Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1992, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992. Spumingin Ætlarðu í útilegu í sumar? Bryndís Halldórsdóttir: Já, bara eitt- hvaö, þangað sem gott er veður. Hrafnhildur Jónsdóttir: Nei, ætliþað. Guðni Már Harðarson: Ekki svo ég viti. Ég fer í sumarbúðir í Vatnaskóg 16. til 24. júlí. Hjörtur Líndal Stefánsson: Ég hef þegar farið í útilega á Laugarvatn, en fer örugglega aftur. Signý Sigurlaug Tryggvadóttir: Já, ég ætla í Mjóafjörðinn. Astrid Rún Guðfinnsdóttir: Ég ætla til ömmu í Danmörku. Lesendur Fall ferða skrifstofanna Þorsteinn Einarsson skrifar: Nýlegt fail tveggja ferðaskrifstofa og íjármálaraunir fjölda manna sem skiptu við þessi fyrirtæki sýnir að neytendur hér á landi eiga ekki í mörg hús að venda þegar þeir verða fyrir svikum í viðskiptum eða mæta óprúttnum fjárglæframönnum sem sýna saklausum viðskiptavinum í tvo heimana. Ég er ekki að segja að það séu fjárglæfrar að selja fólki ferð- ir með lögvemduðum hætti eins og ferðaskrifstofum er gert að skyldu. Lögvemdin virðist hins vegar ekki ná til viðskiptavina nema að mjög takmörkuðu leyti þegar þeir em sviptir að fuUu fjármunum sem þeir greiddu hinu fallna fyrirtæki. Og þá fyrst fara þolendur að tala um fjárglæfra, og það með réttu, þegar þeir sjá framkvæmdastjóra íúnna fóllnu fyrirtækja standa með báða fætur jafna á jörðinni og halda jafn- vel áfram að sperra stél eftir að hafa orðið uppvísir að því að hafa haldiö áfram að reka fyriftæki sín þegar þau vora löngu komin í skít og skötu- líki. - Það er því ekki óeðlilegt að hyggjast hefna harma sinna eftir að fyrirtæki hefur hlunnfarið þá hrap- allega og haft af þeim fjármuni. Það er svo enn og aftur spuming hvers vegna fjárglæfrar af því tagi sem skilja hundrað manna eftir fjár- vana svo tugþúsundum skiptir eru teknir þeim vettlingatökum sem raun ber vitni. Þeir sem fyrir barðinu verða era það sárir og reiðir að þeir hafa fulia ástæðu til að krefjast þess að menn sem verða uppvísir að svik- Flugferðir-Sólarflug er önnur tveggja ferðaskrifstofa sem hafa fallið í valinn með stuttu millibili. Hún opnaöi útibú í Borgarkringlunni í byrjun apríl. um í þessum dúr - segjum bara þjófn- aði - séu teknir úr umferð. - Eða er kannski litið á svona mál sem öðru- vísi glæpi en þegar menn fremja rán á götu úti? Ég bara spyr. Neytendasamtökin hafa brugðist hart við þessum síðustu áfóllum í ferðaþjónustunni og það má þakka þeim að viðkomandi ráðuneyti hefur þó neyðst til að lofa frekari aðgerðum til að tryggja almenningi betri stöðu gagnvart ferðasöluaðilum. Það er líka í verkahring ráðuneyta að fylgj- ast vel með því að sömu mönnum og standa keikir og bísperrtir reiðu- búnir að hefla rekstur á nýjan leik takist ekki a’ð hefja leikinn að nýju á sama grunni eða á öðram vett- vangi athafnalífsins. Óréttmætar ásakanir á f orsetann Þórarinn Björnsson skrifar: Ég var meira en ósammála ásökun- um í tveimur lesendabréfum í DV hinn 19. júní sl. á hinn ástsæla for- seta okkar, Vigdísi Finnbogadóttur. Hvar hafa þessir tveir herrar, sem að forsetanum veitast, veriö síðan Vigdís tók við embætti forseta? Ég bar ekki gæfu til að kjósa Vigdísi þegar hún bauö sig fyrst fram til for- seta. Ég þekkti ekkert til þeirrar mætu konu er hún starfaði við leik- hús, því á þeim tíma var ég sjómað- ur, og fór því miður aldrei í leikhús. - Hitt var að ég þekkti Albert Guð- mundsson og vissi að hann var víð- sýnn og hæfur maður og því kaus ég hann. Eftir að Vigdís varð forseti get ég ekki hugsað til þess að hún hefði ekki gefið okkur Islendingum kost á sér sem forseta meðan heilsa endist og vilji hennar stendur til embættis- ins. Eg öfunda ekki þann mann eða konu sem tekur við embætti af henni. Og satt að segja þekki ég engan sem er hæfur til að setjast í hennar sæti. Við eigum að sönnu mikilhæft fólk en ég efa að nokkur eigi eftir að aug- lýsa og kynna ísland betur á alþjóöa- vettvangi en Vigdís hefur gert. Sumir hafa gagnrýnt hana fyrir ferðalögin. En hve miklu hafa ekki þau ferðalög skilað í verðmætum? Markaðssetn- ing var í molum og forsetinn hefur bætt þar úr svo ekki verður um viUst. Ég minnist ekki að Vigdís hafi gefið formlegt loforð um að hún gegndi ekki embættinu nema tvö kjörtíma- bil. Lúðvíg Eggertsson segir að það ætti að vera frjálst aö gagnrýna for- setaembættið sem slíkt, vald forseta, kjörtímabil, aldurstakmark o.fl. líkt og tvær konur hafi gert nýlega - fari vel á því meðan kona situr í embætt- inu. Það er