Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Síða 6
Robert Downey Jr. er mjög Ifkur Charlie Chaplin í mynd Attenboroughs.
Regnboginn:
Chaplin
Chaplin, nýjasta kvikmynd sir Ric-
hards Attenboroughs, veröur frum-
sýnd í Regnboganum á laugardaginn.
Hinn óskiljanlegi, dularfulh og dáði
snillingur, Charlie Chaplin, kom
fleiri til þess að hlæja heldur en
nokkur annar leikari í heiminum
hefur gert. Viöburðarík ævi hans og
kvikmynda hans er rakin í mynd
Attenboroughs, Chaplin.
Chaplin fæddist í London árið 1889
og kom fyrst fram á sjónarsviðið
fimm ára gamall. Hann gerði sína
fyrstu kvikmynd árið 1914. Chaplin
var fjórgiftur, eignaðist ellefu böm
og bjó 40 ár í Ameríku. Hann dó í
Sviss árið 1977, þá 88 ára gamall, og
hafði þá fengið heiðursóskarsverð-
laun fyrir framlag sitt í þágu kvik-
myndagerðar.
I aðalhlutverki er Robert Downey
Jr en hann leikur Chaphn sjálfan.
Myndin er byggð á sjáifsævisögu
Charhes Chaphn og bókinni Chaplin,
His Iife and Art eftir David Robin-
son. í öðrum hlutverkum eru Dan
Aykroyd, Geraldine Chaphn, Kevin
Dunn, Anthony Hopkins, Miha
Jovovich og fleiri.
Sagabíó:
1492 Conquest
of Paradise
Gerard Depardiu leikur landkönnuðinn Kólumbus sem fann Ameríku á eft-
ir Leifi heppna.
Saga bíó hefur tekið th sýningar
stórmynd Ridleys Scott, 1492 Con-
quest of Paradise, sem fjallar um
landafundi Kristófers Kólumbusar í
Vestin-heimi. Hér er á ferðinni sann-
köhuð stórmynd sem kostaði óhemju
fé í framleiðslu. í aðalhlutverkum
eru úrvals leikarar. Frakkinn Ger-
ard Depardieu fer með hlutverk
landkönnuðarins, Sigoumey Weaver
leikur ísabehu Spánardrottningu og
í öðrum aðalhlutverkum era Ar-
mand Assante, Femando Rey og
Angela Mohna.
Gerard Depardieu er með vinsæhi
leikurum í dag, þykir algjört nátt-
úrabam og kyntákn, þó ekki sé hann
smáfríður. Frægust hlutverk hans th
þessa era úr myndunum Cyrano de
Bergerac, Green Card og Les Valse-
aux. Sigoumey Weaver þekkja flestir
fyrir hlutverk sín í Alien myndun-
um.
Hinn breskættaði leikstjóri, Ridley
Scott, hefur verið með eftirsóttari
leikstjórum undanfarin ár. Hann á
að baki leikstjóm í fjölda frægra
mynda sem orðnar era síghdar.
Hann leikstýrði myndinni Blade
Runner, einnig Ahen og nú síðast
meistaraverkinu Thelmu dg Louise.
Meðal annarra mynda hans era
Black Rain, Someone to Watch over
Me og Legend.
Bíógestir, sem bregða sér á mynd-
ina um Kólumbus, ættu þvi ekki að
veröa fyrir vonbrigðum.
★★
% II
Njósnir í Paris
Ein allra þekkt-
asta kvikmynd
Aifred Hitch-
cocks er Notorio-
us sem hann
gerði rétt eftir
síðari heims-
styijöldina. Þar
var óvinurinn
Þjóðveijar. í end-
urgerð þessarar
myndarera óvin-
imir Rússar og í stað Suður-Ameríku
er sögusviðið fært th Parísar. Aö öðra
leyti er um nákvæma eftirlíkingu aö
ræða og öhum þeim sem muna eftir
meistaraverki Hitchcocks finnst sjálfs-
sagt ekki mikið th Notorious þeirrar
nýrri koma, en viss er ég um að þeir
sem ekki hafa séð eldri myndina verða
ánægðir enda sagan einstaklega heih-
andi á sinn rómantíska hátt, en John
Shea og Jenny Robertson hafa ekki
nálægt því sama aðdráttarafl og Cary
Grant og Ingrid Bergman.
NOTORIOUS - Útgef.: SAM-myndbönd.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 94 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára. -HK
i».............
Ráðrík móðir
Erfitt er að gera
sér grein fyrir
hvort Kevin Coe,
sem er ómerki-
legur lygari og
nauðgari, eða ih-
gjöm móðir
hans, Ruth Coe,
sem er undirrót
ahs þess slæma í
fari Coe, er verri
manneskja. Þeg-
ar myndin hefst er verið að segja Coe
upp starfi. Hann er í sambúð með ,
stúlku sem grunar ekki hversu iha
innrættur hann er. Móðir hans veit
hversu mikih gahagripur hann er en
þegar kemst upp um Coe ver hún hann
með öhum ráöum og leiðir hjá sér aht
ómerkilegt í fari hans sem hún vissi'
áður.
Sins of the Mother er ágætlega leikin
sjónvarpsmynd en nær aldrei upp
stemningu. Áhorfandinn veit strax frá
byijun að Kevin Coe er sökudólgurinn
þótt reynt sé að leyna því framan af.
SINS OF THE MOTHER - Útgef.: Bfómyndir.
Lelkstjóri: John Patterson.
Bandarisk, 1991 - sýnlngartiml 90 mfn.
Bönnuö börnum innan 16 ára. -HK
ixrkVz___________________
Orkustraumar úr fortíðinni
Mike Figgis leikstýrði hinni
ágætu sakamálamynd Intemal
Afairs fyrir rúmum tveimur
árum. Þar var um að ræða góða
mynd um spillingu innan lögregl-
unnar. í Liebestraum er hann á
aht öörum nótum og þykir mér
hann stundum taka sig helst th
hátíðlega. Liebestraum er mjög
sthiserað kvikmynd um ástir og
örlög í nútíð og fortíð.
Aðalpersónan er þekktur arki-
tekt og rithöfundur sem kemur
th smábæjar að beiðni móður
sinnar, sem heyr dauðastríð á
sjúkrahúsi. Hann hefur aldrei séð
móður sína fyrr, hafði verið gef-
inn strax í fæðingu. í bænum hitt-
ir hann fyrir fyrrum skólafélaga
sem stjómar byggingarfyrirtæki.
Á að fara að reisa nýja verslun-
armiðstöð á rústum annarrar,
sem er verið að rífa. Gamla húsið
hefur mikh áhrif á arkitektinn,
ekki eingöngu vegna byggingar-
sögu þess, heldur er þaö eitthvað
annað, sem hann getur ekki gert
sér grein fyrir hvað er, sem dreg-
ur hann að húsinu. Þá hefur eig-
inkona skólafélaga hans einnig
mikh áhrif á arkitektinn og þegar
vinurinn fer í ferðalag eiga þau
bágt með að dylja tilfinningar sín-
ar.
Með nafninu Liebestraum er
vísað í hinn fræga ástaróð eftir
Liszt. Undir djassaðri útsetningu
á stefinu gerast þeir atburðir
þijátíu árum áður sem hafa óbein
áhrif á atburðarásina í nútíman-
um.
Liebestraum er ekki aðgengheg
mynd. Mike Figgis gerir myndina
óþarflega „Ustræna" með ahs
konar effektum í myndatöku og
hljóðum sem nær eingöngu tefur
fyrir atburðarásinni en á móti
kemur aö myndin verður for-
vitnhegri út frá hstrænu sjónar-
miði og Figgis beitir myndavél-
inni stundum mjög smekklega.
Kevin Anderson leikur arki-
tektinn og hefur kosið að láta
hann vera meö þjáningarsvip all-
an tíman. Einhvern veginn hef
ég á thfinningunni að hann ofgeri
innri baráttu hans. Gamla HoUy-
woodstjaman Kim Novak leikur
móður hans og gerir Utið annað
en að vera óþekkjanleg. í hehd
er leikur aUs ekki nógu góður.
Figgis er svo upptekinn að mynd-
rænu tjáningarformi að leikar-
arnir gleymast. En þrátt fyrir
ýmsa annmarka er Liebstraum
áhugaverð kvikmynd með áreitn-
um söguþræði.
LIEBESTRAUM
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Mlke Flggis.
Aöalhlutverk: Kevln Anderson, Pam-
ela Gibley og Kim Novak.
Bandarisk, 1991 - sýningartimi 109
mfn.
Bönnuö börnum Innan 16 ára.
-HK
DV-myndbandalistiim
7 (-) TheSuper
8 (9) Stop, or My Mom Wii! Shoot
9 (10) Ðie Hard 2
Þrjðr nýjar myndir koma mn ð usiann pessa vikuna. TOh m
Polson tvy sem er aakamólamynd meó þeim Drew Barrymore
og Tom Skerrit sem sjást á myndinni í aðalhlutverkum.
Tveir í bófahasar
Mel Gibson og
Danny Glover
hafa gert það gott
í hlutverkum lög-
regluþjónanna
Riggs og Mur-
taugh en í byijun
þriöja hlutans
verður þeim á í
messunni og eru
settir í götulög-
régluna. En það
er að sjálfsögðu aðeins um stundarsak-
ir, enda komast þeir á snoðir um hóp
glæpamanna sem hafa stoUð miklú
forðabúri vopna. Það gengur á ýmsu
hjá þeim félögum og ekki bætir fyrir
þeim aö Leo Getz (Joe Pesci) gerir þeim
lífið leitt. Það væri hægt að greina frá
þunnum söguþræði í fáum Unum, en
þegar á hehdina er Utið skiptir hann
engu máU. Bófahasarin og samskipti
þeirra Riggs og Murtaugh skipta öllu
máU og fyrir byssuþyrsta áhorfendur
er Lethal Weapon 3 veisla fyrir augað.
LETHAL WEAPON 3 - Útgefandi Stelnar hf.
Leikstjóri: Rlchard Donner. Aðalhlutverk:
Mel Gibson og Danny Glover.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 113 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára. -HK
★
Það urðu ekki
margir drama-
tískir atburðir í
Persaflóastríð-
inu, th þess voru
yfirburöirbanda-
manna of mikUr.
Það er sjálfsagt
ástæða þess að
fáar nýjar kvik- < f > í< A *
myndir hafa
stríðið að leiðar- ~~ - i ’
ljósi. í The Finest Hour er reynt að
krydda stríðið með skálduðum atburði
sem áttu að hafa gerst þegar sérdehd
hersins eyðilagði eiturhernaðarmögu-
leika íraka. Öðrum þræði er svo fjallað
um tvo yfirburðamenn í sérsveit hers-
ins aUt frá því þeir kynnast og þar th
leiðir’skhur vegna kvennamála. Leiðfr
þeirra Uggja svo saman aftur í stríð-
inu. The Finest Hour er frekar mátt-
laus kvikmynd með kUskjukenndum
söguþrceði. Rob Lowe er ágætur en
aðrir leikarar era slakir.
THE FINEST HOUR - Útgefandi: Myndform.
Bandarfsk, 1992 - sýnlngarliml 100 mln.
Bönnuö börnum Innan 16 ára. -HK
Vinir í raun