Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
25
Tíska
Tíska fyrir bams-
hafandi konur
- rætt við Ólöfu Tómasdóttur í
Fyrir fjórum árum byrjuðu tyær
ungar konur, Vera Siemsen og Ólöf
Tómasdóttir, að sauma óléttufatnaö
á stofugólfmu heima hjá Ólöfu.
Smám saman stækkaði saumastofan
og þær fluttu sig niður í kjallarher-
bergi í blokkinni í Breiðholti. í júni
í fyrra fengu þær húsnæði við Grett-
isgötu og þar er saumastofan og
verslun undir nafninu Fislétt.
„Fyrir utan okkur eru tveir kjóla-
meistarar í vinnu,“ segir Ólöf en hún
er einnig lærður kjólameistari. Ólöf
hannar og sníður fatnaðinn en 90%
af sölu þeirra er eigin framleiðsla.
Hönnun á fatnaði fyrir bamshafandi
konur er að hluta til frábrugðin
venjulegum fatnaði eins og gefur að
skilja. Buxur og pils ná alveg upp að
brjóstum og stefna þeirra er að kon-
an geti átt sömu flíkina alla meö-
gönguna.
„Þær geta þess vegna keypt fötin á
fyrsta mánuði," segir Ólöf. „Allar
okkar vörur miðast við að þau þurfi
að stækka með konunni á þessum
mánuðum. Eins reynum viö aö
sauma blússur og skyrtur þannig að
konan geti notað þær eftir fæðingu
svo fremi hún er ekki búin að fá leiöa
á óléttufótunum. Það er líka misjafnt
hvaö konur ganga hratt saman eftir
fæðingu."
Stretsbuxur
og gammosíur
Það sem er vinsælast í óléttufatn-
aði þessi misseri eru stretsbuxur og
gammosíur. Stretsbuxurnar eru til í
sjö litum og það nýjasta er svart- og
hvítköflótt. Gammosíurnar eru til í
yfir 30 litum en þær eru geysivinsæl-
ar og reyndar hjá fleiri en þeim sem
eru barnshafandi. Pils seljast líka vel
enda þarf kona að eiga minnst eitt
slíkt.
Köfióttar stretsbuxur og rauö einlit
peysa. Fyrirsætan er Sigurbjörg Sig-
tryggsdóttir en hún er á fimmta
mánuði. DV-myndirÞÖK
Svart pils og skyrta í mörgum litum
en grunnliturinn er svart.
Sigurbjörg í stuttu pilsi sem nær
alveg upp að brjóstum og pliseraðri
skyrtu í fjörlegum litum.
Gammosíur og ullarpeysa.
Fislétt
Þær stöllur selja líka gjafabrjósta-
haldara, nærbuxur fyrir barnshaf-
andi, meðgöngubelti og sérstakar
sokkabuxur fyrir þær sem eiga von
á sér.
„Fyrir jól og aðrar stórhátíðir eru
kjólar og samfestingar mjög vinsæl-
ir,“ segir Ólöf. Hún segir verð á
þeirra fatnaði sambærilegt við það
sem almennt gerist i verslunum.
Skyrtur, blússur og bolir eru fram-
leiddir í mörgum sniðum og litum.
Efnin eru bómull og viskós. Það eina
sem ekki er saumaö hjá þeim eru
ullarpeysumar sem fluttar eru inn
erlendis frá.
„Við reynum að bjarga öllum," seg-
ir Ólöf. „Við sérsaumum fyrir mjög
lágvaxnar konur og þær hávöxnu."
-JJ
c—oIoups
| cx Woman
Wlaust '92
ZMs/öi
Glæsilegar þýskar
frarkápur nýkomnar
Munið, allar sTmtfir
í tískufatnaði hjá okkur
v/Laugalæk. S. 33755
Co sm
SiRli«»ucáác línuii iVá Selm’ai'/iiO|»t‘
llárlakli snpci* liolil: nijöi> stíl'f. Iicrliliii* vcl
llái'kikk iia(iii*al liolil: lcái lakk. gckiir iiij<">!> góúan i*lan*»
l i'oúa snpci* liokl: nijög' stík’
l’i*oi>a iiatui'al liolil: Icíá o*» Ijiik’