Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1992, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1992.
Iþróttir
Úrslitin í
Barcelona
Skotfimi
Loftriffill, 10 m, úrslit (konur)
1. Kab-SoonYeo.......S-Kóreu
2. VeselaLetcheva...Búlgaríu
3. ArankaBinder...Júgóslavíu
Skammbyssa, 50 m, úrslit (karlar)
1. K.Loukachik.....Samveldin
2. WangYifu.............Kína
3. Ragnar Skanaker...Svíþjóö
Blak karla
A-riðill
Bandaríkin - Japan..........' .3-2
(15-8, 11-15, 10-15, 17-16, 16-14)
Frakkland - Ítalía...........1-3
(9-15, 15-5, 15-8, 15-12)
Kanada - Spánn...............2-3
(15-13, 7-15, 15-9, 12-15, 13-15)
B-riðill
Kúba - Holland...............3-1
(15-12, 17-15, 6-15, 15-10)
Alsír - Samveldin............0-3
(8-15, 7-15, 4-15)
S-Kórea - Brasilía...........3-0
(15-13, 16-14, 15-7)
Hjólreiðar karla
100 km liðakeppni
1. Þýskaland........2:01,39klst
2. Ítalía...........2:02,39 klst
3. Frakkland......2:05,25klst.
Götuhjólreiðar kvenna
1. KathrynWatt........Ástralíu
2. JeannieLongo.....Frakklandi
3. MoniqueKnol........Hollandi
Knattspyrna
A-riðiU
Ítalía - Bandaríkin........2-1
Pólland - Kúveit...........2-0
B-riðill
Spánn - Kólómbía...........4-0
Egyptaland - Qatar.........0-1
C-riðill
Svíþjóð - Paraguay.........0-0
Marokkó - S-Kórea..........1-1
D-riðill
Danmörk - Mexíkó...........1-1
Ghana - Ástralía...........3-1
Körfuknattleikur karla
A-riðill
Bandaríkin - Angóla ....116-48
Þýskaland - Spánn 83-74
Króatía - Brasilía 93-76
B-riðill
Venesúela - Samveldin... 64-78
Kína-Litháen ....75-112
Puerto Rico - Ástralía ....76-116
Sund
100 m skriðsund kvenna
1. ZhuangYong.Kína.......54,64
2. JennyThompson,USA.....54,84
3. VanAlmsick.Þýskal.....54,94
100 m bringusund karla
1. NelsonDiebel.USA.....1:01,50
2. NorbertRozsa.Ungvl...1:01,68
3. PhilRogers.Ástraliu..1:01,76
400 m fjórsund kvenna
1. K. Egerzegi, Ungvl...4:36,54
2. LinLi,Kína..........4:36,73
3. Summer Sanders, USA ..4:37,58
200 m skriðsund karla
1. E. Sadovyi, Samveldin ...1:46,70
2. A. Holmertz, Svíþjóð.1:46,86
3. AnttiKasvio,Finnlandi.l:47,63
Lyftlngar
Fluguvigt - 52 kg flokkur
1. Ivanlvanov.......Búlgaríu
2. LinQisheng............Kína
3. Trayan Ciharean...Rúmeníu
Hápunktur opnunarhátíðarinnar á ólympíuleikvanginum í Barcelona var þegar fatlaöur, spænskur iþróttamaöur
skaut logandi ör af boga sínum og tendraði þannig ólympíueldinn. íþróttamaöurinn sést neðst á myndinni.
Símamynd Reuter
Setningarathöfh ólympíuleikanna í Barcelona:
Ólýsanleg
stemning
Jón Kristján Sigurösson, DV, Barcekma:
25. sumarólympíuleikamir voru settir í Barcelona á
laugardagskvöldið og er óhætt að fullyrða að setningarat-
höfnin hafi verið í einu orði sagt stórkostleg. Greinilega
mátti merkja að Spánverjar lögðu alit kapp á aö gera
þessa setningarathöfn sem stórkostlegasta í alla staði og
það tókst þeim svo sannarlega. Þessi setningarathöfn fer
seint úr minni þeirra 3,5 milljarða manna sem á horfðu
í beinni útsendingu um allan heim.
Stemningin á ólympíuleikvanginum var ólýsanleg. At-
höfnin var í senn virðuleg, spennandi og alltaf var eitt-
hvað að gerast. Spánveijar stefndu sínu besta listafólki
á opnunarhátíðina og voru söngvaramir þar fremstir í
flokki. Þeir heilluöu alla upp úr skónum og það var þetta
atriði opnunarinnar sem sló hvað mest í gegn. Til að
kóróna allt saman var sjáifur ólympíueldurinn tendraöur
á ógleymanlegan hátt.
Bogmaður skaut ör sinn beint í mark af löngu færi og
eldurinn kviknaöi við gríðarleg fagnaðarlæti áhorfenda
sem troðfylltu ólympíleikvanginn. Það er von manna að
þessi eldur muni bera hlýju til heimsbyggðarinnar meðan
á leikunum stendur.
