Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1992, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1992, Side 6
36 LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1992. BOar Fjórði „Toyotadagurinn" um síðustu helgi: Bílalestín var um tíu kíló- metrar - og stundum lengri - meira en tólf hundruð manns á 325 bílrnn komu í vel heppnaða fjölskylduferð Þátttakan í fjórða „Toyotadegin- um“, sem haldiim var síðasta laugar- dag, fór fram úr spám bjartsýnustu manna hjá umboðinu því þegar lagt var upp frá Seleyri við Borgarfjarð- arbrúna klukkan tvö á laugardaginn höfðu ekki fáerri en 325 bflar safnast þar saman til að halda í sameiginlega fjölskylduferð Toyotaeigenda um Snæfellsnes. Reiknað er með því að það hafi verið rúmlega 1200 manns sem lögðu upp í ferðina en þeir bjart- sýnustu höfðu búist við um 600 til 800 manns í ferðina. Nokkrir bflar bættust í hópinn á leiðinni þannig að fjöldinn hefúr orðið enn meiri. Skipulag ferðarinnar var með ný- stárlegum hætti að þessu sinni en henni var stjómað frá „útvarpsstöð á hjólum" sem komið hafði verið fyr- ir í Toyota 4Runner af miklum hag- leik tveggja þúsundþjalasmiða á raf- eindasviðinu, þeirra Henrys A. Hálf- danarsonar tækniskólanema og Tryggva Valgeirssonar, tæknisfjóra útvarpsstöðvannnar EffEmm 957, en útsendingar „Útvarps Toyota" voru einmitt í samvinnu við EffEmm og Sverri Hreiðarsson, stjómanda út- varpsstöðvarinnar. Það vom heldur engir aukvisar sem sátu viö stjómvölinn í Toyotaút- varpinu því í útsendingarbflnum sjálfum var það Þorgeir Ástvaldsson sem stýrði útsendingunni og í öðrum bfl, „stúdíói tvö“, var það Helgi Pét- ursson sem hafði með sér þá Ara Trausta Guðmundsson jarðeðlis- fræðing, sem fræddi þátttakendur í ferðinni um jarðsögu og náttúrufyr- irbæri á leiðinni, og Einar Guð- johnsen, fyrnim framkvæmdastjóra Ferðafélags íslands og Útivistar, en frá honum streymdu sögur og sagnir tengdar því sem sjá mátti fyrir utan bflgluggann. Meiraentíu kílómetra löng lest Stundvíslega klukkan tvö á laugar- daginn var svo lagt upp í þessa sér- stæðu flölskylduferð frá Seleyri, austan Borgarflarðarbrúarinnar en þar höfðu þátttakendur í ferðinni byijað að safnast saman upp úr há- deginu. Það teygðist fljótt úr lestinni og þegar enn vom um hundrað bflar eftir á Seleyrinni vom fyrstu bflamir komnir fram hjá Borg á Mýrum. Talnafróðir menn reiknuðu út að þegar lestin var sem þéttust hafi hún verið um sex og hálfúr kflómetri að lengd en þar sem menn höfðu flestir gott bil á milii bfla var bflalestin oft- ast um tiu kflómetrar að lengd og þegar teygðist mest á henni mátti heyra í útvarpinu að hún væri um tuttugu kflómetrar. Gottveðurhjá góðufólki Ekið var sem leið lá vestur Mýrar Hér er Þorgeir Ástvaldsson að útskýra eitthvað um útvarpssendingamar Irá „Útvarpi Toyota" en Heigi Pétursson fylgist með hægra megin á mynd- inni. Á bak við má sjá þá Ara Trausta Guðmundsson jarðeðlistræðing og Lolt Ágústsson og Boga Pálsson frá Toyeta. Það var handagangur í öskjunni þegar griliað var ofan i þátttakendur á Amarstapa en meira en 3.000 pylsur fóru þar á grillið. Safnast var saman á Seleyri austan Borgarfjarðarbrúar en alls voru bílam- ir, sem lögðu þaðan upp, um 325 talsins. Að var við glæsilegt féiagsheimili þeirra í Ólafsvfk þar sem Toyota bauð öllum þátttakendum upp á kaffi, gos og meðiæti. 