Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Síða 25
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992.
33
Leikhús
STÚDENTALEIKHÚSIÐ
sýnir
Beðíð eftir Godot
eftir Samuel Beckett.
Laugard. 25. júlí kl. 20.30.
Allra siðasta sýning.
Sýnt er á Galdratoftinu,
Hafnarstræti 9.
Ekki er unnt að hleypa gestum inn
i salinn eftir að sýningin er byrjuð.
Miðasala i s. 24650 og á staðnum
eftirkl. 19.30.
Þann 20. júní voru gefin saman í
hjónaband í Áskirkju af séra Birgi
Ásgeirssyni Ragnheiður Þórisdóttir
og Brock Featherstone. Heimili
þeirra er í Bandaríkjunum.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
Tilkyimingar
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg4 kl. 10. Nýlagað molakaíFi.
Fjölskyldumótið
Úlfljótsvatni. Um verslunarmannahelg-
ina verður efnt til samkomu fyrir fjöl-
skyldufólk að Úlfljótsvatni í Grafningi.
Samkoman hefur hlotið nafniö Fjöl-
kyldumótið og er haldin í samstarfi For-
eldrasamtakanna, skáta, nýstofnaðs fé-
lags Náttúruvina og Eimskips. Mótinu
er ætlað að vera vettvangur þeirra sem
haf áhuga á þvi að njóta útilífs með fjöl-
skyldum sínum. Takmark Fjölskyldu-
mótsins er að gestir þess njóti verunnar
í öruggu umhverfi í friði og ró. Dagskrá
mótsins tekur mið af náttúrunni og mik-
ið verður um dagskrárliði sem tengjast
henni, beint eða óbeint, t.d. gróðursetn-
ing, náttúruskoðun, skipulagðar göngu-
ferðir, vatnasafarí og kvöldvökur. Vík-
ingaskipið Öminn verður í siglingum á
Úlfljótsvatni og er gestum mótsins boðið
að sigla með skipinu. Mótsgjald verður
2.300 kr. fyrir fullorðna og 600 kr. fyrir
börn í fylgd með foreldrum. Aðgangseyr-
ir mun þó aldrei fara yfir 5.500 kr. fyrir
hverja fiölskyldu. Þeim sem vilja meiri
uppl. eða tryggja sér miða á samkomuna
er bent á að hafa samband í síma 628505.
Pollamót Kaupfélags Hér-
aðsbúa
Laugardaginn 25. júli og sunnudaginn 26.
júlí nk. verður haldið í Hallormsstaða-
skógi knattspymumót 6. flokks. Mótiö er
opið öllum íþróttafélögum og er búist við
liðum viðs vegar af landinu. Mótið hefst
kl. 11 á laugardaginn og um kvöldið verð-
ur haldin kvöldvaka við Lagarfljót þar
sem grillað verður og farið í leiki. Kaupfé-
lag Héraðsbúa er stuðningsaðili mótsins.
Þann 11. júlí voru gefin saman í
hjónaband á Hárenge-slott í Svíþjóð
af séra Gunilla Drotz Jenny Mandai
og Hreggviður Eyvindsson. Heimih
þeirra er í Svíþjóð.
Ljósm. Kristbjörg Eyvindsdóttir
Listsmiðjan
í Hafnarfirði opnar nýja verslun að Nóa-
túni 17, Rvík., í dag, fóstudaginn 24. júlí.
Listsmiðjan hefur verið starfrækt í 8 ár
og hefur sérhæft sig í framleiðslu á
keramikhlutum, bæði til skrauts og
nytja, sem viðskiptavinir hafa síðan get-
að málað eftir eigin vali. Námskeið í
keramikmálun verða haldin í tengslum
við verslunina. Símanúmer í Nóatúni er
623705 og í Hafnarfirði 652105.
Hjónaband
Þann 4. júlí voru gefin saman í hjóna-
band í Áðventistakirkjunni af Stein-
þóri Þórðarsyni Þórdís Ragnheiður
Malmquist og Einar S. Jónsson.
Heimili þeirra er að Efstaleiti 12,
Reykjavík.
Ljósm. Sigr. Bachmann.
Þann 18. júlí voru gefin saman í
hjónaband að Hólum í Hjaltadal af
séra Bolla Gústafssyni Sigríður
Kjartansdóttir og Kristján Þ. Hall-
dórsson.
Ljósm. Sigurður Þorgeirsson
Nýlega héldu þessar stúlkur mynd-
listarsýningu til styrktar Rauða
krossi íslands. Þær heita Nína Gall
Jörgensen, Sunna Dögg Ásgeirsdótt-
ir og Marta Gall Jörgensen og söfn-
uðu alls 1.536 kr.
Veiðivon
GM silungsveiði
víðð iihi land
Lax, lax og aftur lax er það sem verið að veiðast og sjóbleikjan hef-
hljómar sífeilt þessa dagana en sil- ur veiðst í þúsunda tali víða um
ungsveiðin hefur lika verið góð það land.
sem af er sumri. Stórir fiskar hafa Viö kíktum á málið í gærkveldi
og þaö kom ýmsilegt bitastætt í Ijós.
Silungsveiðin er líka miklu ódýrari
en laxveiðin.
-G. Bender
Halla Leifsdóttir með 13,5 punda urriðann stóra stuttu eftir löndun hans.
DV-mynd Jón Pétur
Vesturhópsvatn í Húnavatnssýslu:
Veiddi þrettán og
hálfs punds urriða
Góð silungs-
veiði
í Rangánum
„Á þessari stundu eru komnir 150
siiungar á land, sá stærsti er 9 punda
urriði,“ sagði Þröstur Elliðason í vik-
unni.
„Þriðja svæðið hefur gefið flesta
þessa fiska en komnir eru 120 urriðar
og 30 þleikjur. Stærsti urriðinn er 9
pund og stærsta þleikjan er 5 pund.
Ég held að silungsveiðin eigi eftir að
verða góð í sumar og örugglega veið-
ast stærri fiskar,“ sagði Þröstur í lok-
in.
Rangárnar hafa gefið 110 laxa og
sá stærsti er 15 pund, veiddur úr
Ægissíðufossinum.
Silunga-
fréttir
Veiðin í Elhðvatni hefur verið
feiknagóð það sem af er sumri og
stærstu fiskarnir eru kringum 5
pund. Einn og einn lax er farinn að
veiðast í vatninu. Fyrir skömmu
sáust tveir rígvænir laxar rétt fyrir
ofan opiö á laxastiganum upp í Ell-
iðavatnið. Stærri laxinn var kringum
20 pundin.
Fyrst við erum að tala um Elliðárn-
ar þá er Höfuðhylurinn rétt fyrir
neðan stífluna í Elliðvatni. Þessi hyl-
ur er frægur fyrir margt og þá sér-
staklega rígvæna urriða sem hylur-
inn hefur að geyma. Veiðimaður, sem
var þarna fyrir skömmu, sá urriða
rétt um 10 pundin og jafnvel eru þeir
til stærri þarna.
Skorradalsvatnið hefur að geyma
marga væna urriða og fyrir skömmu
veiddist einn þvíhkur bolti, fiskurinn
var 16 pund. Það var Reykvíkingur-
inn Guðmundur Tryggvi Sigurðsson
sem veiddi urriðann. -G. Bender
Þeir eru til vænir, silungarnir í
vötnum og ám landsins. Það sannað-
ist fyrir skömmu.
Fyrir fáum dögum veiddi Haha
Leifsdóttir 13,5 punda urriða í Vest-
urhópsvatni. Fiskinn veiddi Halla á
maðk en þetta var urriði. Með henni
var eiginmaður hennar, Jón Pétur
Guðbjörnsson, og sonur, Guöbjörn
Jónsson. Fiskurinn var 49 cm.
„Þetta var meiri háttar barátta við
urriðann en hann tók hjá eiginkon-
unni úti á báti á vatninu og viður-
eignin stóð yfir í hálftíma," sagði Jón
Pétur Guðbjörnsson, eiginmaður
Höllu, í gærkveldi.
„Við veiddum þarna á stuttum tíma
12 fiska og þeir stærstu voru 3 pund.
Ég fór upp á Veiðimálastofnun og
þeir sögðu fiskinn vera 10 ára,“ sagði
Jón Pétur ennfremur.
-G.Bender
Eftir einn mánuð í Veiðivötnum:
Eru komnir 3.800 fiskar
og sá stærsti er 11 pund
„Veiðin hefur gengið upp og niður
í Veiöivötnum síðustu dagana en það
eru komnir 3.800 fiskar og hann er
11 pund sá stærsti," sagði Rúnar
Hauksson, veiðivörður í Veiðivötn-
um, í gærkveldi. En fengsæld Veiði-
vatna hefur í gengum árin verið mik-
il og margir fengið þar væna fiska
og góða veiði.
„Sá stóri 11 punda veiddist í
Hraunsvötnunum en þeir eru til
stærri hérna. Þetta er góö veiði eftir
einn mánuð en veðurfarið mætti
vera betra," sagði Rúnar veiðivörður
ennfremur.
„Við fórum sex félagar í Veiðivötn
og veiðin var ágæt þá en gott veður
var annan daginn en slæmt hinn,“
sagði Pálmi Gunnarsson en hann var
á bökkum Veiðivatna fyrir skömmu.
„Viö fengum 4 silunga í Stóra-
Hraunsvatni og þeir voru frá 3 upp í
9 pund sá stærsti. Sá stóri tók maðk
en hinir spinner. Við fengum 3 sil-
unga í Ónýtavatni á maðk og þeir
voru upp í 3 pund. 3 silunga veiddum
við í Kvíslarvatnsgýg á maðkinn og
sá stærsti þar var 4 pund. Seinni
daginn var leiðinlegt veður svo að
við héldum heim en þá fréttum við
af fólki sem veiddi í Litlasjó 20 fiska,“
sagðiPálmiílokin. -G.Bender
Pálmi Gunnarsson meö góða sil-
ungsveiði úr Veiðivötnum fyrir
skömmu en stærsti fiskurinn var 9
pund. DV-mynd AGG
Allt í veiðiferðina
Laxinn er kominn í Eystri-Rangá, höfum veiðileyfi.
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751