Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS1993
Útlönd
NorðmennviEJa
yfirheyra hvala-
vininnWatson
Norska logreglan ætlar að
halda til Bandaríkjanna til að yf-
irheyra Paul Watson, leiðtoga
umhverfisverndarsamtakanna
Sea Shepherd, vegna tilrauna
hans til að sökkva norskum hval-
báti í mótmælaskyni við fyrir-
hugaðar hvalveiðar Norömanna.
Watson og samtök hans viður-
kenndu í desember að hafa valdiö
ieka í vélarrúmi hvalbátsins
Nybræna i höfninni í Steine í
Norður-Noregi á meðan áhöfnin
var í veislu. Björgunarmönnum
tókst þó að stööva lekann og
koma í veg fyrir að báturinn
sykki.
Watson og félagar hans sökktu
hvaibátunum í Reykjavikurhöfn
urn árið. Hann á yfir höfði sér
fiögurra ára fangelsi i Noregi.
Grínþingi frest-
aðvegnalítils
Grmistar sýndu svo lítinn
áhuga á sérstöku grinþingi sem
halda átti i bænum Kolding i
Danmörku þann 1. apríl næst-
komandi að þinghaldi hefur verið
írestað fram til 4. seplember. ;
Linda Kjerkegaard, forstjóri
ferðamálaráðs bæjarins, sagði
við blaðið l’olkebladet Sydjylland
að mörg grínistasamtakanna,
sem boðiö var til ráðstefnunnar,
hefðu fremur viljað hittast meö
óformlegri hætti.
Hótelstjórinn Per Löfstedt, sem
er með í skipulagningu þingsins,
vill fá Carl Bildt, forsætisráð-
herra Svfþjóðar, til að koma og
flytja fyrirlestur um sænskan
húmor í aldanna rás.
Herforingjar
dæntðirfyrirsjó-
mannamorð
Herdómstóll í Venesúeia dæmdi
ellefu liðsforingja og fjóra
óbreytta hermenn til sjö ára betr-
unarhúsvistar fyrir að drepa
fjórtán sjómenn árið 1988.
Útvarpið í Caracas, höfuðborg
Venesúela, sagöi að herdómstóil-
hm hefðí hnekkt ákvörðun lægri
dómstóis þar sem hermenn og
lögregla voru sýknaðir. Sú niður-
staða vakti mikia reiði meðal al-
mennings og mannréttindasam-
taka.
Herforingjar sögðu aðsjómenn-
irnir heföu veriö kólumbískir
skæruliðar sem ætiuðu aö
sprengja upp olíuleiðslu nærri
landamærum Venesúela og Kól-
umbíu.
Tveirmeintir
frálRAhand-
tekniríLondon
Breska lögreglan handtók tvo
menn sem grúnaðír eru um að
vera skærulíðar úr Irska lýðveld-
ishemum, IRA, og Iagði hald á
mikið magn vopna og sprengiefn-
is þegar lagt var til atlögu gegn
húsi í norðurhluta Lundúna i
gær.
Lögreglan var á höttunum eftir
mönnunum sem komu fyrir
sprengju í stórversluninni
Harrods í janúar. Hún haföi feng-
ið vísbendingu um að mennina
væri að finna í húsi í Stoke New-
ington hverfinu. Að sögn iög-
regluþjóna var skotið á þá þegar
þeir réðust til inngöngu.
Þrir menn slösuðust 1 spreng-
ingunni í Harrods en hún var
þáttur i herferð IRA gegn bresk-
um yfirráðum á Norður-írlandi.
Reuter og Ritzau
DV
„ Jesús Kristur“ í Texas verst enn miklu lögregluliði á búgarði sínum:
Lögreglan hikar við
innrás vegna barna
- enginn veit hve mörg böm em 1 gíslingu þótt 16 þeirra hafi verið sleppt
„Sameinumst einum guði, einum
sannieika, einu guðs lambi, einum
anda og tökum við umbun hinna
réttlátu," var boðskapurinn sem trú-
arleiðtoginn David Koresh haíði
fram að færa þegar lögreglan heimil-
aði honum að tala til almennings í
gegnum útvarp.
Koresh hafði gefið í skyn síðdegis
í gær að hann vildi gefa sig lögregl-
unni á vald og enda þannig umsátrið
við búgarð safnaðar hans við Waco
í Texas. Þegar til kom reyndist áhugi
hans enginn og í morgun var allt við
það sama nema lögreglan eykur enn
lið sitt og hefur nú hundruð manna
undir vopnum við búgarðinn og
brynvarða bíla að auki.
Nú er talið að Koresh hafi allt að
70 menn undir vopnum. Þá er íjöldi
bama enn á búgarðinum og hikar
lögreglan viö aö leggja til atlögu við
hópinn af ótta við að börnin láti þá
lífiö. Koresh hefur verið óspar á að
minna á nærveru barnanna. Hann
hefur þó sleppt 16 þeirra úr gíshng-
unni.
Sagt er að leiðtoginn eigi sjálfur
böm með 15 konum. Hann segir að
eitt þeirra hafi látiö lífið í árás lög-
reglunnar á sunnudag og sjálfur hafi
hann þá særst.
Koresh lítur á sig sem Jesú Krist
endurborinn. Hann vitnar til bibl-
íunnar og segist vera „lambið“ sem
opinbemnarbókin spáir að eitt geti
David Koresh nýtur þess að hafa
börn sem gísla. Símamynd Reuter
opnað innsiglin sjö á dómsdegi.
Búið er að kalla til sérfræðinga í
samningaviðræðum við geðsjúka af-
brotamenn. Þeir eiga að reyna að
koma vitinu fyrir Koresh en það hef-
ur ekki tekist enn. Búst er við miklu
blóðbaði fari svo að lögreglan verði
að ráðast til inngöngu á búgarðinn
öðru sinni. Heimildir herma að nú
séu 15 fallnir á búgarðinum.
Koresh og menn hans eru vel vopn-
aðir og er sagt að allur söfnuðurinn
fylgi honum í blindni. Koresh er
gmnaður um að beita safnaðarbörn
sín ofbeldi og hggja í drykkju og
ómennsku. Hann boðar frjálsar ástir,
mörgum trúmönnum í Bandaríkjun-
umtilhrellingar. Reuter
Fyrirsætan Kellie Bright heldur hér á einu dýrasta úri veraldar á sýningu i Sydney í Ástralíu. Úrið kostar 65
milljónir íslenskra króna og tók þrjú ár að koma því saman. Það er af gerðinni Gerald Genta, þakið demöntum
og öðrum dýrum steinum. Almenningur mun ekki hafa ráð á úrum af þessari gerð. Símamynd Reuter
Áannaðhundr-
aðmennrann-
sakaðirvegna
eiturmengunar
Á annað hundrað menn í
Frankfurt í Þýskalandi hafa verið
rannsakaðir vegna eiturefna sem
sluppu úr efnaverksmiðju Ho-
echst samsteypunnar yfir út-
hverfi borgarinnar í síðustu viku.
Eitt eiturefnanna, o-nitroanisol,
er krabbameinsvaldandi, auk
þess sem það skaðar lifrina og
getur breytt erfðaeiginleikum.
Alls fóru tvö tonn af eiturefnum
út í andrúmsloftið og að sögn
þýska tímaritsins Der Spiegel
voru mun fleiri hættuleg efni þar
á meðal en tahð var í fyrstu.
Forráðamenn Hoechst sögðu í
fyrstu að efnin sem sluppu út og
fóru aö lokum í Mainána væru
aöeins „minniháttar eiturefni".
Hoechst meinaði öryggiseftir-
htsmönnum aðgang að verk-
smiðjunni fyrir nokkrum árum,
að því er embættismenn í þýska
sambandsríkinu Hesse sögðu í
gær.
„Hvað Hoechst varðar hefði eft-
irht með öryggi vafalaust leitt
veikleika í ljós og hægt heföi ver-
ið að koma í veg fyrir efnalekann
ef því hefði verið sinnt,“ sagði
Helmut Dúbbelde, háttsettur
embættismaður í félagsmála-
ráðuneyti Hesse.
Reuter
Bara opinberir starfsmenn í vinnu
Jens Dalsgaard, DV, Feyreyjar;
Öll vinna önnur en á vegnum hins
opinbera Uggur nú niðri í Klakksvík,
öðrum stærsta bæ Færeyja, vegna
lokunar allra fiskvinnslustöðva á
staönum. Stærstu vinnustaðirnir eru
nú skólinn og sjúkrahúsið og þó hef-
ur fólki í vinnu verið fækkað á báð-
um þeim stöðum.
Nýjustu tölur um atvinnuleysi í
bænum sýna að um 40% vinnufærra
manna hafa ekkert fyrir sig að leggja.
Atvinnuleysi er hvergi eins alvarlegt
hér í Færeyjum og eru þó að jafnaði
25% án vinnu.
í Klakksvík voru til skamms tíma
rekin tvö stór fiskverkunarhús. Þau
eru nú bæði gjaldþrota. Frystihúsið
Kosavirkið er það stærsta í Færeyj-
um og þar unnu um 230 manns. í
Klakksvík var einnig saltfiskverkun-
in Norðborg.
Kosavirkið fór á nauðungaruppboð
fyrir helgina. Það er nú í eigu dansks
fjárfestingafyrirtækis sem hefur ár-
angurslaust leitað eftir sölu eða leigu
á húsinu. Til greina kemur að selja
tækin úr húsinu til útlanda ef ekíci
tekst aö selja þau heima.
Dönsku fjárfestamir leystu húsið
til sín á um 400 milljónir íslenskra
króna. Þeir höfðu lagt mikla peninga
í fyrirtækið og eiga á hættu að tapa
þeim að mestu eða öllu.
Togarar staðarins eru á sjó en
landa í erlendum höfnum. Þar af eru
fjórir stórir togarar sem sækja á miö-
in í Barentshafi. Eina vonarglætan
er að vinna hefst að öljum líkindum
áður en langt um hður við reykingu
á ýsu. Þar fá þó ekki margir vinnu
og ýsureykingin breytir litlu um
ástandið í bænum.
í Klakksvík búa um 4500 manns.
Þar var atvinnulíf blómlegt alveg
fram á síðasta ár og meira verkað
af fiski til útflutnings en á öðrum
stöðum í Færeyjum.
Þótt ástandið í atvinnumálum sé
hvergi verra en í Klakksvík er það
htlu skárra á mörgum öðrum stöð-
um. Fáein frystihús eru enn í rekstri
og öll standa þau illa.