Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Side 1
Þjóðleikhúsið frumsýnir Dansað á haustvöku: Erlingur Gislason, Anna Kristin Arngrímsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir í hlutverkum sínum en auk þeirra fara Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir, Kristján Franklín Magnús og Sigurður Skúlason með hlutverk í sýningunni. DV-mynd Brynjar Gauti Sorg og gleði systranna fimm „Leikritíð gerist hjá fimm systrum sem lifa einföldu og fábrotnu lífi. Bróðir þeirra sem búinn er að vera í Afríku í mörg ár kemur heim. Þá uppgötva systumar að sú heims- mynd, sem þær hafa verið með í koll- inum, er ekki tíl,“ segir Guðjón P. Pedersen leikstjóri sem leikstýrir Dansað á haustvöku eftir írska höf- undinu Brian Friel sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu í gær. Áhorfendur sjá leikritíö í gegnum dreng sem ein systranna fimm eignaðist í lausaleik með hjartaknúsara frá Wales. „Það kom mér á óvart að fólki skyldi finnast leikritíð fyndið. Þetta er ekki gamanleikrit heldur er fyrst og fremst dramatískur grunnur í því. í verkinu er fjallað um systumar í sorg þeirra og gleði. Þetta er mjög ólíkt því sem ég hef verið að gera og ég hafði mjög gaman af ferðalaginu með þessu fólki,“ segir Guðjón. -em Leynileikhúsið frumsýnir Þrusk í Sóloni íslandusi: Nýsköpun í ís- lensku leikhúsi - segir Jóhanna Jónas leikkona „Þetta er tilraunastarfsemi hjá okkur. Sýningin er fólgin í tveimur einræðum og atriðum úr Galdra- Loftí. Ásdís setti saman einræður í kringum ákveðið þema. Efnivið- inn í einræðunum fékk hún úr verkum Shakespeares, Steins Steinarr, galdraþulum, Galdra- Loftí og fleirum. Vilhjálmur Hjálm- arsson gekk til liðs við okkur síðar meir,“ segir Jóhanna Jónas, að- standandi Leynileikhússins sem ásamt Vilhjálmi Hjálmars frum- sýnir sitt fyrsta verk á Sóloni ís- landusi á sunnudag kl. 20.30. Leik- stjóri er Ásdís Þórhallsdóttir. Markmiö Leynileikhússins er fyrst og fremst aö þróa og vinna að ný- sköpun í íslensku leikhúsi og gefa ungum listamönnum tækifæri til að móta og framkvæma hugmyndir sínar um lifandi list í leikhúsi. Önnur sýning verður mánudaginn 1. mars, þriðja sýning 3. mars. -em Jóhanna Jónas i hlutverki sínu. 'mr y • A ♦ Veitinga- staður Hotel Borgar - sjábls.18 Ðí Komitt- mentsá Hótel íslandi - sjábls. 19 Dans- kennara- samband íslands 30 ára - sjábls. 21 Björgvin Björgvins- soní Portinu - sjábls. 20 Dagur harmón- íkunnar - sjð bls. 21 Helgar- veðrið - sjá bls. 24 íþróttir helgar- innar - sjábls.23 Chaplin í Regnbog- anum - sjábls. 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.