Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Blaðsíða 4
30 1 t@niist mmmfm & Mii Ékkert nema eigingimin - segir Björk Guðmundsdóttir um Debut „Grænn frostpinni og lambalæri fara ekki vel saman,“ segir Björk Guðmundsdóttir þegar hún er spurð hvers vegna hún hafi hafnað tilboð- um um samstarf frá Peter Gabriel, Bryan Ferry, Robbie Robertson og Johnny Lydon. „Efnafræðin verður að vera í lagi þegar tónlistarmenn hefia samstarf. Ég held að fólk verði að kynnast fyrst sem vinir áður en það verður samstarfsfólk. Þar áð auki eru þetta allt gamlir kallar sem eru búnir að vera. Mér finnst meira spennandi að vinna með ungu fólki sem er að byija og hefur sprengi- krafúnn." Þetta er Björk. Blátt áfram ogheið- arleg eins og tónlistin hennar. í aug- um útlendinga er Björk fulltrúi hins frumlega og skapandi í tónlist. ís- lendingum fixrnst hún hins vegar fyrst og fremst kynlegur kvistur og spennandi sem slik. - Þarf maður að vera öðruvísi til að slá í gegn eins og þú gerðir með Syk- urmolunum og nú sóló? „Ég held það sé ekki spuming að vera öðruvisi heldur að vera sam- kvæmur sjálfum sér,“ segir Björk. „Ef maður er að herma eftir öðrum heyrist þaö um leið. Þú heyrir það líka strax hvort tónlistarmaður hef- ur gert plötu af því að hann þurfti að gera hana eða af því hann haíði gaman að því.“ Þann 5. júlí kemur fyrsta sólóplata Bjarkar í 15 ár á markað og athyglin New Order-Republic ★★★ Eigulegur gripuf sem svlkur hvorki gamla aödáendur né þá sem eru að kynnast New Order í fyrsta sinn -SMS Dwight Yoakam -This Time ★★★ Tónlist Yoakams einkennist af afburöagóðum lögurn, einföld, melódísk og grípandi. -SÞS Suede-Suede: ★★★ Hrífandi gripur fyrir þá sem krefjast einhvers af þeirri tónlist sem þeir hlusta á. -SMS Bruce Springsteen -In Concert: ★★★ Sker sig litt úr ööru hljóm- leikaefhi frá Springsteen. Þétt og örugg spilamennska. -ÁT Lipstick Lovers -My Dingaling: ★★★ Heillandi og óvenjuþroskað byrjendaverk. Blússkotið rokk á amerisku línunni sem fiéttast utan um myndræna texta. -SMS Pláhnetan-Speis ★★★ Pláhnetan hefur alla burði til aö gera stóra hluti og má vel við þessa plötu una. -SÞS GCD-Svefnvana: ★★★ Talsverð framför frá fyrri plötuó. Rokk í sinni einföidustu mynd. -ÁT Björk Guðmundsdóttir. Debut, það persónulegasta sem hún hefur gert. sem hún hefur vakið ytra er með ólíkindum. Strax og upptökm: hófust í vetur birtist stórt viðtal við Björk í virtum blöðum í Bretlandi, m.a. Sunday Times. Síðan hefur hún verið á forsíðu tímaritsins i-D, Human Be- haviour var valin smáskífa vikunnar í Melody Maker og MTV sjónvarps- stöðin hefur látið gera sérstakan þátt um Björk. Gripurinn sem fjaðrafokinu veldur heitir Debut. „Þetta er það persónulegasta sem ég hef gert og þess vegna valdi ég þetta nafn Debut (fyrsta plata) þó ég hafi verið að gera plötur síðan ég var 11 ára. Á Debut sem ég öll lög og texta og útset ásamt Nellee Hooper (Soul H Soul). Ég þurfti að gera þessa plötu, ef ég hefði ekki gert hana hefði ég dáið með samviskubit yfir því að hafa ekki þorað. Lögin eru valin af stórum lager og ég reyndi að hafa þau eins ólík og hægt var. Ólíkar stemningar, mismunandi karakter- ar.