Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1992, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1992.
23
Kvikmyndir
HÁSKÓLABÍÓ
Sími 22140
Forboðin ást irkVi
Athyglisverð saga frá byrjun aldarinnar
í Kína, en frásögnin of hæg og stirð
til að hrífa. Gullfalleg kvikmyndataka
gerir gæfumuninn.
Boomerang ★★ 'A
Gamanmynd i anda Eddie Murphy
sem ristir ekki djúpt. Fer ágætlega af
stað en missir flugið i síðari hlutanum.
Háskaleikir ★★★
Spennumyndir eins og þær gerast
bestar. Mikill kraftur og mikill hraði,
raunsæ þrátt fyrir ýktan endi. Harrison
Fordergóður Jack Ryan. -HK
Svo á jörðu sem á himni ★★★
Kvikmyndataka, sviðsetning og tónlist
er með því besta sem gerist í íslenskum
kvikmyndum. Alfrún H. Örnólfsdóttir
ersenuþjófurinn. -ÍS
Steiktir grænir
tómatar ★★★ 'A
Stórgóð mynd sem fjallar um mann-
legar tilfinningar, vináttu og áhrifamátt
frásagna. Toppleikur í öllum hlutverk-
um.
-ÍS
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Tálbeitan ★★'/2
Svöl löggumynd frá heitum handrits-
höfundi. Sagan er stemningsrík en
ekki alltaf þétt. Goldblum stelur sen-
unnifráannarságætumleikhópi. -GE
Eitraða Ivy ★★ 'A
Lítur út fyrir að vera spennumynd en
er í raun vitrænt sálfræðilegt drama
sem verður spennandi af því að per-
sónurnar eru lifandi. Endirinn er veiki
punkturinn en Barrymoresá Ijósasti.
-GE
Lygakvendið ★★
Nokkuð lunkin gamanmynd sem mátti
ekki við því að gugna á endasprettin-
um.
-GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Leikmaðurinn ★★★'/2
Mikið kvikmyndaverk frá Robert Alt-
man. Eitrað háð á Hollywood og
óvenjulegt sakamál gerir það að verk-
um að það er eitthvað nýtt sem heillar
hverja einustu minútu. -HK
Sódóma Reykjavík ★★ 'A
Skemmtileg og bráðfyndinn mynd á
köflum sem lýsir ferð saklauss pilts í
gegnum spillingu og undirheimalíf
borgarinnar. Vel kvikmynduð og
klippt. Einnigsýnd í Háskólabíói. -HK
Lostæti ★★ 'A
Skemmtileg framtíðarsýn frá tveimur
teiknimyndahöfundum. Myndin er
meiri stílæfing en nokkuð annað. -G E
Henry ★★★
Gálgahúmor og ofbeldi í bland meltist
misvel en myndin er vissulega óþægi-
lega raunveruleg og situr eftir lengi.
-GE
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Blade Runner ★★★★
Besta kvikmynd síðustu tíu ára verður
enn betri. Myndin hefur ekki elst og
brottnám sögumannsins gerir hana
grimmari og enn meira seiðandi.
Omissandi tækifæri fyrir aðdáendur og
þásemekki hafaséð hana í bíó. -GE
Fríða og dýrið ★★★
Falleg og skemmtileg teiknimynd og
ein sú besta sem gerð hefur verið.
Tónlistaratriðin eru fullkomin. Góð
skemmtun fyrir alla fjölskylduna. -G E
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Bitur máni ★★★
Mikil sálfræðikönnun á tveimur per-
sónum hjá Roman Polanski að þessu
sinni. Áleitinn texti um kynferðislega
niðurlægingu verður magnaður I með-
förum Peter Coyote. Minnir á fyrstu
myndir Polanskis.
-HK
Ofursveitin ★★
Dolph og Van Damme eru báðir dauf-
ir en það kemur ekki i veg fyrir hasar
og læti. Sagan er glórulaus en góður
leikstjóri og slatti af peningum halda
uppifjöri. -GE
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum
með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hef-
ur gert góða kvikmynd þar sem mikil-
fenglegt landslag og góður leikur
blandast mannlegum söguþræði.
-HK
Gústaf Bjarnason og félagar í liði Selfyssinga taka á móti HK í bikarkeppninni í handknattleik á sunnudagskvöld-
ið. Þar eiga Selfyssingar harma að hefna en HK vann þá með sjö mörkum á íslandsmótinu fyrr í vetur.
fþróttir helgarinnar:
Fullt af
bikarleikjum
Bikarleikir eru mest áberandi á
íslandsmótunum í handknattleik og
körfuknattleik um helgina en mikiö
af leikjum í 16-höa úrshtum í bikar-
mótum beggja greina eru á dag-
skránni. Ennfremur fara fram tveir
leikir í 8-liða úrshtum í bikarkeppni
kvenna í handknattleik.
