Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Page 4
38 MIÐVIKUDAGUR 21. APRlL 1993 Tónlist Sniglabandið gefur út sína fimmtu plötu: Erumorðnir markaðsvænir Árið í ár er ár markaðshyggjunnar hjá Sniglabandinu. Hljómsveitín er þó ekki að kúvenda tónlistarstefn- unni eftir átta ára starf. Nú á einfald- lega að ná til fjöldans, kynna sig markvisst en þó smekklega. Þannig að allir hðsmenn hljómsveitarinnar séu sáttir við aðferðimar. Og markaðshyggjan virðist vera farin að bera árangur. Lagið Á nálum er orðið þjóðþekkt og þó kemur nýj- asta plata Sniglahandsins, ...þetta stóra svarta, ekki út fyrr en á morg- un, sumardaginn fyrsta. Hljómsveit- in er hins vegar lögö af stað í hljóm- Jieikaferð um landið til að kynna út- komu hennar. Lagði í ’ann á föstu- daginn var og linnir ekki látunum fyrr en sjöunda maí. Ferðin tekur 22 daga og verður spilað á tuttugu stöð- um. Sérstakir útgáfuhljómleikar verða annaö kvöld á Akureyri. Það kennir margra grasa á nýju plötunni. Þar ægir saman poppi, rokki, blús, soul - og kóratónlist. Platan hefst nefnilega á svohtlu lagi, rúmlega hálfrar mínútu löngu, sem heitir Brennivín er bull og er súngið af Lögreglukómum. „Þegar á reyndi var ákaflega auð- velt að fá kórinn til að syngja lagið,“ segja Sniglabandsmenn. „Við voram búnir að velta fyrir okkur hugmynd- inni og segja sem svo að þaö væri nú gaman að fá kórinn til að syngja. Einn dag datt einhverjum í hug að athuga máhð og það reyndist alveg sjálfsagt. - Við hefjum aha tónleika í ferðinni á Brennivín er buh. Því miður gátum við ekki tekið kórinn með okkur, svo aö við verðum að spila lagið af spólu.“ Mikið lagt undir Síðasta plata Sniglabandsins, Get- um við ekíti látið alveg eins og hálf- Sniglabandið er skipað Björgvini Ploder, Einari Rúnarssyni, Skúla Gautasyni og „nýliðunum" Þorgils Björgvins- syni, Friðþjófi Sigurðssyni og Pálma Sigurhjartarsyni sem spilaði fyrst með hljómsveitinni um síðustu verslunar- mannahelgi. Sniglabandið á Gauki á Stöng. Hvergi myndast betri stemmning á hljómleikum en einmitt þar. Plötugagnrýni Stuttur frakki - Úr kvikmynd: F ★★ . Serkenru- legur frakki Tónlistin úr kvikmyndinni Stutt- um frakka er ósköp sundurlaus eins og oft vih verða með kvikmynda- tónhst. Hún á enda ekkert sameigin- •legt nema það að koma fyrir í sömu bíómyndinni. En ýmislegt er hér á ferðinni sem vert er að setja spumingarmerki við. Það er engu hkara en aðstand- endur plötunnar hafi átt í erfiðleik- um meö að gera það upp við sig hvort þeir ætluðu að gefa út tón- leikaplötu með upptökum frá Bíó- rokkinu, sem leikur stórt hlutverk í myndinni, eða plötu með tónhst myndarinnar. Niðurstaðan er ein- hverskonar milhvegur sem skilur eftir ýmsar spumingar. Greinilegt er þó að útgáfusamn- ingar þeirra hljómsveita sem koma við sögu hafa ráðið öhu um það hverjar þeirra komust á plötuna og ÖD PIONEER The Art of Entertainment hveijar ekki. Þannig er Bubba Morthens hvergi að finna á plötunni þótt hann komi fyrir í myndinni enda á hann í útistöðum við Steina hf. vegna útgáfumála. Þá fær SSSól ekki inngöngu á plötuna þrátt fyrir gott rými í myndinni enda hljóm- sveitin ekki á samningi hjá Steinum. Nú má vel vera að viðkomandi aðilar hafi einfaldlega ekki viljað vera með á plötunni en engu að síð- ur er þetta hálf ankannalegt. Annað sem vekur furðu er hlutverk Jet Black Joe sem hvergi sést í kvik- myndinni en á samt tvö lög á plöt- unni og það einu hreinræktuðu stúdíólögin. Þetta eru vissulega ágætislög en ég er ekki viss um að rétt sé að koma þessari vinsælu hljómsveit á framfæri með öhum tiltækum ráðum. Annað hvort eru menn að gefa út tónhst sem kemur fram í myndinni Stuttum frakka eða bara safnplötu, en þessu tvennu á ekki að blanda saman án þess að láta kaupendur vita. Enn eitt sem vekur athygh við þessa útgáfu er að nánast öh stef