Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1992, Side 5
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1992.
21
Messur
Árbæjarkirkja: Hátíöarguðs
þjónusta hvítasunudag Rl. 11 árdegis. Helga
Þórarinsdóttir leikur á lágfiðlu í guðsþjón-
ustunni. Organleikari Sigrún Steingríms-
dóttir. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Hvítasunnudagur: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Ingibjörg Marteinsdóttir
syngur einsöng. Magnea Árnadóttir leikur á
þverflautu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Sameiginleg hátíðarguös-
þjónsta Breiðholtsóknar og Hjallasóknar í
Breiðholtskirkju kl. 11. Altarisganga. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson predikar. Organ-
isti Violeta Smid. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Hvítasunnudagur: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11. Pálmi Matthíasson.
Digranesprestakall: Hátíðarguðsþjónusta í
Kópavogskirkju hvítasunnudag kl. 14.
Guðsþjónsta annan í hvítasunnu kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Hvítasunnudagur: Hátíðar-
messa kl. 11.00. Altarisganga. Prestur sr.
Jakob Á. Hjálmarsson. Annar dagur hvíta-
sunnu: Hátíðarmessa kl. 11. Prestur sr.
Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur
við báðar hátíðarmessurnar. Organisti Mar-
teinn H. Friðriksson. Miðvikudagur kl.
12.10: Hádegisbænir í kirkjunni. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Elliheimilið Grund: Hvítasunnudagur: Guðs-
þjónusta kl. 10.00. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
Feila- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Ingólfur Guðmundsson. Organ-
isti Guðný M. Magnúsdóttir. Prestarnir.
Fríkírkjan í Hafnarfiröi: Guðsþjónusta kl. 11.
Ath. breyttan tíma. Organisti Kristjana Ás-
geirsdóttir. Einar Eyjólfsson.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14.00. Miðvikudagur 10.
júní kl. 7.30. Morgunandakt. Orgelleikari
Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14. Ferm-
ing.
Grafarvogssókn: Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11 í félagsmiðstöðinni
Fjörgyn, Foldaskóla. Sr. Kjartan Örn Sigur-
björnsson sjúkrahúsprestur predikar og
þjónar fyrir altari. Organisti Pavel Smid. Vig-
fús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Hvítasunnudagur: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur sr. Halldór
S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12.00. Orgel-
leikur í 10 mínútur. Fyrirbænir, altarisganga
og léttur hádegisverður. Þriðjudagur kl.
14.00. Biblíulestur og kirkjukaffi. Allir vel-
komnir. Sr. Halldór S. Gröndal.
Hailgrímskirkja: Hvítasunnudagur: Messa
kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Hvítas-
unudagur: Messa kl. 14. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Annar í hvítasunnu: Messa kl.
11. Altarisganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja: Hvítasunnudagur: Hámessa
kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson. Annar í hvíta-
sunnu: Hámessa kl. 11. Sr. Tómas Sveins-
son. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
Hjallasókn: Hvítasunnudagur. Sameiginleg
hátíöarguðsþjónusta Hjalla- og Breiðholts-
safnaða í Breiðholtskirkju kl. 11. Altaris-
ganga. Sóknarfólk er hvatt til þátttöku. Org-
anisti Violeta Smid. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
Kársnesprestakall: Hátíðarguðsþjónusta (
Kópavogskirkju hvítasunnudag kl. 11. Org-
anisti Sighvatur Jónasson. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
Landakotsspítali: Hvítasunnudagur: Messa
í kapellu kl. 13. Organisti Birgir Ás Guð-
mundsson. Kjartan Orn Sigurbjörnsson.
Hafnarbúðir: Hvítasunnudagur: Messa kl.
14. Organisti BirgirÁsGuðmundsson. Kjart-
an Örn Sigurbjörnsson.
Landspítalinn: Hvítasunnudagur: Messa kl.
10. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups.
Hvítasunnudagur: Messa kl. 11. Prestur sr.
Ingólfur Guðmundsson. Kór Langholts-
kirkju (hópur IV og V) syngur. Organisti Jón
Stefánsson. Aftansöngur alla virka daga kl.
18.
Laugarneskirkja: Hvítasunnudagur: Hátíö-
armessa kl. 11. Dr theol. Hjalti Hugason
predikar. Sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Kór Laugarneskirkju flytur Cantique de Jean
Racine op. 11. Organisti Ronald Turner.
Heitt á könnunni eftir messu. Fimmtudagur:
Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu að stundinni lokinni.
Neskirkja: Hvítasunnudagur: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11.00. Orgel- oa kórstjór Reyn-
ir Jónasson. Guðmundur Oskar Ólafsson.
Inga Backman syngur einsöng. Annar í
hvítasunnu: Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Frank M. Halldórsson. Kolbrún á Heygum
syngureinsöng. Miðvikudagur: Bænamessa
kl. 18.20. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Óháöi söfnuöuriryi: Guðsþjónusta kl. 11.