í bikarkeppninni í körfuknattleik
er enginn innbyröis leikur úrvals-
deildarliöa um helgina en þessir fara
fram:
Skahagrímur - Þór........Föst. 20
Snæfeh - Haukar B........Föst. 20
Keflavík - ÍS....,.......Sunn. 16
Valur-ÍR.................Sunn.20
UBK - Grindavík B.........Sun. 20
í bikarkeppni karla í handknattleik
eru tveir leikir mUli 1. dehdar liða,
ÍR fær ÍBV í heimsókn og Selfoss
tekur á móti HK. Leikirnir eru ann-
ars þessir:
FHB-Valur................Laug. 15.30
ÍR-ÍBV...................Laug. 16.30
ÍR B - Grótta............Laug. 18.00
ÍH-KA....................Sunn. 16.30
UBK - Fram...............Sunn. 18.00
Selfoss - HK.............Sunn. 20.00
Aftureld. - Víkingur.Sunn. 20.00
Fram B - Haukar....Sunn. 21.30
Bikarkeppni kvenna:
Fram - Ármann............Sunn. 18.30
KR - Víkingur............Sunn. 20.00
Útivist:
Gönguferð í Hvalfirði
Sunnudaginn 22. nóvember mun
Útivist standa fyrir gönguferð sem
er sjöundi og næstsíðasti áfangi
fjörugöngunnar. Gengiö veröur með
Hvalfjarðarströnd frá Hvaifjaröar-
eyri að Óshóh um íjölbreytt og
skemmtflegt fjörusvæði. Lagt verður
af stað kl. 10.30 um morguninn frá
BSI, bensínsölunni. Göngugarpar
eru minntir á að taka með sér nesti
og hlýjan fatnað.
Útivist áformar gönguferð á Hvalfjarðarströnd á sunnudaginn.
DV-mynd Brynjar Gauti
íþróttir
Blak:
Fjorir a
Akureyri
Fimm leikir fara fram á ís-
landsmótinu í blaki um helg-
ina og þar af eru fjórir á milli
KA og Þróttar frá Neskaup-
stað í KA-húsínu á Akureyri.
Karlaliðin mætast í kvöld
klukkan 20 og á morgun
klukkan 17.15 en kvennaliðin
í kvöld klukkan 21.15 og á
morgun klúkkan 16.
Fímmti leikurinn er viður-
eígn Stjörnunnar og ÍS í
karlaflokki I Ásgarði klukkan
16 á morgun, laugardag.
Frjálsar:
Stjörnu-
hlaup í
Kaplakrika
Stjörnuhlaup FH fer fram við
Kaplakrika í Hafnarfirði á
morgun og hefst klukkan 14.
Keppt er í fjórum flokkum
karla og kvenna. Börn, 14 ára
og yngri, hlaupa einn kíló-
metra, 15-18 ára hlaupa 3 km
og einnig konur 19-34 ára
og 35 ára og eldri, og karlar
19-34 ára og 35 ára og eldrí
hlaupa 5 km. Fyrstu 10 í öll-
um flokkum fá verðlauna-
gripi. Þátttökugjald er 500
krónur fyrir 19 ára og eldri
en 300 fyrir yngri.
Fatlaöir:
Reykja-
víkurmóts
Síðasti hluti Reykjavíkur-
meistaramóts fatlaðra fer
fram i íþróttahúsi ÍFR og
Sundhöllinni við Barónsstíg
um helgina. Á laugardag er
keppt í borðtennis klukkan
10 og bogfimi klukkan 17 á
iaugardag og 14 á sunnudag.
Sundkeppnin hefst klukkan
15 á sunnudag.
Ferðir
Ferðafélag
íslands
Á sunnudag ráðgerir Ferðafé-
lag íslands að ganga á Selfjall
upp af Lækjarbotnum. Frá Lækj-
arbotnum verður gengið á fjallið
og síðan haldið niður af því til
vesturs yfir Hólmshraun að
Hólmsborg sem er gömul fjár-
borg. Hún var hlaðin árið 1918
og drýgstan hlut að því máli átti
Karl Norðdahl sem bjó á Hólmi.
Hólmsborg þykir með afbrigðum
vel gerð. Frá Hólmsborg ergeng-
ið meðfram Hólmshlíð og að Sil-
ungapolli niður á Suðurlands-
veg. Forvitnileg gönguleið í ná-
grenni borgarinnar.
Brottför verður frá Umferðar-
miðstöðinni austanmegin kl.
13.00. Gönguferðin tekur um
2'A - 3 klukkustundir.
Ferðafélagið miðar skipulagn-
ingu gönguferða við árstíðir og
í skammdeginu er komið fyrr til
baka. Á næstu helgi verður
Ferðafélagið 65 ára og þá er
komið að aðventuferð í Þórs-
mörk.