Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1992, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1992, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992. Fréttir Afleiðingar hamfaranna á Patreksfírði í janúar 1983: Patrekshreppur dæmdur bóta- skyldur gagnvart fjölskyldu - hreppurinn mun áfrýja dómnum Dómur féll nýlega í aukadómþingi Barðastrandarsýslu í máli Guð- brands Haraldssonar og Vigdísar Helgadóttur gegn Patrekshreppi. Patrekshreppur er dæmdur bóta- skyldur vegna tjóns er þau urðu fýr- ir af krapaflóðinu á Patreksfirði hinn 22. janúar 1983. íbúðarhús þeirra skemmdist mikið og 6 ára dóttir þeirra var ein íjögurra sem fórust í flóðinu. Ólafur Arnfjörð Guðmunds- son, sveitarsljóri Patrekshrepps, sagði í samtali við DV að allar líkur bentu til þess að hreppurinn myndi áfrýja dómnum. Að öðru leyti vildi Ólafur ekki tjá sig um máhð. Guðbrandur krefur Patrekshrepp um bætur vegna framkvæmda sem gerðar voru í Geirseyrargili fyrir of- an Patreksfjörð á sínum tíma og eru taldar orsaka mikla snjósöfnun í gil- inu. Orðrétt segir í umræddum dómi: „Framangreindar framkvæmdir í gihnu verður að telja verulegar. Með þeim var breytt gerð gilsins og tals- vert hár garður reistur, eða a.m.k. endurbættur verulega og hækkaöur. Hefur garðurinn ráðið stefnu krapa- flóðsins. Verður að telja að van- ræksla sveitarstjómar, á að leita áhts sérfræðinga áður en ráðist var í framkvæmdir, leiði tíl þess að fella verði bótaskyldu á sveitarsjóð vegna tjóns þess er hlaust af krapaflóðinu. Dóminn kváðu upp Jón Finn- bjömsson, settur héraðsdómari á Keflavíkurflugvelh, prófessor Jónas Ehasson og Þórarinn Magnússon verkfræðingur. Gjafsóknarkostnað- ur stefnenda, rúmar 537 þúsund krónur, verður greiddur úr ríkis- sjóði, þar með tahn 400 þúsund króna málflutningslaun Sigurðar Georgs- sonar hæstaréttarlögmanns. Guðbrandur og Vigdís fengu bætur frá Patrekshreppi eftir hamfarimar en Guðbrandur sagðist í samtah við DV ekki hafa sætt sig við þær. Guð- brandur sagði bætumar hafa dugað fyrir innbúinu og endurbótum á hús- inu en fjölskyldan flutti aftur inn. „Konan og eldri sonur minn, sem lá undir flóðinu í tvo tíma, samþykktu ekki að búa áfram í húsinu. Þannig að við fluttum burtu frá Patreksfirði haustið 1983 og ég seldi húsið fyrir smánarverð þar sem hreppurinn neitaði að kaupa það,“ sagði Guð- brandur en fjöldskyldan flutti vestur árið 1980. Guðbrandur er búinn að ganga þrautagöngu í íslenska kerfmu. Fyrst fór hann í félagsmálaráðuneyt- ið, þá hreppsnefnd Patrekshrepps, Rannsóknalögreglu ríkisins, ríkis- saksóknara og loks innboðsmann Alþingis. Ekkert gekk en umboðs- maður Alþingis ráðlagði Guðbrandi að fara fram á gjafsókn. Eftir ítrekað- ar tilraunir tókst Guðbrandi að fá gjafsóknina. Máhð var um nokkurn tíma í aukadómþingi Barðastrandar- sýslu þar th umræddur dómur var kveðinn upp. -bjb í bálkestinum voru meöal annars tveir tólf tonna bátar. Systrafélag Víðistaðakirkju fékk ekki heimild til að kveikja í þeim. DV-mynd Brynjar Gauti Jónsmessubrenna bönnuð í Hafnarfírði: Það ræður ekki nokkur maður við veðrið segir formaður Systrafélags