13 •; v ■ 8 '■ Starfsmenn Toyota lögðu á sig mikla vinnu til að gera j>essa Qölskyldu- ferð sem best úr garði og hér eru nokkrir þefrra við grillið á Amar- Bilalestin var um sjö kilómetrar á lengd þegar hún var þéttust en teygðist stundum í tuttugu kilómetra þegar menn höfðu gott bil eins og vera ber á milli bíla í þjóðvegaakstri. Þessari mynd náði Ragnar Th. Sigurðsson úr þyrlu þar sem bflalestin þéttist vegna brúarframkvæmda á leiðinni vestur. Lagt upp frá Seleyri, fremst fer „Utvarp Toyota“ og í IHIa hópferðabflnum var „stúdió tvö“, þaðan sem útvarpað var fróðlelk til þátttakenda. Með lagni tókst að koma öllum bflunum fyrir I án þess að valda truflunum á umferð. nágrenni félagsheimilisins Aldrei áður hafa svo margir Toyota- bíiar komið til Ólafsvíkur í einu en ibúafjöldinn tvöfaldaðist á meðan staldrað var við i bænum. og síðan um Mfldaholtshreppinn og Staðarsveitina og þá yfir Fróðárheiði til Ólafsvíkur. Til marks um lengd bílalestarinnar má segja frá því að fyrstu bflamir voru komnir til Ólaís- víkur þegar þeir síðustu voru enn að fara yfir efsta hluta heiðarinnar. Með mikilli lagni og undir góðri stjóm starfsmanna Toyotaumboðs- ins tókst að leggja öllum bflunum í snyrtilegar raðir við glæsilegt félags- heimili þeirra í Ólafsvík en þar bauð Toyota öllum þátttakendum upp á kaffi, gos og meðlæti. Vegna þess að flöldi þátttakenda hafði tvöfaldast frá því sem upphaflega hafði verið ráð- gert tók heldur lengri tíma að gefa öllum að drekka og borða en áætlað var en mjög gott veður gerði dvölina í Ólafsvík hjá því góða fólki sem þar býr ánægjulega. Þetta góða veður, sól og hiti, kom sem „aukabónus" í ferð- inni því það gerði dágóða regnskúr í Borgamesi við upphaf ferðarinnar. Ari Trausti, sem reglulega flytur landsmönnum veðurfregnir á Stöð 2, hafði raunar í upphafi ferðarinnar flutt okkur þau tíðindi í Toyotaút- varpinu að rigningin myndi hverfa þegar hði á daginn og að þessu sinni reyndist hann vissulega sannspár. Grillveisla á Amarstapa Frá Ólafsvík var ekið um Rif og Hellissand út fyrir Jökul til Amar- stapa. Þrátt fyrir góða veðurspá Ara Trausta vfldi Snæfellsjökull ekki lyfta skýjahatti sínum fyrir hópinn en í Útvarpi Toyota mátti heyra við- tal við sexmenninga á þremur Toyot- um sem vora að fikra sig á bflunum í þokunni upp á hátind jökulsins fyr- ir ofan. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir því að æja við Lóndranga, sem em tveir fallegir, háir kletta- drangar við ströndina austan Hellna, en vegna þess hve bflalestin var löng og eins vegna þess hve teygst hafði úr dvölinni í Ölafsvík var ákveðið að halda beint til Amarstapa þar sem ferðalanganna beið grillveisla í boði Toyota. Þar sáu starfsmenn umboðs- ins um að grilla meira en 3.000 grill- pylsur frá Goða ofan í þátttakendur en þegar þessi mikla þátttaka í ferð- inni varð ljós hafði verið komið sér- staklega með aukaskammt af pylsum vestur. Margir þátttakenda tjölduðu við Amarstapa í hægu kvöldkulinu að lokinni grillveislunni um kvöldið en aðrir héldu heim á leið eftir vel heppnaða og áfallalausa ferð sem sýnir að það er hægt að ferðast um landið í sátt og samlyndi þótt hópur- inn hafi verið í stærra lagi. -JR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.