Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Page 2
20
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993.
Duran Duran
- slær í gegn á ný
Gömlu Duran Duran mennirnir, John Taylor, Simon LeBon og Nick Rhodes,
komnir í sviðsljósið á ný.
Eftir þriggja ára þrengingar er
hljómsveitin Duran Duran komin á
kreik að nýju. Lag hennar, Ordinary
World, virðist hafa hitt í mark. Það
hefur til að mynda verið meðal vin-
sælustu laga á íslenska listanum síð-
ustu vikumar.
John Taylor, annar tveggja stofn-
enda Duran Duran sem enn eru í
hljómsveitinni, segist ekki beinlínis
vera hissa á að velgengnin hafi bank-
að upp á að nýju.
„Það er búið að spila tónlist sjötta
og sjöunda áratugarins sundur og
saman. Áttundi áratugurinn hefur
verið í tísku að undanfomu og það
var bara tímaspursmál hvenær fólk
færi að snúa sér að níunda áratugn-
um. Þar hljótum við að hafa mjög
sterka stöðu,“ segir hann.
Duran Duran sló í gegn árið 1981
með lagið Planet Earth. Síðan fylgdu
margir smellir í kjölfarið, svo sem
Girls on Film, Hungry Like the Wolf,
Save a Prayer, Rio, Union of the
Snake, New Moon on Monday, Wild
Boys, A View to a Kill og topplagið
The Reflex. En síðan fór velgengnin
að fjara út.
Mögru árin
„Við tókum okkur til rækilegrar
endurskoðunar þegar við fundum að
vinsældimar fóm að dvína,“ segir
John Taylor. „Við fundum greinilega
að platan Notorious, sem kom út árið
1986, hitti ekki nógu vel í mark. Sama
var að segja með Big Thing sem kom
út tveimur árum síðar. Fram til þess
tíma hafði allt selst sem við sendum
frá okkur. En allt í einu hittum við
ekki í mark lengur. Og eftir að platan
Liberty, sem kom út árið 1990, fór
fyrir ofan garð og neöan hjá fólki
settumst við niður og ákváðum að
skoða dæmið af fullri alvöru."
Niðurstaðan varð sú að hljómsveit-
in þyrfti að taka sig á á öllum svið-
um: við lagasmíðar, spilamennsku,
söng og ekki síst markaðssetningu.
„Síðasttalda atriðið var kannski
erfiðast," segir John Taylor. „Vegna
þess hve síðustu þrjár plötur gengu
illa missti starfsfólk útgefandans
trúna á okkur. Duran Duran var
bara í þess augum gömul hljómsveit
sem einu sinni hafði verið vinsæl en
átti sér ekki lengur viðreisnar von.
Það þurfti þvi verulegt átak til að fá
starfsfólkið til að átta sig á því að við
ætluðum okkur að ná árangri á nýj-
an leik.“
Ný plata
Reyndar er það ekki fullljóst enn
hvemig Duran Duran reiðir af árið
1993. Plata með nafhi hljómsveitar-
innar kom út í byrjun vikunnar og
enn er allt óvíst með sölu hennar
þótt lagið Ordinary World hafi hitt í
mark. Bandaríski hluti útgáfufyrir-
tækisins vildi reyndar flýta útgáfu
plötunnar þegar lagið sló í gegn
vestra. Það reyndist ekki unnt því
að löngu var búið að ákveða að gefa
plötuna út á sama degi um allan
heim.
Vinsældir lagsins komu svo óvænt
að ekki hafði einu siimi verið gert
myndband við lagið. Á árum áður
átti Duran Duran myndböndum við
lög sín heilmikið að þakka. Mikil
vinna var í þau lögð og stundum far-
ið til fjarlægra landa að taka þau upp.
„Við vorum bæði undrandi og glað-
ir að uppgötva að vinsældir lagsins
voru að stórum hluta spilun í út-
varpi að þakka. Við erum ekki bara
sjónvarpsband," segir Nick Rhodes,
hinn stofnandi hljómsveitarinnar
sem enn er með. Auk hans og Tayl-
ors er Simon LeBon söngvari enn
með og fjórði maður er gítarleikarinn
Warren Cuccurullo.
