Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1992, Qupperneq 21
20
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992.
íþróttir
Körfubolti - NBA-deildin:
NBA kveður
Larry Bird
- Bird-Magic-tímabilinu er lokið
Áriö 1992 verður minnisstætt öll-
um þeim sem meö körfuboltanum
fylgjast. Það var árið sem Michael
Jordan og félagar í Chicago Bulls
unnu annað árið í röð. „Draumalið-
ið“ lagði heiminn að fótum sér á
ólympíuleikunum í Barcelona og
því miður, það var líka árið sem 2
skærustu stjörnur allra tíma, Erw-
in Magic Johnson og Larry Bird,
ákváðu að leggja skóna endanlega
á hilluna.
Þótt sárt sé að horfa á eftir þess-
um stórkostlegu leikmönnum er
það við hæfi að þeir hætti saman.
Þeir komu saman inn í deildina
1979, eftir hinn fræga úrslitaleik í
háskólakeppninni, Michigan -
Indiana State. Þar sigraði Magic
(Michigan) Larry Bird í stórkost-
legum leik sem vakti meiri athygh
og fékk meiri sjónvarpshorfun en
nokkur annar leikur í háskóla-
keppninni hafði þá fengið. Ekki
skemmdi það hlutina að þeir
skyldu fara til tveggja frægustu lið-
anna í deildinni, liða sem höfðu háð
haröa keppni í fjölda ára. Það er á
engan hallað þótt fullyrt sé að þess-
ir 2 hafl átt stærstan þátt í að gera
NBA-deildina að því sem hún er í
dag.
Það var um miðjan ágúst sl. sem
Larry Bird boðaði blaðamanna-
fund og tilkynnti að hann væri
hættur. Þrátt fyrir uppskurði og
stöðugt eftirlit lækna varð þessi
mikli baráttujaxl að gefast upp fyr-
ir þrálátum bakmeiðslum sem svo
mjög höfðu sett svip á leik hans hin
síðari ár.
Á þessum 13 árum sem hann lék
í deildinni hafði hann í 897 leikjum
skoraö 21.791 stig eða 24,3 stig að
meðaltali í leik, tekið 8974 fráköst
(10 að meðaltali í leik) og gefiö 5695
stoðsendingar 6,3 að meðaltali í
leik)
Hann hafði hjálpað Boston til að
vinna 3 meistaratitla (1981,1984 og
1986) og tekið þátt í úrslitakeppn-
inni öll árin. Hann lék í 10 stjörnu-
leikjum (þ.e. alltaf þegar hann ekki
var meiddur) og 1982 var hann val-
inn maður leiksins. Larry Bird var
valinn nýhöi ársins 1980 þrátt fyrir
að Magic Johnson hafl það ár leitt
Lakers til sigurs í NBA-deildinni.
Þá var hann 3 ár í röð valinn besti
maður deildarinnar (1984-86) og
besti maður úrslitakeppninnar
1984 og 1986.
Þess má geta að aðeins 2 aðrir
leikmenn í sögu NBA hafa náð því
að vera valdir bestir 3 ár í röð, Bill
Russel (Boston) 1961-63 og Wilt
Chamberlain (Philadelphia og Lak-
ers) 1966-68.
Þá hafa aðeins 4 aðrir leikmenn
náð því takmarki að skora yfir
20.000 stig og ná yflr 5.000 fráköst-
um og 5.000 stoðsendingum á ferl-
inum. Þessir menn eru: Kareem
Abdul-Jabbar, Oscar Robertson,
John Havlicek og Jerry West.
Á fyrmefndum blaðamannafundi
sagði Bird: „Ég hefði gjarnan viljað
leika áfram en ég ræð ekki lengur
við sársaukann. Þetta er erfið
ákvörðun þar sem ég er að hætta
því sem ég hef elskað mest í lífinu
en því miður verð ég að sætta mig
við það.“
Já, Larry Bird-tímabilinu hjá
Boston er lokið og fram undan eru
sjálfsagt erfiðir tímar hjá þessu
sögufræga liði en maður kemur í
manns stað og nú þegar eru menn
farnir að tala um Reggie Lewis-
tímabilið!!
Við skulum að lokum líta á hvað
nokkrir af vinum Larrys sögðu
þegar þeir fréttu af ákvörðun hans.
Magic Johnson: „Larry var eini
leikmaöur deildarinnar sem ég ótt-
aðist og hann var sá slungnasti sem
ég lék gegn. Ég hlakkaði ávallt til
að mæta honum því hann laðaði
alltaf það besta fram í mér.“
David Stem, framkvæmdastjóri
NBA: „í framtíðinni verða okkar
bestu leikmenn bornir saman við
hann en það mun aldrei koma fram
annar Larry Bird.“
Red Auverbach, þjálfari Boston í
mörg ár og núverandi 'neiðursfor-
seti: „Það eina sem Larry hugsaði
um var að vinna leikinn og ég hef
aldrei kynnst manni sem gat þolað
sársauka jafn vel og hann. NBA
stendur í mikilli þakkarskuld við
þennan frábæra leikmann."
EB
Bird lauk glæstum ferli sínum á ólympíuleikunum i Barcelona i sumar.
Hér er hann með evrópsku stjörnunni Toni Kukoc.
Magnús Jónsson frá Skandia Islandi og Kolbeinn Pálsson, formaður KKI, undirrita samning um tryggingar á leikmönnum
NIKE-liðsins. í bakgrunni standa þrir leikmenn liðsins, frá vinstri Damon Lopez, Snæfelli, John Taft, Val, og David Grissom,
UBK. DV-mynd Sveinn
Körfuboltaveisla um jólin:
„Kanarnir" saman gegn
íslensku leikmönnunum
Erlendu leikmennirnir, sem leika hér
á landi körfubolta, munu um jólin leika
allir saman í liði, gegn íslenskum liðum.
Framtak þetta er að undirlægi landsliðs-
nefndar KKÍ og er liður í fjáröflun fyrir
þátttöku í Evrópukeppni næsta vor. Auk
þess að sýna listir sínar í leik munu
„Kanarnir" sýna troðslur og þriggja
stiga skot í hálfleik á leikjunum.
Gert er ráð fyrir að leikirnir verði sjö
talsins og var fyrsti leikurinn í Borgar-
nesi í gærkvöldi. í kvöld verður leikið
viö Norðurlandsúrvalið á Akureyri og
um helgina verða tveir leikir. Á laugar-
dag verður leikið í Keflavík kl. 16.00 gegn
heimamönnum og á sunnudag við úr-
valslið KKÍ á Hliðarenda kl. 20.00. Á
mánudag leikur NIKE-liöið, sem svo er
nefnt, gegn Haukum í Strandgötu.
Milli jóla og nýárs verður leikið gegn
Snæfelli, 28. eða 29. des., og 30. des. verð-
ur sýningarleikur í íþróttahúsinu í Vest-
mannaeyjum.
Hér er á férðinni ánægjulegt innlegg í
körfuboltann en nú er hlé í Japisdeild-
inni. Austurbakki, einn af styrktaraðil-
um KKÍ, leggur liðinu til keppnisfatnað
og Skandia Island sér um tryggingar á
leikmönnunum meðan á keppnisferð-
inni stendur sem er lykilatriði.
Lopez ogTaft
báðir í liðinu
Átta leikmenn skipa NIKE-liðið, allt
Bandaríkjamenn. Þeir eru: Damon
Lopez, leikmaður Snæfells, sem nýkom-
inn er til landsins og átti stórleik gegn
Val í bikamum í vikunni, gerði 38 stig,
tók 17 fráköst og varði 6 skot. John Taft,
hinn nýi leikmaður Vals, lét ekki sitt
eftir liggja í umræddum leik, en hann
skoraði 45 stig. David Grissom úr UBK,
leikur nú á íslandi fjórða árið í röð, eins
og Jonathan Bow frá Keflavík. Ronday
Robinson frá Njarðvík er að sjálfsögðu
í liðinu eins og John Rhodes úr Haukum.
Larry Houzer úr KR í liðinu, en hann
hefur átt góða leiki að undanfórnu. Síð-
ast en ekki síst er í liðinu Terry Acox,
eða „Skagagormurinn" en hann hefur
ótrúlegum stökkkrafti yfir að ráða.
Stjórnadi liðsins er Erlendur Eysteins-
son en honum til aðstoðar er Franc Boo-
ker sem ekki getur leikið með vegna
meiðsla.
-BL
Petrovic bjargvættur
Drazen Petrovic tryggði New Jers-
ey sigur á Milwaukee, 101-102, þegar
hann skoraði einni sekúndu fyrir lok
leiks liöanna í NBA-deildinni í nótt.
Petrovic gerði 22 stig en Frank
Brickowski 19 fyrir Milwaukee sem
tapaði 9. leiknum í röð.
Washington - Chicago 99-107. Mic-
hael Jordan hitti óvenju illa, honum
mistókust 17 skot en hann gerði 28
stig fyrir Chicago. Tom Gugliotta
skoraði 25 fyrir Washington.
Orlando - Sacramento 112-91.
Shaquille O’Necd átti stórleik með
Orlando, skoraði 22 stig, tók 20 frá-
köst og blokkaði 7 skot. Nick Ander-
son var þó stigahæstur með 25 stig.
Houston - SA Spurs 121-109. Hake-
em Olajuwon gerði 31 stig fyrir Hous-
ton en Dale Ellis 24 fyrir slakt flð
Spurs.
-sv/vs
Fjörugt í Borgarnesi
Nike-liðið, skipað erlendum leik-
mönnum með íslenskum liðum,
vann Skallagrím í fjörugum leik í
Borgamesi í gærkvöldi, 102-91, eftir
56-36 í hálfleik. Terry Ácox gerði 23
stig fyrir Nike-liðið og Jonathan Bow
22 en Birgir Mikaelsson gerði 21 stig
fyrir Skallagrím og Alexandr Ermol-
inskij 19.
í hálfleik sýndu Terry Acox og
Damon Lopez tilþrif í troðslum og
David Grissom hitti manna best úr
þriggja stiga skotum. í kvöld leikur
Nike-liðið við Norðurlandsúrval á
Akureyri.
-EP-Borgarnesi/BL
Þjálfarar óskast
Knattspyrnuráð Vals á Reyðarfirði auglýsir eftir þjálf-
urum fyrir alla flokka félagsins í knattspyrnu næsta
keppnistímabil. Um er að ræða fullt starf eða hluta-
starf með annarri vinnu.
Upplýsingar veita: Sigurður í símum 97-41199, vs.,
eða 97-41350, hs.
Sigurjón í símum 97-41101, vs., eða 97-41110, hs.
Portland er
spáð sigri
Hið virta blað „BasketbaU Weekly“ birti
nýja spá um röð liðanna í vor og byggir þá
spá að sjálfsögðu á gengi Uðanna nú í haust.
Til gamans birtum við einnig fyrstu spá
blaðsins frá því í október og geta menn þá
skemmt sér við að bera þær saman.
Spá í október:
L New York, 2. Chicago, 3. Utah, 4. Phoen-
ix, 5. Portland, 6. Cleveland, 7. LA Lakers,
8. Boston, 9. SA Spurs, 10. Houston, 11. LA
Clippers, 12. Miami, 13. Golden State, 14.
Indiana, 15. New Jersey, 16. Atlanta, 17.
Charlotte, 18. Detroit, 19. Seattle, 20. 76’ers,
21. Orlando, 22. Denver, 23. Minnesota, 24.
Washington, 25. Milwaukee, 26. Sacra-
mento, 27. Dallas.
Spá í desember:
1. Portland, 2. Chicago, 3. Phoenix, 4. New
York, 5. Utah, 6. Seattle, 7. Houston, 8. LA
Lakers, 9. Milwaukee, 10. Orlando, 11.
Charlotte, 12. LA Clippers, 13. Golden State,
14. Cleveland, 15. Atlanta, 16. Sacramento,
17. New Jersey, 18. SA Spurs, 19. Indiana,
20. Washington, 21. Boston, 22. Miami, 23.
76’ers, 24. Denver, 25. Detroti, 26. Minne-
sota, 27. Dallas.
Orlando upp um 11 sæti
AthygU vekur að Orlando Magic færist upp
um 11 sæti í spánum tveimur og einnig það
að í hvorugri spámú er reiknað með að
Chicago Bulls sigri í deildinni. -EB
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992.
29
dv Iþróttir
Leikur Arnór
með Hacken?
á samningi, segir Amór Guðjohnsen
Allt bendir til þess að Amór
Guöjohnsen, landsliðsmaöur í
knattspyrnu, leiki með sænska
úrvalsdeildarhðinu Hácken tíma-
bilið 1993 og skrifl undir eins árs
samning viö það á næstunni.
Belgískt dagblað skýrði frá því í
gær að Amór hefði verið of dýr
fyrir belgíska 1. deildar liöiö
Lommel en honum hefði boðist
vænlegur samningur frá Gauta-
borg í Svíþjóð. Þegar DV haföi
samband við Arnór kom í Ijós að
um lið Hácken var aö ræða en þaö
er frá Gautaborg. Gunnar Gísla-
son mun einnig leika með Hácken
á næsta ári en hann spilaði með
félaginu í þrjú ár áður en hann
gerðist þjálfari og leikmaður með
KA á síðasta keppnistímabili.
Geri ráð fyrir að ganga
fljótiega frá samningi
„Svíarnir höfðu samband viö mig
og i fyrstu var ég ekki sérlega
spenntur og fór út til að líta á að-
stæöur meö hálfum huga. En þá
kom í ljós að dæmiö var mun álit-
legra en ég hélt, og Hacken mun
vera eitt af fáum sænskum félög-
um sem ekki á í fjárhagsvandræð-
um. Ég geri fastlega ráð fyrir því
að ganga frá samningi við Hácken
innan skamms en æíingar hefjast
10. janúar,“ sagði Amór við DV í
gær.
Arnór fór í morgun til Belgíu þar
sem hann ræðir við forráöamenn
Anderlecht um sín mál en eins og
margoft hefur komið fram telst
belgískafélagið eiga hann í kjölfar
samningssflta við Bordeaux í
Frakklandi Araór Uefur ekkert
spilaö nema landsleiki frá því í
maí, hann hefur dvalið hér á landi
og æft með Valsmönnum.
„Þaö hentar mér vel að fara til
Svíþjóðar því tímabiUð þar hefst í
apríl og Iýkur í nóvember. Eg er
þungur um þessar mundir og í
engu formi, og þaraa get ég byijað
frá grunni, í staö þess að koma inn
í mitt tímabil á meginlandi Evrópu
í engri æfmgu. Ég hef hug á aö
prófa þetta í eitt ár en ég veit ekki
hvort um sölu eða lánssamning
verður að ræöa fyrr en ég hef
rætt viö forráðamenn And-
erlecht,“ sagði Amór Guðjohn-
sen.
Það verða því allavega þrír fs-
lendingar í sænsku úrvalsdeild-
inni næsta sumar en auk Amórs
og Gunnars leikur Hlynur Stef-
ánsson áfram með Örebro.
Hácken hefur raörg undanfarin
ár leikið í 1. deild og barist um
sæti i úrvalsdeildinni, og sá
draumur rættist loksins í haust.
-VS
Arnór Guójohnsen, landsliðsmaður
í knattspyrnu. - Á leiðinni til Svi-
þjóðar.
með handboltabók
Komin er á markaðinn æfinga-
og kennslubók í handknattleik fyr-
ir börn og ungUnga sem ber titiUnn
Lærðu handknattleik. Höfundar
bókarinnar eru þeir Janus Guð-
laugsson og Geir HaUsteinsson,
íþróttakennarar sem á árum áður
léku handknattleik meö FH og ís-
lenska landsliðinu. Þaö er bókaút-
gáfan Iðnú sem gefur bókina út i
samvinnu við Handknattleikssam-
band íslands.
Hér er á ferðinni bók um undir-
stöðuatriöi í handknattleik og er
sú fyrsta sinna tegundar hér á
landi. Að sögn þeirra Geirs og Jan-
usar höfðar bókin fyrst og fremst
til barna og unglinga og þeim gert
kleift að eiga auðveldara með að
nálgast efnið. Svo vitnað sé í um-
sagnir fyrrverandi landsliðsmanna
í handknattleik þá segir Alfreð
Gíslason: „Ég var kominn á ungl-
ingsárin þegar ég fór að leggja
aukna rækt við handknattleikinn.
Þessi bók hefði komið mér að not-
um því mig vantaði meiri þekkingu
í undirstöðuatriðum leiksins,”
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrrum
fyrirhði íslenska landsliösins, seg-
ir: „Þessi kennslubók um hand-
knattleik hittir svo sannarlega í
mark. Geir og Janus búa yflr þekk-
ingu sem fáir handknattleiksmenn
geta státað af og er þessi bók löngu
tímabær."
Kristján Arason, landshðsmaður
í handknattleik, rítar formála bók-
arinnar og hann segir þar meðal
annars: Ég fagna útgáfu þessarar
bókar. Geir og Janus reyna að ein-
falda efnið fyrir krökkunum og
koma þannig til móts við fróðleiks-
fúsa iðkendur. Bókin er kærkomin
öhum áhugamönnum um hand-
knattleik.“ Jón Ásgeirsson, for-
maður HSÍ, segir þessa bók eiga
eftir að koma handknattleíknum
hér á landi mjög til góða. Bók sem
þessi var orðin löngu tímabær qg
hún væri mikfll fengur fyrir HSÍ.
-GH
Keflavíkurstúlkur
í vandræðum með KR
Meðgöngu lauk
með sameiningu
KR-stúlkur náðu ekki að stöðva
stöllur sínar úr Keflavík, þrátt fyrir
góöa tilburði, í 1. deild kvenna í
körfuknattleik í gær. ÍBK sigraði
meö 11 stiga mun, 54-65.
Leikurinn var mjög jafn framan af
og skiptust hðin á um að hafa foryst-
una. Keflavíkurstúlkurnar voru þó
sterkari undir lok fyrri hálfleiks og
höfðu yfirhöndina í leikhléi, 33-30.
KR-stúlkur komu mjög ákveðnar til
leiks í síðari hálfleik og náðu for-
ustunni um stund en um miðjan hálf-
leikinn varð Guðbjörg Norðfjörð að
yfirgefa leikvöllinn með flmm villur.
Þá var sem allur vindur væri úr
KR-ingum og sigu Keflavíkurstúlk-
umar fram úr jafnt og þétt og má
segja að sigur þeirra hafi verið ör-
uggur þegar upp var staðið.
Helga Þorvaldsdóttir, Hrund Lár-
usdóttir og Guðbjörg Norðfjörð léku
best í hði KR. Helga var þeirra stiga-
hæst með 13 stig. Hjá Keflavík hafði
Kristín Blöndal nokkra yfirburði, lék
skynsamlega og lét mótlætið í fyrri
hálfleik og í upphafi síðari hálfleiks
ekki fara í taugamar á sér, hún var
jafnframt stigahæst Keflavíkur-
stúlkna, skoraði 19 stig. Kristín
ásamt Hönnu Kjartansdóttur, Olgu
Færseth og Elínborgu Herbertsdótt-
ur skoruðu 60 af 65 stigum ÍBK.
Keflavík mætir Tindastóli á Sauð-
árkróki í kvöld í bikarkeppni kvenna
og hefst leikurinn kl. 18. -ih
Eftir nokkurra ára meðgöngu hafa
kvennahð KA og Þórs á Akureyri í
knattspyrnu loks verið sameinuö og
þau senda sameiginlegt hð til keppni
á íslandsmótinu næsta sumar undir
nafni íþróttabandalags Akureyrar,
ÍBA.
ÍBA mun leika í 1. deild og tekur
þar sæti KA, sem varð íslandsmeist-
ari í 2. deild 1992, en Þórsstúlkurnar
féllu hins vegar úr 1. deildinni.
Síðast keppti knattspymuhð undir
nafni ÍBA árið 1974. Til þess tíma
sendu KA og Þór sameiginlegt karla-
hð á íslandsmótiö, en síðan þá hafa
félögin keppt sitt í hvom lagi, bæði
í karla- og kvennaflokki.
Fyrsta stóra verkefni hins sameig-
inlega Uðs verður íslandsmótið inn-
anhúss 15.-16. janúar. -VS
Handbolti:
Þessir leika
gegn Frökkum
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
hefur vaflð 17 manna landsliðs-
hóp til að leíka þrjá leiki gegn
Frökkum mihi jóla og nýárs.
Hópurinn er skipaður eftirtöld-
um leikmönnum:
Markverðir:
Guömundur Hrafnkelsson..Val
Bergsveinn Bergsveinsson..FH
Sigmar Þ. Óskarsson.....ÍBV
Aðrir leikmenn:
Gunnar Beinteinsson......FH
Konráö Olavsson „.„....Dortmund
GeirSveinsson...........Val
Gústaf Bjamason......Selfossi
ValdimarGrímsson........Val
Héðinn Gilsson....Ðússeldorf
Júhus Jónasson.....Paris S.G.
Einar G. Sigurðsson....,.Selfossi
Patrekur Jóhannesson..Stjörn
Gunnar Gunnarsson....Víkingi
GuðjónÁrnason...........FH
Sigurður Sveinsson...Selfossi
Magnús Sigurösson ....Stjörnunni
Dagur Sigurðsson........Val
-GH
Skuldir HSÍ
32,5 milljónir
Skuldir Handknattleikssam-
hands íslands nema i dag um 32,5
milljónum króna þrátt fyrir 950
þúsund króna hagnað fyrstu 7
raánuðí starfsár núverandi
stjómar Handknattleikssam-
bandsins. Mikiö átak hefur verið
gert til þess að gæta hagkvæmni
í rekstri án þess þó að draga úr
starfsemi sambandsins. HSÍ hefur
tekist að breyta samsetningu
skuldanna og þar með minnka
verulega útgjöld vegna dráttar-
vaxta og innheimtukostnaöar.
-GH
Körfubolti:
Péturnýliðinn
ílandsliðinu
Torfi Magnússon landshðs-
þjálfari í körfubolta hefur valiö
14 leikmenn til æfinga um helg-
ina, en auk æfinganna leikur liöiö
gegn NIKE-liði erlendra leik-
manna á sunnudagskvöld. í
landsliðshópi Torfa er einn ný-
liði, Pétur Ingvarsson úr Hauk-
um. Landsliöshópurinn er skip-
aður eftirtöldum leikmönnum:
Jón Arnar Ingvarsson..Hauk.
Pétur Ingvarssson.....Hauk.
BirgirMikaelsson....Skallagr.
Henning Hennlngsson ...Skallagr.
Bárðm- Eyþórsson....Snæfelh
KristinnEinarsson.....Snæfelh
Jón Kr. Gíslason..„Keflavík
Albert Óskarsson...Keflavík
Guöjón Skúlason....Keílavík
Teítur Örlygsson...Njarðvik
Páll Kobeinsson....Tindastóh
Valur Ingimundarson „Tindastóh
PéturGuömundsson.......UBK
Friðrik Ragnarsson.......KR
Nokkrir leikmenn gáfu ekki
kost á sér tfl æfinganna um helg-
ina þar sem þeir era í prófum og
aörir eru erlendis.
Landsliðiö mætir NIKE-liði er-
lendra leikmanna á sunnudags-
kvöld kl. 20 á HUðarenda. -BL
Skallagrími
boðidámót
Einar Pátecm, DV, Borgamesi:
Úrvalsdeildarliði Skallagrims
hefur verið boðið að taka þátt i
alþjóðlegu körfuknattleiksmóti
sera fram fer i Edínborg i Skot-
landi 26.-31. desember. Mótið
heitir Wörld Friendship Tourna-
ment og er haldið árlega. Auk
Skallagríms keppa þar Dynamo
Kiev frá Ökraínu, Olympic Nice
frá Frakklandi, Jameson frá ír-
landi, Derby Bucks og London
Doc frá Englandi og skosku liöin
Paysby og Burger King.
AðlæragoK
heima í stofu
Þeir kylfingar sem áhuga hafa á
að læra og fræðast um undirstöðu-
atriði golfíþróttarinnar ættu að
vera kátir þessa dagana. Nú gefst
byrjendum í golfinu nefnilega loks-
Mín
ins kostur á að læra grandvallar-
atriði þessarar merku íþróttagrein-
ar heima í stofu hjá sér.
Gefin hafa verið út þrjú mynd-
bönd þar sem Arnar Már Ólafsson,
golfkennari hjá Golfklúbbnum
Keih í Hafnarfirði, leiðbeinir og fer
í gegnum flest ef ekki öll undir-
stöðuatriði golfsins. Amar Már
kemur ótrúlega vel frá þessari
kennslu og er greinilega réttur
maður á réttum stað. Hann útskýr-
ir hlutina rólega og vandlega og
kemst efnið greiðlega til þeirra sem
á myndböndin horfa.
Á myndböndunum er farið ræki-
lega í gegnum grundvaharatriðin
eins og áður segir en þau skipta
hreint öhu máh í golfinu sem fleiri
íþróttagreinum. Myndböndin eru
alls ekki langdregin. Þvert á móti
uppfull af fróðleik og fyrr en varir
er þriðja bandið á enda runnið.
Efnið er mjög vandlega unnið og
vel fram sett. Geta ungir byrjendur
jafnt sem gamlir haft mikil not af
kennsluefninu. Ég verð að viður-
kenna að áður en ég horfði á mynd-
böndin var ég alls ekki bjartsýnn á
skoðun
að hægt væri að kenna byrjendum
golf í gegnum sjónvarp. Skemmst
er frá því að segja að nú er ég á
allt öðru máh. Það er mín skoðun,
að þetta framtak Amars Más og
Nýja bíós sé glæsilegt og til hreinn-
ar fyrirmyndar. Ulfar Jónsson,
margfaldur íslandsmeistari og nú-
verandi Norðurlandameistari í
golfi, er á sama máh en hann hefur
hælt þessu merka framtaki á hvert
reipi. Og nú er bara að bíða eftir
vorinu og þá er ég sannfærður um
að forgjöfin lækkar snarlega.
Stefán Kristjánsson