Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1993, Side 8
28
MÁNUDAGUR15. FEBRÚAR1993
íþróttir
50 m hlaup karla
1. Einar í>. Einarsson, Árm.5,6
(Jöfnun á íslandsmetí)
2. Haukur Sigurðsson, Árm.5,8
3. Jóhannes Marteinsson, ÍR.5,9
50 m hlaupkvenna
1. GeírlaugGeirlaugsd.,Árm....6,4
2. SunnaGestsdóttir.USAH..6,6
3. Snjólaug Viihelmsd., UMSE ..6,7
Langstökk karla
1. JónArnarMagnúss.,Tind...7,68
2. Jón Oddsson, FH......7,64
3. Bjöm Traustason, FH.......6,82
800 m hlaup karla
1. Þorsteinn Jónsson.FH.....1:59,3
2. Sigraar Gunnarss, UMSB .,2:01,6
3. Sigurbjöm Amgrs., HSÞ ..2J)1,6
800 m hlaup kvenna
1. LaufeyStefánsd.,Fjölni....-2:22.7
2. HuldaPálsdóttir, ÍR.......234,5
3. HólrafriðurGuðm.,UMSB 2:27,2
Kúluvarp kvenna
1. GuöbjörgViðarsd.,HSK .....11,56
2. VlgdisGuöjónsdóttir,HSK.1138
3. HalldóraJónasd.,UMSB ....11,01
Kúluvarp karla
1. EggertBogason.FH ....16^4
2. Unnai'Garðarsson, ÍR.....1530
3. AndrésGuðmundss.,HSK.14,86
1. SigurðurT.Sigurðsson.FH.4,80
2. JónAmarMagnúss.,Tind...4,60
3. Kristján Gissurarson, ÍR.4,50
Þristökk
1. JónOddsson,FH............14,70
2. ÓlafurGuömundsson, Self.1439
3. BjörnTraustáson,FH..-..:-:.13,75
50 m grindahlaup karla
1. JónAmarMagnúss.,Tind...6,8
2. Röörtur Gíslason, FH.........6,8
3. ÓlafurGuömundsson, Self ....7,0
50 m grindahlaup kvenna
1. Þórdís Gísiadóttir, HSK...7,4
2. SólveigBjömsdóttir, Árm......7,5
3. Erna Sigurðardóttir, Árm.7,6
Hástökkkaria
1. Róbert Jensson, HSK.......1,90
2. TómasGunnarsson,HSK.....l,90
3. TheodórKarlsson,Tind......1,85
Hástökk kvenna
1. ÞórdísGísladóttir.HSK.....1,86
2. Elín J.Traustadóttir.HSK ...1,65
3. EmaSigurðardóttir,Ánn....l,55
1500 m hlaup karla
1. Sigmar Gunnarss., UMSB .4:07,3
2. ÍsleifurKarJsson,UBK ......4:11,4 i
3. Jóhann Ingíbergsson, FH ..4:13,5
1500 m hlaup kvenna
1. UnnurBergsvd., UMSB.....458,2
2. AnnaCossner.ÍR......4:58,4
3. Laufey Stefánsd., Fjölni.4:58,8
Langstökk kvenna
1. Snjólaug Vilhelmsd, UMSE.,5,48
2. Sunna GestsdóttiG USAH.5,37
3. EmaSiguröard., Arm........5,27
Jóni Amari Magnússyni úr
Tindastóli hefur verið boðið að
keppa á alþjóðlegu móti í sjöþraut
sem fram fer í Berlin um næstu
helgi. „Þetta veröur gaman og
það er ekki verra að slökustu
greinunum mínum úr tugþraut-
inni er sleppt í sjöþraut," sagði
Jón Arnar i gær.
Hjörturog Jón
fara til Noregs
Hjörtur Gíslason og Jón Oddsson
verða einnig á ferðinni um næstu
helgi en þeir taka þátt í opna
norska meistaramótinu innan-
húss sem frara fer í Hamar,
skammt frá Osló. Hjörtur keppir
í 50 metra grindahlaupi og Jón í
langstökki og þristökki. Margir
öflugir erlendir keppendur taka
þátt í mótinu en þeir ættu báðir
að eiga möguleika á að komast í
úrslit í sínum greínum.
