Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Page 5
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992.
Messur
Digranesprestakall: Guösþjónusta f
Kópavogskirkju kl. 11.00 á sunnudag.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg fimmtu-
daginn 30. apríl kl. 20.30. Dr. Sigur-
jón Þ. Eyjólfsson flytur erindi um lög-
mál og fagnaðarerindi Lúters. Rætt
verður um sumarferðalagið. Kaffiveit-
ingar og að lokum helgistund.
Fellaprestakall: Guðsþjónusta kl.
11.00 á sunnudag í Fella- og Hóla-
kirkju. Organisti Guðný Margrét
Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjartarson.
Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta
verður í Árbæjarkirkju sunnudag kl.
11. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Kl. 13.00 verður haldið í vorferðalag
sunnudagaskólans. Farið verður frá
Árbæjarkirkju og til Grindavíkur.
Áætluð heimkoma er kl. 17.00. Fyrir-
bænaguðsþjónusta miðvikudag kl.
16.30. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
Hjallaprestakall: Sameiginleg guðs-
þjónusta á sunnudaginn kl. 14 í Kópa-
vogskirkju. Prestur sr. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
Kársnesprestakall: Guðsþjónusta kl.
14 á sunnudag í Kópavogskirkju.
Prestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Organisti Sighvatur Jónasson.
Seljaprestakall: Guðsþjónusta verð-
ur kl. 14 sunnudag. Konur úr kvenfé-
lagi Seljasóknar sjá um messuna.
Prestur verður sr. Irma Sjöfn Óskars-
dóttir og prédikari Ingibjörg Sigur-
vinsdóttir. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson.
Bessastaðakirkja: Guðsþjónusta kl.
14. Kirkja heyrnarlausra tekur þátt í
athöfninni. Sr. Myako Þórðarson pre-
dikar. Stjórnandi John Speight. Org-
anisti Þorvaldur Björnsson. Sr. Bragi
Friðriksson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11.
Arna, Gunnar og Sigurjón. Guðsþjón-
usta kl. 14. Einsöngur Magnea Tóm-
asdóttir. Bjöllusveitin leikur. Pálmi
Matthiasson.
Dómkirkjan: Fermingarmessa kl. 11.
Altarisganga. Sr. Hjalti Guðmundsson
og sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Mið-
vikudagur kl. 12.10: Hádegisbænir í
kirkjunni. Léttur málsverður á kirkju-
loftinu á eftir. Miðvikudagur kl.
13.30-16.30: Samvera aldraðra I
safnaðarheimilinu. Tekiö I spil. Kaffi-
borð, söngur, spjall og helgistund.
Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl.
10.00. Sr. Magnús Björnsson.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl.
11. 6 ára börn og eldri og foreldrar
þeirra uppi. Yngri börnin niðri. Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Prestur sr. Halldór
S. Gröndal. Organisti Arni Arinbjarn-
arson. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl.
12.00. Orgelleikur í 10 mínútur. Fyrir-
bænir, altarisganga og léttur hádegis-
verður. Þriðjudagur kl. 14.00: Biblíu-
lestur og kirkjukaffi. Allir velkomnir.
Sr. Halldór S. Gröndal.
Hallgrimskirkja: Messa og barna-
samkoma kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Háteigskírkja: Messa kl. 11. Sr. Tóm-
as Sveinsson. Mánudagur: Biblíulest-
ur kl. 21.00. kvöldbænir og fyrirbænir
eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Fermingarmessa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Kór
Langholtskirkju syngur. Organisti Jón
Stefánsson. Aftansöngur alla virka
daga kl. 18 í umsjá sr. Flóka Kristins-
sonar.
Laugarneskirkja: Guösþjónusta kl.
11. Hjálmar P. Pétursson syngur ein-
söng. Organisti Ronald V. Turner. Sr.
Jón D. Hróbjartsson. Heitt á könn-
unni eftir guðsþjónustuna. Fimmtu-
dagur: Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleik-
ur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu að
stundinni lokinni.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11 (at-
hugið breyttan tíma) I safnaðarheimili
kirkjunnar. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Guðmundur Öskar Ölafs-
son. Miðvikudagur: Bænamessa kl.
18.20. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Fimmtudagur: Bibliulestur kl. 20.00 I
safnaðarheimilinu í umsjá sr. Franks
M. Halldórssonar.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Organisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Miðvikudagur: Kyrrðarstund kl. 12.
Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Létt-
ur hádegisverður I safnaðarheimilinu.
And-leikhúsið:
Danni og djúpsævió bláa
Nýstofnað leikhús, And-leikhúsið,
fhnnsýnir laugardaginn 2. maí
Danna og djúpsævið bláa eftir banda-
ríska leikskáldið og handritshöfund-
inn John Patrick Shanley. Verkið var
frumsýnt í New York 1984 og vakti
samstundis sterk viöbrögð gagnrýn-
enda og áhorfenda sem hrósuðu
verkinu fyrir mergjaðan texta og
kímnigáfu í bland við áhrifamikla
dramatík.
í Danna og djúpsævinu bláa segir
frá kynnum Danna og Rúnu eina
kvöldstund á sóðalegri knæpu í
Bronxhverfinu. Þau hafa bæði slegið
um sig þykkum skráp sem þau veija
með kjafti og klóm í ofsafenginni til-
raun tíl að leyna atburðum úr fortíð
sinni. Danni telur sig hafa drepið
mann fyrr um kvöldið og yfir fortíð
Rúnu hggja dökkir skuggar. Þau taka
tal saman og brátt hefst ófyrirsjáan-
leg atburðarás þar sem teflt er fram
biturri lífsreynslu, sektarkennd,
sjálfsblekkingum og ávaUt er stutt í
logandi árásargimi beggja.
Leikstjóri og þýðandi leikritsins er
Ásgeir Sigurvaldason. Með aðalhlut-
Helga Braga Jónsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson fara með hlutverkin í
Danna og djúpsævinu mikla. DV-mynd BG
verkin tvö fara Helga Bragá Jóns- Sýningar fara fram í Tunghnu við
dóttir og Þorsteinn Guðmundsson. Lækjagötu. -HK
Sigrún Ástrós í Borgarleikhúsinu
Margrét Helga Jóhannsdóttir i titilhlutverkinu í Sigrúnu Ástrós.
Leikfélag Reykjavíkur hefur hafið
sýningar á Sigrúnu Ástrós eftir
breska leikskáldið Willy Russeh og
er þetta þriðja leikárið í röð sem þetta
vinsæla leikrit er sýnt. í þessari lotu
verða tíu sýningar á leikritinu. Það
er Margrét Helga Jóhannsdóttir sem
leikur eina hlutverkið, Sigrúnu Ást-
rós sem finnst tími kominn til að
breyta um lífsmáta.
Sigrún Ástrós var kvikmynduð á
sínum tíma undir frumheitinu Shir-
ley Valentine og naut sú kvikmynd
mikilla vinsælda. Hlaut leikkonan,
Pauline Collins, tilnefningu til ósk-
arsverðlauna fyrtir frammistöðu
sína.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Maurice Bourgue
leikur einleik á óbó
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í rauöri tónleikaröð verða
haldnir í Háskólabíói klukkan 20.00 .
í kvöld. Fjögur verk verða á efnis-
skránni:
Sinfónía nr. 1 í F-dúr eftir Leevi
Madetoja, Konsert fyrir óbó og htla
hljómsveit eftir Bohuslav Martinu,
Adiago, stef og tilbrigði fyrir óbó og
hljómsveit eftir J.N. Hummel og Eld-
fuglinn, svíta eftir Igor Stravinskíj.
Einleikari á tónleikunum er Frakk-
inn Maurice Bourgue og hljómsveit-
arsijóri Petri Sakari, aðalhljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
Maurice Bourgue óbóleikari er vel
þekktur í sinni grein. Hann hefur
hlotið heiðursmerki Parísarborgar
fyrir störf sín að tónhstarmálum í
Frakklandi og er eftirsóttur kennari
í óbóleik víða um heim. Hann lauk
námi með láði frá Tónhstarháskól-
anum í París árið 1966 og vann til
verðlauna í mörgum tónhstarkeppn-
um í Múnchen, Prag og Búdapest.
Þá deildi hann fyrstu verðlaunum í
alþjóölegu tréblásarakeppninni í
Birmingham á Englandi árið 1966
með James Galway.
Hljómsveitarstjóri kvöldsins verð-
ur Petri Sakari. Hann er nú að ljúka
fjórða starfsári sínu með Sinfóniu-
hljómsveitinni og nýlega var samn-
ingur við hann endumýjaður til eins
árs. Hann mun því halda áfram störf-
um með hljómsveitinni að minnsta
kosti til loka starfsársins 1992-1993.
