Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Blaðsíða 31
43
LAUGARDAGUR 28: JANÚAR 1993. i
„Allir bókamarkaðir landsmanna eru fullir af þessum nöturlegu ævisögum ungs fólks sem lækka í verði með
hverju ári. Við það eykst angist höfundarins til muna enda forðast hann alla slíka markaði."
UuKP BW - w : 23-a| WjLhm i
Hvað er
fertugmn
fært?
Hann sat hjá lækninum sínum
og starði döprum augum út í tóm-
ið. „Ég er að verða gamall," sagði
hann. Læknirinn leit snöggt á fæð-
ingarártalið og reiknaði í huganum
að maðurinn var 43ja ára að aldri.
„Lífið rennur frá mér á ofsahraða.
Mér finnst eins og ég standi á lest-
arstöð og horfi á eftir síðustu lest-
inni. Engar aðrar lestir eru vænt-
anlegar. Þetta er allt að verða
búið.“ Hann sneri hægt upp á máð-
an giftingarhring á baugfingri
hægri handar og dæsti. „Hvað get
ég gert til að varðveita lífið og
tryggja sírennsli nýrra tækifæra?"
Lækninum varð svarafátt. Sjáifur
sat hann á þessari sömu brautar-
stöð sem hiaðin hafði verið úr
brostnum vonum og límd saman
með beiskju. Lestin sem brunaði
úr augsýn var hlaðin draumum,
hugsjónum, framavonum og metn-
aði. Þeir voru jafnaldrar, komnir á
miðjanaldur.
Miðsaldurskreppan
Á enskri tungu er stundum talað
um „midlife crisis", eða miðsald-
urskreppu. Höfundur þess hugtaks
er talinn vera breskur geðgreinir,
Elhot Jaques aö nafni. Hann skrif-
aði grein árið 1965 sem hann
nefndi: Dauðinn og miðsaldurs-
kreppan. Þar fjallar hann um þung-
lyndið og dapurleikann sem grípur
marga þegar fertugsaldrinum er
náð. Þá verða menn sér meðvitaöir
um eigin forgengjleika og dauðann
sem allra bíður. Endalokin virðast
ekki eins langt undan og áður og
trúin á ódauðleika og eilífa æsku
slokknar. Bikar lifsins verður
beiskur og fullur af sársaukafull-
um uppgötvunum. Óraunhæfar
kröfur til lífsins og óljós vissa um
eigin endanleika valda kvíða í sál-
inni. Lífinu virðist lokið í stöðugu
tilgangsleysi daganna. Margir gera
síðustu tíiraunina til að ná í skottið
á draumunum. Þeir skipta mn
vinnu eða maka, flytjast búferlum
og hnykla vöðvana. Sumir herða
enn á sér og vinna meira en nokkru
sinni fyrr og taka hverjum degi
eins og hann gæti verið þeirra síð-
asti. Slíkum mönnum finnst þeir
eiga ótal margt óunnið og klukka
eilífðarinnar er að falla á þá. Oft
gleyma þeir að lifa og nj óta aldrei
þess sem aflað er. Þeir hlaupa laf-
móðir á eftir lestinni en hún fjar-
lægist út við sjóndeildarhringinn
og nemur lokst staðar undir rótum
regnbogans. Aðrir taka upp á því
Álæknavaktiimi
Óttar
Guðmundsson
læknir
að skrifa sögu sína á aldrinum
40-55 ára og tíunda þá afrek sín og
ævistarf. Leigupennar úr blaða-
mannastétt taka að sér gegn áht-
legri þóknun að skrifa slíkar ævi-
minningar. Þeir mála glæsta mynd
af manninum og gera úr honum
þann einstakling sem hann
dreymdi alltaf að verða. Bókin á
að verða óbrotgjam minnisvarði
um glæsta ævi en verður sjaldnast
annað en dapurlegt sjálfshól þar
sem beiskjan og óánægjan drekka
tvímenning. Allir bókamarkaðir
landsmanna eru fullir af þessum
nöturlegu ævisögum ungs fólks
sem lækka í verði með hveiju ári.
Við það eykst angist höfimdarins
til muna enda forðast hann alla
slíka markaði.
Andlegurþroski
og heilbrigði
Eina leiðin til að komast heill út
úr miðsaldurskreppunni er að efla
anda sinn og þroska sig tilfinninga-
lega. Dante sleppur frá helvíti og
hreinsunareldum í Divinu Comed-
íu með því að öðlast fyrirheit um
ást og þekkingu. Gera þarf upp við
fortíðina og allar óraunsæju hug-
myndimar um lífið og tilvemna.
Við verðum að sætta okkur við eig-
in breyskleika og ófullkomleika og
læra að þykja vænt um okkur sjálf.
Andlegur þroski felst í því að sætt-
ast við sjálfan sig og lífið sjálft.
Mörgu er hægt að breyta til betri
vegar ef menn þora að stunda já-
kvæða sjálfsrannsókn. Mestu
skiptir að skilja að menn bera sjálf-
ir ábyrgð á eigin lífi. Þeir verða að
taka ákvörðun um margt. Vilja
menn halda áfram að reykja og
drekka þó að slíkt athæfi geti stytt
ævina um allmörg ár? Vilja menn
sinna líkama sínum af alúð og
natni eða láta hann drabbast niður?
Vilja menn verða feitir eða grann-
ir? Hvað ætla menn að gera við
alla streituna sem hijáir þá? Em
hugmyndir okkar um eigið líf, for-
tíð og framtíð raunsæjar? Ef svo
er ekki verðum við að átta okkur
á því og fara að lifa í samræmi við
raunveruleikann og sætta okkur
við tilveruna eins og hún er. Ef við
gerum það ekki verðum við óham-
ingjusöm og finnst að eigið líf hafi
misheppnast og farið forgörðum.
Lífið er of dýrmætt til að kasta því
á bál óraunsærra hugmynda og
væntinga sem aldrei er hægt að lifa
eftir. Skógar heimsins em of dýr-
mætir til að þeim sé fómað í papp-
ír til að prenta á dapurlegar ævi-
minningar fólks á besta aldri. Allt
er fertugum fært en hins vegar er
ófært þegar fertugir missa trúna á
sjálfa sig og lífið sjálfL
VIÐSKIPTAVINIR JÖFURS ATHUGIÐ!
Varahlutaverslunin er opin á laugardag frá
kl. 10-14.
JÖFUR
Nýbýlavegi 2, sími 42600
Tölvuteikning
Dagblaðiö-Vísir óskar að ráða tölvuteiknara til korta-
og grafagerðar á ritstjórn. Nauðsynleg er kunnátta í
meðferð teikniforrita á borð við FreeHand, MacDraw,
lllustrator og DeltaGraph.
Umsóknir berist ritstjórum fyrir
1. febrúar 1993.
ÚTSALAN
HEFST I DAG
Verslunln Gleraugað býður
vlðsklptavlnum sfnum 25%
afslðtt ó ðllum gerðum
sjónglerja. f verslun okkar að
Suðurlandsbraut 50 bjóöum
vlö gott úrval umgjaröa ó
mjðg góðu verðl. Tllboðlð
glldlr tll 20. febrúar.
<3* GLERAUGAÐ
v/ Faxafen
f 4 I / 1 1
1 T* l 1 /> f" \ /^Nj I v §
I J S i 1 LJ I I 1 I | 1
|;J|pr V. t J V/ 1 ■ ■,<l ■ ■