Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Qupperneq 4
44
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993
Tónlist
Mörg jám í eldinum
hjá Jet Black Joe
- aukin og endurbætt plata hljómsveitarinnar að koma út
Jet Black Joe. Engar upplýsingar um útgáfu erlendis.
Hljómsveitin Jet Black Joe sendir
frá sér „nýja“ plötu skömmu eftir
páska. Um er aö ræöa sömu plötu
og kom út fyrir síðustu jól en til viö-
bótar lögunum ellefu, sem voru á
plötunni, eru komin flmm ný. Þá
hafa nokkur gömlu laganna veriö
hljóðblönduö aö nýju. Nýju lögin á
plötunni eru Never Mind, See and
Be Blind, Down on My Knees, Suicide
Joe og gamla Trúbrotslagið Starlight.
Ætlunin er að platan veröi gefin
út i þessari endurbættu mynd úti í
hinum stóra heimi. Liðsmenn Jet
Black Joe og útgefendurnir hér á
landi verjast hins vegar allra frétta
af samningum viö erlenda aöila. Þó
hefur spurst aö einhverjir hafa verið
hér á landi undanfama daga til
skrafs og ráðagerða við hljómsveit-
ina. Páll Rósinkrans söngvari sagöi
til dæmis frá því í Pressunni í síö-
ustu viku aö til hafi staðið að hitta
mann frá umboðsfyrirtækinu TKO
sem hér var staddur, meðal annars
vegna fyrirhugaðra hljómleika fiðlu-
leikarans Nigels Kennedy á Listahá-
tíð í Hafnarfirði í sumar.
Styrkurinn plat?
Skýrt var frá því í DV fyrir hálfum
mánuði að bæjarráð Hafnarfjarðar
hefði samþykkt að veita Jet Black
Joe 450 þúsund króna ferðastyrk til
aö fara til Hollands og halda hljóm-
leika á meginlandi Evrópu. Gunnar
Bjami Ragnarsson, gítarleikari
hljómsveitarinnar, segir að óvíst sé
að af þessari styrkveitingu verði.
Hugmyndir séu á kreiki um aö
hljómsveitin haldi hljómleika með
ungum Hafnarfjarðarsveitum og fái
husnæði og hljómkerfl án endur-
gjalds jafnframt því að fá í sinn hlut
þann aðgangseyri sem inn kemur á
hljómleikunum. Gunnar Bjami segir
að það jafngildi engan veginn 450
þúsund króna styrk. Með því mótinu
sé upphæðin nær því að vera 150
þúsund.
Liðsmenn Jet Black Joe höföu ráð-
gert að fara utan í lok apríl eða byij-
un maí. Gunnar Bjami Ragnarsson
segist reikna með að sú ferð frestist
eitthvað af ýmsum ástæðum. Til að
mynda er hljómsveitin bókuð á fjöl-
marga hljómleika á næstunni.
Yukatan sigraði í Músíktilraunum
Úrslit Músíktilrauna Tónabæjar
fóm fram í Tónabæ sl. fóstudag, 2.
apríl. Þetta er í ellefta skiptið sem
Músíktilraunir er haldnar í Tónabæ
og hefur ásókn í keppnina aldrei ver-
ið jafn mikil og ljóst er að sjaldan
hefur annað eins rokklíf grassérað í
bílskúrum landsins. Það má því með
sanni segja aö Músíktilraunir séu
vaxtarbroddur íslenskrar rokk- og
dægurtónlistar þar sem á flmmta tug
hljómsveita keppti um hylli áhorf-
enda og dómnefndar.
Um 700 unglingar vora saman
komnir til þess að fylgjast með
hljómsveitunum á úrslitakvöldinu
og var stemningin rafmögnuö. Það
hófst með upphitun gestahljómsveit-
arinnar Jet Black Joe sem gerði
stormandi lukku.
Átta hljómsveitir komust í úrslit,
hljómsveitimar Cranium, Pegasus,
Yukatan, Hróðmundur hippi,
Tombstone, Ævintýri Hans og Grét-
ars, Tjalz Gissur og Opus dei. Sveit-
Sigurvegararnir, taldir frá vinstri, Óli Björn Ólafsson, Birkir Björnsson og
Reynir Baldursson.
imar kepptu um 25 tíma í Stúdíó Stúdíó Gijótnámunni í önnur verð-
Sýrlandi í fyrstu verðlaun, 25 tíma í laun, 20 upptökutíma í Stúdíó Hljóð-
rita í þriðju verðlaun og 20 upptöku-
tíma í Stúdíó Hljóðhamri. Einnig var
vaiinn besti gítarleikari Músíktil-
rauna Baldvin Ringsted úr hljóm-
sveitinni Tombstone og hlaut hann
að launum Charvel gítar frá Hljóð-
færaverslun Steina. Aðrir styrkta-
raðilar vora Hard Rock Café, Coca
Cola, Pizzahúsið Jón Bakan, Steinar
og Japis.
Allar hljómsveitimar þóttu góðar
og því erfitt að gera upp á milli
þeirra. En svo fór að hljómsveitin
Yukatan frá Reykjavík varð í fyrsta
sæti en sigursveitin er tríó þeirra
Óla Bjöms Ólafssonar trommuleik-
ara, Birkis Bjömssonar bassaleikara
og Reynis Baldurssonar, gítarleikara
og söngvara, og tónlistin sem þeir
leika flokkast undir nýbylgjurokk.
Meðalaldur þeirra er um saulján ár.
Tjalz Gissur frá Kópavogi hafnaði í
öðra sæti, Cranium frá Reykjavík í
þriðja sæti og Hróðmundur hippi frá
Garðabæ í ijórða sæti.
Fækkar í
Gildrunni
Sigurgeir Sigmundsson, gítar-
leikari Gildrannar, hefur lagt
hljóðfærið á hilluna og er orðinn
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
félagsins Týs í Vestmannaeyjum.
„Kominn hinum megin við borðið
í samningamálum varðandí þjóð-
hátíðina“, eins og hann komst að
orði. Hann lýkur viöskiptafræöi-
prófi í vor. „Ég hef einfaldlega
ekki tíma til aö sinna spila-
mennsku með þessu starfi og
verð því að hætta að spila með
Gildranni," segir Sigurgeir.
„Hugmyndin er sú að gefa út safn
bestu laga fyrir næstu jól og ef
mín verður þörf við að taka upp
nokkur ný lög til að hafa með
skorast ég ekki undan þvi.“
Helstu verkefni Sigurgeirs
þessa dagana eru að skipuleggja
Shellmót sjötta flokks í knatt-
spymu í júní og þjóöhátíðina síð-
sumars.
Sigga Bein-
teins gestur
hjáPelican
Sigríður Beinteinsdóttir, söng-
kona Stjórnarinnar, er eini gest-
urinn sem kemur fram á plötu
hljómsveitarinnar Pelican. Hún
syngur með Pétri Kristjánssyni i
einu laga Guðmundar Jónssonar
á plötunni, Tjáðu mér. Verið er
að Ieggja síðustu hönd á plötuna
þessa stundina og verður hún
send utan til vinnslu eftír páska.
Áætlað er að platan komi út síö-
ari hluta maí.
Todmobile-
plata fyrir
erlendan
markað
Todmobile hefur lokiö gerð tíu
laga plötu sem er ætluö fyrir er-
lendan markað. Helmingur lag-
anna kom fyrst út á plötunni
Ópera. Þijú vora á 2603 og tvö
eru af eldri plötum hljómsveitar-
innar. Öll era þau með enskum
textum. Sum lögin voru hljóðrit-
uö upp á nýtt og önnur endur-
hljóðblönduð.
Plötugagnrýiú
Poison - Native Tounge:
★ ★ ★
Fágað eitur
Natíve Tounge er fyrsta platan
sem Poison sendir frá sér eftir gítar-
leikaraskipti. C.C. DeVille er hættur
og í hans stað kominn Richie Kotzen
sem virðist smella vel í hópinn. All-
tént hefur engin breyting orðið á
tónlistarstefnu hljómsveitarinnar
frá síðustu hljóðversplötu, Flesh
andBlood.
Á þeirri plötu hafði maður á til-
finningunni að Poison hefði glatað
leikgleðinni sem einkenndi tvær
fyrri plötumar. Húmorinn er enn
* ■
t '■v " > hj
*1
B 1 9 s *
ekki hrokkinn í gír að nýju og gerir
það sennilega ekki úr þessu. Þess í
stað fágast hljómsveitin stöðugt í
hálfharðri rokkstefnu sinni og
raunar á svipaðri leið og Bon Jovi
aö glata gamla karakternum án þess
að vinna nægjanlega vel að því að
skapasérnýjan.