Víðistaðakirkju „Við reiknuðum með sumri og sól en því miður ræður ekki nokkur maður viö veðrið. Rokið er svo mikið að það er ekki þorandi að kveikja í bálkestinum. Reykinn myndi leggja yfir byggöina og slökkvihðið myndi ekki ráða viö eitt né neitt ef aht færi í bál og brand. Th að gera gott úr hlutunum ákváðum við því að vera með grhlveislu á túninu við kirkj- una,“ segir Unnur Sveinsdóttir, formaður Systrafélags Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði. Lögreglan og slökkvihðið í Hafhar- flrði synjaði í gærmorgun hafnfirsk- um konum að kveikja í bálkesti í fjörukambinun við Malimar vestan við gömlu simdlaugina. Konumar hafa undanfama daga safnað timbri í brennuna en th stóð að kveikja i henni í gærkvöldi í thefni Jóns- messu. Að sögn lögreglunnar er með öhu óheimht að brenna msh innan bæj- armarkanna og á því hafi synjunin byggst. Þá hafi bálkösturinn verið það stór að slysa- og tjónahætta staf- aði af. í bálkestinum vom meðal annars tveir tólf tonna bátar. Nokkur hundmð metrum frá á Mölunum er fiskverkunarstöð og hefði báhö að mati lögreglunnar getaö náð að eyði- leggja hráefni sem þar er th vinnslu. -kaa KvennalistLnn: Þingflokkurínn vd- urnvjanfomtamt Þingflokkur ur ákveðiö af Kvennahstans hef- Kristín Ástgeirs* dóttir taki v ð formennsku af Önnu Ólafsc Varaformaður gerður Krfetjí lóttur Bjömsson. verður Jóna Val- msdóttir. Sú regla 'únrrHnlíkinlim fri imui * 1983 að þingk að gegna fon senn. mur skiptist á um tiemisku eitt ár í -kaa Ford Orion fór í Breiðholtið Þegar dregið var í sjöunda sinn í áskriftargetraun DV kom upp nafn Kjartans L. Sigurössonar, Starrahól- um 8 í Reykjavík. Vinningurinn að þessu sinni var Ford Orion CLX frá Globus hf. Kjartan tók við bhnum í Kringlunni í gærdag ásamt flöl- skyldu sinni. Næst verður dregið um Toyota Carina E frá Toyotaumboðinu - P. Samúelssyni hf. - þann 22. júh. -JR Hagfræðingar VSÍ: Áætla minni skerðingu - á útflutningstekjum sjávarafurða Samkvæmt áætlun Hannesar G. Sigurðssonar hagfræðings og félaga hans í hagdehd Vinnuveitendasam- bandsins verður skerðingin á út- flutningstekjum sjávarafurða minni á næsta ári en menn hafa gert ráð fyrir. Skerðingin mun nema 4,5 mihj- örðum króna og Hannes telur að veiði á öðrum fisktegundum en þorski muni skha um tveimur milij- örðum í tekjur á næsta ári þótt hluti skerðingarinnar muni koma fram þegar á þessu ári. Forsendur Hann- esar eru óbreytt verð árin 1991,1992 og 1993 og óbreytt ráðstöfun afla. Áætlun Hannesar gerir ráð fyrir hehdartekjum útflutnings sjávaraf- urða í ár upp á tæpa 70 mhljarða og árið ’93 verði tekjumar 65,7 mhljarð- ar. Á síðasta ári fengust rúmir 73 mhljarðar fyrir útflutning sjávaraf- urða. Mikill loðnuafh í ár fer langt með að vega upp skerðingu þorskkvótans á næsta ári og telja hagfræðingar VSÍ mesta áfaliið veröa á þessu ári þar sem breytingin milli almanaksár- anna 1992 og 1993 verði ekki mikh samkvæmt þeirra áætlun. Áætlanir um afla og útflutnings- verðmæti nokkurra algengustu sjáv- arafurða fyrir árin 1992 og 1993 má sjá á meðfylgjandi skýringarmynd- um. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.