Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Qupperneq 4
20
FÖSTUDAGUR 11. JUNÍ 1993
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7, sími 673577
I sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis og
sölu olíumálverk, pastelmyndir, grafik og ýms-
ir leirmunir. Opið er alla daga frá kl. 12-18.
Árbæjarsafn
Safnið er opið alla daga, nema mánudaga i
sumar frá kl. 10-18. Ýmis handverkstæði eru
starfrækt alla vikuna.
Ásmundarsafn
Sigtúni, simi 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina
Bókmenntirnar i list Ásmundar Sveinssonar.
Jafnframt hefur verið tekin i notkun ný við-
bygging við Ásmundarsafn. Safnið er opið
kl, 10-16 alla daga.
Café Mílanó
Faxafeni 11
Tita Heyde sýnir verk sín. Opið alla daga kl.
9-19 nema sunnudaga kl. 13-18.
Gallerí Borg
v/Austurvöll, s. 24211
Opið virka daga kl. 12-18 og um
helgar kl. 14-18.
Gallerí Hulduhólar
Verk eftir Steinunni Marteinsdóttur til sýnis.
Opið kl. 14-19 til 27. júní. Lokað á mánudög-
um.
Gallerí List
Skipholti
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn.
Opið daglega kl. 10.30-18.
Gallerí 1 1
Skólavörðustíg 4
Eggert E. Laxdal sýnir málverk. Á sýningunni
eru um 20 nýlegar myndir. Sýningin stendur
til 17. júni.
Galleri List
Skipholti, sími 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn.
Opið daglega kl. 10.30-18.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Sýning Hjördisar Frímann er framlengd til 16.
júní. Sýningin er opin á verslunartíma á virkum
dögum kl. 10-18.
Gallerí Úmbra
Bernhöftstorfu
Björg Atla sýnir málverk. Á sýninginni, sem
Björg kallar Svart á hvítu, eru 17 myndir mál-
aðar með svörtum akrýllit á hvitan, sendinn
grunn, allar unnare á þessu ári. Sýningin er
opin þriðjudaga til laugardaga kl. 13-18 og
sunnudaga kl. 14-18 og stendur hún til 30.
júni.
Geysishúsið
v/Vesturgötu
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir Elísa-
betu Haraldsdóttur. Á sýningunni eru lág-
myndir og leirlistaverk sem hún hefur unnið
sl, tvö ár. Sýningin er opin mánudaga til föstu-
daga kl. 9-17 og um helgar kl. 11-18. Sýning-
in stendur til 20. júní.
Kjarvalsstaðir
I miðrými Kjarvalsstaða stendur yfir sýning á
keramikverkum eftir Rögnu Ingimundardóttur.
Sýningin stendur til 13. júni. Þá stendur yfir
sýning á Ijósmyndum bandariska Ijósmyndar-
ans Mary Ellen Mark og stendur hún til 11.
júli. Á sumarsýningu Kjan/alsstaða eru verk
eftir Jóhannes S. Kjarval sem eru I eigu Lista-
safns Islands. Þá sýnir Sindri Freysson Ijóð.
Nlorræna húsið
v/Hringbraut
I sýningarsölum stendur yfir sýning á vatns-
litamyndum og i anddyri hússins er sýning á
verkum 27 myndlistarmanna frá 5 Norður-
löndum, Sýningin er opin daglega kl. 14-19
og stendur til 27. júní.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg
Árni Ingólfsson sýnir I Nýlistasafninu. Sýning-
in samanstendur af ólíkum efnisheildum og
er I öllum sölum hússins. Hún er opin daglega
kl. 14-18 og stendur til 20. júní.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustig
Þar stendur yfir sýning á verkum eins þekkt-
asta og umdeildasta Ijósmyndara Bandaríkj-
anna I dag, Sally Mann.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Lækningaminjasafn sem sýnir áhöld og tæki
sem tengjast sögu læknisfræðinnar á Islandi.
Stofan er opin á sunnud., þriðjud., fimmtud.
og laugardögum frá kl. 12-16. Aðgangseyrir
er kr. 200.
Katel
Laugavegi 20b. simi 18610
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda lista-
menn; málverk, grafík og leirmunir.
Listhús i Laugardal
Engjateigi 17, s. 680430
Sjpfn Har. Vinnust. er opin virka daga kl.
13-18 og kl. 11.30-16 laugardaga. Verslanir
hússins eru opnar frá ki. 10-18 virka daga
og kl. 10-16 laugardaga. Þrír listamenn hafa
að undanförnu sýnt verk sín. Þena eru þau
Þóra Sigurþórsdóttir, Öli Már og Inga Elin sem
sýna verk af óllkum toga. Þau eru öll með
vinnustofur á Alafossi I Mosfellssveit. Sýning-
in hefur nú verið framlengd um eina viku og
lýkur 13. júní.
Ásmundur Sveinsson í Perlunni:
Sex þekktar
höggmyndir
„Á sýningunni í Perlunni eru högg-
myndirnar Járnsmiðurinn, Vatns-
berinn, Jónsmessunótt, Þvotta-
konan, Móðir Jörð og Móðir mín í
kví kví. Sumar þeirra eru mjög
þekktar og standa hér og þar um
bæinn,“ segir Þorri Hringsson, upp-
lýsingafulltrúi Kjarvalsstaða, í sam-
tali við DV. Á morgun kl. 14 verður
opnuð í Perlunni við Öskjuhlíð sýn-
ing á 6 höggmyndum eftir Ásmund
Sveinsson en á þessu ári eru 100 ár
liðin frá fæðingu hans og er sýningin
haldin í tilefni af þvi.
í Ásmundarsafni við Sigtún stend-
ur nú yfir sýningin Náttúran í list
Ásmundar Sveinssonar sem opnuð
var 20. maí. sl. Þar er reynt að sýna
hvað náttúran er mótandi í list Ás-
mundar.
„Við reynum að ná til allt annars
markhóps í Perlunni heldur en í Sig-
túni. í Perluna koma t.d. ferðamenn
og er markmiöið með sýningunni aö
þeir sem eiga leið um fái að njóta hst-
arinnar," segir Þorri.
-em
DV-mynd Brynjar Gauti
BjörgAtlasýnir
í Gallerí Úmbru
Björg Atla opnaði í gær málverka-
sýningu í Gallerí Úmbru á Bern-
höftstorfu. Á sýningunni eru 17
myndir, málaðar með svörtum
akrýllit á hvítan, sendinn grunn.
Myndirnar eru allar unnar á þessu
ári. Þetta er fimmta einkasýning
Bjargar en hún hefur einnig tekið
þátt í samsýningum bæði heima og
erlendis. Sýning Bjargar verður opin
þriðjudaga til laugardaga klukkan
13-18 og sunnudaga frá 14-18 og
stendur til 30. júní.
Þrír listamenn hafa að undanfömu
sýnt verk sín í Listhúsinu í Laugar-
dal. Þóra Sigurþórsdóttir sýnir
skúlptúra og minni verk, Óli Már
sýnir málverk sem unnin eru með
Björg Atla sýnir í Gallerí Úmbru.
akrýllitum, bæði á striga og pappír.
Inga Elín sýnir hins vegar ýmsa Úst-
muni sem unnir eru úr gleri og
postulíni, t.d. borð, vasa og glugga-
myndir. Sýningunni lýkur 13. júní.
Listagilið - Akureyri:
Sjö lista-
menn sýna
Gylfi Kristjáiisson, DV, Aknreyri;
Samsýning sjö myndlistarmanna
hefst í „tilraunasal" Gilfélagsins á
Akureyri á morgun og stendur yfir
daglega til 20. júní kl. 14-19.
Myndlistarmennirnir, sem sýna
verk sín, em Dröfn Friðfinnsdóttír,
Erlingur Valgarðsson, Freyja Ön-
undardóttir, Guðrún Pálína Guð-
mundsdóttir, Jóris Rademaker, Jón
Laxdal og Ólöf Sigurðardóttir. Þau
sýna málverk, pappírsverk og grafík.
Gallerí Sævars Karls
Sýning
Hjördísar
framlengd
Listhúsið í Laugardal:
Ýmiss konar listmunir
Á sýningunni er m.a. að (inna glerlistaverk.
Sýning Hjördísar Frímann í Gallerí
Sævars Karls, Bankastrætí 9, hefur
verið framlengd til 16. júní. Hjördís
hefur áður haldið einkasýningar í
Nýlistasafninu 1987, Gallerí List 1988
og Ásmundarsal 1990.
Listhúsið Snegla:
Listsköpim
kvenna
Núna stendur yfir samsýning í
Listhúsinu Sneglu í tengslum við
Óháðu listahátíðina. Snegla er nafn
á listhúsi sem 15 listakonur reka við
Grettisgötu 7 í Reykjavík. Listsköpun
kvennanna er margvísleg. Þær móta
leir, þrykkja á léreft, vefa, mála á
striga, pappír og silki og hanna og
sauma hina ýmsu nytjahlutí.
Hveragerði:
Olíumálverk í
íþróttahúsinu
Björn Ólafsson opnar málverka-
sýningu í íþróttahúsinu í Hveragerði
á morgun. Bjöm sýnir olíumálverk
sem máluð eru á síðustu 2 árum.