-VS
DV
Meistaramótið í frjálsum íþróttum innaiihúss:
Besta keppni í lang-
stökki frá upphaf i
- Jón Amar sló íslandsmetið eftir harða keppni við Jón Oddsson
Einar Þór Einarsson, Ármanni, annar frá vinstri, geysist í markið í 50 metra hlaupinu og jafnar eigið íslands-
met. Haukur Sigurðsson, Ármanni, sem varð annar, er annar frá hægri. Lengst til vinstri er Jóhannes Marteins-
son, ÍR, sem varð þriðji, og til hægri er Kristján Friðjónsson, UBK, sem varð fjórði. DV-mynd GS
Besta langstökkskeppni frá upp-
hafi á meistaramótinu í frjálsum
íþróttum innanhúss fór ffarn í Bald-
urshaga á laugardaginn. Jón Amar
Magnússon, tugþrautarmaöurinn
öflugi sem nú keppir fyrir Tindastól,
sló eigið íslandsmet eftir geysiharða
baráttu við hinn síunga Jón Oddsson
úr FH, sem er nýorðinn 35 ára en
bætti besta árangur sinn um 12 sentí-
metra og jafnaöi gamla metið.
Jón Amar átti metið, 7,64 metra,
en flaug 7,68 metra. Jón Oddsson
stökk 7,64 metra.
„Þetta var hrikalega gaman og það
var flott hjá Jóni að ná þessum ár-
angri, hann er mjög öflugur núna.
Það vantaði meiri keppni í lang-
stökkiö. Ég veit að ég á meira inni,
stökk upp á 7,90 metra var hárfínt
ógilt hjá mér því ég „rétt pikkaði í
leirinn,“ og það er mjög raunhæft aö
ég nái þeirri vegalengd. Annars hef
ég ekkert æft langstökkið í vetur,
áherslan hefur verið á stangarstökk-
iö og grindahlaup, og það er bónus
aö bæta sig í langstökkinu, það gefur
manni fleiri stig í tugþrautinni!“
sagöi Jón Amar við DV.
Jón Amar sigraði einnig í 50 metra
grindahlaupi eftir gífurlega baráttu
við Hjört Gíslason. Báðir hlupu á 6,8
sekúndum en Jón Amar var 15 sentí-
metrum á undan. Hann fékk silfúr í
stangarstökkinu, laumaði sér á milli
„öldunganna“ Sigurðar T. Sigurðs-
sonar og Kristjáns Gissurarsonar, og
hefði hæglega getað unnið til verð-
launa í 50 metra hlaupinu en þar
hljóp hann á 5,7 sekúndum í undan-
rásunum. Hann hætti þá keppni, fór
ekki í undanúrslitin til að geta búiö
sig undir langstökkskeppnina.
Jón líka sterkur
í þrístökkinu
Jón Oddsson sýndi síðan mikið ör-
yggi í þrístökkinu og sigraði með
14,70 metra stökki. Hann átti fjögur
lengstu stökkin en íslandsmetið,
14,92 metrar, stóðst áhlaup hans.
Eggert Bogason, FH, var í litlum
vandræðum með að sigra í kúluvarp-
inu, í flarvem Péturs Guðmundsson-
ar sem er meiddur. Eggert kastaði
rúmum metra lengra en næsti mað-
ur.
Einarjafnaði
eigið Islandsmet
Einar Þór Einarsson úr Ármanni
jafiiaði eigið íslandsmet í 50 metra
hlaupi karla þegar hann sigraði á 5,6
sekúndum. Einar er í mjög góðu
formi þessa dagana en hann er eini
íslendingurinn sem hefur náð lág-
marki fyrir heimsmeistaramótið
innanhúss sem fram fer í Toronto í
Kanada í næsta mánuði.
Knattspymumaðurinn Þorsteinn
Jónsson úr FH sigraði á sannfærandi
hátt í 800 metra hlaupi karla á 1:59,3
mín., og var aðeins 3/10 úr sekúndu
frá meistaramótsmeti Agnars Stein-
arssonar.
Þórdís var nálægt íslands-
metinu og HM-lágmarki
Þórdís Gísladóttir, HSK, sigraði án
fyrirhaíhar í hástökki kvenna, fór
jrfir 1,86 metra, sem er meistaramóts-
met. Hún átti síðan góða tilraun við
1,90, sem hefði veriö íslandsmet og
jafnframt sentímetra yfir lágmarki á
heimsmeistaramótið innanhúss.
Þórdís lét ekki þar við sitja og sigr-
aði líka í 50 metra grindahlaupi. Hún
hefði unnið til verölauna í karla-
flokki en þar stukku aðeins tveir
hærra en Þórdís. Róbert Jensson,
HSK, vann, stökk 1,90 í færri tilraun-
um en félagi hans, Tómas Gimnars-
son.
