Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1992, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992.
17
Fréttir
Svæðisbundnir leiðsögumenn á Austurlandi:
Stof na með sér samtök
ssssír*
JOHN CUSACK
.»*mmm
Hestamót á Hofgerðisvelli
Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri
ætlaði sér ekki að missa af útskrift
leiðsögumanna á Austurlandi. Sem
ferðavanur maður reyndi hann að
tipla á steinum yfir Geithellaá en það
tókst nú ekki sem skyldi.
óska ennfremur aðildar að Leiðsögumannafélagi íslands
Svæðisbundnir leiðsögumenn á
Austurlandi hafa ákveðið að stofna
með sér samtök til að gæta hags-
muna sinna gagnvart Leiðsögu-
mannafélagi íslands og efla samstarf
sín á milli. Jafnframt hafa þeir
ákveðið að sækja um aðild að Leið-
sögumannafélagi íslands. Undirbún-
ingsfundur að stofnun samtakanna
var haldinn á Hótel Framtíð á Djúpa-
vogi fyrir stuttu.
Alls eru starfandi 27 svæðisbundn-
ir leiðsögumenn á Austurlandi. Þeir
útskrifuðust allir af námskeiði fyrr
um daginn sem Farskóli Austur-
lands og Ferðamálasamtök Austur-
lands stóðu fyrir síðasthðinn vetur.
Réttindi þeirra til leiðsagnar eru
bundin Austurlandi en áhugi mun
vera fyrir því að færa leiðsögusvæöið
út til norðurs og suðurs.
Útskriftin fór fram að Tröllatjöm
inn af Álftafirði. Viðstaddir útskrift-
ina voru Birgir Þorgilsson ferða-
málastjóri og Danfríður Skarphéð-
insdóttir, varaformaður Leiðsögu-
mannafélags íslands.
í máh Birgis kom fram ánægja meö
að byijað væri að mennta heimafólk
í leiðsögn. Það búi yfir þekkingu og
reynslu sem ferðamenn sækist eftir.
Kvaðst hann vonast til að framhald
yrði á þessari þróun þannig að til
staðar verði svaeðisbundnir leiðsögu-
menn alls staðar á landinu.
Danfríður tók í svipaðan streng og
kvaðst vonast tíl aö hinir nýútskrif-
uðu leiðsögumenn kæmu th liðs við
Leiðsögumannafélag Islands. Var
ekki á henni að heyra að nein tor-
merki væru á því.
í samtali við DV kváðust leiðsögu-
mennimir geta boðið ferðafólki upp
á mun persónulegri þjónustu heldur
en almennt tíðkaðist meðal leiðsögu-
manna. Þannig geti hver sem er, ein-
staklingar og hópar, stórir sem smá-
ir, keypt sér leiðsögn um þaö svæði
sem þeir eru staddir á hveiju sinni.
Þau lögðu á þaö áherslu að leiðsögn
væri ekki bundin við fólksflutninga-
bha því kostnaðurinn væri ekki
meiri en svo að til dæmis hjón á eig-
in bíl gætu fengið sér leiðsögn. „Við
vhjum gera ferðaþjónustuna heimh-
islega,“ sögðu þau einum rómi.
-kaa
Umferö var hleypt á nýju brúna yfir Markarfljót 11.júni Malbikun er vel á
veg komin en eftir er að leggja seinni umferð af slitlagi. Við opnun vegar-
ins styttist hringvegurinn um 5,5 km en leiðin til Þórsmerkur lengist um
sömu vegalengd. Brúin er mikið mannvirki og þarft. Enn hefur ekki verið
ákveðið hvort gömlu brúnni verður lokað alveg eða höfð opin litlum bílum.
DV-mynd Jón Þórðarson, Hellu
Svæðisbundnir leiðsögumenn fyrir Austurland luku fyrir skömmu námskeiði sem Farskóli Austurlands og Ferða-
málasamtök Austurlands stóðu fyrir. Útskriftin fór fram um síðustu helgi að Tröllatjörn inn af Álftafirði. Á mynd-
inni má sjá hluta hópsins en alls luku 27 manns námskeiðinu. DV-myndir kaa
Öm Þórarmsson, DV, njótum;
Hestamannafélágið Svaði hélt
keppnismót á Hofsgerðisvelh 6. júní
sl. Þátttaka var góð og nokkrir ágæt-
ir gripir sáust í gæðingakeppninni.
Hestu úrsht urðu eftirfarandi:
A-flokkur gæðinga:
1. Trix frá Gröf, eigandi Þorleifur
Jónsson, knapi Þórir Jónsson.
2. Kóróna frá Sigríðarstöðum, eig-
andi Lúðvík Ásmundsson, knapi
Egih Þórarinsson.
3. Flosi frá Brekkukoti, eigandi og
knapi Sigurbjöm Þorleifsson.
B-flokkur gæðinga:
1. Djákni frá Sleitustöðum, eigandi
Sigurður Sigurðsson, knapi Þórir
Jónsson.
2. Mollý frá Minni-Brekku, eigandi
og knapi Símon Gestsson.
3. Öðhngur frá Barði, eigandi Heiðr-
ún Alfreðsdóttir, knapi Egill Þór-
arinsson.
Unglingar, eldri flokkur:
1. Kristín Loftsdóttir, Melstað á
Kolku.
Unghngar, yngri flokkur:
1. Friðgeir Ingi Jóhannsson, Hofi
Höfðaströnd, á Hreyfli.
Kappreiðar - Stökk:
1. Vindur frá Ríp, eigandi og knapi
Gunnar Eysteinsson.
2. Dalh frá Melstað, knapi Kristín
Loftsdóttir.
Skeið:
1. Flosi frá Brekkukoti, knapi Sigur-
bjöm Þorleifsson.
Þórir Jónsson á Trix með verðlaun
fyrir sigur i A-flokknum.
DV-mynd örn
2. Þjóði frá Tjömum, knapi Loftur
Guðmundsson.
Brokk:
1. Djákni frá Sleitustöðum, knapi
Þórir Jónsson.
2. Gráni frá Krossi, knapi Guömund-
ur Loftsson.
Hesturinn Trix, 8 vetra, í eigu Þor-
leifs Jónssonar frá Vogum var kos-
inn glæshegasti hestur mótsins og
hlaut að launum veglegan farandgrip
th varðveislu.