Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1993, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1993, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Skammlíft einkaframtak Þegar gengið er um miðbæ Reykjavíkur, má hvar- vetna sjá minnisvarða hrunins einkaframtaks, glæsileg- ar hallir, reistar á végum fyrirtækja, sem ekki eru leng- ur til. í kreppu nútímans hrynja einhver slík stórveldi nánast í viku hverri einhvers staðar á landinu. Úrelding fyrirtækja hefur ekki bara dökkar hhðar. Nýir aðilar koma til skjalanna og nýta hallir, tækjakost og mannafla horfinna fyrirtækja. Stundum er nýi rekst- urinn nútímalegri og færir eigendum, starfsfólki og þjóðfélaginu meiri arð en gamh reksturinn gerði. Svo virðist þó vera, að shkar sviptingar séu mun meiri hér á landi en í nálægum löndum og valdi mörgum aðilum töluverðum búsifjum, ekki sízt þjóðfélaginu 1 heild. Því veldur, að íslenzk fyrirtæki eru nátengdari persónum og ættum en almennt gerist í útlöndum. Lífssaga íslenzkra fyrirtækja byijar oft með hug- myndaríkum athafnamanni, sem fyrstur fetar nýja braut. Vegna vanþekkingar í rekstri og stjóm fatast honum oft flugið. Þetta er algengara nú en áður, af því að svigrúm frumkvöðla er oftast minna en það var. Þau fyrirtæki, sem lifa af fyrsta stigið, lenda oftast í höndum næstu kynslóðar, sem í mörgum tilvikum hefur hlotið uppeldi í rekstri og sljórri fyrirtækja. Þetta er fólk, sem tekur htla áhættu, en getur oft haldið utan um það, sem frumkvöðulhnn hafði áður byggt upp. Einkenni þessa stigs er, að fleiri íjölskyldur en áður þurfa að hfa á eigninni og að þessar fjölskyldur em dýrari í rekstri en fjölskylda frumkvöðulsins. Þetta ástand verður síðan óbærilegt 1 þriðju kynslóð eigenda, sem elst upp í vehystingum og sligar fyrirtækið. Halhmar við gömlu verzlunargöturnar í miðbæ Reykjavíkur em minnisvarði um þennan skamma feril íslenzkra íjölskyldufyrirtækja. Enn átakanlegri verður ferillinn úti á landi, því að þar er oft skortur á hæfum aðhum til að byggja upp að nýju á rústum hins gamla. Bolvíkingar vom orðnir svo vanir að sækja aha for- ustu th ættarinnar, að þeir hafa átt erfitt með að fóta sig, síðan ættarveldið hmndi. Þeir koma til Reykjavíkur og ímynda sér ranglega, að dyr sjóða, banka og ráðu- neyta standi jafn opnar og dyr ættarinnar stóðu áður. Byggðarlag getur lent í töluverðum hremmingum og jafnvel hmnið, þegar það stendur úti í kuldanum eftir að hafa hreiðrað um sig í hlýju ættarveldis í marga áratugi. Bæjarbúar koma úr vemduðu umhverfi og kunna tæpast að taka ákvarðanir upp á eigin spýtur. Sumum fyrirtækjum tekst að rjúfa þennan vítahring ættarveldis. í sumum thvikum hefur frumkvöðulhnn eða erfingjar hans vit á að víkka hlutafjáreign og stjóm þeirra og ná th aðila utan ættar. Fyrirtækið hættir að snúast um ættina og fer í staðinn að snúast um arðinn. íslendingar eiga sérstaklega erfitt með að feta þessa braut, sem hggur að baki flestum öflugum fyrirtækjum í útlöndum. Menn fara ekki að hugsa um fyrirtækin sem arðgjafa, heldur halda áfram að hta á þau sem konungs- ríki, er veiti forstjómm persónuleg völd og aðstöðu. Þannig hta menn ekki á hlut í Stöð 2 sem tæki th að njóta arðs, heldur sem tæki th að berjast um völd. Það er dæmi um, að ekki er ahtaf nóg að ijúfa vítahring fjöl- skyldufyrirtækjanna, heldur þarf að stíga fleiri skref th að rækta íslenzkum fyrirtækjum varanlegan jarðveg. Þjóðfélagið getur stuðlað að endurbótum með lögum um gegnsæi fyrirtækja; lögum, sem opna umhverfinu innsýn í rekstur, bókhald og endurskoðun hlutafélaga. Jónas Kristjánsson „Þar staðfestust evrópsk menningaráhrif og einmitt í Odda á Rangárvöllum færi vel á að koma á fót mið- stöð fræða og fræðslu í náttúruvísindum og sögu, miðstöð vísinda og almenningsfræðslu," segir m.a. í grein- inni. Evrópa - ísland - Oddi: Samevrópskt rannsóknarverkefni Nýlega var tilkynnt um fyrirhug- aðar rannsóknir á hafís í Norður- Atlantshafi vestanverðu og gagn- kvæmum áhrifum hafs og lofts á hafsvæðunum norður af íslandi alit norður til Spitsbergen. Þetta verður viðamikið vísindalegt verk- efni á vegum Evrópubandalagsins með þátttöku íslenskra vísinda- manna. Um tuttugu og tvær evr- ópskar stofnanir taka þátt í rann- sóknunum. Auðveldar samstarf Rannsóknaráætlun þessi hefur verið eitt og hálft ár í undirbún- ingi. Lögð hefur verið áhersla á að samvinna vísindamanna verði ná- in og munu allir njóta góðs af því sem hinir gera. Sökum þess hve dregist hefur aö koma evrópska efnahagssvæðinu á fót, sem mun auövelda samstarf íslendinga við evrópskar menntastofnanir, mun menntamálaráðuneytið taka á sig um sinn kostnað sem ella hefði verið fólginn í styrk úr vísindasjóði Efnahagsbandalagsins. Meðal íslenskra verkefna í evr- ópska rannsóknarverkefninu er saga hafíss við ísland síðustu aldir og áhrif hafsins á veöurfar yfir höfunum og yfir íslandi. ísland er eyja og hér er eyjaloftslag. Breyt- ingar í hafi valda breytingum á loftslagi á þurru landi. Hið evr- ópska verkefni hefst í vor og stend- ur í þijú ár. Rannsóknimar felast í leiðöngrum um hafið, könnun úr flugvélum og veðurtunglum, út- reikningum með tölvum og samn- ingu fræðilegra skýrslna og greina í alþjóöleg vísindarit. Niðurstöður fyrmefndra rann- sókna á sögu hafíss við ísland og áhrifum hafsins á veðurfar munu tengjast rannsóknum á öðrum sviðum. í uppsiglingu er samvinna íslenskra fræðimanna í allmörgum KjaUarmn Þór Jakobsson veðurfræðingur fræðigreinum um það verkefni að rannsaka saman áhrif veöurfars- sveiflna á gróður, umhverfi og mannlif. Munu menn einbeita sér að síðustu þremur öldum og stilla saman því sem vitað verður um náttúrufar, búskaparhætti og mannlíf. Eftir fóngum verður gerð tilraun til að tengja hin ólíku svið og finna orsakasamhengið. Rann- sóknin mun beinast að Suðurlandi, einkum Rangárþingi. Land og saga í Ijósi sögunnar Land og saga í ljósi sögunnar verður þannig rannsökuð í sam- vinnu sérfræðinga sem annars stunda sérsvið sín hver í sínu homi. Margvíslegar og fágætar upplýsingar leynast um þætti þessa hér á landi, hafís, veður, gróður, búskaparhætti og mannlíf o.fl. Jafnvel veröur rangæsk ætt, Reynifellsætt, rakin og athuguð og gerð tilraun til að stilla niðurstöð- um við hhð athugana á hinum fræðisviðunum. Umræður um áætlun þessa hóf- ust á vel heppnaðri ráðstefnu 28. nóvember 1992 í boði Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti á Rangár- völlum. Ráðstefnan var haldin á vegum Oddafélagsins, félags áhugamanna um endurreisn hins sögufræga staðar, Odda á Rangár- völlum. I Odda var að fomu stofnað- ur einn fyrsti skóh landsins. Þar bjó Sæmundur fróði sem lærði í Svarta- skóla á meginlandi Evrópu. Þar staðfestust evrópsk menningaráhrif og einmitt í Odda á Rangárvöllum færi vel á að koma á fót miðstöð fræða og fræðslu í náttúruvísindum og sögu, miðstöð vísinda og almenn- ingsfræðslu. ÞórJakobsson „Munu menn einbeita sér að síðustu þremur öldum og stilla saman því sem vitað verður um náttúrufar, búskapar- hætti og mannlíf. Eftir föngum verður gerð tilraun til að tengja hin ólíku svið og finna orsakasamhengið. Rannsókn- in mun beinast að Suðurlandi, einkum Rangárþingi.“ Skoðanir aimarra ASÍ og atvinnuleysi „Hingað til hefur verkalýðshreyfmgin, (s.s. ASÍ) ekki hreyft htla fingur vegna útflutnings á óunnum fiski og verulegt atvinnuleysi einstakhnga af þeim sökum. Þetta gerist þrátt fyrir að útflutningurinn sé m.a. vegna misréttis innlendrar fiskvinnslu gagnvart erlendri. Örfáir forsvarsmenn verkalýðsfélaga hafa þó unnið í þessu máh en mega sín lítils gagnvart öðrum innan verkalýðsfélaganna, s.s. sjómönnum og forsvarmsönnum stóru samtakanna, þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi af þeim sökum.“ Baldur Pétursson í Mbl. 5. mars. Ólæsi er alþjóðleg þróun „Ætla má að þverrandi bókaútgáfa komi verst niður á þeim sem að ritun bóka og bókagerð hafa unnið, en það er fjölmenn stétt á íslandi og atvinnu- mál hennar er síst minna áhyggjuefni en annarra stétta. . . . Raunin mun sú að þegar á hættunni á ólæsi kemur, er við alþjóðlega þróun að etja, sem á rætur að rekja til nýrrar þróunar í fjölmiðlum og boðskiptum sem tekur firnalegum framfórum - en því verr í átt til síaukinnar einfóldunar. Að undan- fómu hafa margvisleg átök verið í gangi til andófs og er lestrarkeppni grunnskólanna nýjasta dærnið." Garri í Tímanum 5. mars. Stöðugleiki í verðlagsþróun „Það er einfaldlega ekki hægt til frambúðar að halda uppi tiltölulega háu atvinnustigi, eins og gert var, með hallarekstri ríkissjóðs og skuldasöfnun er- lendis. Ríkisstarfsmenn verða að axla sinn hlut í þjóðarátaki um að vinna samfélagið út úr krepp- unni. . . Forsenda aukinar efnahagsstarfsemi og hagvaxtar er að tryggja batnandi rekstrarskilyrði atvinnufyrirtækjanna. Það verður ekki gert án áframhaldandi stöðugleika." Leiðari í Mbl. 2. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.