Safnaðarprestur.
Seljakirkja: Hvítasunnudagur. Guðsþjón-
usta í Seljahlíð kl. 11. Guðsþjónusta í Sel-
jakirkju kl. 14. Organisti Kjartan Sigurjóns-
son. Valgeir Ástráðsson.
Seltjarnarneskirkja: Hvítasunnudagur. Há-
tíöarguösþjónusta kl. 11. Organisti Gyða
Halldórsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Miðvikudagur: Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Létt-
ur hádegisverður í safnaöarheimilinu.
Stokkseyrarkirkja: Messa annan hvíta-
sunnudag kl. 14.
DV-mynd ÞÖK
Leikhópurinn Bandamenn halda á Sveini Einarssyni sem er höfundur leikgerðar og leikstjóri.
Norræna húsið:
Bandamannasaga
Nýtt, íslenskt leikverk verður
frumsýnt í Norræna húsinu á laug-
ardaginn, er það Bandamannasaga,
gert eftir samnefndri fomsögu.
Bandamannasaga er í hópi styttri
fomsagna og hefur nokkra sérstöðu,
þar sem telja má hana eina af fyrstu
gamansögum í bókmenntum okkar.
Sveinn Einarsson hefur snúið þess-
ari alkunnu sögu í sjónleik og verður
hann frumfluttur af leikflokknum
Bandamönnum. Er þessi leiksýning
framlag Norræna hússins til Lista-
hátíðar í Reykjavík og Norrænu leik-
hstardaganna.
Bandamannasaga, sem talin er
hafa verið samin um miðbik 13. ald-
ar, er til í tveimur gerðum mislöng-
um. Leiktextinn er sóttur í þær báöar
og mótaðist að auki talsvert í leik-
smiðju Egg-leikhússins sumarið 1990
en tók loks umtalsverðum breyting-
um á æfingaskeiðinu. Fyrir nokkr-
um árum stóð Sveinn Einarsson fyr-
ir því að láta flytja Bandamannasögu
í útvarpi, sagan var þar flutt orðrétt
og með sögumanni og leikendum.
Hér er farin allt önnur leið og ólíkum
stílbrögðum nútímaleikhúss beitt til
að flytja fram söguna á lifandi hátt.
í leikhópnum Bandamenn eru 6
leikarar sem fram koma í sýning-
unni. Borgar Garðarsson, sem nu
leikur aftur á íslandi eftir langa dvöl
í Finnlandi, er einn leikara, aðrir eru
Ragnheiður Elfa Amardóttir, Jakob
Þór Einarsson, Stefán Sturla Sigur-
jónsson, Felix Bergsson og Guðni
Franzson, sem einnig hefur samið
alia tónlist við leikinn og flytur hana.
Sveinn Einarsson leikstýrir verkinu.
Sýningin tekur um klukkustimd í
flutningi og er ekki hægt að hleypa
áhorfendum inn eftir að sýning hefst.
Gert er ráð fyrir að sýna leikritið
fimm sinnum á Listahátíð.
Þjóðleik-
husið
Stmi 11200
Stóra sviðið:
Elín, Helga, Guðríður
mánudag ki. 20.
Smíðaverkstæðið:
Ég heiti isbjörg,
ég er Ijón
föstudag kl. 20.30
laugardag ki. 20.30.
Litla sviðið:
Kæra Jelena
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30.
Borgar-
leikhúsið
Sími 680680
Stóra sviðið:
Þrúgur reiðinnar
föstudag kl. 20
laugardag kl. 20.
leikhúsið
Tunglinu, símí 27333.
Danni og
djúpsævið bláa
laugardag kl. 20.30.
Bandamenn
Norræna húsinu, sími 17030
Bandamannasaga
laugardag kk 17
mánudag kl. 17.
Laugardalshöll:
Iron Maiden á í slandi
Hljómsveitin Iron Maiden.
Ein vinsælasta þungarokkshljóm-
sveit heims, Iron Maiden, er nú stödd
hér á landi og mun hún leika í Laug-
ardalshöllinni í kvöld. Meðlimir
hljómsveitarinnar komu til landsins
á miðnætti í gær og er þetta fyrsta
stoppið í tónleikaheimsreisu hljóm-
sveitarinnar.
Iron Maiden var stofnuð árið 1976
og hefur því starfað í 16 ár. Hljóm-
sveitin hefur notið mikflia vinsælda
hér á landi og er DV hafði samband
við miðasölu tónleikanna í gær var
búist við að uppselt yrði á tónleikana.
Meðhmir hljómsveitarinnar eru:
Steve Harris, bassi, Jannick Gers og
Dave Murray, gítar, Nicko McBain,
trommur, og svo Bruce Dickinson,
söngur.
Iron Maiden byijar að spila í kvöld
kl. 19 og spilar í um tvo tíma. Vegna
mikiis annríkis hljómsveitarinnar
var aðeins hægt að fá hana til að
spila þetta eina kvöld.
Miðaverð á tónleikana er kr. 3800
og miðasala er í síma 682857.
Sr. Gísli Jónasson, Breiðholtssókn
Hátíö framundan
Framundan er hátíð. Hvítasunnan
nálgast, þessi hátíð sem í hugum
margra er raunar fyrst og fremst
fyrsta stóra ferða- og útívistarhelgi
sumarsins. Uppruni hátíðarinnar
virðist hins vegar mörgum gleymd-
ur. Þetta, að á hinni fyrstu hvíta-
sunnu fengu lærisveinar Jesú þann
kraft og þá blessun sem breytti lífi
þeirra. Gaf þeim raunar nýtt ltf. Þess-
ir menn, sem áður höfðu verið kjark-
litlir og óttaslegnir, já, höfðu jafnvel
lokað sig inni eftir handtöku Jesú og
dauða, af ótta viö að þeirra biðu sömu
örlög ef þeir létu á sér kræla,
streymdu allt í einu út á götur Jerú-
salemborgar.
Hvilík breyting! Nú var ekki lengur
afneitaö eða farið í felur. Skyndilega
var sem ekkert gætí stöðvað þá. Þeir
lögðu á sig ólýsanlegt erfiði og létu
jafnvel fremur lífið en að þeir hættu
að boða mönnum trúna á Jesúm
Krist eða afneituðu honum.
Hvað var það sem olii þessari
skyndilegu breytingu? Þessum mikla
eldmóði og þeirri djörfung sem nú
einkenndi lærisveinana og gerði þá
allt í einu ósigrandi? Jú, þeir höfðu
mætt hinum krossfesta og upprisna
frelsara. Á páskum hafði ósigurinn
snúist í sigur. Þeir höfðu talað við
hann, þretfað á honum, borðað með
honum og fengið endanlega og óyggj-
andi staðfestingu á því, að Jesús
Kristur var og er raunverulega sá,
sem hann sagðist vera: Kristur, son-
ur Guðs! Á hvítasunnu sendi hann
þeim sinn heilaga anda. Þeir með-
tóku þennan dag með sérstökum
hætti styrk Krists og blessun. Eftir
þaö varð allt nýtt, bæði í lífi þeirra
og starfi. Þennan dag urðu þau þátta-
skil sem öllu breyttu. Kristin kirkja
varð raunverulega til.
Safnir þú frímerkjum þá veistu lík-
lega að í sumum löndum bera flest
ef ekki öll frímerki mynd þjóðhöfð-
ingjans. Á Englandi er Elísabetu
drottningu að finna á flestum frí-
merkjum. Og á þeim fáu merkjum
þar sem hún er ekki aðalmyndefnið
þá er yfirleitt að finna htla mynd af
henni í einhveiju hominu. Og öll
bera merkin fangamark hennar.
Enginn þarf því að vera í vafa um
hvaðan frímerkið er, það ber merki
drottningarinnar.
Einmitt þannig á ltf okkar krist-
inna manna að vera. Við höfum öll
verið helguö Drottni í heilagri skím.
Við nutum flest þeirrar náðar í frum-
bemsku að vera merkt honum og
berum tákn hins heilaga kross bæði
á enni okkar og brjósti. Ltf okkar
aUt á að bera merki hans. Bera hon-
um vitni. Hann vill gefa okkur alit
sem viö þörfnumst til að svo megi
verða. Hann vill fá að úthella heilög-
um anda sínum yfir okkur eins og
yfir lærisveinana forðum. Hann vill
fá að fylla ltf okkar þeim krafti sem
hann einn gefur, þannig að einnig
við fáum að reyna það hver Jesús
Kristur raunverulega er, lærum að
þekkja hann, treysta honum og ltfa
því lífi sem hann vfil gefa.
Hefur þú reynsluna af þessum
krafti? Hefur HeUagur andi fengið
að komast að í hjarta þínu? Það er
mikUvægt að við gemm okkur grein
fyrir því að við þurfum að ljúka upp
fyrir honum og veita því viðtöku sem
hann viU gefa. Aðeins þannig fáum
Sr. Gisli Jónasson.
við að reyna hvitasunnuundrið
mikla í lífi okkar og þá stórkostlegu
breytingu, hið nýja ltf, sem það hefur
í fór með sér.
Kristur kaUar okkur til fylgdar viö
sig. Svömm við kaUi hans og fylgjum
honum þá fáum við að reyna að
hvítasunnan er meira en bara ferða-
lög og afslöppun eina helgi. Þaö er
hátíð framundan! MikU gleðihátíð.
Hátíð heUags anda. Hátíð hins nýja
ltfs sem Jesús Kristur viU fá að gefa
okkur hverju og einu hlutdeUd í.