Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1992, Blaðsíða 2
20
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992.
D V kyrinir úrvalsdeildarfélögin í körfuknattleik
Breiðablik komið í úrvalsdeildina öðru sinni:
Risalið í Kópavogi
- þrír tveggja metra menn með Pétur Guðmundsson í fararbroddi
Pétur Guömundsson styrkir nýliða
Breiðabliks mikið.
Breiðablik úr Kópavogi er komið
upp í úrvalsdeildina í körfuknatt-
leik öðru sinni. Liðið lék þar tíma-
bilið 1987-1988, fékk þá sæti þegar
fjölgað var úr sex liðum í tíu í deild-
inni en féll jafnharðan. Blikamir
unnu 1. deildina í fyrra, sigruðu ÍR
í þremur úrslitaleikjum og tryggðu
sér með því úrvalsdeildarsæti.
Lið Breiðabliks er mjög breytt frá
síðasta vetri því sjö nýir leikmenn
eru komnir í Kópavoginn. Þar ber
hæst, í tvöfaldri merkingu, Pétur
Guðmundsson, sem er kominn frá
Tindastóli, og ívar Webster sem
kemur frá ÍR. Þriðji tveggja metra
maðurinn sem Breiðabhk hefur
fengiö er Haraldur Kristinsson úr
KR, þannig að þarna verður á ferð-
inni hávaxnasta lið deildarinnar.
Breiðablik er með Bandaríkja-
mann, Lloyd Sargent, sem lék með
liðinu í 1. deildinni í fyrra.
„Ég geri mér grein fyrir því að
veturinn verður erfiður fyrir okk-
ur sem nýliða en við erum ekki
hræddir og ætlum að ná aðal-
markmiði okkar, sem er að halda
okkur í deildinni," sagði Sigurður
Hjörleifsson, þjálfari Breiðabliks.
„Það háir okkur hve margir eru
nýir í liðinu og þvi er ekki enn
kominn nægur heildarsvipur á það
þó allt sé á réttri leið. Það verður
erfitt fyrir mörg hð að mæta okkur
vegna hæðarinnar en hún hefur
líka ákveðna ókosti í för með sér
fyrir okkur. Þetta er spurning
hvemig tekst að vinna úr henni.
Ég á von á mjög jafnri keppni í
allan vetur. Keflavík, Valur,
Grindavík og Haukar eru sterk, KR
og Njarðvík eru spurningarmerki
vegna breytinga en verða ofarlega.
Tindastóll gæti átti, erfiðleikum
ásamt Skallagrími, Snæfelh og
okkur og þessi fjögur lið heyja ör-
ugglega harða keppni í neðri hlut-
anum en geta jafnframt sigrað
hvaða lið sem er,“ sagöi Siguröur
Hjörleifsson.
Nýir leikmenn:
Aðalsteinn Ingólfsson frá ÍR
Bjöm Sigtryggsson frá Tindastóli
Haraldur Kristinsson frá KR
Hjörleifur Sigurþórss. frá Snæfelh
ívar Webster frá ÍR
Pétur Guðmundsson frá Tindastóli
Starri Jónsson frá KR
Farinn frá síðasta ári:
Steingrímur Bjarnason til Sviss
Haukar koma vel undirbúnir til leiks:
Erum á réttri leið
- segir Ingvar Jónsson sem tekinn er við þjálfun Haukanna
Haukar úr Hafnarfirði em eitt
af fáum hðum í Japisdeildinni sem
hafa ekki fengið neinn leikmann th
liðs við sig fyrir þetta tímabil en
hafa aftur á móti misst þijá sterka
leikmenn. Máttarstólpar mörg
undanfarin ár, þeir Henning Henn-
ingsson og ívar Ásgrímsson, eru
horfnir á braut og Reynir Kristj-
ánsson er hættur. Hins vegar er
nýr þjálfari í herbúðum hðsins,
þjálfari sem er oft nefndur faðir
körfuknattleiksins í Hafnarfirði.
Hann heitir Ingvar Jónsson. Undir
sfjóm hans hafa Haukamir leikiö
mjög vel í haust og á dögunum
urðu Haukar Reykjanesmeistarar
í fyrsta sinn. Bandaríkjamaðurinn
John Rhods verður með Haukalið-
inu annað árið í röð.
