Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS1993
Fréttir
Grayson dæmdur í fangelsi í 12 mánuöi en Feeney 1 tvö ár:
Fráleitt að Erna haf i
verið með í ráðum
segir í niðurstöðum dómsins í bamsránsmálinu
Grayson og Feeney í dómsalnum ásamt verjendum sínum, Óskari Magnússyni og Erni Clausen. DV-mynd GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær Donald Michael Feeney, fram-
kvæmdastjóra Corporate Training
Unlimited, til tveggja ára fangelsis-
vistar og James Brian Grayson, fóð-
ur Anne Nicole, til 12 mánaða fang-
elsisvistar. Níu mánuðir af refsivist
Graysons falla niður eftir þrjú ár
haldi hann almennt skilorð.
Grayson og Feeney voru fundnir
sekir um að hafa reynt að flytja dæt-
ur Emu Eyjólfsdóttur á brott og í
niðurstöðu dórnsins segir að þeir
beri báðir fulla og sameiginlega
ábyrgð á aðgerðum starfsmanna
CTU sem miðuðu að brottnámi bam-
anna. Það kemur til þyngingar dóms-
ins að brot þeirra var vandlega
skipulagt og að hópur manna aðstoð-
aði þá við verknaöinn.
Grayson og Feeney hafa lýst því
yfir að þeir hafi verið í fullum rétti
er þeir fluttu dætur Emu frá Hótel
Holti og út á Keflavíkurflugvöll í því
skyni að koma þeim í umsjá feðra
sinna. Erna hafi samið við sam-
verkamenn þeirra um afhendingu
bamanna gegn greiöslu. Þá hafi þeir
talið að úrskurður bandrísks dóm-
stóls um forræði feðranna og grunur
þeirra um slæman aðbúnað telpn-
anna hér á landi veitti þeim rétt.
í niðurstöðu dómsins segir hins
vegar að þrjú atriði bendi til þess að
fráleitt sé að Ema hafi verið með í
ráðum um brottnám telpnanna. í
fyrsta lagi að hún tók einungis aðra
dóttur sína með sér í ferðalag til Sviss
með starfsmönnum CTU vegna
óljóss gruns um að taka ætti bömin
frá henni. Í öðm lagi hafi verið skilin
eftir skilaboð á hótelherberginu um
að farið hefði verið með bömin til
aö gefa þeim að borða og í þriöja lagi
geðshræring Emu þegar hún upp-
götvaöi að bömin vom horfin.
í dómum Hæstaréttar frá 3. febrúar
er því slegið fóstu að Ema hafi um-
sjá dætra sinna meðan íslensk yfir-
völd hafa ekki gert neitt annað í
málinu. í niöurstöðu héraðsdóms
segir að leysa skuli úr ágreiningi um
forsjá bamanna fyrir íslenskum
dómstólum og bent er á að sam-
kvæmt bamavemdarlögum séu hag-
ir og þarfir bamanna í fyrirrúmi við
úrlausn slíkrar forsjárdeilu.
Grayson og Feeney vom dæmdir
til að greiða allan sakarkostnað fyrir
utan kostnað \ið túlkun í dómsaln-
um, alls 800 þúsund krónur. Gæslu-
varðhald þeirra kemur til frádráttar
refsivistinni. -ból
Þrjár hugrakkar stúlkur sem bjargað var úr brennandi húsi í fyrrinótt:
Einangruðu hurðina og hringdu á hjálp
- fyrst spenntar en svo skulfum við af hræðslu, segja stúlkumar
„Það kom eldur í húsið mitt og við
fórum út um gluggann," sagði Salka
Sól, tveggja ára, þegar DV hitti hana
í gær eftir að henni og níu öðmm var
bjargað úr brennandi húsi að
Bræðraborgarstíg 7 í fyrrinótt. Salka
var flutt á slysadeild eftir brunann
en henni varð ekki meint af.
Þrjár stúlkur, 12 og 13 ára, vom
ásamt Sölku og tveimur fullorðnum
konum í íbúð á annarri hæð hússins
þegar eldsins varð vart.
„Þegar við opnuðum hurðina kom
eldurinn á móti okkur. Við öskmð-
um, eldur, eldur, hlupum inn og lok-
uðum hurðinni. Síðan settum við
blautt handklæði við dymar og
hringdum á lögreglu og slökkvilið,"
sögöu þær stöllur Hildigunnm- Thor-
steinsson, Kristín Eik Gústafsdóttir,
og Halldóra Anna Hagalín.
Þær segjast hafa lært hvemig
bregðast á við svona tilfellum í
skyndihjálp í skólanum og Kristín
Eik mundi símann hjá slökkviliðinu.
Þær viðurkenna þó að hafa orðið
svolítið hræddar.
„Fyrst urðum við eiginlega bara
spenntar og þutum um allt hús og
tókum furðulegustu hluti til að
bjarga með okkur út. Svo kom sjokk-
ið seinna og þá skulfum við alveg.
Við vorum mest hræddar um að
hurðin myndi springa upp og að eld-
urinn kæmi inn til okkar. Það liðu
svona 15 mínútur frá því við sáum
eldinn og þar til við vorum komnar
út um gluggann. Okkur fannst þetta
hins vegar vera mjög lengi að líða
en við töldum kjark í hver aðra.“
Þær björguðust ásamt öðrum í
íbúðinni út um lítinn og þröngan
glugga og niður stiga sem slökkvi-
liðsmenn reistu upp við húsiö. „Við
hefðum nú eiginlega frekar viljað
láta körfubílinn ná í okkur. Það hefði
veriö meira ævintýri," sögðu stúlk-
umarkokhraustarígær. -ból
Bruninn aö Bræðraborgarstíg 7:
Málverkakonan grunuð um íkveikju
Samkvæmt heimildum DV er kona
sú sem tók málverk Karólínu Lárus-
dóttur óftjálsri hendi í Hallgríms-
kirkju síðastliðinn fostudag, grunuð
um að hafa lagt eld að húsinu að
Bræðraborgarstíg 7 í fyrrinótt. Kon-
an á viö andlega erfiðleika að stríða.
Rannsóknarlögregla ríkisins er
með málið til rannsóknar en Hörður
Jóhannesson yfirlögregluþjónn vildi
í gær ekki tjá sig um málið að öðru
leyti en því að talið væri víst að um
íkveikju væri að ræða. Svo virðist
sem kviknað hafi í út frá pappa og
ýmiss konar dóti sem geymt var á
fyrstu hæð í stigagangi hússins.
Samkvæmt heimildum DV var
konan við húsið skömmu áður en
eldsins varð vart.
-ból
Þær Halldóra Anna, Kristín Eik, Salka Sól og Hildigunnur voru meðal þeirra
tíu fbúa á Bræðraborgarstíg 7 sem björguðust út um glugga og af svölum
í fyrrinótt þegar kviknaði í húsinu. DV-mynd BG
Fjögurra ára hjartaþegi:
Bíðum og
vonum
- segir amma drengsins
Það er ekkert hægt að segja að
svo stöddu. Við heyrum frá þeim
daglega og bara bíðum og vonum
að allt gangi vel,“ segir Anna
Hafliðadóttir, amma hins fjög-
urra ára íslenska hjartaþega sem
nú liggur á sjúkrahúsi í Svíþjóð
eftir að nýtt hjarta var grætt í
hann aðfaranótt síðasta fimmtu-
dags.
Snorri Ásbjörnsson er fjórði ís-
lenski hjartaþeginn og talið er að
hann sé yngsti hjartaþeginn á
Norðurlöndum öllum.
Að sögn Eriksson, bamalæknis
á Östra sjúkrahúsinu í Gauta-
borg, hefur allt gengið eftir áætl-
un. Hann segir að fyrstu dagarnir
eftir hjartaaðgerðina séu áhætt-
usamastir en þá er beðið eftir
merkjum um hvort líkaminn
hafni nýja líffærinu. Líkami
Snorra hafi ekki sýnt slík merki.
Snorri veiktist fyrir um fimm
mánuðum þegar veimsýking
lagðist á hjartavöðvana. Foreldr-
ar hans, Helga Snorradóttir og
Ásbjörn Helgi Árnason, héldu
utan ásamt systkinum Snorra, 6
ára og 8 vikna, fyrir um tveimur
vikum og var hann þá settur á
forgangslista fyrir hjartaþega.
-ból
Stuttarfréttir
Bandaríski herinn á Keflavík-
urflugvelli hefur skuldbundið sig
til að kaup nautakjöt, kjúklinga
og egg af íslendingum fyrir ríf-
lega 15 milljónir næsta árið. Á
siðasta ári keypti herinn land-
búnaðarvörur fyrir 87 milljónir.
íslandsbanki átti 400 milljóna
ki'óna kröfur í þrotabú JL-bygg-
ingavara en þar fundust engar
eignir við skipti. Morgunblaðið
Undbrmenn mættu ekki
Undirmenn á Herjólfi mættu
eliki á samningafund hjá ríkis-
sáttasernjara í gær. Krcíjast þeir
að stjóm Herjólfs afturkalli upp-
sagnir án skilyrða.
Atianta eykur umsvifin
Flugfélagið Atlanta í Mos-
fellsbæ er aö hefja áætlunarflug
í Indónesíu. Yfir 50 íslendingar
vinna nú erlendis hjá fyrirtæk-
inu. RÚV greindi frá þessu í gær.
Landhelgisgæslunni bárust í
gær skilaboð um aö gervihnöttur
næmi boð frá neyðarsendi á
RangárvöUum, Víð athugun kom
í ljós að sendirinn var í óbreyfðri
flugvél í flugskýli á HeUu.
Þægindafánar í sókn
Kaupskipum, sem sígla undir
islenskum fana, hefur fækkað úr
48 árið 1980 í li um sfðustu ára-
út 30 kaupskip en 19 þeirra sigla
undir þægindafánum.
Litill sjávarhiti
Sjávarhiti hér við land er lægri
en tvo síöastUðna vetur. Hækki
hitinn ekki er það taliö geta haml-
að vexti nyijastofna.
Rafmagnslaust varð í austan-
verðum Kópavogi á tíunda tím-
anum í gærkvöldi vegna bfiunar
í háspennustreng. Viðgerð tók 20
mínútur.
I
I