Þátttökuþjóðir hafa aldrei veriö fleiri en ails taka 173
þjóðir þátt í leikunum aö þessu sinni og íþróttamenn em
nálægt tíu þúsund. Alls gengu 48 íslendingar fylktu höi
inn á ólympíuleikvanginn. Hópurinn samastendur af 29
íþróttamönnum og 19 öðrum svo sem fararstjórum,
flokksstjórum, þjálfurum og lækni.
Ján Krielján Sgurðason, DV, Barcdona;
ólympíuleikunum í Barcelona
kvartar sáran yfir þeim mikla hita
sem verið hefúr hér um slóðir und-
anfama daga. Allt frá því að ís-
lensku keppendurnir komu hingað
hefur hitinn fárið yfir 30 gráöur
yfir hádaginn.
Að sögn Ara Bergmann Einars-
son,
hefur verið unniö aö því hörðum
höndum að utvega fleiri viftur til
loftkælingar eh löngu fyrir ólymp-
íuleikana vom pantaðar viftur sem
engan veginn hafa nægt sökum hit-
ans.
„Við lögðum fram pöntun fyrir
viftum fýrir nokkrum mánuöum
en við höfum orðiö að bæta við. Það
var ekkert annað að gera en að fara
út í næstu buö og kaupa Öem viftur
og þaö gerðum viö í gær þaimig að
vonandi er þetta vandamál úr sög-
unni. Kerfiö er svifaseint hér en
aö öðru leyti er aðbúnaður góður
og allir viö góöa heilsu," sagði Ari
Bergmann Einarsson í samtali við
DV í Barcelona í gær.
StúfarfráÓL
Leigubílstjórar í Barcelona eru
ekki mjög ánægöir þessa dagana.
Þeir hafa htið allt umstangið í
kringum ólympíuleikana hým
auga með vænar tekjur í huga.
En þeir komast fjandakomið ekk-
ert áfram á blikkfákum sínum og
em stöðugt truflaöir af öryggis-
vörðum. Nú hafa 10 bílstjórar
hótað því að fara í hungurverk-
fall og eins er allsherjarverkfall
yfirvofandi.
Sá fyrsti farinn
heim vegna lyfja
Ballið er byrjað. Fyrsti íþrótta-
maðurinn hefur yfirgefið ólymp-
íuþorpið í Barcelona. Þaö er
þýskur kúluvarpari sem neitaði
að gangast undir lyíjapróf og var
samstundis vísaö heim á leiö.
Hans bíður tveggja mánaða
keppnisbann.
Sá danski fékk ekki
mjög blíðar móttökur
Richard Möller Nielsen, lands-
hösþjálfari Dana í knattspyrnu,
fékk ekki varmar móttökur er
hann kom til Barcelona á dögun-
um. Ekki var gert ráö fyrir þjálf-
ara Evrópumeistaranna og mátti
hann sætta sig viö að dvelja utan
ólympíuþorpsins. Siálfur tók
þjálfarinn þessu með jafnaðar-
geði en danskir fjölmiðlar eyddu
heilu forsíðunum undir meðferð-
ina á þjálfaranum.
„Snáparnir“ eru fleiri
en íþróttamennirnir
Alls munu um 11.500 íþróttamenn
taka þátt í ólympíuleikunum í
Barcelona. Hafa þeir aldrei verið
fleiri. Fiölmiðlamenn ætla ekki
að láta neitt fram hjá sér fara á
meðan hátíðin mikla stendur yf-
ir. Tæplega 13.000 fréttamenn eru
í Barcelona, blaðamenn, frétta-
menn og ljósmyndarar.
Norðmenn æfir út
í Spánverjana
Allt var á öðrum endanum í Nor-
egi um helgina eftir að uppgötv-
aðist aö skipuleggjendur setning-
arathafnarinnar höfðu ekki dreg-
ið norska fánann að húni á laug-
ardaginn. í stað norska fánans
var sá íslenski dreginn að húni
og við setningarathöfnina blöktu
tveir íslenskir fánar yfir leik-
vanginum.
Drechsler vill
kynlíf Þ/'ir keppni
íþróttamönnum og öðrum spek-
ingum hefur orðið tíörætt um það
á síðustu dögum hvort heilsu-
saiplegt sé fyrir íþróttamenn aö
stunda kynlíf fyrir keppni eða
ekki. Flestum íþróttamönnum
ber saman um að mjög æskilegt
sé fyrir íþróttamenn að stunda
kynlíf fyrir átök íþróttanna. Og
konur eru þar í meirihluta. Þýska
langstökkskonan Heike Drechsl-
er hefur lýst því yfir að kynlíf
fyrir keppni geri henni ekkert
nema gott. Og nú er að sjá hvem-
ig hún stendur sig í langstökkinu.
Ðandarísku körfubolta-
mennirnir eru vinsælastir
Ljóst er að leikmenn bandaríska
draumaliðsins í körfuknattleik
eru vinsælustu íþróttamennimir
í Barcelona á þessum ólympíu-
leikum. Þeir búa ekki í ólympíu-
þorpinu, einfaldlega vegna þess
aö þar er ekki stundlegur friður
fyrir íþróttamönnum sem vilja
eiginhandaráritanir og annað
slíkt. Bandarísku snillingamir
búa fyrir utan þorpiö og gífurleg-
ur ftöldi lífvarða gætir þeirra við
hvert fótmál.