Haukar hafa einu sinni hampað
íslandsmeistaratithnum, það var
árið 1988. Félagið hefur tvisvar
sinnum prðið bikarmeistari, 1985
og 1986. í fyrra lék liðið til úrshta
gegn Njarðvík en varð að sætta sig
við tap. í fyrra varð liðið neðst í
sínum riðli en missti naumlega af
sæti í úrshtakeppninni eftir hörku-
keppni við Val og Grindavík.
„Við getum ekki annað en verið
bjartsýnir á komandi tímabh. Við
erum á réttri braut eins og sigurinn
í Reykjanesmótinu gefur tíl kynna.
Fyrir höfum orðið fyrir blóðtöku
en það kemur alltaf maður í manns
stað og við eigum mikið af ungum
og efnilegum leikmönnum. Starfið
sem hefur verið unnið í körfu-
knattleiksdeUd Hauka er því að
skUa sér,“ sagði Ingvar Jónsson,
þjálfari Hauka, við DV.
„Mótið á eftir verða jafnt í vetur.
Allir eiga eftir að vinna alla og ég
sé ekki fyrir mér nein kaflaskipti á
deUdinni. Markmið okkar er að
verða betri en síðast og ég mun
reyna að gera leikmennina að betri
leikmönnum og mun nota mín ráð
til þess. Meðalaldur hðs okkar eru
rúm 20 ár og meðalleikjafjöldi um
50 svo reynslunni er ekki fyrir að
fara hjá okkur,“ sagði Ingvar.
Nýir leikmenn:
Enginn
Farnir frá síðasta ári:
Henmng Hennings til Skahagríms
ívar Ásgrímsson til Snæfells
Reynir Kristjánsson hættur
Jón Arnar Ingvarsson á eftir að
leika stórt hlutverk með Haukum
í vetur.
Keflvíkingar fara í titilvömina með lítið breytt lið:
Barátta um stöður
- spennufall eftir Evrópuleikina, segir Jón Kr. Gíslason
Jón Kr. Gíslason stýrði ÍBK til sig-
urs i fyrra.
Keflvíkingar eiga íslandsmeist-
aratitil að veria í vetur en þeir
unnu Valsmenn í fimm leikja
rimmu um titilinn í fyrravor. Það
var annar sigur félagsins á íslands-
mótinu en Keflavík vann einnig
árið 1989.
Reikna má með að Keflvíkingar
verði í baráttunni um efstu sætin
í vetur en þeir tefla fram nær
óbreyttu hði frá síðasta vetri. Þeir
tefla fram sama útlendingi og í
fyrra, Bandaríkjamanninum Jon-
athan Bow sem lék áður með KR
og Haukum og hefur verið í stóru
hlutverki í Keflavíkurhöinu. Það
veikir hins vegar meistarana að
Sigurður Ingimundarson, fyrirhði
þeirra, er frá vegna meiðsla og
óvíst hvort hann verði með í vetur.
Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leik-
maöur ÍBK, kveðst bjartsýnn á að
halda titlinum en það sé of snemmt
að hugsa mikið um hann núna.
„Viö erum í sterkum riðh og stefn-
um því fyrst og fremst að því aö
komast í úrslitakeppnina. Það er
mikill kostur fyrir okkur að vera
með nær óbreytt hð frá því í fyrra,"
segir þjálfarinn.
En hann er ekki sáttur við gengi
hðsins síðustu dagana. „Við byij-
uðum mjög vel í haust og spiluðum
síðan góða Evrópuleiki gegn Bayer
Leverkusen. En eftir þá var eins
og kæmi spennufall og við höfum
verið á lægsta plani síðan. Það
vantar stemningu í hðiö og þaö er
kannski vegna þess hve við erum
með marga jafna leikmenn sem eru
að berjast um stöður í byijunarhð-
inu. Ég vona að þetta sé tímabund-
ið vandamál og þessi breidd gerir
leikmennina betri og kemur okkur
til góða til lengri tíma.
Ég sé fram á jafna keppni, sterk-
ari hö hafa misst menn til hinna
veikari, og hð eins og Breiðablik,
Snæfeh og Haukar hafa verið að
koma á óvart í haust,“ sagði Jón
Kr. Gíslason.
Nýr leikmaður:
Einar Einarsson frá Tindastóh
Famir frá síðasta ári:
Brynjar Harðarson í Val
Júlíus Friðriksson th Bandaríkj.
Ragnar Jónsson, leikmaður Vals, skorar fyrii
úrvalsdeildarinnar á sunnudag. Valsmenn fc
lelknum.