Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1993, Page 4
30
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL1993
Tónlist
Reptílicus með samninga
í Englandi og Hollandi
Smáskífa meö tvíeykinu Reptilic-
usi var útgefin í Englandi og á megin-
landinu í byrjun mánaöarins. Platan
inniheldur fiórar mismunandi útgáf-
ur af danslaginu Snaketime. Lagiö
er aö sögn Guðmundar Markússon-
ar, annars helmings ReptUicusar, í
léttari kantinum og ólíkt flestu því
sem hljómsveitin hefur gert áöur.
Hann segir viötökur viö laginu ytra
lofa góðu.
Þögn á plötu
Nafn Reptilicusar hefur ekki farið
hátt í íslensku tónhstarlífi en auk
Guömundar er Jóhann Eiríksson í
hljómsveitinni. Tvíeykið hefur starf-
aö í tæp fimm ár. Útgáfuferilinn hófu
þeir á óvenjulega hátt áriö 1989. Þeir
gáfu út plötu í 20 eintökum sem ekki
var hægt aö spila og haföi því enga
tónhst aö geyma. Þeir lögðu hins
vegar mikla vinnu í gerð umslag-
anna sem öll voru handmáluð. Ári
síöar sendu þeir frá sér snældu og
nú fengu forvitnir að heyra elektrón-
íska tónhst þar sem ryþmískri dans-
tónhst var laumað inn á milh.
Haustið 1990 kom út vinylbreið-
skífa með Reptilicusi í Bretlandi en
hún var unnin í samvinnu viö Hilm-
ar Öm Hilmarsson. Hilmar kom Rep-
tihcusi í samband við útgáfufyrir-
tækiö World Serpent sem gaf plötuna
út. Platan kallaðist Cmsher of Bones
og seldist þokkalega.
Tvær plötur á árinu
Piltarnir í Reptihcusi láta ekki
deigan síga og eru tvær plötur vænt-
anlegar meö hljómsveitinni erlendis
á þessu ári. í sumar veröur Crusher
of Bones endurútgefin í Bretlandi
ásamt mörgum nýjum lögum á ein-
um og sama geisladisknum. Þá hafa
tvímenningarnir nýlega lokiö gerö
plötu meö enska tónhstarmanninum
Andrew McKenzie en samningar
hafa tekist viö hollenska útgáfufyrir-
tækiö Staalplaat um útgáfu á þeirri
plötu seinna á árinu. Af þessari upp-
talningu má sjá að Reptilicus hefur
ekki veriö mikiö fyrir að gefa efni
sitt út á íslandi. Það verður þó góðu
heilli hægt að nálgast efni Reptilicus-
ar frá og meö sumrinu.
S.H. Draum-
urlifnarviðí
Tunglinu
Hljómsveitin S.H. Draumur sem
spratt upp í gróðrarstíu pönksins,
Kópavogi, í byrjun 9. áratugarins
ætlar að gefa nýrri rokkkynslóð
tækifæri til aö berja fyrirbæriö
augum og eyrum annaö kvöld.
Draumurinn kemur þá saman í
fyrsta sinn opinberlega síðan 1988.
Tónleikamir verða haldnir í
Tunglinu til að kynna nýútkomna
safnplötu hljómsveitarinnar sem
ber heitiö AÚt heila klabbiö. Eins
og titillinn ber með sér er á plöt-
unni aö finna allt það efni sem S.H.
Draumur gaf út á sex ára ferh og
að auki þijú óútgefin lög.
S.H. Draumur var hálfgert neö-
anjaröarapparat og kom aðeins ein
breiöskífa út meö hljómsveitinni,
Goö, frá 1987. Annaö efni hljóm-
sveitarinnar kom út á smáplötum
og snældum. Hljómsveitin ku hafa
fengið uppreisn æru eför að hún
sneri upp tám og nýtur talsverðrar
hylli meðal unghnga í dag. Það
veröa því sjálfsagt margir aödáend-
ur sem heyra Drauminn í fyrsta
sinn á tónleikum annað kvöld en
auk hans spila Silfurtónar og sigur-
vegarar Músíktilrauna í ár, hljóm-
sveitin Yukatan, í Tunglinu.
flö PIONEER
The Art of Entertainment
Plötugagnrýni
Coverdale - Page
★ ★★
Page er kom-
inn heim
Jimmy Page hefur átt frekar örðugt
uppdráttar eftir að Led Zeppelin lagði
upp laupana um áriö þegar John
Bonham lést. Hann hefur reynt fyrir
sér í ýmiss konar samstarfi en ekk-
ert gengið almennilega upp. Og nú
er hann kominn í eina sambúöina
enn; aö þessu sinni með gömlum
kollega úr bresku þungarokksdeild-
inni, David Coverdale, sem síðast
söng með Whitesnake.
Og þaö verður varla annaö ráöið
af þessari plötu en að Page hafi í raun
saknað Zeppehn-áranna svo mikið
að hann hafi ekki getað á sér heilum
tekið. Coverdale gengur hér beint inn
í hlutverk Roberts Plants; beitir
röddinni eins og Plant gerði á sínum
tíma svo að á stundum er engu líkara
en að gömlu Seppamir séu risnir upp
frá dauðum. Trommuleikarinn gerir
líka sitt besta til að stæla kraftmik-
inn trommuleik Bonhams heitins.
Tónsmíðarnar eru ennfremur í mjög
svo zeppehnskum anda þannig að
fyrir gamla Zeppelin-aðdáendur er
þessi plata kærkominn gripur til að
rifia upp Zeppehn-árin og velta því
fyrir sér hvort hljómsveitin hljómaði
svona í dag ef Bonham hefði lifað
lengur.
Allar slíkar vangaveltur eru auð-
vitað út í loftið en samanburðurinn
við Zeppelin er óhjákvæmilegur þeg-
ar Page og Coverdale taka þennan
pól í hæðina. Hér eru meira að segja
lög sem bera vægast sagt sterkan
keim af fyrstu Zeppelin-plötunni,
þungt blúsrokk a la I Can’t Quit You
Babe og Baby I’m Gonna Leave You;
lög þar sem Page sýnir gamla takta
á gítarinn og Coverdale nær öskrun-
um í Plant ótrúlega vel.
Innan um eru svo frekar litlaus
rokklög en í heildina er þetta þaö
besta sem Page hefur sent frá sér í
mörg ár og má segja að hann sé kom-
inn heim aftur eftir margra ára úti-
vist. Hins vegar er óvíst hvort þessi
Reptilicus. Plata komin út í Englandi.
sambúð endist honum til langframa
því varla nennir Coverdale að vera
einhvers konar Robert Plant eftir-
herma til lengdar. Hann hlýtur að
hafa meiri metnað en það.
Sigurður Þór Salvarsson
Suede-Suede
★ ★★★
Glimrandi
gjömingur
Eftirvænting er orðið sem lýsir
best stemningunni í rokkbransanum
í Bretlandi síðustu vikur meðan beð-
ið var fyrstu stóru plötu Suede.
Hljómsveitin hafði gefið út þrjú lög
á smáskífum sem þóttu gefa fógur
fyrirheit. Drowning, Metal Mickey
og Animal Nitrate höfðu öh komist
á hsta gagnrýnenda yfir bestu lög
ársins 1992 um síðustu áramót.
Spennan var því mikil þegar stóra
platan sem nefnd er í höfuðið á skap-
ara sínum rataði í fyrsta sinn í spUar-
nefndra smáskífulaga eru So Young,
Sleeping PiUs og Moving.
-Snorri Már Skúlason
Bruce Springsteen
- In Concert:
★ ★ ★
Með allt í
sambandi
ann.
Suede inniheldur 11 lög þar af smá-
skífulöginfyrrnefndu. Lagasmíðam-
ar sem em að mörgu leyti mjög ólík-
ar, daðra við sinnu hlustandans áður
en hann feUur dáleiddur fyrir töfram
plötunnar. Þannig er Suede fersk og
einlæg og hefur til að bera þessa
hefilandi greddu sem einkennir
hljómsveitir sem arka nýja slóð. Að
þessu leyti minnir Suede á þá ágætu
sveitPixies.
Glamúrrokkið er sá brannur sem
Suede sækir í. Hljómsveitin tengir
nostalgíu 8. áratugarins við ný-
bylgjurokk samtímans og úr verður
heiUandi sánd, Suede-sánd. Þannig
Uggur styrkur plötunnar að miklu
leyti í frábærum flutningi þar sem
söngur Brett Andersons og snUldar-
gítarleikur Bemards Butlers stendur
upp úr. Hinu má ekki gleyma að laga-
smíðar era það efni sem góð plata
er búin til úr og plata Suede er þar
engin undantekning.
Hér er á ferðinni hrífandi gripur
sem óhætt er að mæla með við þá sem
krefiast einhvers af þeirri tónhst sem
þeir hlusta á. Bestu lög auk fyrr-
Sagan segir að Brace Springsteen
hafi runnið á rassinn á síðustu
stundu með að halda órafmagnaöa
tónleika á MTV-sjónvarpsstööinni og
hafi fengið að stinga hljóðfærinu í
samband. Á plötunni sem hér er til
umfiöllunar eru aðeins tvö lög í þeim
órafmagnaða eða lítt rafmagnaða
anda sem gengur og gerist í þáttun-
um. Þetta eru lögin Red Headed Wo-
man og Thunder Road. Hin ellefu era
keyrð áfram á vanalegan hátt.
Þar af leiðandi sker platan sig Utt
úr öðru hljómleikaefni með Brace
Springsteen. Hann sepdi sem kunn-
ugt er fyrir sex áram frá sér fiögurra
platna eða þriggja geislaplatna safn
sem nefndist Brace Springsteen And
The E-Street Band Live 1975/85. Mik-
inn öndvegis pakka sem bætti úr
brýnni þörf hjá þeim sem ekki eru
sífeUt á útkikki til að finna plötur
með ólöglegum hljómleUcaupptök-
um. In Concert/MTV Plugged er því
rökrétt framhald áöur útgefins
hljómleikaefnis.
Á plötunni blandar Brace saman
gömlu efni og nýju. Þarna era til
dæmis titiUög þriggja platna. Dark-
ness on the Edge of Town, Human
Touch og Lucky Town. Springsteen-
fræðingum þykir hins vegar væntan-
lega mest til þess koma að fá nú
hljómleikaútgáfu lagsins Atlantic
City.
SpUamennska á In Concert... er
þétt og öragg. Aðeins einn E-Street
maður er meðal undirleikara: Roy
Bittan píanóleikari sem setur fingra-
förin sín að sjálfsögöu á tónhstina.
Hljómur er góður. Áberandi betri en
á Unplugged Erics Claptons. Kannski
er hægt að fela eitt og annað með því
aðbeitakröftiun. Ásgeir Tómasson