Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1993, Side 4
30
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1993.
Tónlist i>v
Pláhnetan
- ný hljómsveit með Stefán Hilmarsson í fararbroddi
Stefán Hilmarsson. Með mörg járn í eldinum.
Stefán Hilmarsson, söngvari Sálar-
innar hans Jóns míns, er þessa dag-
ana aö setja saman nýja hljómsveit
ásamt nokkrum þekktum tóniistar-
mönnum. Sálin hans Jóns míns, sem
verið hefur ein vinsælasta hljóm-
sveit landsins undanfarin ár, fer í frí
í miðjum apríl og verður því Pláhnet-
an vettvangur tónhstariðkana Stef-
áns minnsta kosti fram á haust. Þá
ætlar hann að venda kvæði sínu í
kross og senda frá sér sína fyrstu
sólóplötu.
„Við höfum þegar ákveðið að gera
stóra plötu sem kemur út með vor-
inu,“ segir Stefán Hilmarsson um
nýju hljómsveitina. „Pláhnetuplatan
verður hreinræktuð poppplata þar
sem poppaö verður alheiminum,
himintuglunum og geimfórum fyrr
og síðar til dýrðar." Stefán segir til-
urð hljómsveitarinnar eiga sér nokk-
um aðdraganda.
„Ég og Ingólfur Guðjónsson, hljóm-
borðsleikari úr Rottunni og Rick-
shaw, erum gamlir kunningjar. Viö
höfum öðru hvoru viðrað þá hug-
mynd að hefja samstarf á tónlistar-
sviðinu en ekkert orðið úr sökum
anna. Ingólfur hefur í félagi við Sig-
urð Gröndal gítarleikara samið tölu-
vert af efni sem staöið hefur óklárað
og var hugmyndin að viö myndum
ráðast í það sameiginlega að ganga
frá því. Þegar það svo lá fyrir að
Sálin færi í frí höfðum við samband
og í framhaldinu var ákveðið að setja
hljómsveit á laggirnar. Víst er að eitt-
hvað af því efni verður á plötunni
en að auki hef ég verið að semja lög
með Friðriki Sturlusyni, bassaleik-
ara Sálarinnar, sem verða þama inn-
an um.“
Auk Stefáns, Ingólfs, Friðriks og
Sigurðar Gröndals, er Ingólfur Sig-
urðsson, trommuleikari Orgils, í
popphljómsveitinni Pláhnetu.
Sálin á leið í himnaríki?
- Síðastliðið haust var talsvert um
það rætt að platan Þessi þungu högg
og stefnubreytingin, sem hún boðaði,
hafi verið nauðsynleg til þess að Sál-
in hans Jóns míns gæti þrifist áfram.
Núna hafið þið ákveðið að gefa
hljómsveitinni frí í eitt ár að minnsta
kosti. Vora Þessi þungu högg mis-
heppnuð?
„Nei, ég tel svo ekki vera. Þvert á
móti held ég að hún hafi lukkast
ágætlega. Þetta var að sjálfsögðu
mjög dramatísk breyting fyrir okkur
og aðdáendur okkar. Við nálguðumst
viðfangsefnið úr nýrri átt og notuð-
um önnur vinnubrögð en áöur. í
stuttu máli þá tókum við nýja stefnu,
stefnu sem meirihluti hljómsveitar-
innar vildi fara og við erum ánægðir
með útkomuna hvað sem misjafnri
gagnrýni líður.“
- Langt frí?
„Við getum orðað það þannig að
Sáhn hans Jóns míns er komin í það
langt frí að ekki sér fyrir endann á
því,“ segir Stefán Hilmarsson og
bætir við að Sálin sé ekki á leið inn
í himnaríkið. „Sálin á eftir að starfa
aftur þótt síðar verði."
Sólóplata í haust
„Þetta hefur staðið til lengi," segir
Stefán, þegar hann er spurður út í
væntanlegan sólóferil. „Eg hef lengi
gengið með sólóplötu í maganum og
nú er lag. Pláhnetan verður ekki jafn
krefjandi og Sálin hans Jóns míns
og tækifærið því kjörið.“
Stefán segist vafalítið fá einhverja
meðlimi Pláhnetunnar til að aðstoða
sig á sólóplötunni og við að fylgja
henni eftir. Þá stefnir hann á að
semja lög sjálfur á plötuna en hingað
til hefur Stefán að mestu haldið sig
við textasmíðina. Þar varð þó breyt-
ing á í haust því Stefán átti stóran
þátt í öllum lögum plötunnar Þessi
þungu högg.
Hann segist hugsa sér sólóplötuna
sem rólega eða á „neðra þan-sviði“,
eins og hann orðar það sjálfur.