skaði að Vigdís skuli ekki hafa vald til að hafa áhrif á ákvarö- anir og framkvæmdir stjómmála- manna. Ég er viss um að það yrði til gagns í þrengingum okkar. Lán til eyðslu og athaf na? Garðar skrifar: Einstaka menn hér á landi eru enn við sama heygarðshomið og hafa ekki skihð eða vilja ekki skilja að nú hefur lukkuhjólið snúist í höndum okkar íslendinga um skeið og þörf er á spamaði. Þessir menn leggja það til að nú verði tekin erlend lán, m.a. til þess að skapa atvinnu fyrir þá sem missa vinnu vegna niðurskurðarins - eins og kemur fram hjá Ragnari Stefánssyni í kjallaragrein í DV sl. Bréfritari segir erlendar lántökur og gengislækkun ekki vera á borðinu. mánudag. Og Ragnar er ekki einn um þessa skoðun. Margir aörir, jafn- vel stjórnmáiamenn sem ættu nú að vita betur (þ.á m. sumar þingkonur Kvennalistans), hafa lagt hart að ráðamönnum að grípa til erlendrar lántöku. Auövitað er flestum mönnum ljóst að erlend lán til eyðslu og athafna á þessum tímum era glapræði sem myndi endanlega setja allt úr skorð- um. Spamaöur er eina ráðið sem við getum gripið til eins og á stendur. Það einkennilegasta við hugmyndina um erlendar lántökur nú er að hún er aöallega sett fram af þeim aðilum sem áður hafa mest rætt um að hér lifi menn um efni fram og hafi lengi gert. - Hvað er nú t.d. orðið um slag- orð Kvennahstans um hina hagsýnu húsmóður? Kröfugerðir á hendur ríkissjóði og ávísun á skattahækkanir era ekki haldbærar lengur. Nú er það fólkið sjálft, einstaklingamir, allir sem einn sem þurfa að axla byrðamar. - Erlend lán, gengislækkun og enda- laus ríkisaðstoð era einfaldlega ekki á borðinu aö svo stöddu. Siguröur skrifar: Allir tala um hversu mikill fjöldi útigang8roannaséu í miðbæ Reykjavíkur. Því miöur er þetta rétt oglítilprýðiað þessum vesal- ings mönnum. Við sjáum iðulega erlenda ferðameim vera að mynda þennan biett á borginni sem þeir samiarlega eru meöan þeir era svona á sig komnir. Þetta ætti að vera öllum borgar- fulltrúum áhyggjuefhi ef þeir vijja líta með sanngimi á máhð. Það er þó auðleyst meö því að finna þeim stað sem þeir geta dvalið á. Mér dettur í hug staður ; eins og Gunnarsholt þar sem þeir gætu fengiö mat og e.t.v. hjálp. Reykjavík má engan veginn breytast i eíns konar rónaborg. Svala skrifar: Ég er ein þeirra kvenna sem fmn ekki þörf til að hlaupa þótt kynsystur minar láti boð út ganga um að nú skulum viö kon- ur sýna að viö séum engir eftir- bátar karlanna. Kvennadagur, kvennáhlaup, kvennahsti, þetta er allt mögnuð múgsefiun. Hvað segðu þessar konur ef karlar efndu til sérstaks kariadags? í kvennalilaupinu kannaðist ég viö sumar kvennanna. Þar voru m.a. tvær sem búa í dýram eín- býhshúsiun en lóðimar kringum húsin eru í megnustu órækt. Ég held aö þeirn heföi t.d. verið hoh- ari hreyfing að taka bara til í garðinum hjá sér. Parárslnsáum- hverffisráðstefnu Guðrún Magnúsdóttir hrmgdi: Ég varð bæði sár og reið þegar islenskir fiölmiðlar sögðu frá því að forsetinn okkar, Vigdís Finn- bogadóttir, og Fidel Castro, eini einræðisseggurinn sem eftir er frá kommúnistatímabilinu, hefðu verið kosin „par ráðstefnunnar" í Ríó. Mér skilst þetta hafi verið hugmynd umhverfissinna á ráð- stefnunni. Kann þó að vera minn misskilningur. Aö bendla forsetann okkar viö einn mesta harðstjóra og kúgara á Vesturlöndum er smán sem ekki er við hæfi. Og svo bauð ein- ræöisherrann frú Vigdísi f heim- sókn til Kúbu svoffiótt sem auðið yrði. Vonandi verður slíkt boð afþakkað opinberlega. Grimur hringdi: í þjóðarsál rásar 2 hringja margir kynlegir kvistir. Sl. mánudag hringdi m.a. maður sera mér skildist aö væri að taka forystu í einhvetjum andlegum málum heimsins. Stjórnandi þáttarins virtist ekki átta sig í fyrstu þvi maöurinn hóf inngang sinn þannig að ómögulegt var að átta sig á hvað hann var að fara. Siðar i máli hans kom í ljós að maðurinn var hreint snarkhkk- aður og tók sfiómandinn þá til við að reyna að losna við mann- inn með því að óska honum góös gongis og bata. Það er að verða ahtof algengt að í þjóðarsál hringi ruglukollar sem era beinlinis aö koma sér á framfæri öllum til leiðinda. Engaatvinnu- S.J. hringdi: Flestum mun nú Jjóst að um einhveija kaupmáttarskerðingu eíhahagsástands. Eg vil vara viö hugmyndum sem fram koma um hvers konar atvinnubótavinnu, t.d. eins og þeirri að landa öilum sjávarafla hér heima. Það myndi enn minnka tekjur þjóðarinnar. Jöfh skipting aílans til vinnslu og úfflutnings er besta leiðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.