Þótt Duran Duran hail vissulega
vakið htla athygli hin síðari ár þar
til nú hefur hljómsveitin eigi að síður
stöku sinnum verið í fréttunum. Það
vakti til dæmis athygli á dögunum
þegar fyrrverandi liðsmaður írska
lýðveldishersins, IRA, játaði að hafa
ætlað að sprengja hljómsveitina í loft
upp ásamt Karh ríkisarfa og Diönu
prinsessu á hljómleikum árið 1984.
„Við vissum að sjálfsögðu ekkert
um hættuna sem við vorum í fyrr
en við lásum um þetta í blöðum á
dögunum," segir Nick Rhodes.
„Kannski sannar þetta að allir fá
annað tækifæri í lífinu."
-ÁT.
Stjöraustóð
í Dublin
Eins og kunnugt er af fréttum
var bandaríski raularinn og laga-
smiðurinn Kris Kristofferson hér
á landi um síðustu helgi og tróð
upp á Hótel íslandi við ágætar
undirtektir. Hann hefði þó betur
tekið með sér einhverja af þeim
hstamönnum sem hann kom
fram með á tónleikum á írlandi
vikuna þar á undan. Þar var mik-
ih stjörnufans samankominn og
voru þar á meðal ekki ómerkari
menn en Bob Dylan, Van Morri-
son, U2 drengirnir, Elvis Costeho,
Johnny Cash, Ghrissy Hynde og
Steve Winwood. Heimamennirn-
ir Bono og Van Morrison stilltu
saman raddir sínar í lagi þess síð-
arnefnda, Gloria, og í lokin sungu
Dylan, Costeho, Hynde, Winwood
og Kris lag Dylans, It’s Ah over
now, Baby Blue.
ískaldur
fatnaður
ísarnir tveir Ice-T og Ice Cube
hafa ákveðið að hefja samstarf
en ekki á sviði tónhstar heldur
fataframleiðslu! Og það eru engir
venjulegir leppar sem þeir félag-
ar ætla að framleiða, ekkert
gallabuxnadrasl og því um líkt
heldur einkennisfatnaður fyrir
væntanlega úthverfaskæruiiða.
Hann á að samanstanda af bux-
um og bol í sth, skreyttum byssu-
merkjum eins og AK-47 og Uzi en
slík vopn eru nauðsynleg öllum
mönnum sem vilja teljast menn
með mönnum vestra. Ice-T segist
ekki vhja sjá unga og efnilega
menn í snjáðum gahabuxum
lengur, það sé mælikvarði á fá-
tækt og kúgun. Hann hafi hætt
að klæðast slíkum druslum um
leið og hann varð efnaður og nú
vhji hann dressa kynbræður sína
upp í ný einkennisfót.
Bandaríkin (LP/CD)
é 1. (1 ) The Bodyguard
Úr kvikmynd
^ 2. (2) Breathless
Kenny G
^ 3. (3) The Chronic
Dr. Dre
f 4. (5) Some Gave All
Billy Ray Cyrus
ð 5. (4) Unplugged
Eric Clapton
6. (8) If I ever Fall in Love
Shai
^ 7. (10) Pocket Full of Kryptonite
Spin Doctors
0 8. (7) Ten
Pearl Jam
^ 9. (9) Aladdin
Úr kvikmynd
010. (6) Timeless
Michael Bolton
Bretland LP/CD
♦ 1. (-) Walthamstow
East 17
f 2. (3) Automatic for the People
R.E.M.
♦ 3. (11) Diva
Annie Lennox
f 4. ( - ) Duran Duran
Duran Duran
f 5. (9) Take That & Party
Take That
O 6. (1 ) Words of Love
Buddy Holly & The Crickets
0 7. (5) Funky Divas
En Vogue
O 8. (7) 3 Years, 5 Months & 2 Days
Arrested Development
it 9. (46) Dangerous
Michael Jackson
010. (4) PureCult
Cult
Ókleifur múr?
Enn eru sömu fjórar plötumar í
efstu sætum íslenska plötuhstans og
eina breytingin á toppnum er sú að
plötur Claptons og KK, sem víxluðu
sætum í síðustu viku, víxla þeim aft-
ur nú. Þar á eftir sækja nýjar plötur
á, Jagger þokast hægt upp en Rage
against the Machine og The The fara
öllu hraðar. Enn neðar em svo enn
nýrri plötur að brjóta sér leið inn á
hstann og þar fer 2 Unhmited í farar-
broddi. En ef íslendingar em seinir
til að skipta um plötur í efstu sætum
listans era Bretar þeim mun iðnari
við að skipta um plötur á hstanum
hjá sér og þar er enn eina vikuna ný
plata á toppnum; nú er það East 17
sem trónir efst. Bandaríkjamenn era
svo enn íhaldssamari en íslendingar
í þessum efnum og þar er hefð fyrir
því að plötur sitji vikum og jafnvel
mánuðum saman í efsta sætinu.
Þannig er þessu til að mynda varið
með Bodyguard plötuna sem sýnir
ekki á sér neitt fararsniö úr efsta
sætinu. Og sama ghdir á lagahstan-
um þar sem I Whl always Love You
af Bodyguard plötunni hefur setiö
vikum saman í efsta sætinu og
þraukar vafalaust þangað th næsta
lag Whitneyjar kemur th sögunnar
en það er nú í fjórða sætinu. -SþS-
Mick Jagger - draugagangur?
London (lög)
$ 1.(1 ) No Limit
2 Unlimited
^ 2. (2) Why Can't I Wake up with You
Take That
^ 3.(3) LittleBird/LoveSongforaVamp-
ire
Annie Lennox
f 4.(5) l'm Every Woman
Whitney Houston
5. (11) Are You Gonna Go My Way
Lenny Kravitz
t 6. (-) Give in to Me
Michael Jackson
0 7. (6) Deep
East 17
f 8. (-) I Feel You
Depeche Mode
0 9. (4) I Will always Love You
Whitney Houston
010. (8) TheLovelLost
West End Feat Sybil
New York (lög)
^ 1.(1) I Will always Love You
Whitney Houston
^ 2. (2) A Whole New World
Peabo Bryson and Regina
3. (5) Ordinary World
Duran Duran
♦ 4. (10) l'm Every Woman
Whitney Houston
0 5. (4) Saving forever for You
Shanice
f6.(7) Mr. Wendel
Arrest Development
0 7.(3) If I ever Fall in Love
Shai
❖ 8.(8) 7
Prince & The New Power Gener-
ation
O 9. (6) In the Still of the Night
Boyz II Men
^10. (-) Hip Hop Hurray
Naughty But Nice
$ 1-d )
$ 2.(2)
♦ 3.(4)
f>4.(3)
♦ 5.(6)
♦ 6.(10)
♦ 7.(9)
{> 8.(5)
{> 9 (7)
{>10.(8)
Automaticforthe People .
The Bodyguard........
Bein leið............
Unplugged.............
Wandering Spirit......
Rage against the Machine
Dusk.................
OfftheGround.........
Tommi & Jenni........
JetBlackJoe...........
............ ..R.E.M.
...........Úr kvikmynd
....................KK
............Eric Clapton
...........Mick Jagger
Rage against the Machine
................TheThe
........Paul McCartney
..........Úrkvikmynd
...........Jet BlackJoe
♦11.(12)
♦12. (16)
♦13. (15)
♦14. (17)
♦15. (-)
♦16. (Al)
♦17. (-)
♦18. (-)
♦19. (-)
♦20. (Al)
Dirt..............
The Future........
Album.............
PureCult .........
Get Ready.........
Rave'92...........
Singles...........
The Madmans Return
Megarave..........
Ten ...............
...Alice in Chains
..Leonard Cohen
Freddy Mercury
......... Cult
....2 Unlimited
..........Ýmsir
...Úrkvikmynd
..........Snap
..........Ýmsir
......Pearl Jam
* Listinn er reiknaður út frá sölu í öllum helstu hljómplötuverslunum í Reykjavík auk verslana víða um landið.