Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1992, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1992, Síða 2
32 MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1992. Ferðir HÖFÐINGLEG HEIMKOMA. Framtíðarferðir kynna: „Aö kaupa sér gistingu hvar sem er í heiminum í viku eöa lengri tíma er hægt aö gera í eitt skipti fyrir öll. Ein gistivika þarf ekki að kosta meira en góður notaður bíll,“ segir Erik Jensen, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins Framtíðarferða sem nýtekið er tíl starfa á íslandi. Framtíðarferðir kynna nú íslend- ingum stærsta sumar- og vetrar- leyfaklúbb í heimi, RCI-klúbbinn. Klúbbfélagar geta valið um frí á rúmlega tvö þúsund stöðum í næst- um 70 löndum. Sex milljónir Klúbburinn var stofnaður í Indi- anapolis 1974. „Það hafði komið í ljós að ekki voru allir ánægðir með að hafa keypt hlut í húsnæði ein- hvers staðar í heiminum og þurfa aUtaf að fara á sama staðinn," seg- ir Erik. „Þess vegna fæddist hug- myndin um skiptí á sumar- og vetr- arleyfisíbúðum." Nú eru yfir 1,4 milljónir fjöl- skyldna í klúbbnum. Það þýðir að um 6 milljónir ferðast á þennan hátt. Samkvæmt nýjustu könnun- um óháðs endurskoðanda tekst klúbbnum að verða við 99 af 100 óskum klúbbfélaga um skipti. Óþrjótandi möguleikar Erik bendir á að möguleikarnir Afsláttur á fargjöldum RCI-klúbburinn er í beinu tölvu- sambandi við 40 flugfélög um allan heim og í samvinnu við tíu af stærstu ferðaskrifstofum heims. í boði er bæði leiguflug og áætlunar- flug til ákvörðunarstaða. Samning- ar hafa verið gerðir um afslátt á flugfargjaldi fyrir klúbbfélaga. Iðu- lega kemur það fyrir að boðið sé upp á dvöl einhvers staðar með mjög stuttum fyrirvara og er þá verðið mjög hagstætt. Framtíðaráætlanirnar segir hann vera að fá klúbbfélaga í RCI til íslands. „Þá erum við sérstak- lega með heilsuferðir í huga. Við erum að leita að stað sem getur uppfyllt þær ströngu kröfur sem gerðar eru af klúbbnum," segir Erik. Nánari upplýsingar fást hjá Framtíðarferðum í síma 68-40-04. -IBS Fyllsta öryggi Nú þegar hafa um 200 íslendingar gerst félagar, að sögn Eriks. Gerður hefur verið samningur um kaup á vikum í hótelíbúðum í Algarve í Portúgal fyrir íslendinga. „Það er ströng löggjöf um slík viðskiptí í Portúgal og við viljum að fyllsta öryggis sé gætt. Um leið verða ís- lendingamar sjálfkrafa félagar í RCI-klúbbnum,“ segir Erik og get- ur þess um leið að nýir meðlimir séu boðnir velkomnir með sér- stakri aukaviku. Tilboðið um aukaviku nær til þriggja svæða, til dæmis Kanarí- eyja, Spánar eða Portúgals og aust- urrísku, ítölsku eða frönsku Alp- anna. Þetta tilboð gildir í júní til september. Barbados í Karíbahafi er einn af mörgum mögulegum ákvöröunarstöðum þeirra sem kaupa sér gistivikur. séu óþijótandi. Menn getí vahð um frí á sólarströndum Evrópu, á skíðahótelum í Ölpunum, Suöur- Ameríku, Austurlöndum fjær og Grænlandi. Hægt er að bóka frí. allt frá tveimur dögum fyrir þá gis- tiviku eða vikur, sem klúbbfélagi á, til tveggja ára fyrir frívikurnar. Möguleikamir á að komast þangað sem mann langar eru eðlilega meiri ef pantað'er með góðum fyrirvara. Unnt er að geyma vikur og taka þá út fleiri í einu og einnig er hægt að leigja öðmm gistivikur. Sömu- leiðis er hægt aö borga fyrir auka- vikur, 11 þúsund, vilji menn lengja frí sitt eða taka á leigu aukaíbúð fyrir ættingja og vini. HEFÐBUNDIN HEIMKOMA? EÐA... 1 Stærsta ferðafélag heims BÍLLINN BÍÐUR ÞÍN í UPPHITAÐRI BÍLAGEYMSLU FLUG HÓTEL er 1. flokks hótei í næsta nágrenni við flug- völiinn. Kjörinn áfangastaður ef þú ert á leið úr landi. Vel búin herbergi, veitingasalur, bar og ráðstefnusalur og full- komin aðstaða til vinnu og funda. í kjallara hótelsins er upphituð bílageymsla þar sem gestir okkar geta geymt bíla sína án endurgjalds á meðan dvalið er erlendis. Akstur til og frá flugvelli er að sjálfsögðu innifalinn í verði gistingar. HAFNARGATA 57 - 230 KEFLAVÍK _________.__________________________ SÍMI: 92-15222 - FAX: 92-15223 VETRARTILBOÐ: 3.995 KR. NÓTTIN Vcrð á mann í 2 manna herbergi. Engin skilyrði um lágmarksdvöl. Tangó- klúbbur í Brussel Ef þú ert ástríðufullur tangó- dansari og á leið til Brussel ættirðu að leggja leið þína í Tom Tom- klúbbinn rétt við Gare du Midi, eina af jámbrautarstöðvum borg- arinnar. Hverfið er ekkert sérstak- lega aðlaðandi, mörg kaffihúsanna era ekki beinlinis þannig að ferða- menn fýsi að setjast inn á þau en Tom Tom-klúbburinn sker sig úr. Fyrsta laugardaginn í hverjum mánuði er þar sérstakt tangókvöld, annað laugardagskvöldiö ræður jass húsum, það þriðja rokk og salsa, reggae eöa afrísk tónhst það fjórða. A tangókvöldinu sýna at- vinnumenn en alhr geta samt hætt sér út á gólf. Síðdegis á hveijum sunnudegi, frá klukkan 18, ræður Buenos Air- es Tango-klúbburinn húsum. At- vinnudansarar frá Argentínu sýna og dansa til skiptis við gestina. Heimihsfangið er Tom Tom Club, 5, Place de la Constitution. Atvinnudansarar sýna og dansa við gestina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.