Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1993, Page 3
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 1993
29
Ferðir
Ný feröa- |\|||
handbók, 0111 W JM B M
félagi á feröa-
lagi. er kotnin
út en markmið-
iðmeðhenni er
að stytta börn-
um á öllum
aldri stundir á
ferðalagi og jafnframt hvelja fólk
til að ganga vel um Iandið.
í bókinni, sem unnin er af
Frétta- og fræðsluþjónustunni, er
blanda af skemmtilegu efni og
upplýsingum, svo sem leikir,
brandarar, útilegusöngvar,
skyndihjálp, neyðarnúmer o.fl.
Það er Olíuverslun íslands í
samvinnu við prentsmiöjuna
Odda og íslenska útvarpsfélagið
sem stendur að útgáfunni. í bók-
inni eru afsláttarmiðar gefnir út
af Olís að verðmæti 1.000 krónur.
Bókin fæst á bensínstöðvum
Olis og kostar 100 krónur.
Kaupmannahöfn:
í sumar gefst íslendingum, sem
leið eiga um Kaupmannahöfn,
tækifæri til að ganga á helstu
söguslóðir íslendinga með ís-
lenskum leiðsögumanm.
Farið verðurfrá Ráðhústorginu
á hverjum sunnudegi kl. 10.30 og
alls tekur ferðin tvær til þrjár
klukkustundir. Upplýsingar um
ferðina liggja fyrir hjá ferðaskrif-
stofum og söluskrifstofum Flug-
leiða.
Þeim, sem hafa áhuga á að taka
þátt í gönguferðinni, er bent á að
hafa samband við Ferðaskrifstof-
una Heklu, Sct. Jörgens Ailé 7,
1615 Köbenhavn V, sími 31226699
eða mæta við gosbrunninn á Ráð-
hústorginu á sunnudagsmorgni
kl. 10.30.
Þátttökugjald er um 1.000 krón-
ur.
MS0FNA
lilíSLANDI
sem
Á íslandi eru
mn 70 söfn sem
er mikill Ijöldi
miöaðviðstærð
landsins. Hing-
að til hefur
skort að á ein-
um stað séu til
upplýsingar
um þessi söfii
en nú ■ hefur
verið bætt úr
þvi með til-
komu nýrrar handbókar
neíhist Söfn á islandi.
Það er íslandsdeild ICOM sem
er útgefandi bókarinnar. ICOM,
sem er skammstöfun fyrir The
International Council of Muse-
ums/Alþjóðaráð safna, var stofn-
að 1947 og starfar i tengslum við
UNESCO, menningarstofnun
Sameinuðu þjóðanna.
í bókinni er megináhersla lögð
á opnunartíma og heimilisföng
safna, söfhunarsviö þeirra og
þjónustu við safngesti. Söfn eru
viðkomustaður margra sem ferð-
ast um landiö og er bókinni ætlað
að vísa veginn og leiða fólk á
nýja staði.
Samvinnuferðir Landsýn bjóða nú
lesendum DV upp á tvær nýjar ferð-
ir, þ.e. gönguferð og hjólaferð um
einn fegursta hluta írlands, Wicklow
héraðið. Wicklow héraðið er þekkt
sem skrúðgarður írlands enda víða
mjög fagurt á að líta, ávalar hæðir,
djúpir dalir, vötn umlukin háum
íjöllum og síðan mjög vogskorin
strönd.
Hjólað eftir sveitaveg-
um milli írskra þorpa
Hjólaferðin verður farin 26. júlí og
stendur til 2. ágúst. Hópstjóri er Sigr-
ún Stefánsdóttir, fréttamaður og
mikil áhugamanneskj? um hjólreiö-
ar. Farþegar verða sóttir á flugvöll-
inn í Dublin og þeim ekið til þorpsins
Borris, skammt frá Kilkenny. Þaðan
er hjólað eftir sveitavegum milli-
írskra þorpa og sögustaða í sex daga.
Vegakerfið i Wicklow héraði er mjög gott, sveitavegir malbikaðir og umferð ekki mikil.
Lesendaferðir DV og Samvinnuferða Landsýnar:
Gengið og hjól-
að á írlandi
Á hverju kvöldi er komið í næturstað
á góðu gistiheimili, sveitabæ eöa krá,
sem hlotið hafa viðurkenningu írska
ferðamálaráðsins.
