Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1993, Qupperneq 2
20
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1993.
Tónlist
Gott rokk
- frá Nýja-Englandi
Lemonheads. - Hressandi og ögrandi nýrokk.
Hljómsveitin Lemonheads kemur
eins og margar aðrar framsæknar
rokksveitir frá Boston á austur-
strönd Bandaríkjanna. Hljómsveitin
hefur starfað í 7 ár og mest af þeim
tíma verið óþekkt utan heimaborgar-
innar. Með þremur plötum, Hate
Your Friends (1987), Creator (1988)
og Láck (1989), má segja að Lemon-
heads hafi komist á kortið með
hressilegt og ögrandi nýrokk því árið
1990 gerði hljómsveitin hljomplötu-
samning við risafyrirtækið Atlantic.
Samningurinn skipti sköpum fyrir
Evan Dando en Lemonheads er að
öllu leyti hugarfóstur hans og er
Dando í raun eini fasti meðlimur
hljómsveitarinnar.
Plata ársins
Saga Lemonheads nær aftur til árs-
ins 1986 en það ár var sveitin stofnuð
í gagnfræðaskóla í Boston. Daginn
eftir að Dando og félagar hans út-
skrifuðust úr skólanum héldu þeir í
hljóðver þar sem sparifé var fómað
til að hljómsveitin gæti hljóðritað
fjögur lög. Eitt þeirra, Laughing All
the Way to the Cleaners, þótti svo
vel heppnað að ástæða þótti að festa
það á plast. Svo var gert og kom lag-
ið út á smáskífu sem piltamir gáfu
sjálfir út í þúsund eintaka upplagi.
Skömmu síðar komst hljómsveitin
á samning hjá óháðu útgáfufyrirtæki
í Boston á hvers merki fyrrnefnd trí-
lógía var útgefin. Eftir samninginn
við Atlantic árið 1990 kom platan
Lovey á markað og Favorite Spanish
Dishes ári síðar en sú innihélt aðeins
fimm lög, þar af þijú eftir aðra lista-
menn. Nefndar plötur beindu kast-
ljósi fjölmiðla að Evan Dando og
Lemonheads. Við greiningu var
hljómsveitin teymd á nýbylgjubás-
inn og henni hampað fyrir refFúegt
gítarrokk og frumlega texta.
Fram á síðasta ár var hrifning á
Lemonheads bundin við tiltölulega
þröngan hóp grúskara auk þess sem
hljómsveitin naut hylli á heimaslóð-
um. Á því varð breyting í lok síðasta
árs þegar sjötta plata Lemonheads,
It’s a Shame about Ray, kom á mark-
að. Flestir eru sammála um að þar
sé á ferð langbesta plata hljómsveit-
arinnar til þessa. Hún sýnir Dando
þroskaöri og afslappaðri en á fyrri
plötum, sem skilar sér í einkar
ferskri rokkplötu þar sem leikgleði
drýpur af hverjum tóni. It’s a Shame
about Ray hefur notið mikilla vin-
sælda í bandarísku háskólaútvarpi
og var m.a. kosin plata ársins af Col-
lege Media Joumal. Þá sat titúlagið
í þríár vikur á samræmdum vin-
sældalista allra háskólastöðva í
Bandaríkjunum en þær þykja endur-
spegla gróskuna í nýrokkinu á hverj-
um tíma.
Hæfileg geggjun
Dando samdi efni á plötuna It’s a
Shame about Ray í Ástralíu en hann
heillaðist mjög af landinu á tónleika-
ferð þar 1991. Hann notaði því fyrsta
tækifæri sem gafst til að fara aftur
tU Ástralíu og í þetta skiptið staldr-
aði hann lengur við. Dando brá máln-
ingarrúUunni á loft og málaði bæi
og torg rauðum lit á meðan hann
samdi sýrða texta eftir vafasamt
sukk. Dæmi um slíkan texta er Ali-
son starting to happen sem er ástar-
óður Dandos til kærustu bassaleikar-
ans í Lemonheads!!
