Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1992, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992.
5
Fréttir
Heildsalar vilja Mikla-
garð í greiðslumat
- eigið fé neikvætt upp á 125 milljónir króna
Margir af helstu lánardrottnum
Miklagarðs, aðallega heildsalar og
seljendur ýmiss konar þjónustu,
funduðu fyrir skömmu. Tilefni fund-
arins var staða Miklagarðs og
greiðslugeta hans, en fyrirtækið var
rekið með nærri 400 milljóna króna
halla á síöasta ári og á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs var hallinn af
rekstrinum 95 milljónir króna.
Það sem lánardrottnar Miklagarðs
vilja er að hlutlausir aðilar verði
fengnir til að gera greiðslumat á
Miklagarði, það er að metið verði
undir hversu miklum skuldbinding-
um fyrirtækið getur staðið.
Það mun hafa færst í vöxt að gert
sé greiðslumat fyrir fyrirtæki sem
eru í miklum lánsviðskiptum.
Þegar staða Miklagarðs er skoðuð
nánar kemur meðal annars í ljós
Sambandið, sem á 94 prósent í fyrir-
tækinu, afskrifar í ársreikningi síð-
asta árs, allt hlutafé sitt í Mikla-
garði, sem var bókfært fyrir 506
milljónir króna.
Um síðustu áramót var eigið fé
Miklagarðs neikvætt um 125 milljón-
ir króna.
í ljósi þessarar stöðu hafa helstu
lánardrottnar Miklagarðs óskað þess
að gert verði greiðslumat svo hægt
verði að meta undir hversu miklum
skuldbindingum fyrirtækið getur
staðið.
„Ég hef ekki heyrt af þessu nema
á skotspónum. Það hafa engir lánar-
drottnar okkar haft samband við
okkur beint og óskað eftir þessu,“
sagði Bjöm Ingimarsson, fram-
kvæmdastjóri Miklagarðs, þegar
hann var spurður hvort óskað hefði
verið eftir að Mikligarður færi í
greiðslumat.
- En kæmi ósk um slíkt þér á óvart,
í ljósi stöðu fyrirtækisins?
„Við munum, þegar við höfum
fengið okkar plön samþykkt af okkar
eigendum, setjast niður með okkar
helstu lánardrottnum og kynna þeim
hvað um er að vera. Það er ósköp
eðlilegt í framhaldi af þetta lélegri
afkomu. Ég veit að menn hafa hrokk-
ið viö þegar þeir heyrðu tölur af af-
komu okkar,“ sagði Björn Ingimars-
son.
Bjöm sagði að helstu lánardrottnar
fái gögn frá fyrirtækinu þar sem þeir
geta metið þau sjálfir. „Ég get ekki
metið, eða tekið afstöðu til, á þessari
stundu hvort við munum taka ein-
hvern hlutlausan aðila þar inn til
viðbótar."
-sme
Leikfélag Flateyrar:
Önf irskt mannlíf í 100 ár á sviði
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Leikfélag Flateyrar frumsýndi sl.
sunnudagskvöld leikritið „Ég hef lif-
að í þúsund ár“. Húsfyllir var á sýn-
ingunni sem þótti takast afbragðsvel.
Verkið, sem er frumsamið fyrir
leikfélagið í tilefni af 70 ára afmæli
Flateyrarhrepps, byggir á svipmynd-
um úr önfirsku mannlífi í 100 ár eða
frá því fyrir aldamót fram til dagsins
í dag. Brynja Benediktsdóttir, höf-
undur verksins, dvaldi á Flateyri um
tíma sl. vetur og aflaði sér efnis til
sögunnar með viðtölum við fólk.
Brynja var viöstödd fmmsýning-
una í boði leikfélagsins og sagði í
viðtali við fréttamann DV eftir hana
að hún hefði verið kvíðafull þar sem
verkið er flókið og miklar skiptingar
milli atriða en sá kvíði heföi reynst
ástæðulaus.
„Ég er mjög ánægð. Það er mikill
kraftur og fjör í þessu. Leikstjórinn
og leikaramir hafa unnið kraftaverk
og ég er í sjöunda himni með útkom-
una. Þetta lukkaðist ótrúlega vel,“
sagði Brynja.
Leikstjóra og leikurum fagnað í lok sýningarinnar.
DV-myncl Reynir
í LAUGARDAL
Sýningar:
Virka daga
kl. 20.00
Laugardaga
kl. 15.00 og 20.00
Sunnudaga
kl. 15.00 og 20.00
Eyvindur Erlendsson leikstjóri
sagöist vera ánægður með árangur-
inn.
„Þetta er þungt verk og það erfið-
asta í þessu er að koma saman hópi.
Það verður sífellt erfiðara eftir því
sem árin líða þar sem fólk er upptek-
ið af flestu öðm en listum. Það er
gaman þegar tekst að ná saman hópi
dugnaðarfólks sem hefur getu og
vilja til að ná því fram sem höfundur
vill að verk sitt skili á sviði. Slíkt er
oft erfitt með atvinnuleikurum og í
þessu verki emm við með fólk sem
er jafnvel að stíga sín fyrstu spor á
sviði.“
Um 30 manns, þar af 20 leikarar,
taka þátt í uppfærslunni eða rétt inn-
an við 10% íbúa á Flateyri. Fyrirhug-
aðar em a.m.k. 4 sýningar í viðbót á
meðan á afmælishátíðinni stendur.
Góó raö eru tilaö
fara eftir þeim!
Eftireinn
-ei aki neinn
Fyrsta tönnin - fyrstu skrefin - fyrsti skóladagurinn, fermingin, útskriftin,
öll afmælin, trúlofunin, giftingin og áfram...
Öllum þessum atburðum og fleira til geturðu safnað með Canon E-230 vídeó-
tökuvélinni og gengið að þeim vísum þegar þig langar til að hverfa á vit
minninganna, eða gefa börnunum þær í brúðkaupsgjöf.
Canon 230 vídeótökuvélin
er afar auðveld og meðfærileg:
Aðdráttarlinsa með tífalda nálgun.
3 lux Ijósnæmi. Lokari; 1/10.000 sek. Fjarstýring. Upptökuljós.
Ókeypis taska fylgir.
Verðið er aðeins kr. 59.900,- staðgr.
Raðgreiðslur VISA / EURO.
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI, GLÆSIBÆ, AUSTURVERI, LAUGAVEGI,
KRINGLUNNI, LYNGHÁLSI, HÓLAGARÐI OG SKEIFUNNI 8