Á
efnisskránni' að þessu sinni eru tvö
tríó frá rómantíska tímabihnu eftir
Max Bruch og Emil Hartmann, auk
tríós eftír Þorkel Sigurbjörnsson,
sem byggt er á íslenskum þjóðlögum
og hefur ekki heyrst hér áður. Einn-
ig verður leikin sellósónata eftir
Claude Debussy og klarínettsónata
eftir Fancis Poulenc.
Fyrstu tónleikamir verða í Njarð-
víkurkirkju fóstudag 1. mai, þeir
næstu í Tónskóla Akraness laugar-
dag 2. maí og þeir þriöju í Þorláks-
kirkju, Þorlákshöfn, sunnudag 3.
maí. Alhr hefjast þessir tónleikar
klukkan 17. Fjórðu og síðustu tón-
leikar Tríós Boreahs verða i Lista-
safni íslands þriðjudag 5. maí klukk-
an 20.30.
Haukur Dór í Listasafni ASÍ:
Vor og sumar í nánd
„Það er vor og sumar í 'nánd. Á
þessari sýningu í Listasafni ASÍ
skyggnumst við inn í hinn frjálsa
hugarheim Hauks Dór. Hér er vor
og birta, engin skil milh fijálsrar
hugsunar og pappírsins, aht ofið
saman í eina heild, htríkt leiftrandi
myndmál og gljúpur handunninn
pappírinn frá Ásíu,‘1 segir meðal
annars í umfjöllun í sýningarskrá
um myndlistarmanninn Hauk Dór.
Sýning á myndum eftir Hauk Dór
verður opnuð í Listascifni ASÍ1. maí
klukkan 16.00. Sýningin er á vegum
safnsins. Haukur Dór er vel þekktur
listamaöur sem búið hefur langdvöl-
um erlendis en er nú með vinnustofu
bæði hér heima og erlendis. Sýningin
er opin daglega frá kl. 14.00 til 19.00
og lýkur henni sunnudaginn 24. maí.
Norrænir ví snadagar:
Valinkunnir vísna-
vinir koma fram
Norrænir vísnadagar verða haldn-
ir hér á landi dagana 1.-5. maí og
munu margir þekktir vísnasöngvar
víðs vegar af Norðurlöndunum koma
fram.
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir
í Norræna húsinu þann 1: maí og
hefjast þeir klukkan 16. Þar koma
fram Jan Olof Andersson, Hanne
Juul, Hanus G. Johans'en, Jannika
Hággaström og Öyvind Sund. Einnig
koma fram Anna Pálína og Aðal-
steinn Ásberg og hljómsveitin Is-
landica.
Jan Olaf Anderson frá Svíþjóð er
söngvari og gítarleikari. Hanne Juul
er fædd í Kaupmannahöfn en bjó í
níu ár á íslandi og er um þessar
mundir búsett í Svíþjóð. Öyvind
Sund frá Noregi er bæði vísnasöngv-
ari og myndhstarmaðuÞ. Hanus G.
Johansen er þekktasti vísnasöngvari
Færeyja. Jannika Hággström er
sænskumælandi Finni.
Hanne Juul og Jan Olof Andersson
verða meðal þeirra sem koma fram
á tónleikunum. DV-mynd S
Laugardaginn 2. maí kl. 16 verða
tónleikar í Stjómsýsluhúsinu á
ísafirði.
Sunnudaginn 3. maí kl. 20.30 verða
tónleikar í Norræna húsinu og á
Hótel KEA á kl. 16. Á Egilsstöðum
verða tónleikar í Hótel Valaskjálf
klukkan 20.30.
Lokatónleikarnir verða svo í Tón-
hstarskóla FÍH við Rauðagerði'
klukkan 20, þriðjudaginn 5. maí.
Leikhús:
Danniog
djúpsæv-
ið bláa
- sjábls. 21
Kvikmyndir:
Refskák
- sjábls. 22
Útivist:
Kirkju-
ganga
- bls. 23
Veitingahús
vikunnar:
Kalkúna-
veisla á
L.A. Café
-sjábls. 18
Skemmtanir:
Bræður
með
villibráð
- sjábls. 19
Sýningar í
Gerðubergi
Andres Magnússon opnar mál-
verkasýningu í Kafii Geröi, veit-
ingabúð menninganniöstöðvar-
innar í Gerðubergi, þann 2. mai
næstkomandi. Andrés sýnir
landslagsmyndir, unnar með ol-
íuhtum. Andrés er fæddur 1924
og lærði hjá Finni Jónssyni, Jó-
hanni Briem og Jóhannesi Jó-
hannessyni. Sýningin í Geröu-
bergi er opin á sama tima og veit-
ingastofan og stendur tíl 30. maí.
Sýning Áma Sigurðssonar í
Menningarmiðstöðinni í Gerðu-
bergi stendur til 19. maí. Ámi er
búsettur í Svíþjóö og er þetta
fyrsta sýrúng hans á íslandi.
Hann er sonur Sigurðar Guð-
mundssonar myndhstarmanns
og Ineke Guðmundsson og hefur
hann búið erlendis frá því hann
var fimm ára gamall. Menntun
sína hlaut Ámi hjá AKT Enscede
í Hoilandi og í Konsthögskolan í
Stokkhólmi.
Sýningunni iýkur 19. maí.