“ Lengi að sann- færastumrétt- mætiplötunnar - Lengstum hefurðu veriö í hljóm- sveit. Hvernig var að vinna ein? „Þetta er eins og svart og hvítt. Ég er ekkert sérstaklega stjómsöm og hef takmarkaða þörf fyrir það skipta mér af verkum annarra. Það tók því langan tíma fyrir mig að réttlæta gerö þessarar plötu fyrir sjálfri mér. Eg sannfærðist á endanum um að rétt væri að gera plötu sem væri al- gerlega eftir mínu höfði, plötu sem væri ekkert nema eigingimin. Ég ákvað að ráða annað fólk til að fram- kalla mínar hugmyndir og það eitt er mjög langt frá hugmyndafræði Sykurmolanna." - Sykurmolamir skiptu því á milli sín að fara í viðtöl og kynna plötur. Nú ertu ein? „Þetta er gríðarlegt álag og kannski sérstaklega af því að ég hef enga sér- staka þörf fyrir það að tala um plöt- una. Mér finnst það á vissan hátt flækja málið að lesa viðtöl um eitt- hvað sem kallast list. Tónlistina þarf ekki að útskýra. Þetta snýst hins vegar allt um peninga, um það hvort ég selji nógu mikið til að geta farið í tónleikaferð með tíu manna band og hvort ég fái aö gera aðra plötu.“ Debut er plata sem bíður upp á marga spennandi hluti. Á henni er ádeila, ást, dramatík og kímni. Hún hefur að geyma djass, danstónlist, hörpuslátt og indverska strengja- sveit. Björk segir þama á ferð hljóð- færi sem hafi verið fjarri Sykurmol- unum en hún hafi dáð mjög lengi. „Ég hef hlustað töluvert á hörputón- list og komist að því að hún á lítið skylt við engla þó hún sé falleg. Mér hefur alltaf þótt brass geggjað, hvort sem það er x Kardimommubænum eða avant-garde djassi. Ég hafði ákveðna hugmynd uxn að koma sí- gauna fiðlum á plötuna og var að reyna að þreifa fyrir mér í þeirri deild þegar ég kyxmtist indverskum bíómyndum. Kvikmyndatónlistin þeirra finnst mér frábær eins og reyndar indversk menning í heild. Ég umgengst Indveija mjög mikið þar sem ég bý í London. Þannig fékk ég vitneskju um fyrirtæki í Bombay sem semur, útsetur og tekur upp tónlist í þijár bíómyndir á dag. í þessa verksmiðju sendi ég tvö lög, Venus as a Boy og Come to Me, og fékk hana til að gera strengja kafla fyrir mig. Það kom glimrandi vel út,“ segir Björk Guðmundsdóttir sátt við guð og menn og þá sérstaklega við sj álfa sig fyrir að hafa þorað. -SMS pl@tugagnrýni Ýmsir-Heyrðu: Naervarla eyrum fjöldans Safnplötur þar sem safnaö er sam- an vinsælum lögum úr ýmsum átt- um auk laga sem veðjað er á að verði vinsæl eru þeim annmarka háðar að stundum hitta útgefendur alls ekki á réttu lögin. Sú virðist að minnsta kosti vera raunin með safn- plötuna Heyrðu sem á að heita ís- lensk en stendur vart undir nafni þar sem aðeins fjögur lög af 19 eru íslensk. Ekki vantar að á plötunni séu vin- sæl lög en í of mörgum tilfellum eru þetta lög sem eru búin að lifa sitt fegursta, lög eins og All That She Wants, Behve og What Is Love sem til dæmis eru búin að vera á ís- lenska listanum vikum saman. Af- gangurinn af erlendu lögunum er svo ýmist lög sem ekki náðu al- mennum vinsældum eða þá ný og óþekkt. Og þau einu þeirra sem eitt- hvað er varið í eru lagið For To- morrow með hljómsveitinni Blur og Is It Láke Today með Worid Party en hvorugt verður neinn smellur þógóðséu. íslensku lögin erufjögur eins og áður gat og þar af tvö „gömul“. Annað er órafmögnuð útgáfa Bubba Morthens á Jakkalökkum, útgáfa sem ekki gengur fyllilega upp, það er eins og lagið þurfi eitthvað meira en bara einn kassagítar. Hitt „garnla" lagið er framlag íslands til Eurovision, Þá veistu svarið, lag sem er sama marki brennt og flest önnur Eurovisionlög; er gleymt og grafið jafnskjótt og útsendingu frá keppninnilýkur. Hin tvö innlendu lögin eru öhu meira spennandi, annað er nýtt lag frá Ný danskri, Foss, en hitt er lag með SSSól upp á ensku 7 Out. Foss er býsna skemmtilegt lag, en líkast til of kaflaskipt til að ná vinsældum enda vafalaust ekki samið fyrir vin- sældahstana. 