Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Qupperneq 6
22
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
Milljónamæringurinn John Gage (Robert Redford) hittir Diana Murphy (Demi Moore) á spilavíti og hrífst af henni.
Sam-bíóin og Háskólabíó:
Ósiðlegt tilboð
I Ósiölegu tilboöi (Indecent Propo-
sal) er hamingjusömu hjónabandi
ógnað af milljónamæringnum John
Gage (Robert Redford) sem býður
David Murphy (Woody Harrelson)
og Diana Murphy (Demi Moore)
milljón dollara ef Diana er til í að
eyða nótt með honum. Hjá Gage er
þetta ekki mikið mál enda segist
hann kaupa fólk á hveijum degi og
þeir séu smámunasamir sem segja
að ekki sé hægt að kaupa alla. Eins
og nærri má geta er freistingin mikil
hjá Murphy-hjónunum sem hafa
ekki allt of mikið af peningum á milh
handanna. Indecent PropQasal, sem
er rómatísk gamanmynd, fjallar síð-
an um tilboðið og afleiðingarnar.
Leikstjóri myndarinnar er Adrian
Lyne sem hlaut óskarsverðlaun fyrir
Fatal Attraction. Lyne hefur ávallt
verið umdeildur leikstjóri en aðrar
þekktar kvikmyndir sem hann hefur
leikstýrt eru Flashdance, 914 Weeks
og Jacob’s Ladder. Lyne er breskur
að uppruna og hreifst snemma af
frönsku nýbylgjuleikstjórunum
Jean-Luc Goddard, Francois Truff-
aut og Claude Chabrol og þau áhrif
má sjá í einstökum kvikmyndum,
kannski sérstaklega Jacob’s Ladder.
Fyrsta kvikmyndin sem Lyne leik-
stýrði var Foxes 1988 en í henni lék
meðal annars Jodie Foster. Lyne,
sem vinnur nú eingöngu í Bandaríkj-
unum, á samt heimih sitt í Frakk-
landi.
-HK
Regnboginn:
Tveir ýktir I
Tveir ýktir I eða National Lampo-
on’s Loaded Weapon I, eins og mynd-
in heitir á frummáhnu, er ærslamik-
il gamanmynd sem gerist í Los Ange-
les og er örugglega allt öðruvísi en
allar aðrar löggumyndir sem -þar
hafa gerst. Aðalpersónan er Jack
Colt (Emiho Estevez). Hann byrjar
daginn ahtaf á heimalöguðum kokk-
teh sem er blanda úr mörgum vínteg-
undum. Þegar myndin hefst er hann
að fá nýjan félaga, Wes Luger (Samu-
el L. Jackson), sem er að komast á
eftirlaun og saman eru þeir ákveðnir
í að komast að því hver myrti fyrr-
verandi félaga Lugers, Billie York,
en ekki er látið uppi hver þaö er sem
leikur hana. Áhorfendur eiga að geta
sér til um það en áður en þeir félagar
geta farið að leysa morðgátuna verða
þeir að ná saman en grunnt er á því
góða á milli þeirra.
Auk þeirra Estevez og Jacksons
leika í myndinni Tim Curry, Kathy
Ireland, F. Wilham Shatner, Murray
Abrahams, Erik Estrada og Charlie
Sheen.
Leikstjóri myndarinnar, Gene
Quintano, er ekki þekkt nafn enda
hggja ekki eftir hann margar myndir
en hann hefur áður leikstýrt tveimur
gamanmyndum, For Better or for
Worse og Why Me. Hann skrifaði
einnig handrit að Pohce Academy 3
og 4. Tveir ýktir I er önnur tveggja
mannsins Jacks Colt með alvæpni
og tilbúinn til átaka.
mynda sem hann hefur leikstýrt sem
komið hafa á markaðinn á þessu ári,
hin er Cop and a Half með Burt Reyn-
olds í aðalhlutverki.
-HK
Grái fíðringurinn
Husbands and
Wives er ekki að-
eins í hópi bestu
kvikmynda
Woodys Allen
heldur ein fárra
sem hafa fengið
góða aðsókn 1
Bandaríkjunum.
Sú aðsókn skap-
ast að hluta til af
því að margt í
myndinni bendir til þess sem gerðist í
raunveruleikanum rétt eftir að mynd-
inni lauk eins og frægt er orðið. Áhen
leikur sjálfur aðalhlutverkið, miöaldra
mann sem er í sambúð. Hann verður
hrifinn af ungri stúlku, sem er nemandi
hans og sambúöarsht veröa, en þó ekki
fyrr en þau hafa fylgst með vinafólki
ganga í gegnum skilnað. Husbands and
Wives er ekki aöeins ádeha á rótleysi
fólks í neysluþjóðfélaginu heldur einnig
bráðskemmtheg og hefur Ahen sjaldan
skrifað jafn skemmthegt handrit.
HUSBANDS AND WIVES - Útgef. Skifan.
Leikstjóri: Woody Allen. Aðalhlutverk Woddy
Allen og Mla Farrow.
Bandarísk, 1992 - sýningartími 103 mín.
Leyfð öllum aldurshópum. _ _ -HK
Forsetadóttur rænt
Einaðalpersón-
an í Project
Shadowchaser er
háþróað vél-
menni sem
stjórnar hryðju-
verkasveit sem
hertekur sjúkra-
hús. Ástæðan
fyrir hertökunni
er óljós þar th
lögreglan kemst
að því að einn af gíslum ræningjanna
er dóttir forseta Bandaríkjanna. Lög-
reglan óskar eftir aðstoð frá arkitekt
hússins sem er í fangelsi. Rangur mað-
ur mætir á staðinn, fyrrverandi fót-
boltastjama sem dæmdur var fyrir
morð. Hann kemur samt að góðum
notum þótt ekki sé hann arkitekt.
Project Shadowchaser er dæmigerður
ffámtíðarþriher þar sem tæknidehdin
sér um skemmtunina en söguþráður
er frekar rýr og leikarar afleitir.
PROJECT SHADOWCHASER - Háskólabfó.
Leikstjórl: John Eyres. Aðalhlutverk: Martin
Kove og Meg Foster.
Bandarfsk, 1992 - sýningartimi 88 mfn.
Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK
Sölumenn á veiðum
David Mamet er eitt ahra besta
leikskáld í Bandaríkjunum nú og
er leikrit hans, Glengarry Glen
Ross, sönnun þess, ótrúlega
hnitmiðaður og sterkur texti sem
sjálfsagt er enn áhrifameiri í leik-
húsi en í kvikmynd, þótt frábærir
leikarar komi honum vel th skha
í góðri kvikmynd.
Sögusviðið er fasteignasala og
aðalpersónurnar eru fasteigna-
salar. Eigendur fasteignasölunn-
ar eru ekki ánægðir með gang
mála enda kemur fljótlega í ljós
að það er aðeins einn þeirra sem
stendur sig vel í stykkinu. Hinir
þrír eru á niðurleið og eru allir
hræddir um að missa atvinnuna.
Sú hræðsla minnkar ekki þegar
eigendurnir senda „hákarl” á
fasteignasöluna, sem tekur þá
heldur betur í karphúsið um leið
og hann tilkynnir um verðlauna-
samkeppni. Sá sem selur mest
fær Cadillac, sá sem er í öðru
sæti hnífasett og sá sem lendir í
þriðja sæti fær uppsagnarbréf.
Mikh örvænting grípur um sig
meðal fasteignasalanna og gerðir
þeirra verða örvæntingarfyllri
I WW íMK íifi »1 M m
I
i
I
»
»
\
H
eftir því sem hður á myndina.
Th þess að sterkt, dramtískt
leikverk verði að góðri kvikmynd
þarf einvalalið leikara og þeir
leikarar eru svo sannarlega til
staðar í þessari áhrifamiklu kvik-
mynd, A1 Pacino, Jack Lemmon,
Ed Harris og Alan Arkin leika
fasteignasalana og er erfitt að
taka einn fram yfir annan, þvhík-
um tökum ná þeir á persónum
sínum. En sjálfsagt verður túlk-
un Jacks Lemmon á fasteigna-
sala, sem má muna betri tíð,
_ ógleymanleg öhum sem sjá. Ör-
væntingin er nístandi en um leið
sýnir hann harðsvíraðan mann
sem mundi ekki hika við að fóma
félaga sínum til að ná árangri.
