Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Síða 3
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1993
29
VHIMLIIÐ
WATERBOYS - DREAM HARDER
* * * * - Rolling Stone
„Tónlist Scott hefur greinilego nóð
fókus ó Dream Harder, sjöttu og
þroskuðustu plötu
hljómsveitorinnor".
RADIOHEAD - PABLO HONEY
*** - Q
Pablo Honey er frumburður heitasta
rokkbondsins í dog og þeir eigo
heiðurinn af heitosta rokkloginu í
dag „Creep".
KRINGLUNNI SÍMI: 600930
STÓRVERSLUN LAUGAVEGI26 SÍMI: 600927
LAUGAVEGI96 SÍMI: 600934
EIÐIST0RGI SlMI: 612160
tónliGt:
* * j *A
Viljum vekja fólk
til umhugsunar
- segir Brad Wilk, trommuléikari Rage Against the Machine
„Með þessu nafni, Rage Against the
Machine, erum við að skírskota til
þess neikvæða í bandarísku þjóðfé-
lagskerfi, kerfi sem er sniðið að þörf-
um hinnar hvítu vel stæðu millistétt-
ar en gleymir hinum sem minna
mega sín,“ sagði Brad Wilk trommu-
leikari Rage Against the Machine í
viðtali við blaðamann skömmu áður
en hljómsveitin steig á svið á Lista-
hátíð Hafnarfjarðar 1 Kaplakrika.
Uppselt var á tónleikana og þóttu
þeir heppnast í aUa staði vel. Aðeins
hálft ár er síðan fyrsta plata Rage
Against the Machine kom á markað
og hefur sveitin náð undraverðri
hylli hér á landi á stuttum tíma. Rage
Against the Machine flytur hressi-
legt rokk kryddað sterkum ádeilu-
textum eftir Zack söngvara en hann
þykir hallur undir sósíalisma og hef-
ur ekki farið leynt með aðdáun sína
á byltingarhetjunni Che Guevara.
Brad Wilk segir ómögulegt að skil-
greina tónlist hljómsveitariimar, til
þess séu áhrifavaldamir of margir,
og ólíkir sem Miles Davis og Public
Enemy. Hann segir tónlist Rage Aga-
inst the Machine ekki þeirrar teg-
undar sem fólk setur á fóninn til að
flýja raunveruleikann, þvert á móti.
„Við horfumst í augu við stað-
reyndir, jafnvel þó þær séu óþægileg-
ar og í raun krefst tónhst hljómsveit-
Rage Against the Machine. Heillaði unga áheyrendur á Kaplakrika.
arinnar þess að áheyrendur setji sig
inn í textana. Þeir leika stórt hlut-
verk.“
Ungir og reiðir
- Sumir halda því fram að besta
rokkið á hveijum tíma hafi komið frá
ungum reiðum mönnum sem vilja
breyta heiminum. Eruð þið í Rage
Against the Machine ungir og reiðir.
„Það væri rangt af mér að segja að
við værum það ekki,“ segir Brad.
„Við erum menn með tilfinmngar og
reiðin er ein þeirra. Hún er á vissan
hátt drifkraftur í tónlistinni, elds-
neytið sem drífur okkur áfram. Það
er mjög auðvelt að verða reiður og
sár út í kerfið þegar maður sér á
hveijum degi heimilislaust fólk sem
býr í pappakassa eða innkaupkerru.
Óréttlætið er alls staðar hvort sem
menn tala um Persaflóastríðið eða
barsmíöamar á Rodney King.“
- Hljómsveitin er að slá í gegn og
slíku fylgja periingar og lystisemdir.
Er ekki hætta á að ykkur renni reið-
in sem virðist svo mikilvæg í tónlist-
inni?
„Nei, ég óttast það ekki. Okkur
rennur reiðin þegar við sjáum
vandamál leyst og réttlæti í fram-
kvæmd. Slíkt gerist hins vegar ekki
á einni nóttu."
