Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1993
3
Fréttir
Átaksverkefni fyrir atvinnulausa á Akureyri:
Gott að vera
kominn í vinnu
segir Guðmundur Jóhannesson sem fékk þriggja mánaða vinnu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það má e.t.v. segja að það að missa
vinnuna hafi í fyrstu verið eins og
að fara í sumarfrí. Það fór þó fljót-
lega af því mesti glansinn og þetta
hefur verið ákaflega leiðinlegt og erf-
itt,“ segir Guömundur Jóhannesson,
27 ára gamall verkamaður á Akur-
eyri. Guðmundur var einn þeirra 70
Akureyringa sem hófu vinnu í gær-
morgun vegna átaksverkefnis fyrir
atvinnulausa og gerir ráð fyrir að
hafa vinnu í 3 mánuði.
DV hitti Guðmund að máli við
sundlaugina á Akureyri í gærmorg-
un þegar hann var nýkominn til
starfa þar og sat hann þar við sjón-
varpsskjái og fylgdist með því sem
fram fór í og við laugina.
„Ég starfaöi sem verkstjóri hjá
Efnagerðinni Sjöfn og síðan í 2 ár hjá
byggingavörudeild KEA en var sagt
upp í mai á síðasta ári. Síðan hef ég
verið atvinnulaus að því undan-
skildu að ég fékk vinnu við átaks-
verkefni fyrir atvinnulausa í haust
og svo í sláturtíðinni,“ segir Guð-
mundur.
Hann er giftur og á eitt bam. Guð-
mundur segir að kona hans hafi haft
fasta vinnu og það hafi bjargað þeim.
„Við höfum sloppið fyrir horn vegna
fjárhagsskuldbindinga en það hefur
ekki verið neinn afgangur.
Mér líst vel á að vera farinn að
vinna aftur en því miöur held ég að
það taki ekkert við að þessu loknu
annað en atvinnuleysið aftur, því
miður," sagði Guðmundur.
Guðmundur Jóhannesson við vinnu í sundlaug Akureyrar í gær.
DV-símamynd gk
Héraðsdómur Norðurlands eystra:
Umfangsmikil mál bíða
vegna húsnæðisleysis
- húsgögnogupptökutækivantarínýjansal
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta er mjög bagalegt ástand
og hefur m.a. í för með sér að það
er ekki hægt að taka fyrir mál þar
sem margir aðilar þurfa að koma
að,“ segir Ásgeir Pétur Ásgeirsson,
dómari í Héraösdómi Norðurlands
eystra.
Þrír dómarar við héraðsdóminn
hafa til umráða einn lítinn dómsal
á Akureyri en stærri salur hefur
ekki verið tekinn í gagnið. í hann
vantar bæði húsgögn og upptöku-
tæki en þess er að vænta að salur-
inn verði tilbúinn áður en mjög
langur tími líður.
Meðal þeirra mála sem tafist hafa
vegna þessa er mál vaxtarræktar-
manna gegn Pétri Péturssyni,
lækni á Akureyri, vegna ummæla
Péturs um þá. Ásgeir Pétur, sem
dæmir í því máli, segir að ekki sé
hægt að taka það mál fyrir fyrr en
stóri salurinn verður tilbúinn því
kalla þurfi fyrir réttinn alla ákæ-
rendur en þeir munu vera á bilinu
25-30.
(
Magnús Guðmundsson með nýja mynd:
Nú eru það venju
legir sjómenn
- sem friðunarsamtök ráðast gegn, segir hann
„Hvalir og selir eru komnir aftur
fyrir í röðinni hjá þessum samtökum
og nú beina þau spjótum sínum að
hinum venjulega sjómanm," sagði
Magnús Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður en hann hefur lokið
gerð nýrrar myndar, Paradís endur-
heimt?
í nýju myndinni beinir Magnús
kastljósinu meðal annars að baráttu
friðunarsamtaka gegn fiskveiðum.
Magnús segir að friðunarsamtökin
leggi æ meiri áherslu á bann gegn
notkun heföbundinna veiðarfæra
sem getur orðið til þess að stórskaða
íslenskt þjóðfélag.
Magnús segir margar sjónvarps-
stöðvar, sem sýndu Lífsbjörg í norð-
urhöfum, hafa sýnt nýju myndinni
áhuga. Magnús veit ekld hvenær og
hvar myndin verður sýnd hér á
landi. -sme
Magnús Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður.
EINSTAKT
imöNGirriLBOOT
NÍTÍMALEGUR
MATREIÐSLl
KLÚBBUR
Matreiðsluklúbbur Vöku-Helgafells, Nýir eftirlætisréttir,
hittir beint í mark. Þessi nútímalegi klúbbur sendir
félögum mánaðarlega pakka með plasthúðuðum
uppskriftaspjöldum með áhugaverðum mataruppskriftum
og fróðleik um vín. Efnið er svo flokkað í handhæga
möppu og myndar hugmyndabanka fyrir heimilið.
Dagleg símaráðgjöf, matreiðslunámskeið, uppskrifta-
samkeppni, félagakort og margs konar fríðindi.
Engar skuldbindingar!
Nýttu þér ótrúlega hagstætt inngöngutilboð í klúbbinn!
Kornlengjur á teini
Ol^W«! í!6J
11 .V
FYRSTI UPPSKRIFTAPAKKINN
með 50% afslætti: AÐEINS 298 KR.
Fullt verð pakkans er 595 kr.
SERHÖNNFÐ SAFNMAPPA
AÐ GJOF! Áætlað verðmæti 980 kr.
ÓKEYPIS
Ef þú skráir
innan 10
Áætlað útsöluverð 1
Samtals verðmæti
tilboðs 2.845 kr
...fyrir aðcins 298
MÖGULEIKI Á ÓKEYPIS
HELGARFERÐ FYRIR
TVO TIL PARÍSAR!
Fyrir alla stofnfélaga
Ferða- og gistikostnaður
metlnn á 94.000 kr.
HRIJVGDU STRAX I DAG!
SHVMMIVIV
(91) 6 88 300
ÉÐA SEMIl SVARSEÐILINN
►já, ég vil gerast félagi í MATREIÐSLUKLÚBBI VÖKU-HELGAFELLS
NAFN
HEIMILI
PÓSTSTÖÐ
KENNITALA sImÍ
SENDU SEÐILINN í LOKUÐU UMSLAGI TIL: NÝIR EFTIRL'ETISRÉTTIR,
MATREIDSLUKLÚBBUR VÖKU-IIELGAFELLS, SÍIIUMÚLA 6, 108 REYKJAVÍK