Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1993, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1993, Qupperneq 1
Það er mikil (ramtakssemi í Akureyringum að ráðast i uppsetningu drottningar óperettunnar, Leðurblokunnar. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Það verður væntanlega mikið um dýrðir í Samkomuhúsinu á Akureyri í kvöld er Leikfélag Akureyrar frum- sýnir þar óperettuna Leðurblökuna eftir Johann Strauss. Verkið er i þýðingu Böðvars Guð- mundssonar og leikstjóri er Kolbrún Kristjana Halldórsdóttir. Útsetning- ar og hljómsveitarstjórn er í höndum Roars Kvam, leikmynd og búningar eftir Karl Aspelund og Ingvar Björnsson sér um lýsingu. Jón Þorsteinsson, sem syngur hlut- verk Gabriels von Eisenstein, syngur nú í fyrsta skipti á óperusviði hér á landi en hann hefur sungið víða um lönd og verið fastráðinn við hol- lensku ríkisóperuna í Amsterdam í tæpa tvo áratugi. í öðrum helstu hlutverkum eru Ingibjörg Marteins- dóttir, sem syngur hlutverk Rósa- lindu von Eisenstein, Guðrún Jóns- dóttir sem Adele og Steinþór Þráins- son er dr. Falke. Fjórtán manna kór syngur, tíu manna hljómsveit sér um tónlistina og þá er ógetið dansmeyja og fleiri. Leðurblakan hefur veriö kölluð DV-mynd Páll Á. Pálsson drottning óperettunnar en leikurinn fer fram í Vínarborg árið 1874. Fyrsti þáttur gerist á heimili Eisenstein- hjónanna síðla dags, annar þáttur í sölum Orlofskys prins þá um kvöldið og fram á rauða nótt og þriðji þáttur í austurríska ríkisfangelsinu í bíti morguninn eftir. litla Ítalíal - sjábls. 18 Todmobilel áTveimur vinum - sjábls. 19 Samsýning I í Iistmuna-| húsinu - sjábls. 20 kirkju- rðurir sjábls. 21 - sjábls. 21 sjábls. 23 Tviianiml íslenska hljómsveitin flytur tímamóta kammerjass: Verkið Samstæður var flutt á 21 sjónvarpsstöð - segir Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld „Ég samdi verkið Samstæður fyrir Listahá- tíð í Reykjavík árið 1970. Jassinn var í mik- illi lægð í heiminum og frægustu jassleikarar afgreiddu á bensínstöðvum. Mér rann blóðið til skyldunnar aö semja þetta verk sem ég kalla kammeijass og nafnið Samstæður þýðir að klassísk tónlist og jass séu ekki andstæður heldur samstæður," segir Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld sem samdi verkin Sam- stæður og Að leikslokumsem íslenska hljóm- sveitin mun flytja á sunnudaginn í Norræna húsinu kl. 18. í kringum 1970 var verkið Samstæður flutt á 21 sjónvarpsstöð í heiminum. Gunnar Reyn- ir Sveinsson samdi verkið Að leikslokum í tilefni af einleikaraprófi Sigurðar Flosasonar. Verkið er tileinkað minningu saxófónleikar- ans Gunnars Ormslevs. -em islenska hljómsveitin flytur verkin Samstæður og Að leikslokum sem flutt voru fyrst á Listahátíð árið 1970.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.