Borgfirðingar bestir
í 1500 metrunum
Borgfirðingar fengu gullið í 1500
metra hlaupunum, Sigmar Gunnars-
son í karlaflokki og Unnur Berg-
sveinsdóttir í kvennaflokki. Bæði
settu þau meistaramótsmet, Unnur
4:58,2 mínútur og Sigmar 4:07,3 mín-
útur. Sveinn Margeirsson, UMSS,
setti sveinamet, 4:19,2 mínútur.
Guðbjörg Viöarsdóttir, HSK, sigr-
aði í kúluvarpi kvenna, Geirlaug
Geirlaugsdóttir, Armanni, í 50 metra
hlaupi kvenna, Laufey Stefánsdóttir,
Fjölni, í 800 metra hlaupi kvenna og
Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE, í
langstökki kvenna.
-VS
HK langefst
í blaki karla
- Þróttur R., ÍS og KA líka í úrslit
HK er langefst í 1. deiid karla í
blaki eftir góðan sigur á KA í Digra-
nesi á laugardaginn, 3-1. HK spilaði
mjög vel í fyrstu tveimur hrinunum
og vann þær, 15-5 og 15-3. KA tókst
að vinna þá þriðju, 14-16, en HK
tryggði sér síðan sigurinn með því
að vinna þá fjórðu, 15-8.
í gær vann Þróttur Reykjavík KA-
menn í jöfhum 89 mínútna leik í
Hagaskóla, 3-2. KA komst í 0-1 og
1-2 en Þróttarar voru sterkari í lok-
in. Hrinurnar enduðu 10-15, 15-10,
9-15,15-12 og 15-10.
Með þessu er nokkuð öruggt aö það
verða HK, Þróttur R., ÍS og KA sem
leika til úrslita um ísiandsmeistara-
titilinn í karlaflokki.
Víkingsstúlkur
áfram í bikarnum
Víkingur sótti Þrótt heim til Nes-
kaupstaðar í bikarkeppninni í
kvennaflokki og lauk leiknum með
sigri Reykjavíkurliðsins, 1-3. Þrótt-
arstúlkur léku vel í fyrstu tveimur
hrinunum en síðan brást móttakan
hjá þeim og Víkingur tryggði sér sig-
ur. Hrinumar enduðu 9-15, 15-12,
1-15 og 3-15. -LH/VS
Stórsigur SR-manna
Skautafélag Reykjavíkur vann
léttan sigur á Biminum, 12-2, á ís-
landsmótinu í ísknattleik á Skauta-
svellinu í Laugardal á laugardags-
kvöldið. Ámi Bergþórsson skoraöi 3
mörk fyrir SR, Ólafur Finnbogason
2, Haraldur Hannesson 2, Juoni Tör-
mannen 2, Nikolai Nevjadov, Amar
Sveinsson og Hannes Siguijónsson
eitt hver.
Staðan í Bauerdeildinni er þessi:
SR..............5 4 0 1 45-23 8
SA..............4 3 0 1 13-9 6
Bjöminn.........4 0 0 4 10-36 0
-VS
Desmond Douglas og Aðalbjörg Björgvinsdöttir með sigurlaun sín á
Landsbankamotinu. DV-mynd Brynjar Gauti
■ w
Englendingurinn Desmond Douglas vann öruggan sigur í karlallokki á
Landsbankamótinu í borötennis sem fram fór í íþróttáhúsi Kennarahá-
skólans á laugardagirm. Douglas vann Goran Wraná frá Svlþjóð í úrslita-
leik, 21-11 og 21-18. Aöalbjörg Björgvinsdóttír vann Ástu Urbandc, 21-7
og 22-20, í úrslitaleik i kvennaflokkL
Douglas er ellefufaldur enskur meistari og sigraöi í keppni 12 bestu
borðtennismanna í Evrópu árið 1987. Wraná varð Evrópumeistari ungl-
inga með liði Svía 1986 og er sá tíundi besti í Svíþjóð í dag.
Wraná hfjóp á síðustu stundu í skarðið fyrir Thomas Von Scheele, landa
sinn, sem veiktist, en hann er heimsmeistari í tviliöaleik.
Douglas vann Peter Nilsson, hinn sænska þjálfara KR, 21-12 og 21-9, í
undanúrslitum og Wraná vann þá Kristján Jónasson, 21-11 og 21-16.
Sextán karlar og flórar konur kepptu á mótinu sem er árlegt boðsmót
á vegum Borðtennissambandsins. -VS