kvikmyndarinnar fylgja með á plöt- unni sem ekki er nú vaninn yfirleitt enda eru þetta oftast lagabútar inn- an við eina mínútu að lengd. Síðan tengjast svona stef myndmáhnu oft- ast það mikið að þau em hvorki fugl né flskur án myndarinnar. Hér lukkast hins vegar að láta þau standa ein og sér enda fimavel sam- in af Eyþóri Amalds. Þau em fyrir mína parta það besta á plötunni en af flytj endum finnst mér Bogomil Font koma sérlega vel út og einnig Ný dönsk. Sigurður Þór Salvarsson Bryan Ferry - Taxi: Snilldin að gera gamalt aðnýju Rúmlega fimm ár em síðan Bryan Ferry sendi irá sér síðustu sólóplötu sína, Bete Noir. Var því kominn tími til að kappinn léti heyra í sér. Ætlun Ferrys var að gera plötu með nýju efni og var hún langt komin þegar hann setti hana til hhðar og tók til við það sem hann gerir betur en flestir aðrir: að útsetja og flytja göm- ul lög og er árangurinn af því grúski hans að finna á Taxi. Þetta er sami leikur og Ferry lék á fyrstu sólóplöt- unni sinni, These Foolish Things, þar sem hann flutti snihdarlega til aö mynda jafn ólík lög og A Hard Rain’s Gonna Fah og Smoke Gets in YourEyes. Taxi á það sameiginlegt með These Fohsh Things að lögin eru ólík að gerð og uppruna, en Ferry tekst það sem fáum tekst yfirleitt, þegar eldri lög em endurútsett, að gera þau áhugaverö aftur. Gott dæmi um þetta er jjjóðlagið gamla, Amazing Grace. Utsetningin er frábær, sem og flutningurinn, og óhætt er að vitar?, var tekin upp á hljómleikum á Gauki á Stöng. Hún er nú uppseld að sögn Snigla, þrátt fyrir að fyrir- tækið sem tók að sér að dreifa henni hafi ekkert kynnt hana og ekki einu sinni átt hana til í eigin verslunum. „Við ákváðum að leggja mun meira í næstu plötu,“ segir nýjasti liðsmað- ur Sniglabandsins, Pálmi Sigurhjart- arson. „Við ákváðum að taka hana upp í besta hljóðveri landsins, Sýr- landi, og fá besta manninn til að taka hana upp, Gunnar Smára Helgason. Það var ekkert til sparað. Við sáum fjárhagslega smugu til að gefa plöt- una út sjálfir og fáum Japis th að dreifa henni. Með þessu móti förum við sömu leið og KK-bandið og fleiri fyrir síðustu jól. Þessi aöferð gafst vel hjá mörgum." Th að gera plötuna sem best úr garði tók Sniglabandiö sér frí frá spilamennsku um síðustu áramót. Tíminn síðan hefur farið í gerð plöt- unnar og veitti ekki af þeim rúmu þremur mánuðum sem varið hefur verið til útgáfustarfsins. Eftir að hljómleikaferðinni lýkur tekur við hefðbundin dansleikjaver- tíð sumarsins. Hljómsveitin heldur þó sínu striki þótt hljómleikaferðinni sleppi og annars konar skemmtanir taki við. Eigið efni og eigin útsetning- ar á lögum annarra munu sitja í fyr- irrúmi. „Við höfum orðið varir við að fólk óttist að hljómsveitin sé að breytast í kjölfar þess að við erum orðnir markaðsvænir," segja Sniglabands- menn. „En við höldum okkar striki og reynum helst að hafa hverja hljómleika eins og svohtið leikrit með þátttöku áheyrenda. Að því leyt- inu breytumst við ekkert þrátt fyrir ár markaðshyggjunnar." -ÁT segja að lagið tendri aftur smáglóð. Þetta á við um fleiri lög og það sem er kannski mesta afrekið hjá Bryan Ferry er að geta gert plötu með þess- um ólíku lögum sem mynda síðan einaheild. Það sem einkennir Taxi er viss dulúð yfir flutningnum. Útsetningar eru nokkuð flóknar og þarf stund- um að rýna vel í lagið til að finna upprunalega stefiö. Tónninn er strax gefinn í fyrsta lagi plötunnar I Put a Speh on You sem er gott veganesti fyrir það sem koma skal og víst er að engum ætti að leiöast flutningur Brynas Ferry á því lagi sem ogöömm. Sjálfsagt verður Taxi ekki tahn meðal bestu verka Bryan Ferry; þau liggja í frumsömdu efni, sérstaklega á fyrri hluta starfsævi Roxy Music, en á meðan beðið er eftir nýju efni frá honum er Taxi bragðmikil hlust- un. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.