7 Out er ekta SSSto- nesari, þéttur rokkari þar sem Mick Jagger er endurborinn í Helga Bjömssyni, þokkalegt lag en ekkert meira. Og það má kannski segja það sama um plötuna Heyrðu sem heild að þetta er þokkaleg plata en ekkert meira. SigurðurÞórSalvarsson Stjómin-Rigg: ★ ★ 'Á Gamalt ognýtt Rigg er sumarplatan í ár frá Sfjóminni. Það er orðinn fastur Uð- ur aö þessi vinsæla hljómsveit sendi frá sér plötu í sumarbyrj un og haldi síðan í kjölfarið í reisu um landið. Eins og kunnugt er hafa orðið tals- verðar breytingar á hljómsveitinni og það er fyrst nú sem áherslubreyt- ing er orðin áberandi. Tónhstin er heilsteyptari, sem stafar fyrst og fremst af þvi að nú er hljómsveitin komin með fastan lagahöfund, Frið- rik Karlsson, og em langflest lag- anna á Rigg efiir hann. Rigg er samansett úr gömlum og nýjum lögum og hafa eldri lögin fengið nýjar umbúðir og er forvitni- legt að heyra Stjómina leika tvö af sínum þekktustu lögum, AUa leið M joi'itfi ' 1 : * f r M é C: f RIGG og Þessi augu, í órafmögnuöum út- setningum (unplugged), eins og er vinsælt meðal þekktra tónUstar- manna um þessar mundir. Það er skemmst fr á því að segja að Stjómin fer ákaflega vel með lögrn, söngur Sigríðar Beinteinsdóttur er tær og aUur undirleikur góður. Sjálfsagt em það ekki margar íslenskar hljómsveitir sem gætu leikið þetta eftir Stjóminni. Ný lög era fjögur og það er í þess- um lögum og tveimur öðmm sem komu út fyrir stuttu á safnplötum sem má greina að hljómsveitin hef- ur skapað sér ákveðin stíl sem er mun fastmótaöri en áður. Friðrik, sem hefur einnig samið fyrir Mezzo- forte, skiptir um gír og em lög hans einstaklega melódísk. Er fýrsta lag- ið á Rigg, Nóttin er blá, gott dæmi um vel heppnað lag frá Stióminni. Rigg er þegar á heUdina er Utið áheyrileg, flutningur er aUur fyrsta flokks, en það vantar spennu, lögin Uða í gegn án þess að nokkur há- punktur sé. Hilmar Karlsson Bogomil Font og Milljóna- mæringarnir - Ekki þessi leiðindi ★ ★ ★ Sveifla með stæl Um þessar mundir era þijú ár Uð- in síðan BogomU Font vakti fyrst athygU hér á landi og þá með Djass- hljómsveit Konráðs Bé, hverrar meðlimir vom vel á annan tuginn. BogomU sagði skihð við hljómsveit- ina eftir stutta viðvera og síðan hef- ur þjóðin kynnst honum sem sjéntil- manninmn með kampavínsglasið og silkiröddina. Fyrsta plata BogomUs Fonts og MUljónamæringanna var hljóðrituð á tveimur dansleikjum í Costa del Mosó (Hlégarði) 19. og20. mars sl. Það er fer því betur á því að kaUa hana baUplötu en tónleikaplötu enda skUar hún sjóðandi dans- stemningunni fuUkomlega. TónUst- in er Ufandi og áheyrendur sveittir og í finum filingi. Hljóðlega er platan vel heppnuö en hún var tekin upp á átta rása Dat-tæki, það eina sinnar tegundar á landinu. ÍUjóðfærin vora tekin upp á þetta tæki en að auki var tveggja rása Dat-tæki notað til að taka upp salinn. Með þessu móti fær platan þá fyllingu sem al- mennUeg læf plata verður að hafa. Ekki þessi leiðindi inniheldur 15 lög, flest útlend. Samba, mambó, rúmba og hvað þeir heita allir þess- fr suður-amerísku taktar era ráð- andi á plötunni og lagasmíðarnar era standardar úr ýmsum áttum. ÖC- MILJÓI)! AM .< RING ÁttNIR BrazU, TekUa, Kaupakonan hans Gísla í Gröf, Mambo ítalianó og Rokk-Calypso í réttimum harmon- era í sátt á plötunni. Meðalaldur laga á Ekki þessi leiðindi er líklega í kringum 40 ár og era þau öU sótt í smiðjur þekktra tónskálda utan eitt. Þessi framburður BogomUs og MUljónamæringanna ætti þvi að höfða jafnt til táninga sem elUbelgja. Gleði og gáski era drifkrafturinn á Ekki þessi leiðindi enda er hún sannkaUaður gleðigjafi sem á eftfr að létta lund landans. Það er frá- bært að heyra hvemig svipmikilU stórsveitar tónUst er smekklega komið til skUa af UtilU djasssveit. Viðfangsefni sem vissulega er stórt en Utla djasssveitin leysir það meö stæl. -SnorriMárSkúlason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.