Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1992, Side 31
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992.
x> v Smáauglýsingar - Sími 632700
Jólagjöfin sem kemur þægilega á óvart.
Stórkostlegt úrval af stökum titrur-
um, settum, kremum, olíum o.m.fl. f.
dömur og herra. Sjón er sögu ríkari.
Ath. allar póstkr. dulnefndar. Erum á
Grundarstíg 2. Sími 91-14448, opið
14-22 virka daga, 10-22 laugard.
Til gjafa. Polar púlsmælar, til þjálfunar
og endurhæfingar, einnig fróðlegar
bækur um þjálfun. Uppl. í símum 91-
654655 og 91-651533. P. Ólafsson hf.
Passið
ykkurá
myrkripu!
■ Bílar til sölu
Ford F-150 XLT pickup, árg. ’85,
sjálfskiptur, lengri gerð, ný 33" dekk,
álfelgur, segl á pallinum, blár og
hvítur að lit. Bíll í góðu ástandi.
Staðgrverð kr. 890 þús. Ath. skipti.
Upplýsingar í síma 91-666214 e.kl. 19.
Til sölu Benz 190E, árg. 1992, keyrður
22 þús. km, sjálfskiptur, topplúga,
ABS, loftpúði o.fl. Upplýsingar í síma
91-610430.
Dodge 4x4 Power Ram 250 pickup, árg.
’89, til sölu, 6 cyl., sjálfskiptur, Cumm-
ings, turbo, dísil. Upplýsingar í síma
91-814024 eða 91-73913.
■ Jeppar
Suzuki Sidekick. Suzuki Sidekick, árg.
’91, til sölu, ekinn um 40 þús., upp-
hækkaður, álfelgur, 30" dekk, með
beinni innspýtingu, toppeintak. Uppl.
í síma 91-654739 milli kl. 17 og 19
föstudag og um helgina, einnig í
bílasíma 985-28256.
Borgartúni 28 S 622901 og 622900
BÆKUR
Þorgeir Ibsen
Hreint
og beint
HftEINT OG £EltyT
LJOÐ OG LJOÐLIKI
Hér ýtir nýr ljóðahöfundur úr vör með
ljóðabók, sem hann kallar Hreint og
beint. Þar eru farnar troðnar slóðir í
hefðbundnum stíl, en nýstárlegum þó
um sumt. Höfundur á það til að víkja af
alfaraleið í ljóðum sínum, einkum í þeim
ljóðum sem hann nefnir ljóðlíki en ekki
ljóð. En ljóðlíki hans eru þó allrar athygli
verð og standa vel fyrir sínu. Þar ber
kvæðið Minning greinilega hæst -
Ijóðlíki eins og höfundur nefnir það - um
Stein Steinarr, um atvik úr lífi hans sem
er á fárra vitorði, atvik sem aldrei hefur
verið lýst áður eða frásögn um það á
þrykk komist.
PÉTUR
ZOPHONLASSON
VÍKINGS
IÆigARÆHVI
NKMATAL GUÐRlÐAR EVjOtfSOÓH'UFI
OG OJARNAHALLDORSSONAa
HREPPSTJÓRA A VIKINGSIÆK
LITLAR SÖGUR
SvensUsi Pcill
Litlarsögur eru safn sextán sagna um
fólk og fyrirbæri og óvenjulegar hliðar
hversdagsleikans. Meðal annarra koma
við sögu Þórunn Sveinsdóttir fyrir-
myndarhúsmóðir, Herjólfur skósmiður,
Jóhanna af Örk, unglingurinn Gunnar og
ég. Farið er á tónleika á gulum Renault,
í leikhús, fylgst með kosningadegi, hlýtt
á söng fiskanna og horft á húsið málað
svart.
Höfundurinn Sverrir Páll hefur áður
gefið út ljóðabókina Þú og heima og þýtt
bækurnar Kæri herra Guð, þetta er hún
Anna og Önnubók. Litlar sögur eru fyrstu
frumsamdar sögur hans sem dregnar eru
upp úr skúffu og koma fyrir augu
manna.
VI
í þessu sjötta bindi Víkingslœkjarœttar er
2. hluti h-liðar ættarinnar, niðjar Stefáns
Bjarnasonar. Þar sem ákveðið var að
rekja niðja hans fram á þetta ár, en miða
ekki eins og í fjórum fyrstu bindunum
við þau mörk, er æviskeið Péturs
Zophoníassonar setti verkinu, verður að
skipta niðjum Stefáns Bjarnasonar í
nokkur bindi, slíkur sem vöxtur ættar-
innar hefur verið. Rúmur helmingur
þessa bindis eru myndir.
Allsherjarnafnaskrá bíður lokabindis
útgáfunnar. |
E
Q-
VÍKINGSLÆKJARÆTT
PétuA. fioftUarÚGiAAosi
SKUGGSiÁ
SKUGGSJÁ
BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.