„Það er langt síðan ég ákvaö að
hafa hana rólega. Línan hjá Sáhnni
hefur frekar verið til hressileikans
og ég þar af leiðandi þanið mig til
hins ýtrasta í söngnum. Mig langar
til að gíra aðeins niður án þess þó
að detta niður á eitthvert ballöðu-
svið. Þetta verður að líkindum soul
skotin plata með hita og tilfinn-
ingu,“ segir Stefán Hilmarsson, sem
er einmitt einn örfárra íslenskra
söngvara sem geta sungið soul-tón-
listskammlaust. -SMS
Metþátttaka
í Músík-
tilraunum
Nú þegar mánuður er þar til
skráningu lýkur í Músiktilraunir
Tónabæjar hafa meira en 50
hljómsveitir skráð sig til keppni.
Ingólfur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Músíktilraun-
anna, segir að um metþátttöku
sé að ræða og hefur þegar verið
ákveðið að bæta einu tilrauna-
kvöldi viö áöurgerða dagskrá. Þá
er einnig í athugun að fækka lög-
um á hverja hljómsveit úr fjórum
í þrjú.
Tilraunakvöldin verða fjögur:
18. mars, 25. mars, 26., mars
(aukakvöld) og 1. apríl. Úrslita-
kvöldið verður 2. apríl.
Ingólfur segir að rokk og ný-
bylgja sé meira áberandi nú en í
fýrra og þá aðafiega á kostnað
dauðarokksins sem virðist vera á
undanhaldi.
Verðlaun í Músíktilraunum
Tónabæjar 1993 eru eftirfarandi:
1. verðlaun 25 tímar í Stúdíó
Sýrlandi
2. verðlaun 25 tímar í Grjótnám-
unni
3. verölaun 20 timar í Hljóðrita
4. verölaun 20 timar í Hljóð-
hamri
Þá gefa hljóðfæraverslanirnar
Rin, Poul Bernburg, Samspil og
Steini á Skúlagötu verðlaun í
keppninaaukJapis. -SMS
Suðurlands-
skjálftinn
Allt frá því Mánar gáfu út plötu
á sínum tíma hefur ekki verið
gefin út plata með sunnlensku
rokki. í vor verður breyting á, en
þá verður gefin út platan Suöur-
landsskjálftinn. Á þeirri plötu
verða að sögn aðstandenda allar
gerðir af rokki og koma níu
hljómsveitir til með að Qytja tón-
listina. Hljómsveitirnar era Loð-
bítiar, Bacchus, Skrýtnir, Pírana,
Poppins flýgur, Munkar í meiri-
hluta, Túrbó og Hor.
Plötugagnrýni
Thethe-Dusk
★ ★ ★
Plata með
sannan tón
Menn hafa lengi deilt mn
markmið rokktónlistar. Margir
telja höfuðmetnað popparans fel-
ast í framleiðslu þægilegrar af-
þreyingar en aðrir álíta að rokk-
tónlist standi ekki undir nafni
nema hún sé í takt við það þj óöfé-
lag sem hún er sprottin upp úr,
bæði tilfinningalega og póhtískt.
Matt Johnson, höfuðpaur The the,
er einn hinna síðamefndu. Á
þremur plötum, Soul Mining
(1983), Infected (1986) og Mind
Bomb (1989), hefur Johnson gert
firringu einstaklingsins, heims-
valdastefnu stórveldanna, spih-
ingaröfl í þjóðfélaginu og kergju
kynþátta og trúarbragða að yrkis-
efni.
Matt Johnson er enn á gagnrýn-
um nótum en í þetta skiptið bein-
ist gagnrýnin inn á við. Eitt af
betri lögum plötunnar er Lonely
Planet, lag sem minnir á John
Lennon. í viðlaginu segir: ef þú
getur ekki breytt heiminum,
breyttu þá sjálfum þér. Þessi
hending lýsir vel þeirri áherslu-
breytingu sem orðið hefur í texta-
smíð Johnsons. Hann er jákvæður
án þess að vera bitlaus. Hann
syngur um flest það sem gerir
manninn að því sem hann er og
fer það vel úr hendi enda sigldur
maður, Matt, í ólgusjó tilfinninga-
lífsins.
Lagasmíðar Dusk era af ýmsum
stærðum og gerðum. Þær sveiflast
frá hæggengum tónverkum ala
Erik Satie (Lung Shadow) til rokk-
ara með vá vá sólóum og tilheyr-
andi (Sodium Light Baby). Af
hhóðfæraleikuranum er Johnny
Marr mest áberandi. Hann fer
silkihönskum um gítarinn og
munnhörpuleikur hans gefur
Dusk skemmtilegt yfirbragð.
Söngur Matts Johnson er leik-
rænn og skemmthega útsettur á
stundum.
The the á farsælan feril að baki
og Dusk sýnir hljómsveitina í
hörkuformi. Fjögur ár era hðin frá
síðustu plötu The the og það er
greinilegt að sá tími hefur verið
vel nýttur. Dusk er full af
skemmtilega útfærðum hugmynd-
um og textum sem vekja til um-
hugsunar. Dusk er plata með
sannantón.