Sýningin stendur til 25. júní. Sýning-
in er opin alla daga frá kl. 10-18.
Sýningar
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16.
Hoggmyndagarðurinn er opinn daglega kl.
11-18.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Sýning á verkum í eigu safnsins. Opið laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-17. Kaffistofan er
opin á sama tíma.
Listinn
gallerí - innrömmun
Siðumúla 32. simi 679025
Uppsetningar eftir þekkta islenska málara.
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18
og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, simi 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl.
14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Þar stendur yfir 6. norræni listatvíæringurinn,
„Borealis 6". Á sýningunni eru verk eftir 8
listamenn undir þemanu Orka og viddir. Leið-
sögn er um sýninguna i fylgd sérfræðings á
hverjum sunnudegi kl. 15. Sýningunni lýkur
20. júni.
Listmunahúsið
Tryggvagötu
Samsýning á vegum Óháðrar listahátiðar,
Ólétt '93, hófst miðvikudaginn 9. júni. Á sýn-
ingunni eru myndverk og skúlptúrar eftir 20
listamenn. Sýningin stendur til laugardagsins
26. júni og er opin daglega kl. 10-18 nema
sunnudaga kl. 14-18.
Portið
Hafnarfirði
Tarnús sýnir málverk og skúlptúr. Þetta er 14
einkasýning Tarnúsaer en hann hefur auk
þess tekið þátt í samsýningum. Portið er opið
alla daga kl. 14-18.
Safn Ásgrims Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, sími 13644
Safnið er opið almenningi um helgar kl.
13.30-16.
Snegla listhús
Grettisgötu 7 v/Klapparstig
I tengslum við Óháða Listahátíðina er í Sneglu
samsýning á málverkum, keramik, textíl og fl.
Þær 10 konur, sem sýna, eru úr hópi þeirra
15 kvenna sem reka Listhús Sneglu. Sýningin
stendur frá 10. til 26. júní.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s.
654242
Sjóminjasafnið er opið alla daga frá júní út
september kl. 13-17.
Stöðlakot
Bókhlöðustig 6
Þar stendur yfir fyrsta einkasýning Ragnhildar
Ragnarsdóttur. Á sýningunni eru grafíkverk
sem unnin voru á sl. vetri. Þau bera nafnið
„Smáar myndir úr náttúrunni". Ragnhildur
hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum hér
heima og erlendis. Sýningin stendur til 20.
júní og er opin daglega kl. 14-18.
Sýningarsalurinn annarri hæð
Laugavegi 37
Þar stendur yfir sýning á verkum skoska lista-
mannsins Alans Johnston. Sýningin er opin
miðvikudaga frá kl. 14-18 út júnímánuð.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarfirði, sími
54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59, sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmyndir,
málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslun-
artima þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga
og föstudaga kl. 12-18 og á laugardögum
kl. 12-16.
Þjóðminjasafn Íslands
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17.
Myndlistarsýning í Borgar-
kringlunni
Þessa dagana stendur yfir í Götugrill-
inu í Borgarkringlunni sýning á
verkum Péturs Gauts Svavarssonar
myndlistarmanns. Sýningin stendur
til 15. júní og er opin á opnunartíma
verslana Borgarkringlunnar.
Ásmundur Sveinsson
í Perlunni
Laugardaginn 12. júní kl. 14 verður
opnuð í Perlunni við Öskjuhlíð sýn-
ing á 6 höggmyndum eftir Ásmund
Sveinsson en á þessu ári eru liðin 100
ár frá fæðingu hans og er sýningin
sett upp af þessu tilefni. Sýningin
stendur til 29. ágúst en Perlan er opin
alla daga frá kl. 9-23.30.
Grafik i Kænunni
Margrét Guðmundsdóttir sýnir graf-
íkmyndir í Kænunni, Óseyrarbraut
2, Hafnarfirði. Sýningin er opin alla
'/irka daga kl. 9-17. Sýningunni lýkur
30. júni.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58. simi 24162.
Opið daglega kl. 11-17.
Myndlistarsýning Gilfélaga
7 Gilfélagar sýna pappírsverk og grafík í til-
raunasal félagsins í Kaupvangsstræti 23. Sýn-
ingin verður opnuð 12. júní kl. 14 og er opin
daglega kl. 14-19. Henni lýkur 20. júní. Þeir
sem sýna eru Dröfn Friðfinnsdóttir, Erlingur
Valgarðsson, Freyja Önundardóttir, Guðrún
Pálína Guðmundsdóttir, Joris Rademaker,
Jón Laxdal og Ólöf Sigurðardóttir