Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1992, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992.
Fréttir
Ný þjóðhagsspá sem birt verður í dag:
Atta milljarða sam-
dráttur þjóðarútgjalda
og meira en 4 prósenta atvinnuleysi á næsta ári
Búist er viö aö ný spá Þjóðhags-
stofnunar verði birt í dag. í henni
er gert ráö fyrir aö samdráttur
þjóðarútgjalda verði 7 til 8 milljarð-
ar króna á næsta ári. Það er um
það bil 2 prósent af þjóðarútgjöld-
um eða heildareyðslu þjóöarinnar.
Þetta veldur tekjutapi ríkissjóðs
upp á tæpa tvo milljarða króna.
Þá gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyr-
ir meira en 4 prósenta atvinnuleysi
á næsta ári en það var atvinnuleys-
isspáin í síðustu þjóðhagsspá. Þeir
nefndarmenn sem DV ræddi við í
gærkvöldi töldu að í raun væri
Þjóöhagsstofnun að tala um 6 til 7
prósenta atvinnuleysi á næsta ári.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
stofnunarinnar, kom í gær á fund
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis og greindi nefndarmönnum
frá helstu stærðum í spánni. Þó
með þeim fyrirvara að hún væri
ekki alveg fullunnin.
„Gangi þetta eftir þýðir það að
sjáifsögðu að öll umsvif í landinu
verða minni og ekki lagar það stöð-
una hjá ríkissjóði," sagði Vilhjálm-
ur Egilsson, formaður efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis, í sam-
tali við DV í gærkvöldi.
Hann var spurður hvemig þessu
tekjutapi ríkissjóðs yrði mætt?
„Það sem skiptir öllu máh og
verður að gerast er að atvinnulífið
komist aftur í gang. Það er þaö eina
sem getur rétt okkar efnahag við.
Einstaklingar og fyrirtæki verða
að fara að hleypa í sig bjartsýni og
fara í framkvæmdir þannig að fleiri
hjól fari aö snúast en nú er. Stjórn-
endur fyrirtælya horfa allir inn á
við í dag. Hvemig þeir geti skorið
niður og sparað. Það þarf með öll-
um ráðum að hafa áhrif á það að
menn fari að horfa út úr fyrirtækj-
unum og hugsi um hvemig þeir
geti stækkað fyrirtækin og sótt
fram,“ sagði Vilhjálmur.
-S.dór
Alþingi:
Ennalltí
óvissu um af-
greiðslu mála
Þrátt íyrir miklar tilraunir for-
manna þingflokkanna til samkomu-
lags um hvemig afgreiðslu hinna
fjölmörgu mála, sem afgreiöa verður
fyrir jólaleyfi þingmanna, verður
háttaö hafa samningar enn ekki tek-
ist. í gærkvöldi og fram á nótt sátu
Davíð Oddsson og Salome Þorkels-
dóttir á fundi um þetta mál.
Óska-málalisti ríkisstjómarinnar
kom fram í fyrrinótt og em á honum
mifli 20 og 30 mál. Fullvíst er að ekki
verður nema hluti þeirra afgreiddur
sökum tímaskorts.
Þegar fundahlé var gert nokkra
eftir miðnætti vor enn 5 menn á
mælendaskrá í 2. umræðu um EES-
samninginn. Óvíst þykir aö EES-
samningurinn verði afgreiddur fyrir
áramót. Þingmenn stjórnarandstöð-
unnar segja að verði það reynt verði
afgreiðsla fjárlagafrumvarpsins að
bíða fram yfir áramót. Það sé einfald-
lega ekki tími til að afgreiða bæði
þessi stóra mál.
Aftur á móti verður að koma
skattafrumvörpum ríkisstjórnarinn-
ar í gegn fyrir áramót.
í dag verður mælt fyrir skatta-
framvörpunum og á morgun veröur
fjárlagafrumvarpið til umræðu.
Flestir telja að samkomulag muni
nást milli stjómar og stjórnarand-
stöðuumafgreiðslumála. -S.dór
I jólakaffi hjá lögreglunni
Nokkrir krakkar úr leikskólanum Nóaborg í Stangarholti fóru í vikunni í heimsókn i húsnæði Umferðarráðs. Þeim
var þar boðið i jólakaffi og hittu fyrir tvo lögreglumenn og tvo jólasveina. Lögreglumennirnir gáfu þeim endursk-
insmerki og krakkarnir voru duglegir að kenna jólasveinunum hvernig þeir eiga að haga sér i umferðinni þegar
þeir eru á leið milli húsa með gjafir í skóinn. DV-mynd BG
Sigtryggur Helgason, framkvæmdastjóri Brimborgar:
Þetta er valdníðsla og
lögbanns verður krafist
- eftir að borgarstjóm ákvað að Macdonald’s fái „Brimborgarlóðina“
„Þetta er valdníðsla og við munum
krefiast lögbanns strax. Ég og mitt
fyrirtæki erum þekkt að því að greiöa
alla okkar reikninga og við höfum
greitt borginni það sem okkur ber.
Eg er særður yfir þessari afgreiðslu
og finnst okkur gert rangt til,“ sagði
Sigtryggur Helgason, annar eigenda
og annar framkvæmdastjóra Brim-
borgar, eftir að meirihluti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjóm samþykkti
að úthluta Kjartani Emi Kjartans-
syni, sem hyggst byggja veitingahús
undir MacDonald’s hamborgara, lóð-
inni að Suðurlandsbraut 56. Brim-
borg hafði áður fengið lóöina en var
svipt henni þar sem talið var að fyrir-
tækið hefði staöið ólöglega að samn-
ingum við byggingameistara með þvi
að ætla að greiða honum með hluta
þess hús sem til stóð að byggja á lóð-
inni.
Brimborgarmenn segja mörg for-
dæmi fyrir slíku, það er að bygginga-
meisturum sé borgað með hluta
húsa. Sigtryggur sagðist ekki una því
að vera kallaður lóðabraskari vegna
þessa samnings.
„Ég hef fyrir satt að MacDonald’s
hafi fyrir löngu verið búið að fá auga-
stað á þessari lóö og að sérfræðingar
MacDonald’s hafi gert sér ferð alla
leið hingað til Reykjavíkur til að
skoða lóðina áður en borgarráð stað-
festi að svipta Brimborg henni. Af
því tilefni fengu þeir veglegar mót-
tökur í ráðhúsi Reykvíkinga og fór
vel á með mönnum. Þá spyr maður
náttúrlega. Hvað fær þessa aðila til
að takast á hendur langa ferð til ís-
lands, vestan frá Bandaríkjunum, til
að skoða lóð sem þó er ekki laus til
úthlutunar. Það hlýtur að hafa verið
staðfest fullvissa þeirra að lóðin hafi
verið laus,“ sagði Óflna Þorvarðar-
dóttir, borgarfulltrúi Nýs vettvangs,
í ræðu í borgarstjóm í gærkvöld.
Enginn af borgarfulltrúum sá
ástæðu til að mótmæla fullyrðingum
Ólínu. Ólína vildi að lóðin yrði aug-
lýst og seld hæstbjóðanda. Hún sagði
að með því að fella þá tillögu hefði
meirihlutinn í borgarstjóm haft um
11 milljónir af borginni, þar sem
gatnagerðargjöldin, sem MacDon-
ald’s greiði, séu því lægri en mat lóð-
arinnar, en matiö er 19 milljónir.
Reyndar sagði Ólína aö talað hefði
verið um að markaðsverö lóðarinnar
værialltað35milljónirkróna. -sme
ísafjörður:
strandaði
Varðskipiö Óðinn strandaði við
innsiglinguna á ísafirði í gær.
Svo virðist sem varöskipið hafi
farið aðeins of austarlega i svo-
kölluðum Sundum og tekið niðri
á mjúkum malarbotni.
Djúpbáturinn Fagranes var
fenginn til að draga varðskipið á
flot en þá vildi ekki betur til en
svo að dráttartaugin á milli skip-
anna sfltnaði og fór í skrúfu
Fagraness. Varðskípið var þá
oröið laust og dró Fagranesið aö
lokumtilhafnar. -ból
Vestfirðir:
Hættuástandi
aflýstíHnífsdal
-vegiraöopnast
Hættuástandi hefúr verið aflýst
1 Hnífsdal og íbúar þeirra fimm
húsa sem þurftu að yfirgefa þau
vegna snjóflóðahættu fengu aö
flytja heim aftur i gærdag.
Að sögn Ólafs Helga Kjartans-
sonar, stjómanda almanna-
varnanefhdar ísafjarðar, hefur
snjórinn sest ágætlega sam-
kvæmt snjómælingum og ekki er
mikinn snjó að sjá í giljunum fyr-
ir ofan Hnffsdal.
Þokkalegasta veður er nú á
Vestfjörðum, bjart, kalt og ágætt
skyggni. Flogið var til ísafjarðar
í gær og untúð var að þvi að opna
Steingrímsfjarðarheiði fram á
kvöld. Breiöadalsheiði og Botns-
heiöi eru ennþá ófærar en
óhemju mikið magn af snjó hefur
falflöþar.
-ból
Lá viðstórslysi
vegna snjóf lóðs
Jón Sguiðason, DV, Garði:
Snjóflóð féll í Auðbjargarstaða-
brekku eftir hádegið í gær,
fimmtudag, og er það 3 metrar á
dýpt og 40 metrar að breidd. Lá
við stórslysi, 4 bílar voru í brekk-
unni ásamt vélsleðamanni og 2
bílanna voru rétt komnir upp
brekkuna þegar ósköpin riðu yf-
ir.
Jeppi, sem var fastur í brekk-
unni, lenti í snjóflóðinu. Flóðið
lenti aftan á bíinurn og færði
hann talsvert til og var mikil
mildi að ekki fór verr. Tveir stór-
ir framdrifsbflar vora komnir
upp brekkuna og gátu þeir dregið
jeppann úr flóðinu.
Versta veöur hefur verið hér
undanfarna daga.