- Verða áheyrendur aldrei leiðir á
ádeilunni?
„Þaö vona ég,“ segir trymbillinn.
„Við viljum frá viðbrögð frá fólki
hvemig sem þau em. Við viljum
frekar að fólk sé ósammála því sem
við erum að segja en að það taki ekki
afstöðu. Mér er sama þó fólki leiðist
ádeilan svo lengi sem það hugsar og
kemur með rök á móti því það sýnir
að við höfum vakið það til umhugs-
unar og það er okkur mikils virði,“
sagöi Brad Wilk um leiö og hann
þaut í sánd tékk á sviðinu í Kapla-
krika. -SMS
WORLD PARTY - BANG !
***** -Q
„Bong! umvefur mann i stórfengleik
sínum... Ef borgir væru byggðar úr
tónlist Korl Wollingers myndum við
öll lifa homingjusöm oð eilífu"
Gaia gefin út í Bandaríkjunum:
Langtíma samn-
ingur við Valgeir
og Eyþór
STING-TEN SUMMONER'S TALES
****-Q
„...stendur fyrir margbrotið popp.
Ekkert nemo ofbrogð ".
GARYMOORE-
**** - Q
„Það er ekki spurning oð Gory
Moore er só besti.... Allt sem þú
þróir að heyro fró Clopton færð þú
fró Moore".
Fyrir rúmu einu og hálfu ári kom
út plata Valgeirs Guöjónssonar,
Gaia, sem segja má að sé fyrsta ís-
lenska platan sem flytur nýaldar-
tónlist sem á auknum vinsældum að
fagna í heiminum. Frekar lítið fór
fyrir útgáfunni hér á landi, en fljót-
lega var farið að vinna að því að
koma plötunni á markað erlendis og
hefur sú viðleitni borið árangur því
bandaríska útgáfufyrirtækið Wind-
ham Hill er um þessar mundir að
gefa út Gaiu og hefur um leið gert
langtíma samning við Valgeir Guð-
jónsson og Eyþór Gunnarson sem sá
um útsetningar á Gaiu, um að starfa
saman undir heitinu Gaia og gefa út
átta geislaplötur á næstu árum.
Windham Hill hefur sérhæft sig í
útgáfú nýaldartónlistar og hefur
starfað að slíkri útgáfu síðastliðin 15
ár og er eitt fremsta útgáfúfyrirtæki
á þessu sviði. Hingað til hefur fyrir-
tækið eingöngu gefið út tónlist með
bandarískum tónhstarmönnum, en
hefur nýverið tekið þá stefnu að
stækka hringinn og gera samninga
viö listafólk frá öðrum heimshlutum.
Kaus Windham Hill að stofiia til sam-
starfs við tvo evrópska aðila. Gaia
er annar aðilinn og hinn er Norð-
maðurinn Öystein Sevág, en plata
hans, Link, kom nýlega út og klífur
nú Nýaldarlistann bandaríska hægt
en mjög örugglega. Þar sem samn-
ingsgerðin vegna Gaia tók nokkum
tíma og endurvinna þurfti umbúð-
imar að hluta hefúr tekið lengri tíma
að gera Gaiu klára til útgáfu vestan-
hafs en áætlaö var.
Valgeir Guðjónsson og Eyþór
Gunnarsson koma til með að njóta
sérþekkingar Windham Hill á þess-
um tónlistarmarkaði. Þeir munu
bregða sér vestur um haf til að kynna
tónlist sína, fara í viötöl og annað
þess háttar en hljómleikahald er ekki
fyrirhugað að sinni. Þeir em þegar
famir að vinna að nýjum verkum
sem verða brátt tilbúin til hijóðritim-
ar. -HK
Vaigeir Guðjónsson. Gaia var samin
og hljóðrituð í tengslum viö sam-
nefnt víkingaskip sem sigldi frá Nor-
egi til Bandarfkjanna til að minnast
siglingar Leifs Eirikssonar.
SKÍFAN: