Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Blaðsíða 13
13
FÖSTUDAGUE 24. JÚLÍ 1992.
LífsstOI
Eigandi gamallar amerískrar bifreiðar:
Rukkaður um bifreiða-
gjöld af röngu bílnúmeri
Eigandi amerískrar bifreiðar hafði
samband við Neytendasíöu DV og
sagði farir sínar ekki sléttar af við-
skiptum sínum við Bifreiðaskoðun
íslands og Tollstjóraembættið í
Reykjavík. Eigandinn hefur ávallt
staðið í skilum með gjöld sín af bif-
reiðinni en á síðasta ári er hann
hugðist fá skoðun fyrir bifreið sína
var honum neitað um hana á þeirri
forsendu að bifreiðagjöldin væru
ógreidd.
Kom í ljós við eftirgrennslan eig-
andans að mistök höfðu átt sér stað
og hann rukkaður um bifreiðagjöld
af annarri bifreið en sinni eigin, af
bíl númer R-7014 en bifreið hans er
með númeraplötuna R-714. Eigand-
inn reynir að fá leiðréttingu sinna
mála en er vísað á milli Bifreiðaskoð-
unar og tollstjóra þar sem menn
kenna hvorir öðrum um mistökin.
Eigandinn er á árinu krafinn um
umskráningargjald en bíllinn hefur
frá byijun verið hjá sama eiganda. í
byrjun þessa árs fær eigandinn
senda tilkynningu frá tollstjóra um
að bifreiðin sé á stöövunarskrá hjá
lögreglunni vegna vangreiddra
gjalda. Eigandinn fær það staðfest
hjá báðum aðilum að mistök hafi átt
sér stað og loforð um leiðréttingu en
í byijun júni á þessu ári er enn rukk-
að um bifreiðagjöldin á númerið R-
7014. Eigandi bifreiðarinnar var að
vonum langþreyttur á þessum mis-
tökum sem hafa valdiö honum mikl-
um óþægindum. Blaðamaður leitaði
svara hjá tollstjóra og Bifreiðaskoð-
un íslands.
„Þama er um mistök að ræða hjá
Bifreiðaskoðun íslands því að það sér
um skráningar og afskráningar á
bílum. Það eru alls konar vitleysur
í gangi í sambandi við þessa gíró-
t
Neytendur
seðla,“ sagði Arthúr Sveinsson,
deildarstjóri bifreiðaskattsdeildar
hjá tollstjóranum í Reykjavík.
„Við erum innheimtuaðilinn og við
höfum aðgang að kerfinu hjá BSÍ.
Þar eru bílar skráðir, Ríkisbókhald
leggur á aila bíla og við innheimtum
gjöldin þannig að það eru tveir aðilar
á milii okkar. Ríkisbókhald fær allar
sínar upplýsingar frá BSÍ og miða
gjöldin við þær.
Það er til í dæminu að sendir séu
tveir giróseðlar fyrir bifreiðagj öldum
á sama númer vegna þess að í tölvu-
kerfinu er farið eftir fastanúmerinu.
Fastanúmer bifreiðarinnar R-7014 er
GG-016 en fastanúmer R-714 er EH-
985. Það er búið að leiðrétta þetta
núna hjá BSÍ því að ég man eftir
þessu tilviki og ég hringdi strax
þangað og lét þá vita af þessu vanda-
máh. Eigandi bifreiðarinnar hringdi
í mig í júní og bað um leiðréttingu.
Skýringin á því að hann fær rukkun
með gjalddaga 1. júlí í ár fyrir bíl-
númerið R-7014 er sú að rukkunin
er send út þann 3. júní en leiðrétting-
in hefur farið fram í millitíðinni,“
sagði Arthúr.
Gamalt og úrelt tölvukerfi
„Hafi einhvem tímann á fyrri hluta
ársins orðið mistök á skráningu þá
sýnist mér á öllu á tölvukerfmu hjá
okkur aö það sé búið að leiðrétta þau
nú. Ef verið er að rukka þessi bif-
reiðagjöld hjá tollstjóra hlýtur það
að hafa ruglast hjá þeim,“ sagði Rún-
ar Guðmundsson, afgreiðslustjóri
hjá Bifreiðaskoðun íslands.
„Umræddur bOl kom í skoðun 12.
- úrelt tölvukerfl Bifreiðaskoðunar líklegasta orsökin
Bifreiðin er á númerinu R-714 en krafist hefur verið bifreiðagjalda frá eigandanum fyrir bifreið merkta R-7014.
DV-mynd GVA
júní síðastUðinn og fékk hana en bif-
reið fær ekki skoðun nema búið sé
að greiða bifreiðagjöldin. Það eru
ótal vandamál sem virðast koma hér
upp og fólk lendir í óþægindum. Það
er ákaflega erfitt að útskýra mistök
af þessu tagi á annan hátt en svo að
þetta sé tölvufeiU eða innsláttarmis-
tök.
Maður, sem hefur verið að eiga við
númerið R-714, hefur óvart slegið inn
R-7014. Svoleiðis mistök geta orðið til
þess að viðkomandi bifreiðareigandi
lendir í miklum óþægindum því að
það er enginn vamagU á tölvukerf-
inu. Kerfið, sem er í notkun, er mjög
gamalt en það er frá árinu 1972.
Við höfum undanfarið verið að
vinna að gerð nýs tölukerfis við
skráningu bifreiða hjá BSÍ. Það hefur
dregist töluvert að koma því í gagnið
því að það er aUtaf verið að full-
komna það. Eftir aö það kemst í notk-
un er hægt að rekja hvers konar vit-
leysur eins og skot og varnaglar í
kerfinu eiga aö koma í veg fyrir mis-
tök af þessu tagi,“ sagði Rúnar. -ÍS
HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
Opið virka daga kl. 9-18 - Laugardaga kl. 10-14
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR - BILAÞING
VW Golf Champ ’89, 1600, sjálfsk., 3 dyra,
blár, álfelgur o.fl., ek. 40 þ. km, verð
770.000 stgr.
MMC Colt turbo '87, 1500, 5 gira, 3 dyra,
hvítur, ek. 80 þ. km, sóllúga o.fl., verö
640.000 stgr.
Toyota Corolla XL '88,1300, 4 gíra, 3 dyra,
blár, ek. 31. þ. km, veró 580.000 stgr.
n
VW Transportei 4x4 syncro ’87, bensin,
2200, 5 gira, 4 dyra, gulur, ek. 58 þ. km,
verö 800.000 stgr.
MMC Pajero stuttur ’88, bensin, 2600, 5
gíra, 3 dyra, hvitur, ek. 78 þ. km, verö
1.080.000 stgr.
MMC L-300 Minibus 4x4 '90, bensin, 2000,
5 gíra, 5 dyra, sillur, ek. 24. þ. km, króm-
felgur o.fl., verð 1.590.000 stgr.
N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BILAR - BILAÞING
N0TAÐIR BILAR
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERDI