Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1992, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1992.
21
Messur
Árbæjarkirkja: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Barnakór Árbæjarkirkju
syngur við guðsþjónustuna. Ferm-
ingarbörn lesa ritningarlestra og
bænir. Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Fyrirbænastund miðvikudag
kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þorsteins-
son.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Daníel Jónasson. Bar-
naguðsþjónusta í safnaðarheimilinu
á sama tíma. Kl. 20.30. Samkoma á
vegum „Ungs fólks með hlutverk".
Ræðumaður: Guðmundur Sigurðs-
son. Bænaguðsþjónusta þriðjudag
kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson messar. Einsöngur
Elín Huld Árnadóttir, Magnea Tóm-
asdóttir og Þórður Búason. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson.
Digranesprestakall: Barnasamkoma
í safnaðarheimilinu viö Bjarnhólastíg
kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 14. Sr. Þórbergur Kristjáns-
son.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkór-
inn syngur. Organleikari Kjartan Sig-
urjónsson. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Barnastarf í safnaðarheimilinu á
sama tíma. Kirkjubíllinn fer um Vest-
urbæinn. Síðdegisguðsþjónusta kl.
I. 7.00. Prestur sr. Ingólfur Guð-
mundsson. Forsöngvari Bergljót
Sveinsdóttir. Organleikari Kjartan
Sigurjónsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
10.00. Sr. Magnús Björnsson.
Eyrarbakkakírkja: Barnag uðsþjón -
usta kl. 11.
Fella- og Hólakirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í umsjón Sigfúsar
og Guðrúnar. Guðsþjónusta kl. 11.
Prestursr. Hreinn Hjartarson. Organ-
isti Guðný M. Magnúsdóttir. Fyrir-
bænastund mánudag kl. 18. Helgi-
stund í Gerðubergi fimmtudag kl.
1 0.30. Prestarnir.
Fríkirkjusöfnuöurinn í Reykjavík:
Laugardagur: Basar Kvenfélagsins í
safnaðarheimilinu að Laufásvegi 13
kl. 14.00. Flautudeildin í safnaðar-
heimilinu kl. 14.00. Sunnudagur:
Guðsþjónusta kl. 11.00. (Ath. tím-
ann.) Mánudagur: Biblíulestur í
safnaðarheimilinu kl. 20.30. Mið-
vikudagur: Morgunandakt kl. 7.30.
Organisti Pavel Smid. Cecil Haralds-
son.
Grafarvogsprestakall: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Elínborg aðstoðar. Guðs-
þjónusta kl. 14. Barnakór Grafar-
vogskirkju syngur í fyrsta sinn við
guðsþjónustuna. Fundur með for-
eldrum kórbarna eftir guðsþjón-
ustuna. Organisti Sigurbjörg Helga-
dóttir. Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl.
II. Yngri börnin niðri og eldri börn-
in uppi. Mikill söngur, fræðsla og
leikræn tjáning. Messa kl. 14. Prest-
ur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti
Árni Arinbjarnarson.
Kirkjuvogskirkja: Barnastarf kl. 13 í
umsjón Arndísar, Torfhildar og
Margrétar.
Hallgrímskirkja: Fræðslusamvera kl.
10. Gunnar J. Gunnarsson: Trúar-
brögð mannkyns. Fjölskyldumessa
kl. 11.00. Altarisganga. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Barnastarf á sama
tíma.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10.
Sr. Arngrímur Jónsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer um
Hlíðar og Suðurhlíðar á undan og
eftir messu. Messa kl. 14. Sr. Ingólf-
ur Guðmundsson messar. Biblíulest-
ur mánudagskvöld kl. 21.00. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 18.00.
Hjallaprestakall, messusalur Hjalla-
sóknar, Digranesskóla. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altaris-
ganga. Fermingarbörn aðstoða. Kór
Hjallasóknar syngur. Organisti
Oddný Þorsteinsdóttir. Kristján Einar
Þorvaröarson.
Keflavíkurkirkja: Helgistund ísjúkra-
húsinu kl. 10.30. Sunnudagaskóli
kl. 11. Munið skólabílinn. Messa kl.
14. Altarisganga. Tekinn verður í
notkun nýr hökull og altarisklæði,
teiknuð og saumuð af Karmelsystr-
um í Hafnarfirði. Laufabrauðsbakst-
ur Systra- og bræðrafélagsins mánu-
dags- og fimmtudagskvöld kl. 1 9 í
Kirkjulundi.
Kársnesprestakall: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum sunnudag kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 11. Organisti Stefán R. Gíslason.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kirkjuvogskirkja: Barnastarf laugar-
dag kl. 13 í umsjón Arndísar, Torf-
hildar og Margrétar.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl
Sigurbjörnsson.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Prest-
ursr. Flóki Kristinsson. Organisti Jón
Stefánsson. Kór Langholtskirkju
(hópur II) syngur. Barnastarf á sama
tíma. Kaffisopi eftir guðsþjónustu.
Aftansöngur alla virka daga kl.
18.00.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Sigrún Óskarsdóttir.
Organisti Ronald Turner. Barnastarf
á sama tíma undir stjórn Þórarins
Björnssonar. Heitt á könnunni eftir
guðsþjónustu.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11.00.
Munið kirkjubílinn. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Guðsþjónusta kl.
14.00. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guðný
Hallgrímsdóttir prédikar. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Molasopi eftir
guösþjónustuna. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Organisti Hákon Leifsson. Prestur
sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
Barnastarf á sama tíma í umsjá
Eirnýjar, Báru og Erlu.
Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 14.
Hamrahlíðarkórarnir ætla að minnast 25 ára afmælis kórstarfsins í Hallgrímskirkju á sunnudag, kl. 16.
Hamrahlíðarkór-
amir á tónleikum
í Hallgrímskirkju
- kórstarfið 25 ára
Kór Menntaskólans viö Hamrahlíð
og Hamrahlíðarkórinn halda tón-
leika í Hallgrímskirkju sunnudaginn
22. nóvember. Um þessar mundir eru
25- ár hðin síðan kórstarf hófst í
Menntaskólanum við Hamrahhð og
munu báðir kórarnir sem kenna sig
við Hamrahlíð minnast þess á ýmsan
hátt á þessu skólaári.
Þorgerður Ingólfsdóttir er stofn-
andi beggja kóranna í Hamrahlíð og
hefur stjómað þeim frá upphafi. A
sunnudag fær hún til liðs við sig belg-
ískan stjómanda, Johan Duijck, sem
mun stjórna verki Brittens. Hamra-
hhðarkórinn, sem var tilnefndur til
tónhstarverðlauna Norðurlandaráðs
1993, hefur nú í haust unniö að undir-
búningi og upptökum á nýjum geisla-
diski með íslenskum þjóðlögum. 130
kórsöngvarar koma fram á tónleik-
unum og þeir yngstu era 16 ára. Tón-
leikamir í Hahgrímskirkju á sunnu-
dag hefjast kl. 16 og aðgöngumiðar
em seldir við innganginn.
Alþjóðlegt
skákmót á
Vestfjörðum
Alþjóðlegt skákmót verður haldið
í Bolungarvík, á ísafirði og í Súðavík
dagana 18.-28. nóvember. Mótið er
haldið í minningu Högna Torfasonar
fréttamanns en hann lést 12. janúar
1990. Högni var um áraraðir í fram-
varðasveit vestfirskra skákmanna og
gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir
þeirra hönd. Hann var varaforseti
og framkvæmdastjóri Skáksam-
bands íslands um nokkurt skeið, auk
þess sem hann var einn helsti hvata-
maður að stofnun skákminjasafns og
umsjónarmaður þess allt til dauða-
dags. Minningarmót Högna Torfa-
sonar er alþjóðlegt mót sem fyrst og
fremst er ætlað að veita ungum skák-
mönnum tækifæri til þess að ná
áfanga að tith. Minningarmót Högna
Torfasonar er 10. alþjóðlega skák-
mótið sem tímaritið Skák stendur
fyrir úti um landsbyggðina í sam-
vinnu við tafl,- sveitar- og bæjarfélög.
Skákstjóri er Torfi Ásgeirsson.
Rasmus pá
luffen í
Norræna húsinu
Sunnudaginn 22. nóvember, kl. 14,
verður sænska myndin Rasmus pá
luffen, sem byggð er á sögu eftir
Astrid Lindgren, sýnd í Norræna
húsinu. Rasmus er munaðarlaus og
býr á heimili fyrir munaðarlaus
börn. Myndin er ætluð bömum á öll-
um aldri og er hún rúmlega einnar
og háhrar klukkustundar löng, með
sænsku tah. Allir em velkomnir og
aðgangur er ókeypis.
Leikfélag Flensborgarskólans mun frumsýna Sköllóttu söngkonuna í kvöld.
Sköllótta söng-
konan í Flensborg
Leikfélag Flensborgarskólans í
Hafnarfirði mun í dag frumsýna leik-
ritið Sköhótta söngkonan eftir Eug-
ene Ionesco. Sýnt verður í Bæjar-
bíói. Leikstjóri er Hahdór Magnús-
son og er þetta frumraun hans á
þessu sviði. Leikaramir era sex tals-'
ins og hafa þeir stundað æfingar
undanfarnar vikur. Leikritið er mjög
athyghsvert því eins og mörgum er
kunnugt er Ionesco margrómaður
fyrir and-leiki sína, eins og t.d. Nas-
hymingana. Persónur Ionescos era
fangar í tilgangsleysi tílverunnar og
oft enda þær með því að brjótast
undan okinu á harkalegan hátt.
Lúðrasveit verkalýðsins
Lúðrasveit verkalýðsins heldur
ína árlegu hausttónleika laugardag-
in 21. nóvember kl. 17.00 í Áskirkju.
Ijóðfæraleikarar era 50 talsins og
stjómandi er Malcolm HoUoway.
Aðgangur er ókeypis og alhr era vel-
komnir.
Þjóðieikhúsið,
sími 11200
Smíðaverkstæðid:
Stræti
laugardag kl. 20
sunnudag kl. 20
Störa sviðið:
Dýrin í Hálsaskógi
laugardag kl. 14
sunnudag kl. 14
Hafid
laugardag kl. 20
Kæra Jelena
föstudag kl. 20
Litla sviðið:
Rita gengur
menntaveginn
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Borgarleikhúsið,
sími 680680.
Stóra sviöið:
Dunganon
laugardag kl. 20
Heima hjá ömmu
föstudag kl. 20
Litla sviðið:
Platanov
föstudag kl. 17
laugardag kl. 17
sunnudag k|. 17
Vanja frændi
laugardag kl. 20
sunnudag kl. 20
íslenska óperan,
stmi 21971:
Lucia di Lammermoor
föstudag kl. 20
sunnudag kl. 20
Alþýðuleikhúsið:
Hræðileg hamingja
föstudag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Nemendaleikhúsið:
Clara S
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Leikbrúðuland,
sími 622920:
Bannað að hlæja
sunnudag kl. 15.00
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar
endurvígir merki-
legthljóðfæri
í kvöld kl. 20.30 ætlar Tónhstar-
skóhnn í Hafnarfirði að endurvígja
flygil, sem skóhnn var að fá úr við-
gerð frá Danmörku. Hér er um að
ræða Hindsberg flygil, sem Tónhst-
arfélagið í Hafnarfirði keypti 1946 og
var á sínum tíma tahnn eitt besta
hljóðfæri landsins enda héldu ekki
ófrægari snilhngar en Rudoh Serkin
og Rögnvaldur Sigurjónsson marga
tónleika á þetta hljóðfæri.
Við vígsluna í kvöld leika þau Jón-
as Ingimundarson, Gísh Magnússon,
Ástríður Alda Sigurðardóttir, Sig-
urður Marteinsson, Guðrún Guö-
mundsdóttir og Armann Helgason.
Aðgangur er ókeypis og allir era vel-
komnir.
Hvað viltu
vita um EES?
Senn hður að því að Alþingi taki
afstöðu til samningsixjs um Evrópska
efnahagssvæðið og af því tilefni boð-
ar Sjónvarpið til almenns borgara-
fundar í Háskólabíói sunnudaginn
22. nóvember kl. 14. Þar gefst öhum
sem áhuga hafa á að spyija fuhtrúa
launafólks, atvinnurekenda, sér-
fræðinga og stjómmálamenn um
EES-samninginn. Fundinum verður
sjónvarpað beint. Umræðunum
stjóma fréttamennimir Ingimar
Ingimarsson og Kristín Þorsteins-
dóttir.