Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1992, Blaðsíða 8
38
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1992.
Bílar
DV
Bílasýningin í Frankfurt
flutt til Berlínar?
Vera kann að alþjóðlega bOasýn-
ingin í Frankfurt 1991 hafi verið sú
síðasta sinnar tegmidar þar í borg.
Háværar raddir eru um að flytja sýn-
inguna aftur til Berlínar, þangað sem
hún var er fyrsta þýska bílasýningin
var haldin árið 1926, fram að stríði
og síðan skiptingu Þýskaiands.
Fyrsta alþjóðlega bílasýningin var
haldin í Frankfurt árið 1951 og síðan
annað hvert ár, á móti París. En nú
eru sem sagt mestar líkur taldar til
að sýningin 1993 verði haldin í Berl-
ín.
Trukkamirfóru
til Hannover
Bílasýningin í Frankfurt hefur síð-
ustu árin hlaðið æ meira utan á sig
enda einhver stærsta bOasýning
heimsins og sú sem nýtur einna
mests áiits. I fyrra, 1991, var svo kom-
ið að vörubOum og sendibOum var
úthýst af henni og þessir bOar sýndir
á sérstakri sýningu í Hannover
snemma á þessu ári.
Þetta líkaði framleiðendum ekki
öOum vel. Wemer Niefer, stjómar-
formaður Merceds Benz, var tO að
mynda ekki hrifinn af þessari tví-
skiptingu. Hann vOl að bOar séu
sýndir samtímis, hvort sem það er
örverpi sem með naumindum rúmar
fjóra menn eða stærsta gerð af trukk,
og þetta eigi að gera í Berlín, segir
hann, af því að það sé upprunalegi
staöurinn fyrir þýska bOasýningu.
Maka krókinn
á „messunum"
Það em samtök þýskra bOafram-
leiðenda sem standa á bak viö þessa
sýningu og þau ákveða henni stað.
Innan þeirra samtaka em ekki aiiir
sammála Herr Niefer og minna á að
fleiri greiði atkvæði um þetta en
hann. Fyrir utan Frankfurt og Beriín
komi tveir aðrir staðir til greina
(Hannover? Dusseldorf? - ágiskun
DV bOa) og þetta verði aOt skoðað í
fylhngu tímans.
Frankfurtborg hefur haslað sér
BÍLALEIGA
SÍMI (91)674949
BÍLASALA
BÍLDSHÖFÐA 5 •
Saab 900i ’89, ek. 48.000, v. Citroen AX GT ’89, ek. 16.000, v.
1.050.000. 610.000 stgr.
Toyota Corolla Touring GL '90, ek.
42.000, v. 1.250.000 stgr.
Saab 9000 túrbo m/öllu '90, ek.
51.000, v. 2.100.000 stgr.
Toyota Carina II ’88, ek. 61.000, v.
700.000 stgr.
Eigum gott úrval af Escort og Orion ’86-’87.
Ford Explorer Sport '91, ek. 13.000,
v. 2.400.000 stgr.
BÍLASALA
BÍLDSHÖFÐA 5 •
BÍLALEIGA
SÍMI (91)674949
völl sem borg hinna stóm sýninga.
Þar em haldnar vömsýningar -
messur - af öllu tagi nánast árið um
kring með hléum meðan rutt er til
eftir eina sýningu og stíllt upp fyrir
þá næstu. Frankfurtarar hafa nýtt
sér þetta út í æsar og hótehn, til að
mynda, auglýsa tvenns konar verð:
almennt verð milli stóm sýninganna
annars vegar en „messuverð” hins
vegar meðan vömsýningarnar
standa. „Messuverð” á hótelum er
aht upp í 100% hærra en almennt
verð og ekki er óþekkt að gerð sé
krafa um að gesturinn kaupi gistingu
allan messutímann þótt hann ætíi
kannski aðeins að staldra við á sýn-
ingunni einn eða tvo daga.