Þrátt fyrir það má vel hafa gaman
af Native Tounge, Rokkið er vel
keyrt áfram, mörg lög grípandi og
rata áreiðanlega rétta leið inn í dag-
skrár bandarískra rokkstöðva. Eigi
að siður skorar Poison alltaf sín
mikilvægustu stig með rólegum og
hálfrólegum lögum. Með slíkum
ópusum hefur henni gengið best á
listum og á Native Tounge er ein-
mitt að finna nokkur lög í svipuðum
anda og Every Rose Has It’s Thom
og Something to Believe in. En
gamla, strákslega gleðirokkið er
sennilega horfið að eilífu. Þvi miður.
Ásgeir Tómasson
Honeymoon in
Vegas-Ýmsir:
★ ★ ‘/2
Elvis lifir!
Vestur í Bandaríkjunum og víðar
era stórir hópar fólks sem trúir því
statt og stöðugt að Elvis Presley sé
enn á lífi og að dauði hans 1977 hafi
einungis verið settur á svið til aö
kóngurinn fengi friö. Ekki ætla ég
öö PIOIMEER
The Art of Entertainment
höneymöön' in’végas
E L * I 5 P RE(iUY HIT5 PeRFORMEO BY
ÐltUY joei. * BICKY ’MS SMCttON • AMY C*»N1 • eðNO
TRAVlS T H.ITT- • OHAIt fERRV . VINCt «IU.
að kveða upp neinn dóm um það
hvort Elvis kallinn sé á lífi en eitt
er víst að tónlistin hans lifir og þarf
engin trúarbrögð til að sannfærast
umþað.
Þessa dagana er til að mynda ver-
ið að sýna í kvikmyndahúsi í
Reykjavík myndina Honeymoon in
Vegas og öll lögin í þessari mynd era
gömul Presley-lög í flutningi stór-
stjama nútímans. Þetta er fólk úr
ýmsum tónlistarhomum sem
eflaust á það allt sameiginlegt að
vera Presley-aðdáendur. Hér era
stórpoppmenni á borð við Billy Jo-
el, Bono, Bryan Ferry, Jeff Beck,
John Mellancamp og Amy Grant og
síðan stórbændur úr sveitatónlist-
inni; Willie Nelson, Dwight Yoakam,
Travis Tritt og Ricky Van Shelton.
Tvær minni stjömur fá svo aðfljóta
með, rokkarinn Vince Gill og sveita-
söngkonan Trisha Yearwood.
Og lögin sem þetta fólk flytur era
mörg frægustu lög Presleys, lög eins
og All Shook Up, Love Me Tender,
Heartbreak Hotel, Are You Lone-
someTonight?, Suspicious Minds,
Jailhouse Rock og Can’t Help Fall-
inginLove.
I mjög mörgum tilvikum er gömlu
útsetningunum á lögunum fylgt
allnákvæmlega eftir en á öðram
stöðum hafa menn leyft sér frávik
sem lukkast misjafnlega vel. Þar
má nefna lögin Hound Dog og Jail-
house Rock. Listafólkinu tekst líka
misvel upp og það sýnir manni
kannski að gömlu Presley-lögin era
ekki á allra færi þótt þekktir popp-
arar séu á ferð. Þannig finnst mér
Billy Joel til dæmis alls ekki ná tök-
um á þeim lögum sem hann flytur
en það era lögin All Shook Up og
Heartbreak Hotel en hins vegar ger-
ir Dwight Yoakam laginu Suspi-
cious Minds verulega góð skil. Sömu
sögu er að segja um Bryan Ferry
sem syngur Are You Lonesome Ton-
ight? af mikilli innlifun og þá ekki
síður Bono sem fer á kostum í laginu
Can’t Help Falling in Love.
Honeymoon in Vegas er þrátt fyrir
ýmsa hnökra ómissandi plata í
hvert Presley-safn og býður að
mörgu leyti upp á nýjar víddir í sí-
gildum lögum Presleys.
Sigurður Þór Salvarsson