Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1993, Page 1
Rás 1 á sunnudag:
- þáttur um Reynistaðarbræður
Rösklega tvær aldir eru nú liðnar frá því
að þeir atburðir gerðust á Kili sem hafa verið
þjóðinni í fersku minni allt fram á daga núlif-
andi kynslóðar. Þrátt fyrir alla þá dul sem
yfir atburðunum grúfir má hiklaust fullyrða
að sjaldan eða aldrei hafi íslensk öræfi sett á
svið nokkum þann harmleik er látið hefur
eftir sig dýpri spor í meðvitund almennings
eða haft á sér blæ voveiflegri örlaga.
í fyrsta lagi er ekkert vitað um ferðalok
þeirra félaga er hurfu út í sortann með lest
sína og fjárhóp en komu þaðan aldrei aftur.
Tvö líkin fundust vorið eftir, tvö eftir 65 ár
og eitt aldrei. Þá risu langsótt og harðsnúin
réttarhöld út af hvarfi þeirra félaga þar sem
þrír menn voru ásakaðir um líkrán og mun
það nærri einsdæmi í íslenskri réttarsögu.
Reynistaðarbræður, fyrri hluti, er á dagskrá
rásar 1 á sunnudag kl. 14 og seinni hlutinn
að viku liðinni. Höfundur og leikstjóri er
Klemenz Jónsson. Lesarar ásamt honum eru
Rúrik Haraldsson, Sigurður Skúlason, Krist-
björg Kjeld og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Klemenz Jónsson er höfundur og leikstjóri þáttanna um
Reynistaðarbræður.
Madonna
-sjábls. 18
Sunnu-
dags-
morgunn
með
Svavari
Gestsí
200. sinn
-sjábls. 20
-sjábls. 21
Pulitzer-
svina-
steik í
Iitrófi
-sjábls. 21
Robert De
Niro í
Góðum
sjábls. 19
Sjónvarpið á föstudag:
Emm á hausnum
fjárhagslega
- segir Bragi Ólafsson Sykurmoli
Fyrir skemmstu luku Molamir
tónleikaför um Bandaríkin með
írsku hljómsveitinni U2. Þar léku
okkar menn fyrir um 700 þúsund
manns á tæpum mánuði. Sjónvarpið
mun á föstudag sýna þátt sem gerður
var um þá tónleikaferð Sykurmol-
anna og U2. Þátturinn er byggður á
viðtölum við hljómsveitarmeðlimi,
myndum af þeim baksviðs og á ferð
og flugi og ekki síst á tónleikaupptök-
um sem gerðar vom á gríðarstórum
leikvöngum og sýna vel umfang tón-
leikanna en sviðsbúnaðurinn, sem
notaður var í ferðinni, þykir með því
glæsilegasta sem sést hefur á rokk-
tónleikum.
„Við vorum upphitunarband hjá
U2 og spiluðum í þijátíu mínútur á
hveijum tónleikum. Þetta er þó
nokkur upphefð fyrir okkur því með-
limir hljómsveitarinnar U2 buðu
okkur með og borguðu okkur einnig
fyrir að spila. Það er mjög sjaldgæft
að upphitunarbönd fái borgað. Inn á
milli héldum við tónleika sjálf, aðal-
lega í Kalifomíu og New York. Okkur
var tekið mjög vel ef miðað er við
að áhorfendur komu ekki til aö sjá
okkur heldur fyrst og fremst U2. Það
er mjög algengt að upphitunarhljóm-
sveitirnar séu púaðar niður,“ segir
Bragi Ólafsson Sykurmoh.
Eina íslenska hljómsveitin
með lag í toppsæti
Hljómsveitin Sykurmolamir hefur
einnig verið mikið í fréttum undan-
farið eftir að lag hljómsveitarinnar,
Alice Called Love af plötunni Hit,
komst á topp bandaríska danslaga-
vinsældahstans. Engin íslensk
hljómsveit hefur áður komist í efsta
sæti vinsældahsta vestanhafs. „Það
er mjög skrítið að lagið Ahce Cahed
Love skuh hafa komist á hsta án
þess aö vera gefið út á lítilli plötu.
Sykurmolana þarf vart aó kynna, Einar Örn Benediktsson, Þór Eldon, Björk Guðmundsdóttir, Sigtryggur Baldurs-
son, Bragi Ólafsson og Margrét Örnólfsdóttir.
Það er vaninn að gefa lög út á htlum
plötum fyrst til þess að þau nái ein-
hverri spilun í klúbbum og diskótek-
um. Lagið er tekið beint af stóm plöt-
unni,“ sagði Bragi.
Hljómsveitin er búin að starfa í sex
og hálft ár. „Tónhstin hefur ekki gert
okkur efnuð. Við höfum eingöngu
lifað af tónlisinni í fimm ár en erum
núna á hausnum. Við höfum hugsað
okkur að hvíla okkur frá Molunum
í óákveðinn tíma,“ segir Bragi að lok-
um.
Enn mun þó
reimt á Kili