Frá bilasýningunni í Frankfurt á liðnu hausti. Svo kann að fara að þetta hafi verið sú síðasta sem haldin hefur
verið þar í borg ef vilji þeirra sem vilja flytja hana til Berlínar verði ofaná. Mynd DV Bílar JR
j*} wazoB roass
Jaí? J 1 I mazoa ~(WggHI
l|L|i jf
m-—... Æ
/fts BÍLASALA
Bílastúdíó sf.
Fosshálsi 1-110 Reykjavík -
sími 682222
Toyota LandCruiser VX, langur, '91,
tvilitur, grár og vínrauður, sjáltsk.,
sóllúga, álfelgur, bílasími, ek.
19.000. Einnig LandCruiser VX,
langur, '91, vinrauður, ek. 21.000.
Subaru Legacy GL sedan ’91, ek.
15.000, hvítur, sjálfskiptur.
MMC Pajero, stuttur, GLSi, V-6, '92,
ek. 10.000, rauöur, 5 g., sóllúga,
rafm. í rúöum, álfelgur.
Chevrolet Camaro TROC-Z ’85,
rauður, sjálfsk., rafmagnssæti, T-
toppur, einn með öllu.
Ford Mustang GT ’89, ek. 26.000,
svarblár, 5 g„ sóllúga, álfelgur,
rafm. i öllu, 225 hestöfl.
M. Benz 190 E, 198 hestöfl, grár,
sjálfsk., spoiler, sóllúga, álfelgur
o.fl.
Opið virka daga
kl. 10.00-19.00.
Opið laugardaga
11.00-17.00.
Grannþorpin
fyllast líka
Engu að síður kjaftfyhast ahir
gistístaðir í Frankfurt þegar kemur
að stórsýningunum, einkum og sér í
lagi stóm, alþjóðlegu bókasýning-
unni, sem er árlegur viðburður, og
alþjóðlegu bílasýningimni, sem hef-
ur veriö annaö hvert ár, sem fyrr
segir. Og messugestir láta sér lynda
að komast ekki nær Frankfurt am
Main í gistingu en í nágrannaþorp-
um og bæjum. Meðan á bókasýning-
unni stóð í fyrra vom þannig nokkr-
ir íslendingar sem ekki fundu sér
gistingu nær en í Rudesheim am
Rhein, þriggja stundarfjórðunga lest-
arferð frá Frankfurt.
Sýningarsvæðið í Frankfurt er
skammt frá miðborginni, um tíu
mínútna gang frá aðaljámbrautar-
stöðinni. Það er feikilegt flæmi með
fjórum stórum sýningarhöhum fyrir
utan útisvæði, ahs tæpir 28 hektarar
af sýningarfleti. Gallinn er einmitt
þessi víðátta; þrátt fyrir hentuga
fólksflutningavagna, sem ganga
hring eftír hring um svæðið og auð-
velt er að hoppa á og af, þykir bæði
sýnendum og gestum erfitt að kom-
ast yfir aha þessa hektara.
Hartverðurbarist
Fyrirhggjandi sýningarsvæði í
Berlín er ekki nema rúmur þriðjung-
ur af þessari hektaratölu en það er
tahð nýtast vel. Áform em uppi um
að stækka svæðið í um 18 hektara
fyrir aldamót og reyna jafnframt að
sneiða hjá þeim vanköntum í upp-
byggingu sýningarflatarins sem
mönnum þykir erfitt að umgangast
í Frankfurt.
Niðurstöðu í þessu máh er að
vænta ntjög fljótíega því sýning af
þessu tagi þarf langan undirbúning,
ekki síst ef flytja á hana á nýjan stað.
Og ekki er að efa að Frankfurtarar
beijast með kjafti og klóm fyrir að
halda henni: hótelhaldarana munar
um það hvort þeir geta sneisafyht
hótelin sín fyrir 250 mörk gistinótt-
ina eða þurfa að damla með þau hálf-
tóm fyrir 125 mörk gistinóttina.
S.H.H.