Suð-austurhluti írlands er einn sól-
ríkasti hlúti landsins og þar er að
finna mörg þekkt þorp, bæi og sögu-
staði. Vegakerfið er gott, sveitavegir
malbikaðir og umferð ekki mikil.
Hjólað er á tólf gíra Pioneer Prestige
hjólum og farangur verður fluttur
milli staða tvisvar á meðan á ferðinni
stendur.
Verðið á mann í tvíbýli er 49.555
krónur (stgr. m/sköttum). Innifalið í
verðinu er flug, akstur til og frá flug-
Wicklow héraðið er talið eitt feg-
ursta svæði írlands.
velli, gisting og morgunverður í sjö
nætur, reiðhjól, kort og írsk og ís-
lensk fararstjórn.
Paradís göngumanna
Farið verður í gönguferðina aðeins
seinna, eða 2. ágúst. Hún stendur til
9. ágúst og fararstjóri er hinn kunni
göngumaður Helgi Benediktsson.
Wicklow leiðin svokallaða er vel
merkt leið sem er um 132'km og þekkt
meðal alþjóðlegra göngumanna sem
paradís göngumanna. Gönguleiðir
liggja um heiðar, fjöll og skóga, innan
um dádýr, fé og geitur. Yfirleitt er
gengið um 12-18 km á dag.
Flogið verður til Dublinar og hóp-
urinn sóttur þangað og því næst ekið
til Ashford, lítils sveitaþorps í
Wicklow héraði. Dvalið verður á
sveitahóteli og farið í daglegar, mis-
langar gönguferðir um svæðið.
Verðið á mann i tvíbýli er 39.485
krónur (stgr. m/sköttum). Innifalið
er flug, akstur til og frá flugvelli, gist-
ing, morgunmatur, nesti fyrir dag-
inn, kvöldmatur og írsk og íslensk
fararstjórn.
FERÐAMARKAÐUR
FÉLAGS ÍSLENSKRA FERÐASKRIFSTOFA
SAMA VERÐ TIL ALLRA ÁFANGASTAÐA FLUGLEIÐA ( BANDARfKJUNUM
FORT LAUDERDALE+
NEW YORK - ORLANDO-
BALTIMORE/WASHINGTON
46.700
ORIANIKI NEW YORK-BALTIMOKK
.350 35.025
i
VERÐ FYRIR BORN YNGRI 2JA ARA 4.490KR
Sumarfargjald til Bandaríkjanna hefur aldrei verið jafn hagstætt.
Við bjóðum vesturförum að auki framhaldsflugmiða áfram um Bandaríkin með USAir fráNew
York eóa Baltimore á mjög hagstæðu verði. USAir-flugkortið gildir frá milli tveggja og allt að
tíu áfángastaða í Bandaríkjunum og Kanada. Verð á USAir-flugkorti fer eftir fjölda áfangastaða og
eftir því hvar þeir eru í Bandaríkjunum.
Allar nánari upplýsingar um hagstætt verð á / ‘i-Tlfr DiiaieiguDUum og urvalsgi
færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboárnmrÉm félagsins um land allt, á
ferðaskrifstofunum eða í síma 690 300 (svarað alla 7 daga vikunnarfrá kl. 8 - 18)
bflaleigubflum og úrvalsgistingu
+ Flug hdst 10. septemter 1993.
* Flugvallarskattar, 2.780 kr. f. fúllorðru og 2.125 kr. f. böm upp að 11 ára aldri, eru ekki inniÉddir.
Vetð gildir á tímabilinu 1. júní til ló. september. Siðasta heimflug 15. október 1993. Lágmatksdvöl
er 14 dagar. Hámarksdvöl er 1 mánuður. Farseðil skal bóka og greiða minnst viku íyrir brottfór.
** m.v. gengi 1.7.1993.
E& CE) OATIAS-*
FLUGLEIÐIR,
Traustur ítleuikur feriafélagi ^
Aukaferð
til
Benidorm
9.-25. ágúst
16 dagar á 14 daga verði.
Smiiviiiiiiilerliii'Lmiilsj/ii
ATLAS
- þegar skynsemin r—I ■—
rædur feröinni! ITOJO