Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1993, Page 4
30
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 1993
Ferðir
Hjónin Thor Barðdal og Sigrún Ols-
en (t.h.) með einum gesta sinna,
Lilju Enoksdóttur, sem sótti 'nám-
skeiðið á síðasta sumri.
Reykhólar:
Hvíldar-
og hress-
ingardvöl
Heilsubótardagar á Reykhólum
veröa haldnir í sjötta skiptið í sumar
en það eru hjónin Sigrún Olsen og
Thor Barðdal sem að þeim standa. A
heilsubótardögunum er boðið upp á
sjö daga samveru þar sem lögð er
áhersla á hvíld og betra líf.
Upphaf þessa starfs má segja að séu
veikindi Sigrúnar en hún greindist
með alvarlegan sjúkdóm fyrir tíu
árum og fór upp frá því að leita að
bæöi hefðbundnum og óhefðbundn-
um leiðum til að vinna bug á sjúk-
dómnum.
Á námskeiðunum, sem hlotið hafa
mjög góðar undirtektir fólks á öllum
aldri, er boðið upp á hollt og gott
grænmetisfæði og að sjálfsögðu einn-
ig fisk. Á hveijum degi verða gerðar
jóga æfingar, farið verður í göngu-
ferðir og fólk getur farið í nudd eða
sund en á staðnum er nýuppgerð
sundlaug með þægilegum nuddpott-
um.
Hvert námskeið stendur yfir í sjö
daga og það fyrsta hefst í dag, 12.
júlí. Nánari upplýsingar eru veittar
á Reykhólum í síma 93-47805. -KMH
Aukning á sólarlandaferðum:
Áskriftarferðagetraun DV og Flugleiða:
Sólskinspara-
dísin Orlando
í lok þessa mánaðar verður dregið
um vikuferð fyrir tvo til Orlando í
áskriftarferðagetraun DV og Flug-
leiða. í vinningnum er innifalin gist-
ing á Gateway Inn sem er örstutt frá
Walt Disney World.
Orlando liggur sem næst á miðjum
Flórídaskaga og ekki mjög langt það-
an niður á stórglæsilegar baðstrend-
ur við Atlantshaf og Mexíkóflóa. Á
Florída skín sóhn nánast allt árið um
kring og Bandaríkjamenn kalla hana
sólskinsparadísina. Loftslagið er ein-
staklega þægilegt, sjórinn hlýr og
hreinn og strendumar hvítar en þær
teljast með bestu baðströndum í
heimi.
Skemmtun fyrir
alla fjölskylduna
Eitthvert stærsta leik- og skemmti-
svæði veraldar er í Orlando og þar
eru ótal möguleikar í boði. Má þar
helst nefna Sea World sem er safn
sjávarspendýra og á fáa sína hka í
veröldinni, WetnÞ Wild, risastór
vatnsleikjagarður fyrir börn og ungl-
inga, NASA Kennedy Space Center,
sem eru höfuðstöðvar geimrann-
sókna í Bandaríkjunum, Universal
Studios, ævintýraveröld kvikmynd-
anna, og ekki má svo gleyma Walt
Disney W'orld sem er aðalaðdráttar-
afl Orlando.
Verslanir og
veitingastaöir
Það er ipjög hagstætt að versla á
Orlandosvæðinu. Þar eru um 350
verslanir og verslanamiðstöðvar og
má þar nefna Flórída Mall en það er
risastór „kringla" með 155 verslun-
um.
Á Orlandosvæðinu öllu eru um
3000 veitingastaðir og á boðstólum
er matur viða að úr heiminum. Þar
Einn af frægustu skemmtigörðum í heimi, Wait Disney World, er aðalaðdráttarafl Orlando og þangaó koma árlega
um 20 milljónir ferðamanna.
eru einnig margir mjög góðir suður-
amerískir veitingastaðir. Elsti hluti
Orlando er við Church Street en þar
er eins konar miðbæjar-skemmti-
kjarni með bjórstofum, veitinga- og
skemmtistöðum.
Hér hefur aðeins verið nefnt örlítið
brot af því sem hægt er að taka sér
fyrir hendur í Orlando. Eitt er víst
að engum ætti að leiðast því ótal
áhugaverðir möguleikar eru í boði.
BALDUR Landinn vill sól í sumarfríinu
Veðrið hefur ekki leikið við íslendinga þetta
sumarið þó svo aö nokkrir dagar hafi veriö
mjög hlýir og góðir. Landinn vill sjá sólina þeg-
ar hann loks kemst í sumarfrí og þegar lítið
sést af henni bregða margir á það ráð að fara
til útlanda í sóhna og hitann þar.
DV hafði samband við nokkrar ferðaskrifstof-
ur til að kanna bókanir í utanlandsferöir í sum-
ar og kom þá í ljós að mikil aukning hefur orð-
ið og þá aðallega á síðustu vikum. Vildu flestir
meina að rigningin og leiöindaveðrið, sem gekk
yfir landið fyrir skömmu, hafi haft mikh áhrif
þar á.
„Við fundum fyrir greinilegum kipp þegar
leiðindaveðrið stóð yfir,“ sagði Andri Már Ing-
ólfsson, framkvæmdastjóri Heimsferða. „Á að-
eins tveimur dögum bókuðum við um 150 sæti
og flest sæti sem viö áttum eftir seldust upp.“
Guðrún Sigurgeirsdóttir, aðstoðarsölustjóri
hjá Úrvali-Útsýn, sagði að bókanir hjá þeim
væru búnar að vera góðar í sumar. „Fólki finnst
auðvitað alveg skelfilegt að fara að eyða sumr-
inu innanlands þegar veðriö er svona leiðin-
legt. Náttúrlega vill fólk komast í hlýju og fara
þangað sem það þarf ekki að hafa krakkana
sína með húfu og trefil," sagði Guðrún.
Yfir höfuð hefur orðið aukning á ferðum ís-
lendinga th útlanda og þá eru það hinar hefð-
bundnu sólarlandaferðir, eins og t.d. th Spánar,
Portúgals og Ítalíu, sem eru vinsælastar. Hóp-
urinn sem vhl fara til framandi landa og kynn-
ast einhveiju nýju virðist þó fara stækkandi.
Ilalihtr Stykkislwlmi, 3 93-81120,
Fax 93-81093 - Brjánslœk, U94-2020
Kuldi og rigning valda því að Islendingar leita til útlanda í sumarfríinu þar sem hægt er að slappa af
i sólskini og hita.
-KMH