Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Blaðsíða 10
10: MIÐVIKUDAGUR 3. MARS1993 Útlönd þjófur bjó ■ loft- Lögreglan í Newcastle á Eng- landl hefur handtekið þrettán ára gamlan þjóf sem undanfarið hef- ur látið til sín taka í horginni og stoliö öllu steini léttara. þjófurinn hafði búið sér „greni ‘ í loftræstikefi á þaki háhýsis. Lögregluraénnirnir, sem fundu drenginn, lýstu aðkomunni svo sem þarna hefði rotta hafst viö. MikeTyson: ittannranglega um nauðgun Alan ; Dershowdte, lögmaður hnefaleikakappans Mikes Tyson, segir að fegurðardrottningin Des- iree Washington hafi árið 1989 sakað skólafélaga sinn um nauðgun en síðan orðið að falla frá kærunni vegna þess aö félag- inn sannaöi sakleysi sitt. Lögmaðurinn segir aö þetta sanni aö fegurðardísn geri það að leik sínum að kæra menn fyr- ir nauðgun. Tyson sé síðasta fórnarlamb hennar. Hann sé hins vegar saklaus en Dershowitz reynir nú ákaft að ia mál hans tekiö upp að nýju. Tyson var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að nauðga Washington. burtfráSómalíu Nokkrir starfsmenn hjálpar- stofnana í Bretlandi hófu um helgina baráttu fyrir að fjölþjóða- herinn verði kallaður ftá Sómal- íu. Þeir segja að herliðið geri aö- eins illt verra og beri að nokkru ábyrgð á dauða tveggja hjálpar- liöa í landinu. Mótmælin koma í kíölfar morðsins á Valerie Place, 23 ára írskri hjúkrunarkonu,: sem byssumenn skutu til bana. Fjöl- þjóðahernum er gefið að sök að æsa fremur til ófriðar en hitt. Gamll maðurlnn Irá Lochnagar er sköpunarverk Karls príns. Karl urins biaru- arteiknimynda- Kari Bretaprins hefUr bjargað teiknimyndapersónu, sem hann skapaöi fyrir 20 árum, frá því að verða bandarískum útgefendiun að bráö. Karl, sem er góður teikn- ari, bjó Gamla manninn frá Loc- hnagar til fyrir bræður sína, Andres og Játvarð. Sá gamli á aö vera Skoti, góður kall og blíður á manninn. Banda- ríkjamennirnir vildu hins vegar breyta honum þannig aö hann líktist meira skaphundinum Fred Flintstone. Karl neitaði að eftirláta Könun- um sinn mann nema hann fengi aö halda öhum eiginleikum sín- um óbreyttum. Karl Bretaprins unir sér vel á skíðum með vinum sínum í Sviss meðan Diana kona hans verður að berjast við Gróu á Leiti austur í Nepal. Breskir þingmenn telja ófært annað en að Díana taki sjálf af skarið og sanni sakleysi sitt. Hún er sökuð um að hafa sofið hjá vini sínum, James Gilbey. Símamyndir Reuter Karl rennir sér á skíðum en Díana berst við Gróu á Leiti: Hún á að sanna sakleysið sjálf - þingmenn telja ástandið í konungsíjölskyldunni óbærilegt „Díana á sjálf aö sanna sakleysi sitt. Hún á að krefjast rannsóknar á hvemig upptökur af samtölum henn- ar við James Gilbey eru komnar til aUra fjölmiöla, ef þær eru þá ekki falsaðar," sagöi einn þingmanna Íhaldsflokksins breska í gær. Díana er nú í Nepal og ætlar sýni- lega að láta nýjustu hneykslissöguna sem vind um eyru þjóta. Hún spurði í gær margra spurninga um skóg- rækt í landinu en gaf ekkert færi á að svara spurningum um meint framhjáhald með ökuþórnum James Gilbey. í Bretlandi er almennt litið svo á að upptökur af símtali þeirra séu ófalsaðar og að þar komi fram berum orðum að Díana og Gilbey hafi sofið saman. Áður fuliyrtu bæði að milli þeirra væri aðeins vinátta. Díana lýsir því á upptökunum að hún óttist að verða ólétt eftir Gilbey. Díana prinsessa hefur mestan áhuga á skógrækt í Nepal þessa dagana. Þetta brot úr samtalinu hafði ekki áður birst og því aðeins vitað um ástarhjal þeirra. Margir líta svo á að Díana viðurkenni áburðinn um framhjáhald með þögninni. Hún má vart við nýjum áfóllum því ætlunin er að hún haldi stöðu sinni þrátt fyr- ir skilnað við Karl prins. Karl lætur allan söguburð sér í léttu rúmi liggja. Hann er nú á skið- um í Sviss og unir sér vel. Kunnugir telja að hann hafi ekki verið léttari í skapi í mörg ár. Fyrst sló hann í gegn í frægðarfór til Bandaríkjanna og Mexíkó. Nú er Karl prins kominn til Sviss og leikur sem fyrr á als oddi. Hægst hefur um eftir moldviðrið í kringum ástarmakk prinsins með Camillu Parker-Bowles, giftri móöur. Þess í stað er Díana nú flækt í netinu. Reuter Bandaríkj amenn íhuga að hætta loftflutningunum: SÞ reyna að koma lyfjum til særðra og sjúkra í Bosníu Bílalest Sameinuðu þjóðanna með lyf og lækningatæki er lögð af stað til austurhluta Bosníu til að reyna að sinna hundruðum sjúkra og særðra íslamstrúarmanna, þrátt fyr- ir yfirlýsingar uppreisnarmanna Serba um að henni verði ekki leyft að komast á leiðarenda. Ætlunin er að reyna að ná til Konjevic Polje þar sem alit að 1500 sjúkir og særðir íslamstrúarmenn hafa leitað skjóls undan höröum árásum Serba á Cerska. Serbneskar sveitir hafa lagt mest- alla, ef ekki alla, Cerska undir sig, aðeins einum degi eftir að bandarísk- ar flugvélar vörpuðu neyðaraðstoð í fallhlífum niður til borgarinnar. Bandarískar flugvélar fóru í þriðju ferð sína með neyðaraðstoð í nótt. Þær vörpuðu tuttugu tonnum af matarskömmtum og lyfjum niður yfir Konjevic. Skiptar skoðanir eru um gagnsemi aðgeröanna og sagði Les Aspin, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, að þeim kynni að verðahættumstundarsakir. Reuter Sara Ferguson - eða Fergie - hefur afþakkað boð frá galia- buxnafyrirtæki í New York um að koma fram í auglýsingu á veg- um fyrirtækisins. I boði var and- virði 55 milijóna ísienskra króna fyrir dagsverk. Ritari Fergie sendi svarbréf við bóninni og sagði að hertogaynjan væri hrærð yfir boðinu en stöðu sinnar vegna gæti hún ekki þegið það. Fergie á í skilnaðarmáli við Andrés, prins og hertoga af Jór- Rauði hundur hiffirseiðkarl fyriraftökuna Siouxindíáninn Rauði hundur fær að lútta seiðkarl í dag áöur en hann verður tekinn af lífi í Delaware, sekur fundinn um morð. Rauði hundur, sem einnig heit- ir James Allen, hefur afþakkað boð ura að ræða við prest hvitra manna. Hann krafðist þess að fá blessun seiökarls úr sínum eigin ættflokki á dauðastundinni. KennararíKali- forníusam- þykkja10% kauplækkun Tveir af h verj um þremur kenn- urum í Kaliformu lýstu sig sam- þykka 10% launaiækkun eftir að krafa kom um það frá sfjórn rík- isins. MikiU haUi hefur verið á Qárlögum í KaUforníu frá því Ronald Reagan var þar rikisstjóri og verður að leita aUra leiða til að draga ur útgjöldum. í fýrstu hótuðu kennarar verk- faUi fil að verjast stefnu stjórnar- innar. Almennir kennarar voru þó ekki á sama máli og sfjóm fé- lags þeirra og feUdu verkfallsboð- un um leiö og þeir samþykktu kauplækkunma. Niðurskurður uppátuttugu- földfjárlög íslands Boð hafa borist geimferðastofn- uninni NASA frá bandarískafjár- málaráðuneytinu um að skera niður útgjöld um 30 mhljarða dala. Þetta eru um 2000 milljaröar islenskra króna eða tuttugufóld fjárlög íslands. Ráðinn hefur verið serstakur forstjóri yfir sparnaðinn einan, sem einkum á að koma niður á áætluninni um geimstöðina Frelsi. Hjá NASA eru menn ósáttir við ráðstöfun Bills Clinton forseta og stjórnar hans en fá ekki aö gert þvi hvarvetna blasir við niður- skurður. Reykingaskatt- urskilar2300 BUl CUnton er að leggja síðustu hönd á thlögur um skatt á sígar- ettur til aö afia tekna í rikissjóö ogþá einkumtil aö standa straum af kostnaði v$ heilbrigðisþjón- ustuna. Lagt er tii að skatturinn verði tveir dalir á pakkann eða um 130 krónur xslenskar. Þetta á að gefa um 35 milljarða dala i tekjur eða 2300 milljarða íslenskra króna, gefist menn ekki upp á reyking- unum áður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.