Snorri Már Skúlason
Tom Waits - Bone Machine:
★ ★ ★ ★
Enn ferskur
Tom Waits hefur verið að í tvo
áratugi og gefið út vel á annan tug
platna, hveija annarri betri. Hann
hefur nú gefið út enn eina plötu.
Gripurinn kahast Bone Machine
og er óhætt aö fuhyrða að hér er
á ferðinni eitt af meistarastykkj-
um hans. Það versta, sem um
þessa plötu er hægt að segja, er
að sum lögin era ekki frábær.
Tom Waits er fyrsta flokks
söngvari, þótt röddin sé iha farin
eftir 20 ára söngferil og viskí-
drykkju. Eiginlega verður röddin
bara meira sjarmerandi með aldr-
inum og Tom Waits kann að láta
hana njóta sín, hvort sem hann
er að syngja gullfallegar melódíur
eins og A Little Rain, hlyrmislega
rokksöngva eins og In the Colosse-
um og Goin’ Out West eða stór-
skemmthega neðanjarðardjass-
slagara eins og Such a Scream.
Fyrir utan að vera frumleg,
fersk og fjölbreytileg er platan
mjög fagmannlega imnin. Tom
Waits er tónlistarmaður á heims-
mælikvarða og hann velur sér fag-
menn sem aðstoðarmenn. Nokkrir
gestir koma fram á plötunni og ber
þar helst að nefna gamla Rohing
Stones rokkarann Keith Richards,
svo og Les Claypool, bassaleikara,
söngvara og driffjöður Primus.
Keith Richards sphar á gítar og
raular aðeins með í slappasta lagi
plötunnar, That Feel sem hefði
eiginlega heldur átt heima á Roh-
ing Stones plötu. Betri fengur er í
Les Claypool, sem sphar á bassa í
Earth Died Screaming.
Eftir að hafa hlustað á innan-
tómt popp og gamla, gelda jakka-
fatarokkara ahan daginn í útvarp-
inu í vinnunni er gott að koma
heim og hlusta á eitthvað ferskt
og þá er Bone Machine góður kost-
ur.
Pétur Jónasson
Neil Young - Harvest Moon:
★ ★ ★
Framúrskar-
andi sveita-
stemning
Fyrir rúmum 20 árum sendi
Neh Young frá sér hina rómuðu
plötu Harvest sem enn í dag er
talin með því betra sem poppiö
hefur ahð af sér undanfama ára-
tugi. Síðan þá hefur Neh Young
komið víða við í tónlistinni, aht frá
sveitatónlist yfir í hálfgert þunga-
rokk, og þeir era ekki margir sem
spanna jafn breitt svið og hann.
Á síðasta ári hóaði Neh Young
svo saman því fólki sem vann með
honum að Harvestplötunni 1972
og afraksturinn er platan Harvest
Moon sem hefur hlotið mikið lof
víða um heim en varð hér eins og
flest annað erlent efni í lok árs
undir í innlenda plötuflóðinu. Að
þessu sinni leitar Young á svið
sveitatónhstarinnar og setur hún
meiri svip á þessa plötu en Har-
vest á sínum tíma þótt áhrifa
sveitatónlistarinnar gætti þar víða
líka. Og ekki er asinn mikih á
Young og félögum á þessari plötu;
hér er ekki slegið í klárinn og
hleypt á skeið um gresjumar, tón-
hstin minnir miklu frekar á ang-
urværa samkomu við eldinn þegar
rökkrið sígurá.
Lögin era melódísk og mjúk og
hvert öðra betra þannig að erfitt
er að gera upp á mihi þeirra og
taka eitthvert eitt eða fleiri út og
hampa þeim sem bestu lögum
plötunnar. í þessu felst einmitt
styrkur Harvest Moon; þessum
jöfnu gæðum þar sem hvergi er
veikan blett aö finna. En vel að
merkja, platan þarf nokkra sphun
og þolinmæði th að síast inn. Eins
og áður segir hefur Neh Young
spreytt sig á ýmsum stefnum og
sthum í gegnum árin og það má
segja að hann komi einmitt inn á
þetta í einu lagi plötunnar sem ber
nafniðfromHanktoHendrixþar .
sem hann nefnir th sögunnar tvo
stóra tónlistarpóla, þá Hank heit-
inn Wihiams sveitatónlistaijöfur
og Jimi heitinn Hendrix, guðfóður
þungarokksins. Oghvort sem
þessir menn hafa verið áhrifavald-
ar á ferh Neh Young virðist sama
hvar hann ber niður á skalanum
mihi þessara póla, ahtaf tekst hon-
um að skapa verk í fremstu röð.
Sigurður Þór Salvarsson