Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1992, Page 3
27
MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1992.
Olafur Stefánsson, vinstri handar skyttan unga í liði Vals, sýnir hér góð tilþrif gegn Maistas Klaipeda og skömmu síðar lá knötturinn i netinu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Valur tryggði sér þátttökurétt í 8-liða úrslitum í Evrópukeppni bikarhafa:
- hjá Valsmönnum á keppnistímabilinu og það gegn slöku htháisku liði
Valsmenn tryggðu sér í gærkvöldi
þátttökurétt í 8-íiða úrslitum í Evr-
ópukeppni bikarhafa í handknattleik
þrátt fyrir að hafa mátt bíða lægri
hlut fyrir Maistas Klaipeda, 21-22, í
síðari leik hðanna í Laugardalshöll í
gærkvöldi. Valsmenn unnu þvi sam-
anlagt með þriggja marka mun,
49-46, og verða í pottinum ásamt FH
þegar dregið veröur á Evrópumótun-
um í handbolta á morgun.
Fór um margan
Valsmanninn
Það var heldur betur farið að fara
um margan Valsmanninn og hina 300
áhorfendur sem lögðu leið sína í
Höllina. Litháiska liöið leiddi með
þremur mörkum í hálfleik og fékk
mörg góð færi á að auka muninn í
fjögur mörk í síðari hálfleik áður en
Valsmenn náðu að bjarga andlitinu
með því að skora þijú mörk í röð á
lokakaflanum.
Greinilegt vanmat
Eftir úrsht og gang leikins í fyrri
leiknum áttu víst flestir von á að eft-
irleikurinn yrði Valsmönnum auð-
veldur. Það var öðru nær. Leikmenn
Vals léku yfir höfúð afar illa, voru á
köflum eins og byrjendur, og greini-
legt vanmat var ríkjandi þar á bæ
sem kann ekki góðri lukku að stýra.
Sóknarleikurinn
alveg í molum
Sóknarleikurinn var nánast í molum
hjá Valsmönnum. Leikmenn Klai-
peda léku vömina mjög framarlega
og það gerði Valsmönnum mjög erf-
itt fyrir.
Byijunin lofaði þó góðu. Valsarar
skoruðu þrjú fyrstu mörkin og virt-
ust líklegir til að afgreiða Litháana
hressilega en síðan hrökk allt í ba-
klás sem hinir reyndu leikmenn Kla-
ipeda kunnu að meta. Lengi fram
eftir síöari hálfleiknum var munur-
inn þetta 2-3 mörk, Klaipeda í vil, en
góður leikkafli 10 mínútum fýrir
leikslok gerði það að verkmn að ekki
varð stórslys í Höllinni. Engu að síð-
ur urðu Valsmenn að játa sig sigraða
gegn hði sem á íslenskan mæh-
kvarða væri slakt 1. deiidar hð.
Fyrsta tap Vals
á tímabilinu
Valsmenn töpuðu þar með fyrsta leik
sínum á keppnistímabilinu enda
langlélegasti leikur hðins á árinu.
Enginn efast þó um að Valshðið er
eitt af bestu hðum landsins en það
er oft „stutt í kúkinn“ eins og fræg
handboltahetja orðar oft hlutina og
það áttí svo sannarlega við um leik
Valsmanna í gær. Það jákvæða við
þetta aht saman er aö Valur er kom-
inn í 8-liða úrshtin og leikmenn hðins
læra vonandi af mistökiun sínum.
Guðmundur Hrafnkelsson og Valdi-
mar Grímsson voru skástir i hði
Vals og Geir Sveinsson skoraði þýð-
ingamikil mörk á lokakaflanum.
-GH
Sigur hjá Val í slökum leik
- Valsmenn sigruðu Klaipeda 1 fyrri leik liðanna, 24-28
Valsmenn unnu fiögurra marka
sigur á Klaipeda frá Litháen í Evr-
ópukeppni bikarhafa í Laugardals-
höh á fostudagskvöld. Lokatölur
urðu 24-28 Valsmönnum í vh en
leikuimn taldist heimaleikur Kla-
ipeda.
í stuttu máh sagt var leikurinn
slakur og Valsmenn þurftu ekki að
sýna neinn stórleik tíl að vinna
slakt Uð gestanna. Valsmenn höfðu
undirtökin aUan leikinn og virtust
ætla að keyra yfir gestina um miðj-
an síðari hálfleik en þá náðu Vals-
menn sjö marka forystu. Leikmenn
Klaipeda breyttu þá um vöm og við
það datt leikur Vals niður. Gestir-
inir minnkuðu muninn í tvö mörk
en Valsmenn skomöu tvö síðustu
mörkin og náðu að bjarga andht-
inu.
Valsmenn hafa oft leikið betur en
í þessum leik og ljóst að það er
meiri munur á getu Uðanna en sást
í Höllinni á fóstudag. Guðmundur
Hrafnkelsson var besti maður Vals
í leiknum og varði oft meistaralega.
Dagur Sigurðsson og Geir Sveins-
son komust einnig vel frá sínu en
Uðið getur leikið mun betur.
Lið Klaipeda leikur ekki
skemmtilegan handbolta, leik-
menn virkuðu þungir og slakir.
Kartauskas og Laurinatis vom
bestu menn Usðins ásamt mark-
verðinum.
-RR
GuAmundur Hrafnkelsson var (
stuði i marki Vals á fðstudaginn.
fþróttir
„Ég er fýrst og fremst ánægöur
með að vera kominn áfram en það
var jú alltaf tilgangurinn. Þeir
spiluðu miklu betur í kvöld en S
fyrri leiknum. Leikmenn hðsins
em klókir og reyndir og spila
árangursríkan handbolta," sagði
Þorbjörn Jensson, þjáh'ari Vals,
við DV eför leikinn.
„Eftir að hafa náð forystunni
lékum við ákaflegaillaog auðvit-
að var ég orðinn hræddur og þá
sérstaklega seint i síðari hálfleik
þegar við vorum 3 mörkum undir
og þeir í sókn. Ég talaði hressilega
yfir hausamótunum á þeim í hálf-
leik og gerði þeim grein fyrir að
svona spilamennska dygöi ekki.
Ég veit ekki hvaöa Uð em eftír
en óskaliðið er Kolding frá Dan-
mörku komist þeir áfram," sagði
Þorbjörn.
Sáryfir
því að hafa
tapað
fyrsta leiknum
„Ég er mjög sár að hafa tapað
fyrsta leiknum á keppnistímabil-
inu og það fyrir þessu höi. Við
föllum oft í þá gryfju að slaka
algjörlega á eftir að hafa náð for-
skoti og eitthvert viljaleysi og
kæruleysi grípur mannskapinn,"
sagði Geir Sveinsson, fyrirliði
Vals, viö DV eftir leikinn.
„Ég var ekki oröinn hræddur
en viöurkenni að mér varð oft ht-
ið á markatöfluna í síöari hálf-
leiknum. Aðalatriöið var þó að
komast áfram og það tókst. Ég
hefði ekkert á móti því að dragast
gegn fýrri félögum mínum í Avid-
esa,“ sagði Geir.
-GH
Valur (9) 21
Klaipeda (12) 22
3-0, 5-3, 6-6. 8-8, 8-11, (8-12),
12-13, 13-16, 15-18, 19-19, 20 22,
21-22.
Mörk Vals: Valdlmar Grímsson
7/1, Júlíus Gunnarsson 5, Geir
Sveinsson 3, Dagur Sigurðsson 3,
Jón Kristjánsson 2, Sveinn Sig-
flnnsson 1.
Varin skot Guðmundur Hrafh-
kelsson 16/1.
Mörk Klaipeda: Malakauskas
8/4, Gudziunas 6, Kazlauskas 3,
Zarenas 2, Juoskaudas 1, Norvilas
1, Siatkevicius l.
Varin skot Stonkus 12/1.
Brottvisanir: Valur 0, Klaipeda 4
mín.
Dómarar Lars Bendtson og Hans
Hansson, góðir.
Áhorfendun 300.
Maður leiksins: Malakausakas
(nr. 5)
Klaipeda (11) 24
Valur (16) 28
0-1, 2-1, 2-4, 6-7, 7-11 (11-16),
12-17, 15-19, 15-21, 18-24, 20-25,
24-26,24-28.
Mörk Klaipeda: Kartauskas 7/1,
Laurinaös 6, Maiakauskas 3,
Gudziunas 2, Joakaudaa 2, Zurenas
2, NorvOas 1/1, Statkevicius 1.
Mörk Vals: Dagur Sigurðsson 6,
Geir Sveinsson 6, Valdimar Grims-
son 5/1, Ólafur Stefánsson 4,
Sveinn Sigflnnsson 3, Jón Krist-
jánsson 2/1, Jdlíus Gunnarsson 2.
Brottvisanir: Klaipeda 8 min.
(Malakauskas rautt spjald), Valur
2 mín.
Dómaran Lars Bendtson og
Hans Hansson frá Sviþjóð, dærndu
ágæflega.
Áhorfendur: 318.
Maður leiksins: Guðmundur
Hrafnkeisson, Val.