39
Þjóðleikhúsið
Sími: 11200
Stóra svidið:
Elín, Helga, Guðríður
föstudag kt. 20.
Emil í Kattholti
laugardag kl. 14 og 17,
sunnudag kl. 14 og 17.
Litla sviðið:
Kæra Jelena
laugardag ki. 20.30,
sunnudag kl. 20.30.
Smiðaverkstæðið:
Eg heiti ísbjÖrg, ég er Ijón
laugardag kl. 20.30.
Borgarleikhúsið
Sími: 680680
Stóra sviðið:
Þrúgur reiðinnar
föstudag kl. 20,
laugardag kl. 20.
La Bohéme
sunnudag kl. 20.
Litla sviðið:
Sigrún Ástrós
föstudag kl. 20,
laugardag kl. 20.
Leikfélag
Hafnarstræti 57, símí 96-24073
íslandsklukkan
föstudag kl. 20.30,
laugardag kl. 20.30.
Hugleikur
Brautarfíolti 8, slmi 36858
Fermingarbarnamótið
föstudag kl. 20.30,
laugardag kl. 20.30.
Garðaleikhúsið
Félagsheimilt Köpavogs, simi 41985
Luktar dyr
föstudag kl. 20.30.
Maurice Bourgue óbóleikari.
Sr. Gísli H. Kolbeins:
Af hveiju nefhir Jesús sig góða hirðinn?
Jóh. 10,14; „Ég er góði hiröirinn og
þekki mína og mínir þekkja mig eins
og faðirinn þekkir mig og ég þekki
foðurinn. Ég legg líf mitt í sölurnar
fyrir sauðina."
Góði hirðirinn. Hver skyldi það nú
vera? Er ef til vih um fleiri en einn
aö ræða sem gæti borið heitið „Góði
hirðirinn"? Gæti verið að sumum
sýndist að þeir væru margir? Af
hverju nefnir Jesús sig góða hirðinn?
Hann er ekki með marga í huga.
Kenning hans tekur aðeins til einnar
persónu sem ber heitið „Góði hirðir-
inn“ með réttu. En raddimar eru
margar sem kalla og þykjast vera
rétta leiðtogaröddin. Fjölmiðlamir
hafa hátt á því sviði og í þeim kynna
margir sig með ýmsu móti. Ekki
vantar staðhæfingar um hvert hjörð-
inni er hollast að stefna og halda sig
Sr. Gísli H. Kolbeins.
í skjóh og við haga. Það kennir
margra grasa og þó sitt af hvetju
tagi. Ekki vantar leiðimar. Þær em
fremur í hundraðatölum heldur en
einn stígur. Ég ætla ekki að fara að
túlka það sem DV flytur þér af ýmsu
kenningatagi. En gáðu að og beittu
eigin atgervi til aö átta þig á hvort
þú vilt fylgja einhveijum af þeim
hirðum, sem þar kynna sig, eða snúa
þér að Jesú Kristi og fylgja honum,
hirðinum góða.
Ég bendi þér á að góði hirðirinn,
sem kynnir sig í guðspjöhunum, er
mér betri leiðsögumaður á lífsins
vegi en nokkur annar. Hann hefir
sagt við mig og þig. „Allt sem þér
viljið að aðrir menn gjöri yður það
skuluð þér og þeim gjöra.“ (Guhna
reglan Matt. 7,12.) Hann hefir líka
sagt við mig og þig: „Nýtt boðorð gef
ég yður, að þér elskið hver annan.
Eins og ég hef elskað yður skuluð
þér einnig elska hver annan. Á því
munu allir þekkja að þér erað mínir
lærisveinar ef þér berið elsku hver
til annars." Jóh. 13,34,35. Þannig er
raust góða hirðisins sem leggur líf
sitt í sölurnar fyrir sauðina. Hann
útskýrði það vel fyrir okkur með htlu
biblíunni í Jóh. 3,16. „Því svo elskaöi
Guð heiminn að hann gaf son sinn
eingetinn til þess að hver sem á hann
trúir glatist ekki heldur hafi eilíft
líf.“ Raust þessa hirðis er lífsins
mál. Við leiðsögn hans er ljúft að lifa
með vorinu og gróandanum, hvemig
sem kenningavindar (jölmiðla næða
á mannlífsakri. Gáum aö okkur og
greinum nú rétt raust „Góða hirðis-
ins“.