TitUl plötunnar er tilvísun í áráttu
eins vinar Dandos sem kaUaði alla
mögulega og ómögulega hluti nafn-
inu Ray. Skipti ekki máh hvort um
var að ræða skítugan sokk eða bréf-
bera. Dag einn rákust félagarnir á
grein í dagblaði sem fjaUaði á drama-
tískan hátt um vandamál drengs sem
fríkaði út á skólagöngunni en í niður-
lagi greinarinnar stóðu þessi frómu
orð: It’s a shame about Ray. Eftir
hrossahlátur upp á þriðja jaxl varð
tU lag byggt á téðum orðum en text-
inn íjaUar um mann sem er kominn
að óskUgreindum leiðarlokum í líf-
inu.
Þessi saga er nokkuð dæmigerð
fyrir stemninguna á It’s a Shame
about Ray. Platan er leiftrandi
skemmtUeg með alvarlegan undirtón
á stöku stað og gítarrokk sem jafnast
á við það besta sem bandarískar
sveitir hafa verið að gera á síðustu
árum. -SMS
Nýtt
Zeppelin
efni
Gamlir rokkhundar og Led
Zeppehn aðdáendur, sem undan-
farin misserí hafa smjattað á
Remaster útgáfum sveitarinnar
sálugu, geta nú fengið vatn í
raunninn aftur því Jimmy kall-
inn Page er á kafl í að endurviima
meira Zeppelin efni. Hann stefnir
að þvi að koma því á markað sem
fyrst og heyrst hefur að meðal
laga i safninu verði að minnsta
kosti eitt sem aldrei hefur verið
þrykkt á vínil eða geislaplötu.
Page er annars að pukrast við að
stofna nýja stórsveit og vitað er
að meðal hðsmaima hennar verð-
ur „íslandsvinurinn" David Co-
verdale sem tróð upp í Reiðhöll-
inni hér um árið ásamt Pétri
Kristjánssyni.
Þrefaldur
Elvis
Costello
Elvis CosteUo er mikil ham-
hleypa til verka ef því er að skipta
og allt stefnir nú í að á þessu ári
slái hann fyrra met sitt í plötuút-
gáfu sem hljóðaði upp á tvær plöt-
ur á sama árinu. CosteUo er
nefnilega þegar búinn að gefa út
eina plötu á þessu ári og tvær eru
væntanlegar fyrir árslok. Á ann-
arri þeirra verður safh af göml-
um lögum og slögurum sem Co-
stello hefur haft mætur á gegnum
árin og mun platan bera nafnið
Kojak Varíety en hin á aö inni-
halda nýtt efni úr smiðju meistar-
ans og hefur vinnuheitið Idio-
phone.
Þolinmæðin sigrar
Fjórar efstu plötur íslenska plötu-
Ustans frá síðustu viku eru enn í fjór-
um efstu sætunum en hafa víxlað
sætum. Þannig tekst REM-drengjun-
um loks að ná efsta sætinu eftir langa
mæðu og Eric Clapton ýtir nú KK
Bandi niður í fjórða sætið.
Og nú eru þær bara tvær innlendu
plötumar meðal tíu efstu, auk KK
nær Jet Black Joe að hanga innan
markanna en miðað við fallið þessa
vikuna verður það ekki mikið leng-
ur.
í stað innlendu platnanna í efri
hlutanum koma tveir gamlir jaxlar,
sem verið hafa í eldlínu poppsins í
30 ár eða svo, keppinautarnir og
kunningjarnir Paul McCartney og
Mick Jagger. McCartney er aðra
viku á listanum en Jagger fyrstu og
verður fróðlegt að fylgjast með fram-
gangi þessara herra á næstunni. Þá
er ný plata í tíunda sætinu, Rage
against the Machine og Cult ná í
sautjánda sætið fyrstu viku á lista. í
Bretlandi skipta menn um toppplöt-
ur í hverri viku og þessa vikuna er
Buddy heitinn HoUy og hljómsveit
hans, The Crickets, á toppnum með
safn gamalla gullkoma en ef að lík-
um lætur verður komin ný plata í
efsta sætið í næstu viku. Og það sem þessa vikuna bæta sig verulega
gætiallteinsorðiðplataREM-manna íBretlandi. -SþS-
REM - vinir fólksins.