Sá leikari, sem kemur mest á
óvart, er Alec Baldwin sem hefur
hingað til ekki verið í skapgerð-
arhlutverkum en sýnir mjög
sterkan leik í litlu hlutverki.
Glengarry Glen Ross er gerð
fyrir kvikmyndahús og er leitt th
þess að vita að slík úrvalskvik-
mynd með margverðlaunuðum
úrvalsleikurum skuli ekki finna
leið inn í kvikmyndasali höfuð-
borgarinnar. Annars er Glen-
garry Glen Ross þannig að hún
nýtur sín ágætlega á sjónvarps-
skerminum.
-HK
GLENGARRY GLEN ROSS
Útgelandl: SAM-myndbönd.
Lelkstjórl: James Foley.
Aóalhlutverk: Al Paclno, Jack Lemm-
on, Alec Baldwin, Ed Harris, Alan Ark-
in, Kevin Spacey og Jonathan Price.
Bandarisk, 1992 - sýningartími % min.
Bönnuó börnum innan 16 ára. -HK
DV-myndbandalistiim
er önnur tveggja nýrra
mynda sem koma inn á llstann þessa vlkuna. Á myndinni er
Deborah Unger í htutverk listaverkasala sem leiatr á náðir
sáilræðings.
1 (6) The Last of the Mohican
2 (1) Sister Act
3 (2) Single White Female
4 (5) Boomerang
5 (11) Raising Cain
6 (10) Dutch
7 (9) Bitter Moon
8 (7) White Men Can’t Jump
(8) Rapid Fire
(14) Citizen Cohn
11 (4) Thunderheart
Artide99
13 (3) Patriot Games
14 (-) Whisper in the Dark
15(12) Housesitter
★★
Læknar í klanari
Article 99 gerist
nær eingöngu á
sjúkrahúsi fyrir
fyrrverandi her-
menn og íjallar
um lækna sem
sinna störfum
sínum en eru upp
á kant við yfir-
stjóm sjúkra-
hússins sem
starfar sam-
kvæmt peningalögmálinu. Kiefer Sut-
herland leikur nýgræðing í lækna-
stéttinni með háar hugmyndir en er
fljótur að komast niður á jörðina.
Article 99 er hröð kvikmynd og er
mikið um að vera. Gallinn er að stund-
um er maður ekki viss um hvort er
um spítalaútgáfu af M.A.S.H að ræða
eða dramtíska spennumynd. Líður
myndin nokkuð fyrir það og verður
sundurlaus, en mörg atriði eru vel
gerð og spennandi.
ARTICLE 99 - Útgef. Skilan.
Leikstjóri: Howard Deutch. Aðalhlutverk:
Ray Liotta og Kiefer Sutherland.
Bandarisk, 1992 - sýningartími 97 min.
Leyfð öl
★ !4
Sáli
Þrhlerinn Whi-
sper in the Dark
sækir í margar
fyrirmyndir,
sjálfsagt of marg-
ar, því dæmið
gengur ekki upp.
Aðalpersónan er
sálfræðingurinn
Ann Hecker sem
hefurthmeðferð-
ar tvo sjúkhnga.
Annar þeirra er stúlka sem .segir sögur
af ástríðufuhu sambandi sínu við of-
beldisfuhan karlmann, sögur sem hafa
mikil áhrif á Hecker. Líf þessara
þriggja persóna tvinnast síðan saman
þegar Hecker kynnist myndarlegum
manni og verður ástfangin. Fyrri hluti
myndarinnar er nokkuð góður og
söguþráðurinn tekur óvæntar stefnur,
en eftir því sem á líður gerast brota-
lamirnar meira áberandi og endirinn
er óvæntur en jafnframt afskaplega
heimskulegur.
WHISPERSIN THE DARK - ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Christopher Grove. Aðalhlutverk:
Annabella Sciorra og Jamey Sheridan.
Bandarísk, 1992 - sýningartimi 104 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK