Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1993, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1993, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS1993 11 Ófrísk kona á Sauðárkróki: Vann alla daga meðgöngunnar Sótveig Þorvaldsdóttir sló ekki slöku við í vinnunni þótt hún væri ófrísk. DV-mynd Þórhallur Ásmundsson Þórhallur Ásmnndssan, DV, Sauðárkróki: Sólveig Þorvaldsdóttir, 32 ára hús- móðir og skrifstofumaður á Sauðár- króki, brá ekki út af vananum einn morgun fyrir skömmu og var mætt til vinnu sinnar á Sjúkrahúsi Skag- firðinga um áttaleytið. Það óvana- lega við Sólveigu var þaö að hún var alveg komin að því að fara að eiga sitt þriðja barn. Enda fór það svo að 'Sólveig stoppaði stutt við í vinnunni umræddan dag. Hún fór fljótlega á fæðingardeildina og um háifellefu- leytið þennan sama morgun hafði hún fætt dóttur. Það er trúlega fátítt nú á dögum að barnshafandi konur vinni fram á síðasta dag en Sólveig sagðist hafa verið mun betur á sig komin en í tvö fyrri skiptin. Hún bætti við að vinnu- veitandinn hefði verið skilningsrík- ur og eins væri skrifstofuvinnan þægileg en öðru máh hefði gegnt um allt saman ef hún hefði veriö í ein- hverri erfiðisvinnu. Atriði úr kvikmyndinni Þrumuhjarta. í leit að uppruna sínum Bókin um Þrumuhjarta er að mörgu leyti óhefö- bundin saga. í fyrsta lagi er hún ekki frumsamin skáld- saga eins og lesendur kynnu að halda. Hún er samin upp úr kvikmyndahandriti, nokkurs konar handrit sem síðar er breytt í bók. Yfirleitt er þessu öfugt far- ið, þ.e. að skáldsögu er breytt í kvikmyndahandrit. Sagan segir frá ungum FBI manni sem starfar í Washington og er býsna slunginn að hafa hendur í hári bófa og iRþýðis af ýmsu tagi. Honum er dag nokk- um falið það sérverkefni að fara inn á verndarsvæði indíána og upplýsa morð sem þar hefur verið framið. Honum til aðstoðar við rannsóknina er hörkutólið Coutelle sem starfað hefur sem lögreglumaður á vemdarsvæðinu um árabil. Ray Levoi, en það heitir aðalsöguhetjan, er valinn til fararinnar vegna þess að hann hefur indíánablóð í æðum. í jjós kemur að það er langt frá því að vera allt með felldu inni á verndarsvæðinu. Þar dragast menn í andstæðar fylkingar, drykkjuskapur, fátækt og von- leysi era fylgifiskar indíánanna, gjöf hvíta mannsins til þeirra. Þó er meðal yngra fólks að skjóta rótum réttindabarátta sem horfir til fortíðar og þess menn- ingararfs sem indíánar eiga. Milli þessara hópa lendir lögreglumaðurinn ungi. Þannig verða tvær sögur í gangi, eins og í góðri bíómynd. Annars vegar er það morögátan sem snýst um hver drap hvem, hvenær og hvers vegna. Hins vegar er það sagan um hvernig fortíð Levois og raunverulegt eðh hans vekur hann til nýs lífs og réttrar vitundar um það hver hann sjálfur í raun og vera er. Hann finnur uppruna sinn og sitt hlutskipti í lífinu. Afraksturinn er prýðilega læsilegur reyfari sem hér Bókmenntir Páll Asgeirsson birtist í sæmilegri þýðingu Ragnars Haukssonar. Ekki kunni ég alltaf við þýðingar hans á nöfnum indíán- anna en að öðru leyti sá ég ekki ástæðu til aðfinnslna. Samnefnd bíómynd, sem er kveikjan að öllu saman, gengur þegar þetta er ritað enn í Stjörnubíói og þykir Val Kilmer sýna snilldarleik í hlutverki Levois. Ekki get ég staðfest það en sé myndin í svipuðum gæða- flokki og bókin er það alveg þess virði að sjá hana. Þrumuhjarta - Lowell Charters skráðl eftir kvikmyndahand- riti John Fusco. Þýðandi: Ragnar Hauksson. Utgefandi: Frjáls fjölmiðlun. Sviðsljós Hátt 1400 manns skemmtu sér á þorrablótinu. DV-myndir Þórhallur Blótað í Höfðaborg ÞórhaBur Asmundsson, DV, Sauðárkroki: Á árshátíðum og þorrablótum gerist það oft að fólk fer að ókyr- rast þegar borðhald stendur lengi yfir og skemmtiatriði dragast á langinn. Svo var þó ekki á þorra- blóti Hofshrepps í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi fyrir skömmu þar sem samankomnir voru hátt í 400 gestir. Samdóma álit þeirra var að skemmtiatriðin heföu verið betri og betri eftir því sem á leið og mátti merkja það á geysigóðum undirtektum samkomugesta sem náðu hápunkti við flutning annáls ársins. Helsti spéfugl staðarins, Pálmi Rögnvaldsson, útibússtjóri í Bún- aðarbankanum, var höfundur annáls Hofsósinga en hann kemst upp með ýmislegt sem öðrum myndi ekki líðast. Meðal þeirra sem fengu að kenna á því þjá Pálma var sveitarstjórinn en hann hafði mest gaman af öllu saman og hló manna hæst. íslandsmeistarar í frjálsum dönsum Danshópurinn Desire úr Garðabæ sigraði I íslandsmeistarakeppni unglinga í frjálsum dönsum sem var haldin í Tónabæ sl. föstudagskvöld. Stelpurnar I hópnum heita Anna S. Sigurðardóttir, Sigrún E. Elíasdóttir, Erla Bjarna- dóttir, Hrafnhildur Helgadóttlr og Guðfinna Björg Bjömsdóttir en sú síðast- talda varð elnnig íslandsmeistari i einstaklingsflokki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.