Bandaríkin (LP/CD)
^ 1. (1 ) The Bodyguard
Úr kvikmynd
^ 2. (2) Breathless
Kenny G
♦ 3. (4) The Chronic
Dr. Dre
{>4. (3) Unplugged
Eric Clapton
^ 5. (5) Some Gave All
Billy Ray Cyrus
f 6. (7) Timeless
Michael Bolton
f 7. (10) Ten
Pearl Jam
O 8. (6) If I Ever Fall In Love
Shai
O 9. (8) Aladdin
Úr kvikmynd
♦10. (-) Pocket Full of Kryptonite
Spin Doctor
Bretland LP/CD
t 1 • (-) Words of Love
Buddy Holly & The Crickets
♦ 2. (-) Conscience
Beloved
♦ 3. (7) Automatic for the People
R.E.M.
O 4. (1 ) Pure Cult
Cult
O 5. (4) Funky Divas
En Vouge
♦ 6. (6) Gorecki Symphony No 3
David Zimman
O 7. (3) 3 Years, 5 Months 8t 2 Days
Arrested Development
♦ 8.(9) So Close
Dina Carroll
♦ 9. (14) Take That & Party
Take That
♦10. (-) Where You Been
Dinosaur Jr.
♦ 1.(1) No Limit
2 Unlimited
♦ 2. (-) Why Can't I Wake up with You
Take That
^ 3. (3) Little Bird/Love Song for a Vamp-
ire
Annie Lennox
O 4. (2) I Will Always Love You
Whitney Houston
♦ 5. (-) l'm Every Woman
Whitney Houston
6. (5) Deep
East 17
t 7.(9) Stairway to Heaven
Rolf Harris
0 8. (4) The Love I Lost
West End Feat Sybil
9. (6) Ordinary World
Duran Duran
{H0. (8) How Can I Love You More?
M People
New York (lög)
^1.(1) I Will always Love You
Whitney Houston
♦ 2.(3) A Whole New World
Peabo Bryson and Regina
{} 3. (2) If I Ever Fall in Love
Shai
t 4. (5) Saving forever for You
Shanice "
♦ 5. (7) Ordinary World
Duran Duran
{} 6. (4) In the Still of the Night
Boyz II Men
♦ 7.(10) Mr. Wendal
Arrest Development
♦ 8.(8) 7
Prince & The New Power Gener-
ation
O 9. (6) Rump Shaker
Wreckx-N-Effect
♦10. (-) l'm Every Woman
Whitney Houston
London (lög)
Island LP/CD
♦ 1.(2)
4 2.(1 )
♦ 3.(4)
4 4.(3)
♦ 5. (15)
♦ 6. (-)
♦ 7.(7)
4 8.(5)
♦ 9- (10)
♦10. (-)
Automatic for the People .
Bodyguard............
Unplugged ...........
Bein leið............
OfftheGround.........
Wandering Spirit.....
Tommi&Jenni..........
JetBlackJoe..........
Dusk...... ..........
Rage against the Machine
.............. R.E.M.
............Úrkvikmynd
...........Eric Clapton
....................KK
........Paul McCartney
...........Mick Jagger
............Úrkvikmynd
...........Jet BlackJoe
................TheThe
Rage againstthe Machine
411.(8) Von.......................................Bubbi Morthens
♦12.(18) Dirt......................................Alice in Chains
413. (9) Himnasending...................................Nýdönsk
414. (6) Grimmsjúkheit....................................Ýmsir
415. (12) Album................................’..Freddy Mercury
416. (13) The Future...............................Leonard Cohen
♦17. (-) PureCult..........................................Cult
♦18.(20) Predator.......................................lceCube
419. (17) It'saShameaboutRay .........................Lemonheads
420. (11) Trespass......:............................Úrkvikmynd
* Listinn er reiknaður út frá sölu í öllum helstu hljómpiötuverslunum í Reykjavík auk verslana víða um landið.